Morgunblaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995 71
I DAG
Arnað heilla
^/\ÁRA afmæli. í dag,
I vflaugardaginn 1.
aprfl, er sjötug Margrét
Þórhallsdóttir, ljósmóðir,
Hamarsstíg 37, Akureyri.
Hún verður að heiman á
afmælisdaginn.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
ÞESSI staða kom upp á
Skákþingi Norðurlanda sem
nú er að ljúka. Helgi Ólafs-
son (2.520) hafði hvítt og
átti leik gegn Svíanum
Thomasi Ernst (2.465).
43. Dxa7! - Dxel+ 44. Kg2
- Re3+ 45. Kf3! (Ef hvítur
tekur riddarann nær svartur
þráskák) 45. - Rf5 46.
Hxf7+ - Kg8 47. Hxf6 -
Dhl+ 48. Ke2 - De4+ 49.
Kd2 — Dxd4+ 50. Dxd4 —
Rxd4 51. Hf4 og með
skiptamun yfir vann hvítur
auðveldlega.
Sfðustu umferðirnar á
Norðurlandamótinu fara
fram nú um helgina á Hótel
Loftleiðum. 10. umferðin
hefst í dag kl. 16 og 11. og
sfðasta umferðin byrjar á
morgun kl. 13. Bæði er tek-
ist á um Norðurlandameist-
aratitilinn og einnig þrjú
sæti á millisvæðamóti.
LEIÐRETT
Stjórnarmyndunar-
möguleikar
Setning féll niður úr
grein Garðars Pálssonar,
„Gylliboð eru tákn um
getuleysi" í blaðinu í gær,
fimmtudag. Viðkomandi
málsgreinar áttu að vera
sem hér segir:
„Kvennalisti er vegna
starfshátta sinna og for-
ystuleysis dæmdur til að
tapa sínu fyrra fylgi veru-
lega og er því útilokaður
frá öllu stjórnarsamstarfi
að kosningum lokunum.
Alþýðuflokkurinn hefur,
niiðað við síðustu könnun,
aðeins möguleika til að
mynda fjögurra flokka
stjóm (án Sjálfstæðis-
flokksins) og sama gildir
um Alþýðubandalagið.
Framsóknarflokkurinn á
um tvennt að velja. Annars
vegar fjögurra flokka
vinstri stjórn með Alþýðu-
flokki, Alþýðubandalagi og
Þjóðvaka og hins vegar
tveggja flokka stjórn með
Sjálfstæðisflokknum.
Ekki í Bæli
. í viðtali við Hrafnhildi
Yr Víglundsdóttur, sigur-
vegara söngkeppni fram-
haldsskólanna, í Daglegu
lífi sl. föstudag, var mis-
hermt að hún ætti heima í
bænum Bæli. Hún á heima
í bænum Dæli í Víðidal.
f* /"\ÁRA afmæli.í tilefni af því að Þorbjörg Pálsdótt-
DU ir náði sextugs aldri 1. júní 1994 og Eyjólfur
Eysteinsson verður sextugur þann 8. apríl næstkomandi
munu þau hjónin taka á móti gestum í KK-salnum í Kefla-
vík milli kl. 16 og 20 í dag, laugardaginn 1. apríl.
Lesendaþjónusta
Dagbókar
DAGBÓK Morgunblaðs-
ins, í Dag, býður lesend-
um sínum þá þjónustu
að birta tilkynningar um
brúðkaup,. brúðkaupsaf-
mæli, afmæli einstakl-
inga og önnur merkileg
tímamót eða athafnir hjá
einstaklingum og fjöl-
skyldum. Lesendur geta
hringt til Dagbókar kl.
10-12 frá mánudegi til
föstudags í síma 691100
með tilkynningar sínar,
sent þær á faxi í síma
691329 eða sent þær
bréflega. Heimilisfangið
er:
Morgunblaðið-
Dagbók
Kringlan 1,
103, Reykjavík.
Farsi
„Mér er Uta* v)& þessi, hi/e-tjcwcti,
Sþ<zr£snnarir\<asuksr7&/ce.icS. "
HOGNIHREKKVISI
„TÁR. RO/yiA þéfSAPENGU GAGNl 7
fZ&TTAfZSALNU/M."
STJÖRNUSPA
eftir Franccs llrake
HRUTUR
Afmælisbarn dagsins: Um-
hyggjusemi þín og velvild
laða að þérstóran hóp
aðdáenda.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þér berst mjög óvænt góð
gjöf í dag sem kemur þér að
góðum notum þótt síðar verði.
Sýndu þakklæti þitt í verki.
Naut
(20. apríl - 20. maf) (tfö
Það bíða þín mörg verkefni
heima og fjölskyldan er reiðu-
búin ti! að rétta þér hjálpar-
hönd. Hafðu samt hemil á
útgjöldunum.
Tvíburar
(21.maí-20.júnf)
Varastu að falla fyrir freist-
ingum sem bfða þín í sam-
kvæmislífinu, því afleiðing-
arnar gætu orðið slæmar og
langvarandi.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí) H&e
Þú nýtur vinsælda í sam-
kvæmislífínu, en ættir að var-
ast alla sýndarmennsku. Þú
hefur ekkert að fela og hisp-
ursleysi hentar betur.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Gættu þess að skipuleggja vel
dagskrá helgarinnar til að
tryggja að þú verðir heima
þegar góðir gestir koma í
heimsókn.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Smávandamál getur komið
upp varðandi heilsuna, sem
unnt hefði verið að fyrir-
byggja með réttu mataræði
og heilsurækt.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Bjartsýni og glaðlyndi ríkja
hjá þér í dag, og aðrir sækj-
ast eftir nærveru þinni. Sumir
tengjast ástarböndum í kvöld.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Eitthvað sem þú ekki ræður
við veldur þér áhyggjum f dag
og getur haft áhrif á samband
ástvina. Reyndu að sinna ást-
vini betur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú hefur í mörgu að snúast
í félagslífinu, og sumir eru
önnum kafnir við stjómmála-
störf. Þú þiggur spennandi
heimboð í kvöld.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) *
Notaðu daginn til að hvfla
þig, lesa góða bók eða hlusta
á tónlist. Þú ert ekki í skapi
til að sækja skemmtistaði f
kvöld.
Vatnsberi
(20.janúar- 18. febrúar) dk
Þú átt erfitt með að skilja það
sem ástvinur hefur til mál-
anna að leggja, en ættir að
hlusta vel og fylgja góðum
ráðum.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) ’fS*
Þú ert með hugann við
skemmtanalifið í dag, en hef-
ur einnig mikinn áhuga á
menningarmálum og ættir að
líta inn í listasafn.
Stj'ómusþána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni visindalegra stað-
reynda.
Unga fólkið á sér framtíð!
Ný 486/80 mhz tölva
á fermingartilboði!
Hyundai 480G tölva (Í486DX2 - 80 MHz)
Staðgreiðsluverð m/vsk kr.
129.900
Listaverö kr. 144.333
HYUMDAI
Tæknilegar upplýsingar
• 486 0X2 / 80 MHz (megariö)
• 4 MB vinnsluminni
• Móðurborð stækkanlegt
■ Skjákort 1 MB Vesa Local-Bus
• 3,5' 1.44 MB disklingadrif
• 540 MB haröur diskur
• 14" Full-screen S-VGA litaskjár
• 1 samslöa- og 2 raðtengi
• 2 Local-Bus + 5 ISA raufar lausar
• Lyklaborð (Isl.stafir innbrenndir)
• MS-DOS 6.2 • Windows for
Workgroups 3.11 • Mús
Hátækni til framfara
Tæknival
Skeifunni 17 • Sfmi 568-1665 • Fax 568-0664
FIRMINGARGJAÍIR
fyrir hressa
útivistarkrakka
VANGO SVEFNPOKAR
Marco Polo 300
kuldaþol -10°.Verð 6.200,-
Marco Polo 350
kuldaþol -15°.Verð 6.900,-
VANGO BAKPOKAR
Sherpa 55 L
Verð 6.900,-
Sherpa 65 L
Verð 7.500,-
Sherpa 75 L
Verð 7.900,-
VANGO KÚLUTJÖLD
DD 300
Þyngd 4,25 kg
Verð 16.300,-
DD 300
Þyngd 3,75 kg
Verð 11.600,-
FERMINGARTILBOÐ
#
#
&
Svefnpoki Nitestar 2
Kuldaþol -5° Verð kr. 4.200,-
Svefnpoki Nitestar 3
Kuldaþol -10°Verð kr. 4.900,-
Iglu-ls kúlutjald 3 m.
Verð kr. 6.900,-
Tjald DD 300 3 m.
Verð 13.700,-
SPORTHÚS
REYKJAVÍKUR
LAUGAVEGI 44. SlMI 62 24 7 7
BRYNJAR HÖNNUN/RÁÐGJÖF