Morgunblaðið - 01.04.1995, Page 1
B L A Ð
A L L R A
L A
D S
A N
HANDKNATTLEIKUR
„Patrekur hefur
mjog fjol-
breyttan skotstíl"
„ÞEGAR ég stjórnaði átján ára landsliðinu, sem
varð Norðurlandameistari í Finnlandi, spáði
ég því að Patrekur, Ólafur Stefánsson og Dag-
ur Sigurðsson yrði toppleikmenn, sem myndu
ná langt. Sú hefur orðið raunin,“ sagði Geir
Hallsteinsson, fyrrum landsliðsmaður úr FH,
þegar Morgunblaðið spurði hann álits á Pat-
reki Jóhannessyni í gær.
„Patrekur er mjög sterkur varnarleikmaður,
sem vinnur yfirleitt einvígi maður gegn manni
og þá hjálpar hann meðspilurum sínum vel.
Patrekur mætti vera Iúmskari í brotum og
einnig mætti hann, eins og margir aðrir, hætta
að þrasa í dómurum. Patrekur er einnig góður
sóknarleikmaður, sem getur leikið í öllum
þremur útistöðunum í sókn — er ekki síðri
leikmaður á hægri vænginum, þar sem vinstri-
handarskyttur eru venjulega. Hann
hefur mjög fjölbreyttan skotstíl —
getur skotið undirhandarskotum,
kringlað, skotið yfir höfuð leik-
manna og stokkið upp. Ekki veikir
það styrk Patreks, að hann er klókur
gegnumbrotsmaður, sem les varnar-
leik andstæðinganna vel og færir sig
gjaman þar sem vömin er veikust
fyrir. Það sem Patrekur mætti gera
meira af, er að aðstoða aðrar skyttur
í sóknaraðgerðum sínum,“ sagði
Geir.
Patrekur leikmaður íslandsmótsins
PATREKUR Jóhannesson, landsliðsmaður úr KA, sem varð markakðngur 1. deildarkeppninnar í vetur, var í gær útnefndur leik-
maður íslandsmótsins af íþróttafréttamönnum Morgunblaðsins og tók af þvi tilefni við styttunni sem hann hampar á myndinni.
■ Het þroskast mikið / C4
Jttó v0iimMaí» Ví>
1995
LAUGARDAGUR 1. APRIL
BLAÐ
„Hafði gott
af því að
breyta til“
„ÉG var einn af mörgum sem voru
ekki ánægðir með þegar Patrekur
fór frá Stjörnunni til KA, en það
verður þó að viðurkennast að Pat-
rekur hafði mjög gott af því að
breyta til,“ sagði Brynjar Kvaran,
fyrrum landsliðsmarkvörður, sem
lék með Patreki í Stjörnunni og
kenndi honum leikfimi þegar hann
var ungur drengur. „Patrekur var
stór og líkamlega sterkur, það var
ekki hans sterkasta hlið að fara
kollhnís eða handahlaup. Þegar farið var að
leika handknattleik, kunni Patrekur vel við
sig. Það var styrkur Patreks, að hann náði
strax góðri tækni sem leikmaður, en tæknin
hefur oft viljað vera útundan lyá stórum leik-
mönnum,“ sagði Bryiyar.
I
KNATTSPYRNA
SKIÐI
Cantona þarf ekki
að fara í fangelsi
Enskur dómstóll breytti
í gær refsingu sem
franski knattspyrnusnill-
ingurinn Eric Cantona,
leikmaður Manchester Un-
ited, hafði verið dæmdur
til fyrir að sparka í áhorf-
anda í janúar. Var tveggja
vikna fangelsisdómi breytt
í 120 stunda samfélags-
starfa. Hann mun taka út
refsinguna með því að
kenna ungum og upprenn- Erlc Cantona un um framtíðaráform
andi knattspyrnumönnum sín en orðrómur hefur
og konum á Manchestersvæðinu að verið á kreiki um að hann kynni að
auka leikfærni sína. snúa baki við enskri knattspymu og
Cantona gekk brosandi frá dóms- gerast atvinnumaður á Ítalíu.
húsinu í suðurhluta
Lundúna og fjöldi stuðn-
ingsmanna Manchester-
liðsins, sem ferðast
hafði þangað, klöppuðu
honum lof í lóf. Ungar
stúlkur grét\i af gleði.
Maurice Watkins, lög-
maður Manchester Un-
ited, sagði Cantona taka
niðurstöðunni. Hann
hefði ekki tekið ákvörð-
Asta fimmta á sænska
meistaramótinu
Asta 3. Halldórsdóttir, skíðakona frá
ísafirði, varð í fimmta sæti í stórsvigi á
sænska meistaramótinu sem fram fór í Soll-
efteá í gær. Hún hlaut 23,50 fis-stig fyrir
árangur sinn og er það besti árangur hennar
í stórsvigi. Mótið var mjög sterkt og allar bestu
skíðakonur Svía á meðal keppenda nema Pern-
illa Wiberg.
Sigurvegari var Ylva Nomen á 2.10,54 mín.,
Sandra Halidahl var önnur á 2.11,78 mín.,
Erika Hansson þriðja á 2.11,95 mín. og Linda
Ydsskog fjórða á 2.12,17 mín. Asta var á
2.12,47 mín. og Kristina Andersson varð í .9.
sæti, rúmlega sekúndu á eftir Ástu. Allar
sænsku stúlkurnar í þremur efstu sætunum
ásamt Kristinu Andersson er í heimsbikarliði
Svía. Hildur Þorsteinsdóttir frá Akureyri hafn-
aði í 32. sæti á 2.17,40 mín. og fékk fyrir það
52,96 stig.
Ásta Halldórsdóttir náði besta árangri
sínum i stórsvigi.
KORFUKNATTLEIKUR: BLIKASTULKUR UNNU OVÆNTIKEFLAVIK / C2