Morgunblaðið - 02.04.1995, Side 8
8 B SUNNUDAGUR 2. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ELTON John fæddist 25
mars 1947 og var gefið
nafnið Reginald Kenn-
eth Dwight. Hann hefur lýst erf-
iðri æsku sinni í viðtölum; sagst
hafa verið mjög háður móður
sinni, en óttast föður sinn að sama
skapi og síðustu tíu árin sem fað-
ir hans lifði hittust þeir feðgar
aðeins tvívegis.
Elton sýndi snemma tónlistar-
gáfu; var farinn að leika á píanó
fjögurra ára gamall, en hann
hafði ekki minni áhuga á knatt-
spyrnu og lengi vel þráði hann
að verða atvinnumaður í íþrótt-
inni. Hann þótti þó of feitur til
að ná árangri í knattspyrnu og
tónlistin varð aðaláhugamálið, þó
knattspyrnuáhuginn hafi síðar
fengið útrás þegar hann keypti
knattspyrnuliðið Watford, en þar
er hann æviforseti í dag.
Ellefu ára gamall fékk Elton
John styrk til náms í konunglegu
tónlistarakademíunni og sautján
ára var hann kominn í hljómsveit-
ina Bluesology og lék þar á píanó.
Söngvari sveitarinnar var Long
John Baldry og eftir valdabaráttu
innan hennar var nafninu breytt
í The Long John Baldry Show,
og Elton hætti, en sviðsnafnið
sem hefur fylgt honum síðan tók
hann upp eftir skírnarnafni Baldr-
ys og saxófónleikarans, Eltons
Deans.
1967 svaraði Elton John aug-
lýsingu eftir söngvara í hljóm-
sveit, fékk ekki starfið, en komst
í samband Bernie Taupin, sem
átti eftir að verða textasmiður
hans upp frá því. Framan af
sömdu þeir saman lög með aðstoð
póstþjónustunnar, því það var
ekki fyrr en eftir nokkurra mán-
aða samstarf að þeir hittust í
fyrsta sinn, og Elton hefur reynd-
ar lýst því að þeir hittist sjaldan,
þó þeim komi ágætlega saman,
og ræði aldrei texta Taupins, og
segist hann iðulega ekki hafa
hugmynd um hvað hann sé að
syngja. Fyrsta breiðskífa Eltons
kom út 1969 og vakti litla at-
hygli, en önnur skífan, sem hét
Elton John, kom honum á kortið
svo um munar, því lag af plöt-
unni komst ofarlega á bandaríska
smáskífulistanum og platan seld-
ist prýðilega í kjölfarið, sem og
næstu plötur, en alls hefur hann
gefið út 40 breiðskífur, sem allar
hafa náð gullsölu og margar plat-
ínusölu. Sú velgengni hefur gert
Elton John að vinsælustu popp-
stjörnu sögunnar næst á eftir
Elvis Presley. Plötur hans hafa
selst í 250 milljónum eintaka um
heim allan, hann hefur átt lag á
bandaríska smáskífulistanum á
hveiju ári síðan 1970, 25 lög alls
sem slær Elvis Presley við, en
fjórtán laganna fóru í efsta sæti,
og komið sjö breiðskífum í röð í
efsta sæti breiðskífulistans þar í
landi, sem telst met. Fyrir vikið
veit Elton John ekki aura sinna
tal.
Glys og glaumur
Elton John var ekki síst þekkt-
ur fyrir glys og glaum á sínum
mektarárum. Allt tók það sinn
toll, því eftir því sem áíagið var
meira í tónleikahaldi og hama-
gangi, leitaði hann sér huggunar
í flöskunni, var virkur alkóhólisti
um áraraðir og hellti sér svo af
krafti út í kókaínneyslu. Saga
þessara ára er að mörgu leyti
dæmigerð saga fíkils, hann var
fullur sjálfseyðingarhvatar,
reyndi tvívegis að svipta sig lífi
en þá á þann hátt að honum yrði
auðveldlega bjargað, og fræg er
sagan af því þegar Bernie Taupin
kom að honum þar sem hann
hafi lagst með höfuðið inn í gas-
ofn á heimili sínu rneð kodda und-
ir höfðinu svo ekki færi illa um
hann. Önnur saga er af því þegar
BRESKI píanóleikarinn og söngvarinn Elton
John er einn vinsælasti tónlistarmaður sög-
unnar og hefur reyndar slegið öllum nema
Elvis Presley við. Ami Matthíasson segir
hér af lífí Eltons sem ekki hefur alltaf verið
dans á rósum og ekki er langt síðan gjálífíð
virtist ætla ganga af honum dauðum.
hann át of stóran skammt af ró-
andi lyfjum og stakk sér svo til
sunds í von um að drukkna, en í
lauginni voru þá móðir hans og
amma. Elton hefur lýst því opin-
skátt hvernig kókaínneyslan hel-
tók hann ofan í alkóhólismann;
hvernig hann tróð í sig kókaíni
sem mest hann mátti og drakk
síðan brennivín eins og hann ætti
lífið að leysa ofan í allt saman.
Þegar fíkniefnin náðu ekki að
gera hann glaðan keypti hann sér
nýtt hús til að byija nýtt líf, eða
fluttist úr landi, eða keypti sér
bíl og frægt var gleraugnasafn
hans og innkaupaæðið. Smá-
munasemin og söfnunaráráttan,
sem magnaðist á þessum árum,
hefur þó fylgt honum alla tíð og
þannig var hver einasta plata í
plötusafninu vandlega merkt Reg.
Dwight og númeri.
Safnið, sem fyllti heila
vöruskemmu, hafði
hann ekki litið augum
í nokkur ár þegar hann
seldi það á endanum
fyrir tveimur árum.
Plöturnar voru honum og kærar
og sagan hermir að þegar hann
og sambýlismaður hans skráðu
sig í meðferðina áttu þeir að lýsa
því versta í fari hvor annars. Sam-
býlismaðurinn skrifaði að Elton
væri áfengis- og kókaínfíkill, iðu-
lega rynni á hann æði, hann væri
heltekinn af lotugræðgi og kæmi
illa fram við alla í kringum sig.
Það eina sem Elton sá neikvætt
við sambýlismanninn var að hann
gekk aldrei frá geisladiskunum
eftir sig.
Önnur saga af smámunasem-
inni er af því er hann var eitt sinn
á förum til útlanda frá Heathrow.
í farangrinum voru 42 ferðatösk-
ur; allar vandlega merktar: Brúnn
skófatnaður, svartur skófatnaður,
hvítar skyrtur o.s.frv.
Út úr skápnum
1976 sagði Elton John í viðtali
við Rolling Stone að hann væri
tvíkynhneigður og að hluti af erf-
iðleikunum í lífi hans væri sprott-
inn af því. Síðar sagðist hann
hafa verið haldinn mikilli homma-
fælni og því átt erfitt með að við-
urkenna að hann væri hommi, þó
hann hafi enga löngun haft til
kvenna. Þrátt fyrir þessa yfirlýs-
ingu kvæntist hann á áttunda
áratugnum, en það hjónaband var
frekar leið fíkilsins til að reyna
að breyta til í lífi sínu; hann sagði
í viðtali fyrir stuttu að hann hefði
talið að þar með væru öll sín
vandamál úr sögunni. Það var þó
öðru nær. Hjónabandið kom ekki
í veg fyrir kókaínneysluna, en
hann neytti á þessum árum um
átta gramma af kókaíni á dag;
bætti á sig á fjögurra mínútna
fresti.
Upp úr hjónabandinu slitnaði
líka fljótlega og vandamálin héldu
áfram að vaxa honum yfir höfuð.
Ofan á fíkniefnaneysluna bættist
lotugræði, sem spratt
ekki síst af kókaínneysl-
unni; Elton segist hafa
verið í samfelldri kóka-
ínvímu án þess að borða
í þijá til fjóra daga í
einu, en þá belgt sig út
af hjartaskel og fleskjusamlokum.
Að lokum hefði hann síðan etið
lítra af vanilluís, meðal annars til
að auðvelda sér að æla öllu saman
svo hann gæti byijað á nýjum
skammti. Geðsveiflurnar voru
eðlilega miklar á þessum tíma og
margoft var hegðun hann
ósmekkleg og ósæmileg, en dag-
inn eftir mundi hann ekkert.
Kókaínneyslunni fylgdu einnig
krampaflog og til að vinna á þeim
var hann samfellt á lyfjum. Svo
langt gengu hörmungarnar að
móðir hans flúði til Spánar til að
losna frá syninum.
Virkt og fjölbreytt
kynlíf
Elton John lýsti því í viðtölum
fyrir skemmstu að hann hafi
meðal annars nýtt sér fíkniefnin
til að tryggja sér ástmenn og á
áttunda áratugnum lifði hann
mjög virku og fjölbreyttu kynlífi.
Hann segist lofa guð fyrir að
hafa komist hjá alnæmissmiti og
skrifar það á einskæra heppni en
ekki aðgát.
Baráttan gegn alnæmi hefur
reyndar verið eitt helsta hugðar-
efni Eltons Johns undanfarin ár
og þannig renna öll höfundargjöld
af smáskífum hans til alnæmis-
stofnunar sem hann kom á fót
og hefur sem helsta markmið að
aðstoða þá sem haldnir eru sjúk-
dómnum og gera þeim síðustu
ævidagana sem auðveld-
asta. Meðal annars seldi
hann gríðarlegt plötu-
safn sitt á uppboði, al-
ræmt gleraugnasafn og
skrautlegir fataleppar
hafa farið sömu leið og
allt fé runnið til líknarmála, en
alls hefur hann lagt stofnuninni
til á fjórða hundrað milljóna
króna.
Áhugann á að styðja alnæm-
issjúklinga segist Elton hafa frá
ungum manni sem hann kynntist
og lést úr alnæmi. Reyndar segir
hann að þau kynni hafi bjargað
lífi sínu, því eftir að hafa komist
í svo nána snertingu við dauðann
hafi hann horfst í augu við sjálfan
sig og ekki líkað það sem hann sá.
Sigrast á smádjöflunum
Þannig segist Elton hafa losað
sig við sitthvað út fortíðinni sem
hann hefur helst viljað gleyma
og eftir hremmingar liðinna ára
hefur hann sigrast á smádjöflun-
um sem ofsóttu hann og snúið
aftur úr því víti sem hann bjó
sjálfum sér. Alla tíð hefur hann
haldið vinsældum sínum, þó hann
væri svo útúr heiminum á tónleik-
um að hann vissi ekki í hvaða
landi hann var og jafnvel festist
í lögum og endurtók sömu erindin
aftur og aftur.
Lög hans hafa líka alla tíð átt
greiða leið að hjörtum fólks og
þegar þessi orð eru lesin er ör-
uggt að verið er að leika eitt-
hvert laga hans einhvers staðar
í heiminum. Til marks um vin-
sældir Eltons og tryggð áheyr-
enda, að minnsta kosti í Bret-
landi, má geta þ'ess, að þegar
breska dagblaðið The Sun, sem
ekki er vant að virðingu sinni,
birti rætnar lygar um hann sögðu
200.000 áskrifendur blaðinu upp.
Hann brást og hart við, fór í mál
við blaðið og fékk um 100 milljón-
ir króna í miskabætur.
Eftir meðferðina hefur Elton
John sótt verulega í sig veðrið
að nýju, enda segir hann að sér
líði eins og hann sé að byija upp
á nýtt, upp fullur af orku og
starfsgleði, og með
mikill velgengni tónlist-
arinnar úr teiknimynd-
inni Lion King, sem
hann hlaut meðal ann-
ars Grammy-verðlaun
og óskarsverðlaun fyrir,
hefur hann náð til nýs hóps ungra
áheyrenda, en platan hefur selst
í á níundu milljón eintaka. Fyrir
skemmstu kom svo út ný breið-
skífa Eltons, Made in England,
sem á eflaust eftir að seljast í
bílförmum.
Þrátt fyrir ólifnaðinn hefur El-
ton John ekki síst haldið vinsæld-
um sínum vegna þess að hann er
skemmtikraftur fram í fingur-
góma; hann sagði reyndar ein-
hveiju sinni að hann myndi leika
á píanó fyrir fólk á meðan hann
hefði fingur til þess, þó það væri
ekki nema einn.
Farinn að
leika á píanó
fjögurra ára
gamall.
Bætti á sig
kókaíni á
fjögurra mín-
útna fresti.