Morgunblaðið - 30.03.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.03.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1995 FIMMTUDAGUR 30. MARZ BLAD E HANDKNATTLEIKUR Sigurður Sveinsson rúmfastur SIGURÐUR Sveinsson, stórskytta landsliðsins, læstist í bakinu á æfingu með landsliðinu í gærdag og lá rúmfastur er Morgun- blaðið hafði samband við hann í gærkvöldi. „Bakið fór bara í lás, það er klemmd taug á milli hrygg- jarliða og ég er rúmliggj- andi. Ég verð að taka mér frí frá æfingum og ganga til sjúkraþjálfara næstu daga. Þetta kemur á versta tíma því stutt er í HM og hefði ekki veitt af því að koma sér í form fyrir átök- in framundan," sagði Sig- urður. Á leið til Ítalíu JASON Ólafsson skrlfar undlr tveggja ára samning vlð ítalska IIAIA Brlxen í nœstu vlku. LIAIA er frá borglnni Brixen, sem er f ölpunum f SuAur-Týról. Guðmundur lög- legur með KR GUÐMUNDUR Benediktsson úr Þór á Akureyri er orðinn löglegur með KR-ingum. Krisfján Kristjánsson, formaður knattspyrnudeildar Þórs, sagði í gær að nú liefði loksins verið geng- ið frá félagaskiptunum og búið að skrifa undir. Belgíska félagið Ekeren, sem Guðmundur var hjá í þijú ár, hefur einnig fyrir sitt leyti sam- þykkt félagaskiptin. Enn er ekki búið að ganga frá félagaskiptum Hlyns Birgissonar úr Þór í Örebro. Kristján sagði að þau mál væru að skýrast og reiknaði hann með að skrifað yrði undir félagskipti hans fyrir helgi. Tómas Ingi til Grindavíkur TÓMAS Ingi Tómasson, sem lék með KR-ingum síðasta sumar, hefur ákveðið að skipta yfir í lið Grindvíkinga, sem leikur i fyrsta sinn í 1. deild i sumar. Tómas Ingi er 26 ára og lék 17 leiki með KR 8.1. sumar og gerði í þeim 6 mörk, þar af 3 mörk i fyrsta leik mótsins gegn Breiðabliki. Daguríhugartil- boð frá Sviss DAGUR Sigurðsson er með tilboð um að gerast leikmaður hjá svissneska félaginu Wackethun, sem er um miðja 1. deild þar í laudi. „Ég reikna með að fara til Sviss á laugardaginn til að skoða aðstæður hjá félaginu. Ég þekki lítið til þessa liðs en veit að svissneski landsliðsmaðurinn Martin Rubin leikur með þessu liði og þjálfarinn er Júgóslavi. Það er þess virði að skoða þetta dæmi. Ég held að það sé kominn tími fyrir mig að breyta aðeins til og fara í annað umhverfi. Það væri gaman að prófa að búa í Sviss um tíma. Ég hef leikið fimm ár með meistaraflokki Vals og unnið með liðinu fjóra íslandsmeistaratítla," sagði Dagur. Valsmennirnir Júlíus Gunnarsson og Jón Kristjánsson hafa verið að ihuga að fara erlend- is í nám næsta vetur. Það yrði því mikill missir fyrir Valsmenn ef þessir þrír leikmenn færu frá félaginu. Einar tekur við Aftureldingu SAMKVÆMT heimildum Morgunblaðsins verður Einar Þorvarðarson, aðstoðarlandsliðsþjálfari í handknattleik, næstí þjálfari Aftureldingar í Mosfellsbæ. Aðeins á eftír að ganga frá forms- atriðum milli Einars og félagsins. Einnig hefur Elías Nielsson, íþróttafræðingur, verið ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins. Einar var einnig með tílboð frá Haukum, sem hann hafnaði. Jason gerir tveggja ára samning við Brixen Fyrsti íslendingurinn sem gerist leikmaður á Ítalíu JASON Ólafsson, handknattleiksmaður úr Aftureldingu, skrif- ar undir tveggja ára samning við ítalska 1. deildarliðið Brixen i næstu viku og verður þar með fyrstur íslendinga til að leika með ftölsku liði. „Ég fór út og skoðaði aðstæður hjá ftalska félaginu og leist mjög vel á allt það sem í boði er. I framhaldi að því ákvað ég á slá til og ganga til liðs við Brixen," sagði Jason. Jason sagði að þetta væri allt klárt og að hann myndi skrifa undir tveggja ára samning við félagið í byrjun næstu viku. HannTlytur síð- an af landi brott í ágúst í sumar en deildarkeppnin á Italíu hefst í október. Brixen er frá samnefndum 15 þúsund manna bæ á Norður-ítal- íu á svæði sem er þýskumælandi. Jason segir að styrkleiki liðanna í ítölsku deildinni væri aðeins lakari en hér á landi, en flest liðin væru komin með einn útlending þannig að gæðin ættu að aukast. „Liðið vantar vinstrihandar skyttu og á ég á leysa það hlutverk af hendi,“ sagði Jason. „Það verður gaman að takast á við þetta verkefni og jafnframt mik- ið ævintýri fyrir mig. Ég fæ þarna tækifæri til að komast almennilega inn í þýskuna. Það er mikill áhugi á handbolta í Brixen og allar aðstæð- ur mjög góðar. Á heimaleikjum liðs- ins koma að meðaltali þúsund áhorf- endur en 2.500 á leiki í úrslitakeppn- inni. Þetta er vinsælasta íþróttin í bænum,“ sagði Jason. KNATTSPYRNA: TYRKIR UNNU SVIA í ISTANBUL / E4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.