Morgunblaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 8
8 E LAUGARDAGUR 1. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ Listaverkabókaútgáfa Kiarvalsstaóa SAMTIMAUST ÁBÓK ) n h u r grein LISTASAFN Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum hefur undan- farin ár gefið út margar bækur um innlenda og erlenda listamenn sem sýnt hafa í safninu eða á vegum þess. Bækumar em sumar viðamik- il rit, aðrar geta kallast ítarlegar sýningarskrár. Kjarvalsstaðir em nú með bó- katilboð í gangi. Hér á eftir birtist framhald lista sem birtist í menn- ingarblaðinu 11. mars sl. Kjarval — Landscapes and Figures, Tungumál: enska, þýska Bladsiöufjöldi: 107 Verá: 2.000 Bók sem gefin var út í tilefni sýningar á verkum Kjarvals í Þýskalandi og inniheldur litmyndir af flestum þekktustu verkum lista- mannsins. Guðbjörg Kristjánsdótt- ir, listfræðingur, skrifar grein um líf og list Jóhannesar S. Kjarval. Kjarvat — Paysage et f igures Tungumál: franska Blaósíáuf jöldi: 96 Verá: 2.000 Þessi bók um list Kjarvals á frönsku var gerð í tilefni af sýningu á verkum Kjarvals sem haldin var í Pavillon des Arts í París árið 1993. Kristinn E. Hrafnsson, beekl- ingur Tungumál: islenska, enska. Blaásíöuf jöldi: 6 Verá: 250 Samsýning Ásmundar Sveins- sonar og Kristins E. Hrafnssonar, „Hér getur allt gerst", var opnuð í Ásmundarsafni 21.05 1994.1 þess- ari sýningarskrá, hannaðri af Birgi Andréssyni, era yfirlitsmyndir frá sýningunni ásamt formáia Huldu Valtýsdóttur og grein eftir Kristin E. Hrafnsson. Kristinn G. Haröarson Tungumál: islenska og enska. Blaásiáuf jöldi: 32 Verá: 1.600 Sýning á verkum Kristins G. Harðarsonar var haldin í Miðsal Kjarvalsstaða 6.8.-11.9. 1994. Hann hefur markað sér persónulegt svið með listsköpun sinni, sem um- fram allt felst í því að taka þekkta hluti - oftast venjulega - úr upp- ranalegu umhverfi sínu og gefa þeim nýja og óvænta merkingu. Sýningarskráin, í hönnun Hildi- gunnar Gunnarsdóttur, er prýdd fjölda litmynda af verkum á sýning- unni og af öðrum verkum eftir Kristin ásamt grein eftir listamann- inn sjálfan. Kristján Guámundsson TEIKNINGAR/DRAWINGS 1972-88 Tungumál: íslenska, enska Blaásíáuf jöldi: 60 Verá: 12.00 Sýningarskrá þessi var gerð í til- efni yfirlitssýningar á teikningum Kristjáns Guðmundssonar, sem hann gerði á áranum 1972-88, og var haldin á Kjarvalsstöðum 1989. í bókinni er grein um ævi ög listfer- il Kristjáns eftir Gunnar B. Kvaran, og fjöldi mynda af verkum hans. Kristín Jónsdóttir frá Munka- þverá Tungumál: íslenska, enska Blaósióuf jöldi: 24 Verá: 1.600 Þessi fagurlega mjmdskreytta sýningarskrá var gerð í tilefni sýn- ingar á verkum veflistarkonunnar Kristínar Jónsdóttur frá Munka- þverá á Kjarvalsstöðum 1995. Þar er að finna grein um list hennar eftir Olaf Gíslason sem ber yfir- skriftina Orðið og mynd þess svo og fjölda vandaðra mynda af verk- um hennar. Bókina hannaði Hildigunnur Gunnarsdóttir. Leirlist á islandi Tungumál: islenska, enska Blaásiáuf jöldi: 57 Verá: 1.600 Þessi sýningarskrá var gerð í til- efni sögulegrar yfirlitssýningar á íslenskri leirlist sem var haldin á Kjarvalsstöðum í janúar-febrúar 1995 og bar yfirskriftina Leirlist á íslandi. Bókin hefur að geyma ítar- lega grein um sögu leirlistar á ís- landi eftir Eirík Þorláksson list- fræðing, fjölda mynda af framheij- um íslenskrar leirlistar við störf á vinnustofum sínum, æviferla þátt- takenda sýningarinnar Leirlist á íslandi svo og stórar litmyndir af' verkum þeirra. Lislaverk i Höfóa Tungumál: islenska Blaásíáuf jöldi: 61 Verá: 1.200 Þessi bók um listaverk í Höfða var gefin út árið 1991. Höfði er afar sérstætt hús. Húsið andar af sögu, það er í senn sérstætt og við- felldið og útsýnið þaðan fagurt. En húsið er ekki bara rammi um merka sögu og athyglisverða atburði held- ur er þar jafnframt safn af nokkram fegurstu listaverkum þjóðarinnar. Þetta rit hefur Gunnar B. Kvaran, unnið. Lebel, Jean-Jacques Tungumál: islenska Blaásiáuf jöldi: 32 Verá: 1.200 Þessi sýningarskrá var gerð í til- efni af sýningu Lebels sem var haldin á Kjarvalsstöðum 1991. Hún hefur að geyma greinar um Lebel eftir þá André Pieyre de Mandr- iargues, myndlistarmanninn Viktor Brauner, heimspekinginn Felix Guttari svo og grein sem birtist í I.C.A. Bulletin, Lundúnum árið 1965. Þar að auki eru mjmdir af Lebel ásamt vinum sínum og sam- starfsmönnum við störf og leik svo og Qöldi mynda af verkum hans. Jean-Jacques Lebel er í hópi at- kvæðameiri listamanna samtimans í Frakklandi. Louisa MatthiasdóHir Tungumál: íslenska og enska Blaásiáuf jöldi: 63 Verá: 1.600 Sýningarskrá gerð í tengslum við yfirlitssýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur á Kjarvalsstöðum í ágúst-september 1993. í bókinni að líta litmyndir af verkum þessarar listakonu frá ýmsum tímabilum á listferlinum, en Louisa Matthías- dóttir hefur verið búsett í New York síðustu 40 ár. Kristín Guðna- dóttir, listfræðingur, gerir grein fyrir list og ferli Louisu Matthías- dóttur í grein sinni Tekist á við hefðina. Um hönnun sá Hildigunnur Gunnarsdóttir. Maóurinn i forgrunni Tungumál: islenska Blaásiáufjöldi: 112 Verá: 1.200 Sýningarskrá þessi var gerð í tii- efni af sýningunni Maðurinn í for- granni sem var framlag Listasafns Reykjavíkur á Listahátíð 1988. Á þessari sýningu var leitast við að bregða ljósi á manninn í íslenskri myndlist frá áranum 1965—1988 og sjá hvemig íslenskir myndlistar- menn hafa málað og mótað, túlkað og tjáð myndefnið Maðurinn í mis- munandi formgerðum og stfl. Bókin er í frekar stóru broti og hefur að geyma grein eftir Gunnar B. Kvar- an. Magnús Kjartansson Tungumál: íslenska, enska, Blaásiáuf jöldi: 32 Verá: 1.600 Þessi innbundna sýningarskrá var gerð í tilefni af sýningu á nýjum málverkum Magnúsar Kjartansson- ar á Kjarvalsstöðum í janúar 1994. Á sýningunni á Kjarvalsstöðum sýndi Magnús ný verk sem fjalla um píslarsöguna og má því segja að hér sé um nokkuð afgerandi frá- hvarf frá fyrri verkum hans og vekja þessar myndir upp áleitnar spumingar um myndmálið og for- sendur þess. Bókin er prýdd fallegum litmynd- um af verkunum á sýningunni og grein um list Magnúsar eftir Ólaf Gíslason, gagnrýnanda. Um hönnun sá Birgir Andrésson. Magnús Pájsson, Tungumál: Íslenska og Enska. Verá: 2500 Blaásiáufjöldi: 104 Yfirlitssýning á verkum Magnúsar Pálssonar var haldin 24.9.-23.10. 1994. Sýningarskráin í hönnun Birgis Andréssonar og Caren Héd- en, er á mörkum þess að vera sýn- ingarskrá og bókmenntaverk. Hún gefur góða innsýn og eykur skilning á list Magnúsar. Þar er að finna ljölda mynda og útskýringa með verkum Magnúsar, úrdrætti úr handritum, greinar eftir þá Ingólf Amarsson, Gunnar Árnason og Ólaf Gíslason ásamt ítarlegu viðtali Carenar Heden við Magnús. Magnús Pálsson var einn aðal- þátttakandinn í þeim umbreyting- um í íslensku listalífi á 7. áratugn- um þegar framsæknir listamenn settu til hliðar hefðbundin efni og aðferðir við listsköpunina og tóku að vinna út frá listhugmyndum tengdum fluxushreyfíngunni, arte Povera og conceptlistinni. Allar götur síðan hefur Magnús Pálsson þróað á persónulegan hátt hug- myndalega listsköpun. Magnús hefur einkum unnið skúlptúra, hljóðskúlptúra, umhverf- isverk og performansa. Hann hefur sýnt verk sín sjálfstætt eða með öðram á u.þ.b. 50 sýningum hér heima og erlendis. Miró, úr safni Maeght Tungumál: íslenska Blaásíáuf jöldi: 47 Verá: 1.600 Þessi sýningarskrá var gerð í til- efni af sýningu á verkum Mirós á Kjarvalsstöðum, sem var framlag Listasafns Reykjavíkur til Listahá- tíðar 1992. Þar er að fínna grein um list Mirós eftir Jean Paui Prat, forstöðumann Maeght safnsins í Saint-Paul, Suður-Frakklandi, en þar era verk Mirós varðveitt. Þar að auki hefur hún að geyma mikinn Qölda litmynda af verkum Mirós. Náttúran i list Ásmundar Sveinssonar Tungumál: islenska og enska Blaásiáuf jöldi: 116 Verá: 2.000 Vegleg bók gefín út í tengslum við sýningu í Asmundarsafni í til- efni af aldarafmæli Ásmundar Sveinssonar, myndhöggvara. Fjall- að er um þau verk listamannsins sem tengjast náttúranni í sem víð- ustum skilningi, en þannig era öll helstu verk Ásmundar, s.s. Vatns- berinn, Jámsmiðurinn, Andlit sólar og mörg fleiri. í grein eftir Gunnar B. Kvaran er ferli og list Ásmundar gerð skil. Náttúra/Náttúra Tungumál: islenska og danska. Blaásiáufjöldi: 88 Verá: 2.500 Sýningin Náttúra/Náttúra var samsýning á verkum Ásmundar Sveinssonar og Jóhannesar S. Kjarv- als sem haldin var fyrst í Listasafni Akureyrar í júní 1994, síðan í Kert- eminde í Danmörku ágúst—október 1994 og því næst í Ásmundarsafni við Sigtún janúar— maí 1995. Þessi sýningarskrá, hönnuð af Birgi Andr- éssyni, gefur innsýn í list meistar- anna tveggja. Hún hefur að geyma greinar um list listamannanna; Landslag og verar. Náttúrasýn J.S. Kjarvals eftir Kristínu Guðnadóttur, listfræðing og safnvörð Listasafns Reykjavíkur, og Náttúran í list Ás- mundar Sveinssonar eftir Gunnar B. Kvaran, ásamt fjölda skýringar- mynda og litmynda af verkum meistaranna. Ólafur Gislason Tungumál: islenska, enska Blaásiáuf jöldi: 40 Verá: 1.600 Þessi sýningarskrá var gerð í tengslum við sýningu Ólafs Gísla- sonar sem var opnaði á Kjarvals- stöðum 9. apríl 1994 og bar heitið „Vemissage". Á nútímamáli þýðir „vernissage" aðallega „sýningaropnun" en getur líka haft merkinguna „að skoða myndir áður en þær era lakkaðar" og vísar þá til þeirrar hefðar að listamenn bjóði vinum og kunningj- um að skoða verk sín áður en þau era innsigluð, þ.e. á meðan enn er hægt að breyta þeim áður en sýning á þeim hefst. Það þýðir að lakkhúð- in er ekki sett yfir fyrr en vinir og kunningjar hafa sagt álit sitt á verkinu Þessi sýning Ólafs var þriðja sýn- ingin um þetta þema. Bókin, sem er innbundin, var hönnuð af Birgi Andréssyni og ÓI- afí Gíslasyni. Hún er prýdd fjölda mynda frá „sýningaropnununum" þremur auk greinar eftir Christiane Meyer-Stoll. Rafhaferó Tungumál: islenska, enska, norska Blaásiáufjöldi: 71 Verá: 1.000 Yfirlitsrit um námsferð 16 arki- tektanema frá Arkitektaskólanum í Ósló til íslands haustið 1992. Hópurinn hafði aðsetur í fyrram verksmiðjuhúsi Rafha í Hafnarfírði og vann þar í 3 mánuði að sjálfstæð- um hönnunarverkefnum sem tengd- ust bænum og umhverfí hans. Bók- in er gefin út af Arkitektaskólanum í Ósló. Ragnheióur JónsdóHir Tungumál: islenska, enska Blaásiáuf jöldi: 32 Verá: 1.600 Ragnheiður Jónsdóttir (f. 1933) er löngu kunn sem ein af okkar fremstu grafíklistakonum, en á undanförnum áram hefur hún ekki síður verið að hasla sér völl sem teiknari og hefur um nokkurt skeið aðallega fengist við hið viðkvæma efni, viðarkol. Á sýningu á Kjarvals- stöðum í febrúar 1994 sýndi Ragn- heiður stór verk sem era langt frá því að vera „hefðbundnar teikning- ar“ heldur eiga þau margt sameig- inlegt með rómantísku landslags- málverki. í sýningarskrá, sem gefín var út af þessu tilefni, ritar Halldór Bjöm Runólfsson grein um list Ragnheiðar. RÝMI/TÍMI ■ verkum Errós Tungumál: islenska Blaásíáuf jöldi: 73 Verá: 1.200 Þessi bók inniheldur fræðilega grein um list Errós eftir Gunnar B. Kvaran, auk íjölda mynda af verkum listamannsins og skýringa á þeim. Grein þessi er hluti af rit- gerð sem upphaflega var skrifuð á frönsku á áranum 1981-1982 og birtist hún í Skími árið 1985. September Septem Tungumál: islenska Blaósíóuf jöldi: 80 Verá: 1.200 Upphaf listsýninga á vegum samtaka sem kenndu sig við sept- ember má rekja allt til ársins 1947 en þá munu samtökin hafa verið stofnuð. Félagar samtakanna vora þá: Jóhannes Jóhannesson, Kjartan Guðjónsson, Kristján Davíðsson, Valtýr Pétursson, Þorvaldur Skúla- son, Sigurjón Ólafsson, Nína Tryggvadóttir, Snorri Arinbjarnar- son, Gunnlaugur Scheving og Tove Ólafsson. Þar að auki sýndu ýmsir aðrir þekktir myndlistarmenn með hópnum í skemmri tíma svo sem Ásmundur Sveinsson og Sigurður Guðmundsson. Frá árinu 1952— 1974 varð hlé á samsýningum þessa hóps en margir þeirra sem höfðu talist til hans stofnuðu þá sýningar- hópinn Septem og stóð sá hópur að listsýningum árlega til ársins 1990. Þessi sýningarskrá var gerð í tilefni af síðustu sýningunni, sem hópurinn stóð að saman, en var hún haldin á Kjarvalsstöðum árið 1990. Hún hefur að geyma ítarlega grein um sögu og list Septem hópsins eftir Ólaf Kvaran, félaga hans auk úrvals vandaðra litmynda af verk- um þeirra. Siguróur Árni Sigurósson Tungumál: íslenska og enska. Blaásiáuf jöldi: 32 Verá: 1.600 Sigurður Ámi Sigurðsson var með sýningu í Vestursal Kjarvals- staða frá 6.9.-11.9. 1994. Þessi sýningarskrá, sem Hildigunnur Gunnarsdóttir hannaði hefur að geyma §ölda litmynda af verkum listamannsins auk greinar um list Sigurðar Áma eftir hinn kunna, franska gagnrýnanda Bemard Marcadé. Sigurður Ámi Sigurðsson hefur verið búsettur í París undan- farin ár og hafa verk hans vakið athygli þar og víðar í Evrópu. „SKÚLPTÚR/SKÚLPTÚR/ SKÚLPTÚR" Tungumál: islenska eg enska Blaósióuf jöldi: 147 Verá: 2.500 Þessi viðamikla sýningarskrá, hönnuð af Birgi Andréssyni, er prýdd fjölda litmynda af öllum verk- unum á sýningunni ásamt upplýs- ingum um listamennina. Þar að auki era þar að finna greinar eftir þá Gunnar B. Kvaran, Gunnar Ámason, Halldór B. Runólfsson og Ólaf Gíslason. Sólveig Aóalsleinsdóttir Tungumál: islenska, enska Blaásiáuf jöldi: 32 Verá: 1.600 Sólveig Aðalsteinsdóttir er fædd í Reykjavík 1955. Hún stundaði list- nám á Islandi, í Bandaríkjunum og í Hollandi. Á Kjarvalsstöðum var haldin sýning á skúlptúram Sólveig- ar í febrúar 1994. Bókin er innbundin, hönnuð af Birgi Andréssyni og inniheldur grein um listakonuna eftir Ólaf Gísiason auk fjölda litmynda af verkunum á sýningunni. SÚM 1965-1972 Tungumál: islenska, enska Blaásiáuf jöldi: 176 Verá: 2.500 Þessi bók var gerð í tilefni af samnefndri sýningu árið 1989. Þar er að finna ítarlega úttekt á starf- semi SUM hópsins sem var hópur framsækinna listamanna er hafði mikil áhrif á viðhorf til myndlistar á 7. áratugnum. Formála skrifar Gunnar B. Kvaran, og þar að auki era greinar eftir þá Ölaf Gíslason, Guðberg Bergsson og Halldór Bjöm Runólfsson, svo og viðtöl við lista- mennina Jón Gunnar Ámason, Sig- urjón Jóhannsson, Hrein Friðfinn- son, Sigurð Guðmundsson, Magnús Tómasson, Þórð Ben Sveinsson og Kristján Guðmundsson. Um hönnun sá Birgir Andrésson. Svava Björnsdóttir, sýningarskrá. Tungumál: íslenska, enska. Blaásiáuf jöldi: 34 Verá: 1.600 Svava Bjömsdóttir var valinn borgarlistamaður 1990. Stórir, óhlutbundnir skúlptúrar, sem hún mótar úr pappír, hafa vakið at- hygli. Þessi sýningarskrá, sem var hönnuð af Birgi Andréssyni, var gerð yfir sýningu sem var haldin í apríl-maí 1993 með litmyndum og grein eftir Gunnar B. Kvaran. YOKO ONO - Insound/ Instructure Tungumál: enska, islenska Blaósióuf jöldi: 39 Verá: 1.200 Þessi sýningarskrá var gefín út af Sonia Henie og Niels Onstad safninu í Ósló vegna farandsýning- ar á verkum Yoko Ono um Norður- Iönd á áranum 1990-91. Sýningin var haldin á Kjarvalsstöðum 1991 undir yfirskriftinni Peace! eða Frið- ur!. Sýningarskráin hefur að geyma grein um listsköpun Yoko Ono eftir Inu Blom, myndir af verkum Yoko auk útskýringa á þeim, ljóð, smá- sögur, greinar og ýmsar hugrenn- ingar listakonunnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.