Morgunblaðið - 30.03.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995 E 3
lóátlaára
IMewYork
Reuter
Flugeldasýning Jordans
MlCHAEL Jordan skoraði grimmt I fyrrinótt og setti þá niður 55 stig
sem er það mesta sem einn maður hefur gert í NBA í vetur. Greinilegt
að kappinn sækfr stöðugt í sig veðrið.
Blikastúlkur lögðu KR
Blikastúlkur náðu með herkjum, eftir
að hafa leitt oddaleik við KR fram-
undir leikslok, að öðlast rétt til að leika
við Keflvíkinga til úrslita
stefán í íslandsmótinu, er þær
Stefánsson sigruðu 55:52 á loka-
skrifar sprettinum í Smáranum í
gærkvöldi. „Við erum
búnar að vera svona í vetur, byijum vel
en svo hrynur allt. Líklega höldum við
að leikurinn sé unninn,“ sagði Hanna
Kjartansdóttir, sem átti góðan leik fyrir
Breiðablik. „Mér líst vel á að spila við
Keflvíkinga. Við mætum brjálaðar til
leiks og eigum alveg eins möguleika og
þær,“ bætti hún við.
Leikurinn fór afar varfærnislega af
stað og lítið var um stig. Það var ekki
fyrr en eftir 7 mínútur, er staðan var
6:6, að leikmenn tóku við sér. Blikanna
Olgu Færseth, Penni Peppas og Hönnu
var vandlega gætt en við það losnaði um
Elísu Vilbergsdóttur, sem var dugleg við
fráköstin og hitti vel. Vesturbæingar tóku
loks við sér, þegar rúmar 7 mínútur voru
til 'eikhlés og staðan 19:10, með þriggja
stiga körfu Helgu Þorvaldsdóttur og í
Iqölfarið tók Sara Smart af skarið svo að
í hálfleik var staðan 30:23.
KR-stúlkur héldu þar sem frá var
horfið eftir hlé og söxuðu stöðugt á for-
skotið. Árangur erfiðis þeirra skilaði sér
síðan þegar rúmar þijár mínútur voru
eftir af leiknum og þær komust yfir
48:49. En þá sofnuðu þær á verðinum
yfir Hönnu, sem gerði síðustu 5 stigin
fyrir Kópavog.
Burðarstólpar Blika — Olga, Hanna
og Penni— áttu erfitt með að athafna sig
og náðu sér seint á strik svo að Elísa lét
ljós sitt skína með flest stig, 20, og flest
fráköst, 10. Hanna sýndi þó góða takta
þegar hún fékk minnsta færi, sérstaklega
í lokin. Ekki munaði miklu að þessi leik-
ur yrði þeirra síðasti í vetur.
„Þetta var spælandi og við eigum al-
veg jafn skilið og þær að komast í úr-
slit. Við sýndum góða baráttu en liðs-
andinn var seinn í gang,“ sagði Sara, sem
átti góðan leik ásamt Helgu, Elínborgu
Herbertsdóttur og Guðbjörgu Norðfjörð,
þær síðastnefndu með sitthvor 8 fráköst-
in. Lið sem þarf 13 mínútur til að komast
í gang, þarf að gera eitthvað málunum,
því eftir þessar mínútur brá fyrir ágætis
spili og baráttu.
ÍÞRÓTTIR
SKiÐI
Tvær norskar heimsbikar-
konur keppa á íslandi
^Tvær norskar skíðakonur, fræga skíðakappa í karlamótin,
■ Trude Gimle og Trine Bakke, en enn hefði ekki mikið komið út
verða meðal keppenda á alþjóð- úr þvi. „Við buðum fimmtán stiga-
legu fis-mótunum sem fram fara hæstu skíðamönnum heims að
hér á landi í apríl. Þær kepptu koma hingað og keppa. Við send-
báðar í heimsbikamum í vetur. um þeim öllum upplýsingar um
Eins hafa þijár aðrar skíðakonur mótið og einnig myndbandsspólu
frá Bandaríkjunum boðað komu til að kynna landið. Það er erfitt
sína. á fá þessa kappa hingað á þessum
Friðrik Einarsson, fram- tíma þar sem þeir eru yfirleitt
kvæmdastjóri SKÍ, sagði að verið mjög eftirsóttir i mót á þessum
væri að vinna í því að fá hingað tíma. En við höfum ekki gefið upp
alla von og reynum áfram,“ sagði
Friðrik.
Sex alþjóðleg fís-mót verða hér
á landi frá 8. -15. apríl. Tvö svig
verða á ísafirði 9. og 10. aprfl og
em þau liður í Skíðamóti íslands.
Síðan verður svig og stórsvig á
Akureyri 11. og 12 apríl og loks
tvö stórsvig í Reykjavík 14. og
15. aprfl. Allir bestu skíðamenn
íslands verða á meðal þátttak-
enda.
KNATTSPYRNA
Valurfærveitingasölu á Laugardalsvelli
Sættum okkur
vid þetta
- segir Jóhann Kristinsson, framkvæmda-
stjóri knattspyrnudeildar Fram
Fylkismenn
kom vel und-
an vetri
FYLKIR kemur vel undan
vetri ef marka má öruggan
sigur liðsins á Víkingi 3:0 í
opnunarleik Reykjavíkur-
mótsins í knattspyrnu á
gervigrasinu í Laugardal í
gærkvöldi. Bæði liðin leika
í 2. deijd íslandsmótsins I
sumar. Á myndinni hér fyrir
neðan leikur Þórhaliur Dan
Jóhannsson á einn varnar-
manna Víkings, en Þórhall-
ur gerði þriðja og síðasta
mark Fylkis í leiknum.
Morgunblaðið/Sverrir
Valsmenn hafa fengið veitinga-
söluna á Laugardalsvelli á
komandi sumri, en Framarar hafa
verið með þessa sölu undanfarin
ár. Fram heldur veitingasölunni á
heimaleikjum sínum en Valur sér
um veitingasöluna á öðrum viðburð-
um.
Jóhann G. Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri knattspymudeildar
Fram, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þetta væri ákveðin lending
og úr því sem komið væri sættu
Framarar sig við þetta. „Auðvitað
er þetta einhver tekjumissir fyrir
okkur, sérstaklega á stóru leikjun-
um sem haldnir eru í Laugardaln-
um, en þetta er einnig mikil þjón-
usta sem þarf að veita á smærri
leikjum, Reykjavíkurmótinu í knatt-
spyrnu, fijálsíþróttamótum og
yngri flokka leikjum. Úr því sem
komið var erum við ánægðir að
halda þó sölunni á okkar heimaleikj-
um og sættum okkur við þetta, alla
vega í ár,“ sagði Jóhann.
Valsmenn sóttu um veitingasöl-
una og var um tíma talið að þeir
fengju hana alla, líka á heimaleikj-
um Fram í deildinni, en nú er niður-
staða fengin. „Okkur hefði fundist
furðulegt ef Val hefði verið úthlutað
að sjá um veitingasölu á okkar
heimaleikjum, því Laugardalsvöllur
er okkar heimavöllur og Valsmenn
hafa ekki sótt um að leika þar, alla
vega ekki ennþá,“ sagði Jóhann.
BLAK
HK-menn í fínu formi
Guðmundur H.
Þorsteinsson
skrifar
Leikmenn íslandsmeistara HK
náðu á köflum að sýna sitt
besta blak þegar liðið lagði KA af
velli í Digranesi í
gærkvöldi. Hrinurn-
ar urðu þó fjórar en
HK vann þá fyrstu
15:12 og þá næstu
15:8. Á þessum kafla var móttakan
léleg hjá KA og uppspilari þeirra
Haukur Valtýsson þurfti að sækja
boltann út um allan völl. í þriðju
hrinunni komu leikmenn KA hins
vegar verulega á óvart og náðu að
skella HK 15:12 eftir að HK hafði
leitt hrinuna 12:9 og fátt virtist
varna því að þeir kláruðu dæmið
3:0, en annað kom á daginn.
Leikmenn HK gáfu hins vegar aldr-
ei færi á sér í fjórðu hrinunni og
Mark Andrew Hancock leikmaður
liðsins fór þá á kostum og hamraði
marga þrumuskelli í gólf gestanna
þar sem fátt var um varnir. Hjá HK
var Jóhann Sigurðsson bestur og
samspil hans og uppspilarans Guð-
bergs Eyjólfssonar var á köflum sem
konfekt fyrir augað þar sem hver
sóknin gekk lystilega í gegnum miðj-
una en það var banabiti KA í leikn-
um. Gamla brýnið Stefán Jóhannes-
son sem ekkert hefur leikið með KA
í vetur tók fram skóna og lék á
miðjunni hjá KA og sýndi gömul til-
þrif en Sigurður Arnar Ólafsson stó-
ið fyrir sínu i liði KA.
Þróttur R. með tökln
Nýkrýndir deildarmeistarar Þróttar
unnu Stjörnuna eftir nokkuðu
ströggl 3:0, en það var nokkuð um
ódýr mistök hjá Stjörnunni og ljóst
er að leikmenn liðsins verða að laga
það ef þeir ætla sér lengra í keppn-
inni. Úrslitakeppninni verður fram-
haldið á föstudaginn.
HK-stúlkur unnu í oddahrinu
Það þurfti æsispennandi úrslitahrinu
til að fá fram úrslit í leik HK og
Stúdína í Digranesi í gærkvöldi. Leik-
urinn var nokkuð kaflaskiptur og lið-
in skiptu hrinunum þannig að Stúdín-
ur unnu þá fyrstu en HK tvær næstu.
Stúdínur náðu síðan á undraverðan
hátt að vinna upp forskot HK í íjórðu
hrinunni þar sem heimaliðið leiddi
12:3 en taugaveiklunin var mikil hjá
HK stúlkum á meðan allt gekk upp
hjá Stúdínum. í úrslitahrinunni voru
HK stúlkur með forskotið framan af
en í lokin jöfnuðu Stúdínur 12:12 en
þeim tókst ekki að ræna verðskuld-
uðum sigri HK stúlkna. Elín Guð-
mundsdóttir og Anna Einarsdóttir
léku best í liði HK en hávöm Stúdína
réð ekkert við skelli Elínar. Hjá Stúd-
ínum stóð Friðrika Marteinsdóttir
upp úr.