Morgunblaðið - 01.04.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 01.04.1995, Síða 1
B L A Ð A L L R A L A D S A N HANDKNATTLEIKUR „Patrekur hefur mjog fjol- breyttan skotstíl" „ÞEGAR ég stjórnaði átján ára landsliðinu, sem varð Norðurlandameistari í Finnlandi, spáði ég því að Patrekur, Ólafur Stefánsson og Dag- ur Sigurðsson yrði toppleikmenn, sem myndu ná langt. Sú hefur orðið raunin,“ sagði Geir Hallsteinsson, fyrrum landsliðsmaður úr FH, þegar Morgunblaðið spurði hann álits á Pat- reki Jóhannessyni í gær. „Patrekur er mjög sterkur varnarleikmaður, sem vinnur yfirleitt einvígi maður gegn manni og þá hjálpar hann meðspilurum sínum vel. Patrekur mætti vera Iúmskari í brotum og einnig mætti hann, eins og margir aðrir, hætta að þrasa í dómurum. Patrekur er einnig góður sóknarleikmaður, sem getur leikið í öllum þremur útistöðunum í sókn — er ekki síðri leikmaður á hægri vænginum, þar sem vinstri- handarskyttur eru venjulega. Hann hefur mjög fjölbreyttan skotstíl — getur skotið undirhandarskotum, kringlað, skotið yfir höfuð leik- manna og stokkið upp. Ekki veikir það styrk Patreks, að hann er klókur gegnumbrotsmaður, sem les varnar- leik andstæðinganna vel og færir sig gjaman þar sem vömin er veikust fyrir. Það sem Patrekur mætti gera meira af, er að aðstoða aðrar skyttur í sóknaraðgerðum sínum,“ sagði Geir. Patrekur leikmaður íslandsmótsins PATREKUR Jóhannesson, landsliðsmaður úr KA, sem varð markakðngur 1. deildarkeppninnar í vetur, var í gær útnefndur leik- maður íslandsmótsins af íþróttafréttamönnum Morgunblaðsins og tók af þvi tilefni við styttunni sem hann hampar á myndinni. ■ Het þroskast mikið / C4 Jttó v0iimMaí» Ví> 1995 LAUGARDAGUR 1. APRIL BLAÐ „Hafði gott af því að breyta til“ „ÉG var einn af mörgum sem voru ekki ánægðir með þegar Patrekur fór frá Stjörnunni til KA, en það verður þó að viðurkennast að Pat- rekur hafði mjög gott af því að breyta til,“ sagði Brynjar Kvaran, fyrrum landsliðsmarkvörður, sem lék með Patreki í Stjörnunni og kenndi honum leikfimi þegar hann var ungur drengur. „Patrekur var stór og líkamlega sterkur, það var ekki hans sterkasta hlið að fara kollhnís eða handahlaup. Þegar farið var að leika handknattleik, kunni Patrekur vel við sig. Það var styrkur Patreks, að hann náði strax góðri tækni sem leikmaður, en tæknin hefur oft viljað vera útundan lyá stórum leik- mönnum,“ sagði Bryiyar. I KNATTSPYRNA SKIÐI Cantona þarf ekki að fara í fangelsi Enskur dómstóll breytti í gær refsingu sem franski knattspyrnusnill- ingurinn Eric Cantona, leikmaður Manchester Un- ited, hafði verið dæmdur til fyrir að sparka í áhorf- anda í janúar. Var tveggja vikna fangelsisdómi breytt í 120 stunda samfélags- starfa. Hann mun taka út refsinguna með því að kenna ungum og upprenn- Erlc Cantona un um framtíðaráform andi knattspyrnumönnum sín en orðrómur hefur og konum á Manchestersvæðinu að verið á kreiki um að hann kynni að auka leikfærni sína. snúa baki við enskri knattspymu og Cantona gekk brosandi frá dóms- gerast atvinnumaður á Ítalíu. húsinu í suðurhluta Lundúna og fjöldi stuðn- ingsmanna Manchester- liðsins, sem ferðast hafði þangað, klöppuðu honum lof í lóf. Ungar stúlkur grét\i af gleði. Maurice Watkins, lög- maður Manchester Un- ited, sagði Cantona taka niðurstöðunni. Hann hefði ekki tekið ákvörð- Asta fimmta á sænska meistaramótinu Asta 3. Halldórsdóttir, skíðakona frá ísafirði, varð í fimmta sæti í stórsvigi á sænska meistaramótinu sem fram fór í Soll- efteá í gær. Hún hlaut 23,50 fis-stig fyrir árangur sinn og er það besti árangur hennar í stórsvigi. Mótið var mjög sterkt og allar bestu skíðakonur Svía á meðal keppenda nema Pern- illa Wiberg. Sigurvegari var Ylva Nomen á 2.10,54 mín., Sandra Halidahl var önnur á 2.11,78 mín., Erika Hansson þriðja á 2.11,95 mín. og Linda Ydsskog fjórða á 2.12,17 mín. Asta var á 2.12,47 mín. og Kristina Andersson varð í .9. sæti, rúmlega sekúndu á eftir Ástu. Allar sænsku stúlkurnar í þremur efstu sætunum ásamt Kristinu Andersson er í heimsbikarliði Svía. Hildur Þorsteinsdóttir frá Akureyri hafn- aði í 32. sæti á 2.17,40 mín. og fékk fyrir það 52,96 stig. Ásta Halldórsdóttir náði besta árangri sínum i stórsvigi. KORFUKNATTLEIKUR: BLIKASTULKUR UNNU OVÆNTIKEFLAVIK / C2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.