Morgunblaðið - 29.03.1995, Side 1

Morgunblaðið - 29.03.1995, Side 1
1- SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG D PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1995 BLAD Viðtal 3 Halldór Pétur Þorsteinsson Aflabrögð Aflayfirlit og staðsetning fiskiskipanna Markaðsmál 6 Frysting loðnu- hrogna langt umfram þarfir markaðsins Greinar 7 Þorvaldur Garð- arsson skipstjóri Leigja Rússa á úthafið • ÍSTOG hf. á Patreksfirði hef- ur tekið á leigu rússneska tog- arann Oscher sem mun ein- göngu stunda veiðar á úthafs- karfa á Reykjaneshrygg. Tog- arinn er skráður i Kaliningrad í Rússlandi og er 63 metra lang- ur og 2.300 brúttólestir. Lönd- unarhöfn hans er á Patreksfirði og segir Sigurður Viggósson framkvæmdastjóri ístogs að heimamenn hafi í hyggju að festa kaup á þeim afla sem ekki fer inn á Japan. Togari hefur ekki verið gerð- ur út frá Patreksfirði síðan 1989. Nokkur eftirvænting ríkir því á staðnum enda segir Sig- urður að miklar vonir séu bundnar við þessa útgerð. „Ef við erum samkeppnishæf- ir um verð á þessari frosnu af- urð þá gæti þetta stuðlað að aukinni vinnslu hér á Patreks- firði, “ segir Sigurður. „Þetta er náttúrulega áhætta eins og allt annað í sjávarútvegi. Út- hafskarfi er hins vegar eina fisktegundin sem okkur gefst kostur á að veiða við ísland en við höfum ekki bolmagn til að keppa við stóru útgerðirnar sem ^ eru að kaupa upp allan flotann." f í AÐGERÐINIMI Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Úthafskarfí fínnst víða í landhelginni ^^^mmm^mmm^mmmmmmmmmmm úthafskarfi fannst Erfiðlega gekk að beita S™ ,s‘STS bergmálsmælingum á hann * JgjgZ leiðangri Hafrannsóknastofnunar. Ekki tókst að beita bergmálsmælingum til að meta magn úthafskarfa innan landhelginnar vegna þess hve djúpt hann stóð og vegna þess hve mikið líf var í kringum hann. Nýr leiðangur er fyrirhugaður í Grænlandshaf í sumar. Jakob Magnússon, fiskifræðingur, var leiðangursstjóri á togaranum Víði EA, sem leigður var til fararinnar. Hann segir í samtali við Verið, að því miður hafi ekki reynzt unnt að beita bergmálsmælingum til að meta magn úthafskarfa innan landhelginnar, en markmið leiðangairsins var að kanna magn og útbreiðslu hans innan lögsög- unnar. Því var lögð áherzla á að kanna útbreiðslu úthafskarfans á þessum slóðum og fannst hann víða. Þá varð einnig vart djúpkarfa á sömu slóðum. Stofninn 2,5 milljónir tonna Uthafskarfastofninn var mældur í fyrra og þá talinn vera um 2,5 milljónir tonna. Jakob segir að veiði eins og þá, um 100.000 tonn stefni viðgangi stofns- ins ekki í hættu. Hins vegar hafi hann miklar áhyggjur af stóraukinni sókn í karfann og segir það mjög miður að ekki skyldi takast að koma stjórn á þessar veiðar á fundi NEAFC, fiskveiði- nefndar Norðaustur-Atlantshafsins. Veiðin hafin utan lögsögunnar Annar leiðangur hefur verið ákveð- inn síðari hluta júnímánaðar. Þá verður lögð áherzla á að finna leiðir til að bæta aðferðir við stofnstærðarmælingu og fá gleggri mynd af skiptingu djúp- karfa og úthafskarfa eftir því á hvaða dýpi hann heldur sig. Engin úthafskarfaveiði er enn byrjuð innan landhelginnar, en nokkur erlend skip eru þegar komin á miðin utan hennar. Eftir dræma veiði að undan- förnu voru þau byijuð að setja þokka- lega í karfann nú í vikunni. Fréttir Markaðir • DAVÍÐ Oddssyni for- sætisráðherra hefur verið afhent áskorun með undir- skriftum 117 skipstjóra frá Hornafirði til Snæfellsness þess efnis að þorskveiði- kvóti ársins verði aukinn um 50.000 tonn vegna mik- illar þorskgengdar á flest- um miðum. Oddur Sæ- mundsson skipstjóri á Staf- nesi KE-130 segir, að skip- stjórarnir séu alls ekki á móti friðunaraðgerðum, en það hefði verið gengið of langt í þá átt./2 Hátt verð á leignkvóta • MARKAÐSVERÐ á leigukvóta á þorski er 95 kr/kg um þessar mundir og hefur aldrei verið hærra. Þess má geta að kílóið af óslægðum þorski seldist á 96,53 krónur á Fiskmarkaði Breiðafjarðar fyrir síðustu helgi. Björn Jónsson hjá LÍU segir að þeir sem næli sér í þorskkvóta á þessu verði geri það einungis til að halda veiðileyfinu./4 Flytja inn færavindur • RAFBJÖRG hefur hafið innflutning á nýjum tölvu- stýrðum færavindum fyrir smábáta en þær eru fram- leiddar hjá Belitronic í Sví- þjóð sem er brautryðjandi í framleiðslu vörunnar. Eldri vindur frá fyrirtæk- inu, sem í daglegu tali hafa verið kallaðar JR-vindur, hafa verið fluttar inn til landsins um langt árabil, fyrst af J. Hinriksson en Rafbjörg hefur haft umboð- ið með höndum frá árinu 1988./5 Smábátar bíða styrkja ESB með 90% grálúðunnar • GRÁLÚÐUSTRÍÐ ESB og Kanada heldur enn áfram. í því \jósi er ekki úr vegi að líta á hvernig grá- lúðuaflinn á umdeilda svæð- inu hefur þróazt undanfarin ár. Aflinn hefur verið frem- ur lítill lengst af en aukizt mikið þijú síðustu ár og þá verið um 60.000 tonn að hámarki. Hlutur ESB í heildinni hefur lengst af verið lítill fyrr en að þessari aukingu kom. I fyrra er tal- ið að skip frá ESB hafi tek- ið um 90% aflans eða um 54.000 tonn. Meðaltal allt frá árinu 1978 er 31.000 tonna afli á ári og hlutur ESB úr því 29,8%. Aukning- in síðustu ár er nær engöngu vegna'veiði ESB. '&A Grálúðuveiði éfo á svæðum NAFO,^ eo þús.—1978-1993 l0"n ■ ESB ríki -----0 Kanada — □ Önnur ríki Veiða langt umfram kvóta Kvótar og afli annarra en Kanadamanna á svæðum NAF0, samt. 1986-1993 1.500 þús tonn Botnfisktegundir Rfki 1.200 - utan Kvótar Veiðl • ÚTHLUTUN á styrkjum til smábáta á aflamarki, sem Alþingi ákvað í fjár- lögum, hefur dregizt nokk- uð vegna fyrirspurnar frá LIÚ um það, hvort styrk- veitingin nái aðeins til báta undir 10 tonnum, eða hvort litlir bátar yfir þeim stærð- armörkum komi einnig til greina. Byggðastofnun var falin framkvæmd málsins og hefur hún gert ráð fyrir að úthlutun miðist við smá- báta, 9,9 tonn og minni./8 • SÉ litið á allar botnfisk- veiðar á umdeilda svæðinu árin 1986 til 1993, kemur í Ijós að gefinn hefur verið út kvóti uppá um 550.000 tonn, en aflinn hefur orðið nærri 1,4 milljónir tonna. A þessu tíma hefur ESB verið úthlut- að alls 151.000 tonnum í kvóta, en skip sambandsins hafa alls tekið 729.000 tonn. Aðrar þjóðir, sem eru aðilar að NAFO eins og ESB, hafa tekið minna en þeim hefur verið úthlutað./6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.