Morgunblaðið - 31.03.1995, Blaðsíða 30
30 C FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
SELJEIVDUR
■ SÖLUUMBOÐ - Áður en
fasteignasala er heimilt að bjóða
eign til sölu, ber honum að hafa
sérstakt söluumboð frá eiganda
Ög skal það vera á stöðluðu
formi sem dómsmálaráðuneytið
staðfestir. Eigandi eignar og
fasteignasali staðfesta ákvæði
söluumboðsins með undirritun
sinni á það. Allar breytingar á
söluumboði skulu vera skrifleg-
ar. í söluumboði skal eftirfar-
andi koma fram:
■ TILHÖGUN SÖLU - Koma
skal fram, hvort eignin sé í
einkasölu eða almennri sölu, svo
a>g hver söluþóknun sé. í maka-
skiptum ber að athuga að sé
eign sem er í einkasölu tekin
upp í aðra eign sem er á sölu
hjá öðrum fasteignasala þá skal
hvor fasteignasali annast sölu
þeirrar eignar sem hann hefur
söluumboð fyrir.
■ AUGLÝSINGAR - Aðilar
skulu semja um hvort og hvern-
ig eign sé auglýst, þ.e. á venju-
legan hátt í eindálki eða með
sérauglýsingu. Fyrsta venjulega
auglýsing í eindálki er á kostnað
fasteignasalans en auglýsinga-
kostnaður skal síðan greiddur
mánaðarlega skv. gjaldskrá
dagblaðs. 011 þjónusta fast-
eignasala þ.m.t. auglýsing er
virðisaukaskattsskyld.
■ GILDISTÍMI - Tilgreina
skal hve lengi söluumboðið gild-
ir. Umboðið er uppseigjanlegt
af beggja hálfu með 30 daga
fyrirvara. Sé einkaumboði
breytt i almennt umboð gildir
30 daga fresturinn einnig.
É GREIÐSLUSTAÐUR
KAUPVERÐS - Algengast er
að kaupandi greiði afborganir
skv. kaupsamningi inn á banka-
reikning seljanda og skal hann
tilgreindur í söluumboði.
■ ÖFLUN GAGNA/SÖLU-
YFIRLIT - Áður en eignin er
boðin til sölu, verður að útbúa
söluyfírlit yfír hana. Seljandi
skal leggja fram upplýsingar
um eignina, en í mörgum tilvik-
um getur fasteignasali veitt
aðstoð við útvegun þeirra skjala
sem nauðsynleg eru. Fyrir þá
þjónustu þarf að greiða, auk
'oeins útlagðs kostnaðar fast-
eignasalans við útvegun skjal-
anna. í þessum tilgangi þarf
eftirfarandi skjöl:
■ VEÐBÓKARVOTTORÐ-
Þau kostar nú 800 kr. og fást
hjá sýslumannsembættum.
Opnunartíminn er yfirleitt milli
kl. 10.00 og 15.00. Á veðbókar-
vottorði sést hvaða skuldir (veð-
bönd) hvíla á eigninni og hvaða
þinglýstar kvaðir eru á henni.
■ GREIÐSLUR - Hér er átt
við kvittanir allra áhvílandi
lána, jafnt þeirra sem eiga að
fylgja eigninni og þeirra, sem á
að aflýsa.
■ FASTEIGNAMAT - Hér
er um að ræða matsseðil, sem
Fasteignamat ríkisins sendir öll -
um fasteignaeigendum í upp-
hafí árs og menn nota m.a. við
gerð skattframtals. Fasteigna-
mat ríkisins er til húsa að Borg-
artúni 21, Reykjavík sími
614211.
4 FASTEIGNAGJÖLD -
Sveitarfélög eða gjaldheimtur
senda seðil með álagningu fast-
eignagjalda í upphafí árs og er
hann yfírleitt jafnframt
greiðsluseðill fyrir fyrsta gjald-
daga fasteignagjalda ár hvert.
Kvittanir þarf vegna greiðslu
fasteignagjaldanna.
■ BRUNABÓTAMATS-
VOTTORÐ - í Reykjavík fást
vottorðin hjá Húsatryggingum
Reykjavíkur, Skúlatúni 2, II.
hæð, en annars staðar á skrif-
stofu þess tryggingarfélags,
sem annast brunatryggingar í
viðkomandi sveitarfélagi. Vott-
orðin eru ókeypis. Einnig þarf
kvittanir um greiðslu bruna-
tryggingar. í Reykjavík eru ið-
gjöld vegna brunatrygginga
innheimt með fasteignagjöldum
og þar duga því kvittanir vegna
þeirra. Annars staðar er um að
ræða kvittanir viðkomandi
tryggingafélags.
■ HÚSSJÓÐUR - Hér eru um
að ræða yfirlit yfir stöðu hús-
sjóðs og yfírlýsingu húsfélags
um væntanlegar eða yfírstand-
andi framkvæmdir. Formaður
eða gjaldkeri húsfélagsins þarf
að útfylla sérstakt eyðublað
Félags fasteignasala í þessu
skyni.
■ AFSAL - Afsal fyrir eign
þarf að liggja fyrir. Ef afsalið
er glatað, er hægt að fá Ijósrit
af því hjá viðkomandi sýslu-
mannsembætti og kostar það
nú kr. 100. Afsalið er nauðsyn-
legt, því að það er eignarheim-
ildin fyrir fasteigninni og þar
kemur fram lýsing á henni.
■ KAUPSAMNINGUR - Ef
lagt er fram ljósrit afsals, er
ekki nauðsynlegt að leggja fram
ljósrit kaupsamnings. Það er því
aðeins nauðsynlegt í þeim tilvik-
um, að ekki hafi fengist afsal
frá fyrri eiganda eða því ekki
enn verið þinglýst.
■ EIGNASKIPTASAMN-
INGUR - Eignaskiptasamn-
ingur er nauðsynlegur, því að í
honum eiga að koma fram eign-
arhlutdeild í húsi og lóð og
hvernig afnotum af sameign og
lóð er háttað.
■ UMBOÐ - Ef eigandi ann-
. astekkisjálfursölueignarinn-
ar, þarf umboðsmaður að leggja
fram umboð, þar sem eigandi
veitir honum umboð til þess
fyrir sína hönd að undirrita öll
skjöl vegna sölu eignarinnar.
■ YFIRLÝSINGAR - Ef sér-
stakar kvaðir eru á eigninni s.
s. forkaupsréttur, umferðarrétt-
ur, viðbyggingarréttur o. fl.
þarf að leggja fram skjöl þar
að lútandi. Ljósrit af slíkum
skjölum fást yfírleitt hjá við-
komandi fógetaembætti.
■ TEIKNINGAR - Leggja
þarf fram samþykktar teikning-
ar af eigninni. Hér er um að
ræða svokallaðar byggingar-
nefndarteikningar. Vanti þær
má fá ljósrit af þeim hjá bygg-
ingarfulltrúa.
■ FASTEIGNASALAR - í
mörgum tilvikum mun fast-
eignasalinn geta veitt aðstoð við
útvegun þeirra skjala, sem að
framan greinir. Fyrir þá þjón-
ustu þarf þá að greiða sam-
kvæmt Viðmiðunargjaldskrá
Félags fasteignasala auk beins
útlagðs kostnaðar fasteignasal-
ans við útvegun skjalanna.
k\iri:\D(K
■ ÞINGLÝSING - Nauðsyn-
legt er að þinglýsa kaupsamn-
ingi strax hjá viðkomandi sýslu-
mannsembætti. Það er mikil-
vægt öryggisatriði.
■ GREIÐSLUR - Inna skal
allar greiðslur af hendi á gjald-
daga. Seljanda er heimilt að
reikna dráttarvexti strax frá
gjalddaga. Hérgildir ekki 15
daga greiðslufrestur.
■ LÁNAYFIRTAKA - Til-
kynna ber lánveitendum um
yfirtöku lána. Ef Byggingar-
sjóðslán er yfirtekið, skal greiða
fyrstu afborgun hjá Veðdeild
Landsbanka Islands, Suður-
landsbraut 24, Reykjavík ogtil-
kynna skuldaraskipti um leið.
■ LÁNTÖKUR - Skynsam-
legt er að gefa sér góðan tíma
fyrir lántökur. Það getur verið
tímafrekt að afla tilskilinna
gagna s. s. veðbókarvottorðs,
brunabótsmats og veðleyfa.
■ AFSAL - Tilkynning um
eigendaskipti frá Fasteignamati
ríkisins verður að fylgja afsali,
sem fer í þinglýsingu. Ef skjöl,
sem þinglýsa á, hafa verið und-
irrituð samkvæmt umboði, verð-
ur umboðið einnig að fylgja með
til þinglýsingar. Ef eign er háð
ákvæðum laga um byggingars-
amvinnufélög, þarf áritun bygg-
ingarsamvinnufélagsins á afsal
fyrir þinglýsingu þess.
■ SAMÞYKKIMAKA - Sam-
þykki maka þinglýsts eiganda
þarf fyrir sölu og veðsetningu
fasteignar, ef fjölskyldan býr í
eigninni.
■ GALLAR - Ef leyndir gall-
ar á eigninni koma í ljós eftir
afhendingu, ber að tilkynna selj-
anda slíkt strax. Að öðrum kosti
getur kaupandi fyrirgert hugs-
anlegum bótarétti sakir tómlæt-
is.
GJALDTAKA
■ ÞINGLÝSING - Þinglýs-
ingargjald hvers þinglýst skjals
er nú 1.000 kr.
■ STIMPILGJALD - Það
greiðir kaupandi af kaupsamn-
ingum og afsölum um leið og
þau eru lögð inn til þinglýsing-
ar. Ef kaupsamningi er þing-
lýst, þarf ekki að greiða stimpil-
gjald af afsalinu. Stimpilgjald
kaupsamnings eða afsals er
0,4% af fasteignamati húss og
lóðar, þ. e. 4.000 kr. af hverri
milljón.
■ SKULDABRÉF - Stimpil-
gjald skuldabréfa er 1,5% af
höfuðstóli (heildarupphæð)
bréfanna eða 1.500 kr. af hveij-
um 100.000 kr. Kaupandi greið-
ir þinglýsingar- og stimpilgjald
útgefínna skuldabréfa vegna
kaupanna, en seljandi lætur
þinglýsa bréfunum.
■ STIMPILSEKTIR - Stimp-
ilskyld skjöl, sem ekki eru
stimpluð innan 2ja mánaða frá
útgáfudegi, fá á sig stimpilsekt.
Hún er 10% af stimpilgjaldi fyr-
ir hveija byijaða viku. Sektin
fer þó aldrei yfír 50%.
■ SKIPULAGSGJALD -
Skipulagsgjald er greitt af ný-
reistum húsum. Af hverri bygg-
ingu, sem reist er, skal greiða
3 %o (þijú pro mille) í eitt sinn
af brunabótavirðingu hverrar
húseignar. Nýbyggingtelst
hvert nýreist hús, sem virt er
til brunabóta svo og viðbygging-
ar við eldri hús, ef virðingarverð
hinnar nýju viðbyggingar nem-
ur 1/5 af verði eldra hússins.
Þetta á einnig við um endurbæt-
ur, sem hækka brunabótavirð-
ingu um 1/5.
HÚSBRÉF
■ HÚSRÉFALÁN - Lán inn-
an húsbréfakerfisins eru svo-
kölluð húsbréfalán. Þau eru vi-
ett til kaupa á notuðum íbúðum,
til nýbygginga og til endurbóta
á eldra húsnæði. Annars vegar
er um að ræða fasteignaveð-
bréf, sem gefin eru út af íbúðar-
kaupanda, húsbyggjanda eða
íbúðareiganda, og eru þau skul-
daviðurkenningar þessara aðila.
Húsbréfin sjálf koma kaupanda
ekki beint við. Seljendur aftur
á móti eignast húsbréf með því
að selja Húsnæðisstofnun fast-
eignaveðbréfín. Þar með losna
seljendur við að innheimta af-
borganir af fasteignaveðbréfun-
um og geta notað húsbréfín á
þann hátt, sem þeir kjósa; ýmist
með því að selja þau á verð-
bréfamarkaði, eiga þau sem
sparnað eða nota húsbréfín til
að greiða með annaðhvort við
kaup, eða upp í skuldir sínar.
Hér að neðan er birt dæmi um
þann feril, sem á sér stað við
kaup á notaðri íbúð. Frekari
upplýsingar, t.d. um lán vegna
nýbygginga, má fá hjá Hús-
næðisstofnun ríkisins.
■ KAUP Á NOTAÐRIÍBÚÐ
• Frumskilyrði fyrir húsbréfal-
áni, er að umsækjandi verður
að sækja umskriflegt mat á
greiðslugetu sinni hjá viður-
kenndri fjármálastofnun, t.d.
banka eða sparisjóði.
• Þegar mat þetta er fengið,
gildir það í eitt ár.
• Miðað er við að greiðslubyrði
lána fari ekki yfír 18% af heild-
arlaunum næstu 4 árin, að
teknu tilliti til vaxtabóta.
• I matinu kemur m.a. fram
kaupverð íbúðar, sem væntan-
legur íbúðarkaupandi skal að
hámarki miða kauptilboð sitt
við.
• Umsækjandi skoðar sig um
á fasteignamarkaðnum í leit að
notaðri íbúð.
• Þegar hann hefur í höndum
samþykkt kauptilboð, kemur
hann því til Húsnæðisstofnunar.
• Meti stofnunin kauptilboðið
lánshæft, fær íbúðarkaupand-
inn afhent fasteignaveðbréfið
til undirritunar og hann getur
gert kaupsamning.
• Fasteignaveðbréfið er síðan
afhent seljanda eftir undirskrift.
• Því næst lætur kaupandi
þinglýsa kaupsamningi og kem-
ur afriti til seljanda.
• Seljandi lætur þinglýsa fast-
eignaveðbréfínu, útgefnu af
kaupandanum, sem Húsnæðis-
stofnun síðan kaupir og greiðir
fyrir með húsbréfum. Afgreiðsla
þeirra fer fram hjá Veðdeild
Landsbanka íslands.
• Stofnunin sér um innheimtu
afborgana af fasteignaviðskipt-
um.
■ LÁNSKJÖR - Fasteigna-
veðbréfíð er verðtryggt. Láns-
tími er 25 ár og ársvextir eru
nú 5,1%. Þeir eru fastir og
breytast því ekki á lánstíman-
um. Gjalddagar eru nú mánað-
arlega og afborganir hefjast á
1. ári. Á allar greiðslur, bæði
vexti og afborganir, eru jafnan
reiknaðar verðbætur í samræmi
við lánskjaravísitölu. Lántöku-
gjald er 1%. Mánaðarleg
greiðslubyrði af 1 millj. króna
láni er í dag 5.924 kr.
■ ÖNNUR LÁN - Húsnæðis-
stofnun veitir einnig fyrir-
greiðslu vegna byggingar leigu-
íbúða eða heimila fyrir aldraða,
meiriháttar endurnýjunar og
endurbóta eða viðbygginga við
eldra íbúðarhúsnæði. Innan
Húsnæðisstofnunar er einnig
Byggingarsjóður verkamanna,
sem veitir lán til eignaríbúða í
verkamannabústöðum, lán til
leiguíbúða sveitarfélaga, stofn-
ana á vegum ríkisins og félaga-
samtaka. Margir lífeyrissjóðir
veita einnig lán til félaga sinna
vegna húsnæðiskaupa, svo að
rétt er fyrir hvern og einn að
kanna rétt sinn þar.