Morgunblaðið - 30.03.1995, Blaðsíða 4
4 C FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
H
________________________________VIÐSKIPTI________________________________
Stjórnarformaður Olíufélagsins segir samstarf við Olís koma neytendum til góða
Irving Oil nýtur
„ útlendingadekurs “
borgaryfirvalda
HEILDARMARKAÐSHLUTDEILD OLÍUFÉLAGANNA
1985-1994
35%
KRISTJÁN Loftsson,
stjórnarformaður Olíufé-
lagsins hf., sagði í ræðu
sinn á aðalfundi félags-
ins að afkoma þess hefði verið mjög
góð á síðasta ári, en hagnaður þess
eftir skatta var 240 milljónir króna,
sem var 41 milljón meira en í fyrra.
Hann sagði að kaup félagsins á 35%
hlut í Olís og stofnun sameiginlegs
dreifíngarfyrirtækis kæmi neytend-
um til góða og hann gagnrýndi við-
brögð borgaryfírvalda
við umsókn kanadíska
félagsins Irving Oil,
sem hann sagði bera
vott um „útlendinga-
dekur“.
Kristján sagði að
höftum sem ríkið hefði
sett á olíuviðskipti
hefði verið létt af á
síðustu 3-4 árum, nú
síðast í september.
Samkeppni á olíu-
markaðnum hefði farið
vaxandi í kjölfarið,
sem væri af hinu góða
og einnig væri allt gott
í sjálfu sér að segja
um umsókn Irving Oil
um að starfa hér á
landi. Ekki væri hægt að segja hið
sama um viðbrögð íslenskra yfir-
valda.
„Það er oft grunnt í útlendinga-
dekrið hjá landanum, það sannaðist
áþreifanléga í þessu tilfelli,“ sagði
Kristján. „Fulltrúi þess kanadíska
fyrirtækis sækir um aðstöðu við
Reykjavíkurhöfn svo stærðarinnar
olíuskip geti lagst að bryggju og
einnig var sótt um átta lóðir undir
bensínstöðvar í Reykjavík. Viti
menn, allt fer á annan endann í
borgarkerfínu, hafnarframkvæmd-
um skal flýtt til að uppfylla óskir
Kanadamannanna og bensínstöðva-
lóðir dúkka upp hér og þar um
borgina."
Gömlu olíufélögin hefðu verið
talin geta notað áfram slæmar
hafnaraðstæður fyrir innflutning,
en annað hljóð kæmi í strokkinn
þegar umsókn bærist frá erlendu
félagi. „Þá skulu nú heldur betur
hendur standa fram úr ermum svo
þessir aðilar fái óskir sínar uppfyllt-
ar - skítt með landann. Þetta enda-
lausa útlendingadekur gengur ekki
lengur. Ef hægt á að vera að stunda
viðskipti á samkeppnisgrundvelli til
dæmis í olíuvörum þá verður að
gera þá kröfu til yfírvalda að aðilar
sitji við sama borð við úthlutun á
lóðum og aðstöðu til að stunda þessi
viðskipti," sagði Kristján.
Áfram samkeppni við Olís
Kristján rakti söguna á bak við
kaup Olíufélagsins nýverið á 35%
hlut í Olíuverslun Islands, Olís.
Hann sagði að í upp-
hafí árs 1994 hefði tek-
ið gildi ný reglugerð frá
umhverfisráðuneytinu
um varnir gegn olíu-
mengun frá starfsemi
í landi. Það, ásamt
lækkun á flota- og
svartolíuverði og nauð-
syn á sparnaði í inn-
kaupum, innflutningi
og dreifingu á olíu
hefði verið kveikjan að
því að Geir Magnússon
forstjóri Olíufélagsins
hóf viðræður við full-
trúa Sunda hf. um sam-
starf og hugsanlega
stofnun sameiginlegs
dreifingarfélags. Það
hafí svo komið upp í umræðunum
að hlutabréf Sunda hf. í Olís væru
til sölu, eða um 45% í félaginu.
Til að tryggja framgang þessarar
hugmyndar hefði verið haft sam-
band við stærsta hluthafann í Olís,
þ.e. Hydro Texaco AS í Danmörku.
Þeim leist vel á þessa hugmynd,
enda hefðu þeir sjálfír stofnað til
samstarfs á svipuðum nótujc með
olíufélögum í Danmörku. Ákveðið
var að Olíufélagið keypti 35% hlut
í Olís og Hydro Texaco 10% hlut
og ættu þeir því jafnt og Olíufélagið.
„Tilgangurinn hlutafjárkaup-
anna er að tryggja hagkvæmni og
hagræðingu á bensín- og olíumark-
aðnum til hagsbóta fyrir viðskipta-
vini beggja félaganna," sagði Krist-
ján. „Olíufélagið og Olís verða hér
eftir sem hingað til keppinautar á
markaðnum og verða innkaup á
smurolíum og fleiru í áfram í hönd-
um hvors fyrirtækis fyrir sig, þ.e.
Olís mun selja Texaco-smurolíu og
Olíufélagið Esso-smurolíu.“
„í þessu máli var að grípa gæs-
ina meðan hún gafst svo hægt
væri að koma þessu máli í höfn,
eða láta þetta tækifæri fram hjá
sér fara, því það er alveg ljóst að
fleiri aðilar voru að munda byss-
una,“ sagði Kristján ennfremur.
„Ég er sannfærður um að þessi
aðgerð mun verða báðum félögun-
um til hagsbóta. og skila viðskipta-
vinum félaganna hagkvæmara
verrði í bensíni og olíu þegar sam-
eiginlega dreifíngarfyrirtækið hefði
tekið til starfa.“
Kristján sagði að eins og vænta
mátti hefðu kaupin vakið mikla at-
hygli og keppinauturinn Skeljungur
hefði af skiljanlegum ástæðum
reynt að gera kaupin tortryggileg.
Viðbrögð flestra hefðu þó verið já-
kvæð, enda sæju sæmilega hugs-
andi menn mikla möguleika til hag-
ræðingar til hagsbóta fyrir félögin
og viðskiptavini.
Hjáróma rödd Morgunblaðsins
„Samt hefur verið meðal annars
ein ansi eftirtektarverð hjáróma
rödd sem hefur látið í sér heyra
hvað þetta mál varðar," sagði Krist-
ján. „Leiðarahöfundar Morgun-
blaðsins hafa fundið þessum kaup-
um og stofnun dreifíngarfyrirtækis-
ins allt til foráttu. Leiðari blaðsins
segir forsvarsmenn Olíufélagsins
hf. ekki vera þá einu sem hafí ekki
kunnað sér hóf í íslensku viðskipta-
lífí á undanfömum ámm. Leiðarinn
segir Olíufélagið ráða í raun 70%
markaðarins með olíu og bensín á
Islandi og heldur því þannig fram
að Olíufélagið ráði Olís með 35%
eignaraðild þegar Hydro Texaco AS
á einnig 35% eignaraðild að 01ís.“
Morgunblaðið hefði sagt fákeppni
vera vaxandi vandamál á flestum
sviðum íslensks viðskiptalífs og að
hið eina sem gæti tryggt eðlilegt
jafnvægi á olíumarkaðnum og kom-
ið í veg fyrir að neytendur verði
fyrir barðinu á of lítilli samkeppni
og yfírburðastöðu eins aðila á mark-
aðnum sé að kanadíska olíufélagið
Irving Oil helji starfsemi hér. Um
þessa gagnrýni Morgunblaðsins
sagðist Kristján ekki hafa annað að
segja en: „margur heldur mig sig.“
Kristján sagði að lokum að í til-
efni af hálfrar aldar afmæli Olíufé-
lagsins á næsta ári hefði verið sam-
ið við Jón Þ. Þór sagnfræðing um
að skrifa sögu félagsins.
Kristján
Loftsson
MARKAÐSHLUTDEILD OLÍUFÉLAGANNA1994
Bensfn
Gasolfa, flotaolfa Svartolía
Q ,8i © n
27,02% 28,80% 25,20% 29,59%
Þotueldsneyti
17,89% 21,93%
Heimild: Olíufélagið
Greiða
10% arð
Á AÐALFUNDI Olíufélagsins hf.
í gær var samþykkt að greiða
10% arð til hluthafa og að veita
heimild til útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa um sem svara til 10% af
núverandi hlutafé félagsins.
Sljóm Olíufélagsins var end-
urkjörin, en hana skipa: Gísli
Jónatansson, Guðjón Ólafsson,
Kristján Loftsson, Magnús Gauti
Gautason og Margeir Daníelsson.
Samþykktar voru breytingar á
samþykktum Olíufélagsins í sam-
ræmi við ný hlutafélagalög og
samninginn um Evrópskt efna-
hagssvæði, þar sem meðal annars
vom felld niður ákvæði sem
gerðu erlendum aðilum erfiðara
fyrir að eignast hlut í félaginu.
Komdu og hittu /
okkar mann J
í Svíþjóð, M
Arne Pálsson, Pr
á Islandi í næstu viku
Ame Pálsson er mörgum innflytjendum að
góðu kunnur. Síðastliðin 9 ár hefur hann rekið
umboðsskrifstofu Samskipa í Varberg
í Svíþjóð og þjónað viðskiptavinum okkar
þaðan. Hann hefur því umfangsmikla reynslu
af flutningum til íslands. Arne verður gestur
okkar á íslandi í næstu viku og mun taka á
móti viðskiptavinum sínum og Samskipa hér
á landi og öðrum þeim sem hafa áhuga á að
nýta sér þjónustu hans. Ef þitt fyrirtæki er í
innflutningi frá Svíþjóð er Arne rétti maðurinn
að ræða við. Nánari upplýsingar eru veittar
í söludeild Samskipa í síma 569 8300.
SAMSKIP
Holtabakka við Holtaveg, 104 Reykjavík
Sími 569 8300 - Fax 569 8327