Morgunblaðið - 02.04.1995, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÓMAR, bróðir Önnu, færir til skilrúm í býflugnakassanum.
ég var þar. Honum lék forvitni á
að vita hvemig stungur virkuðu á
hann sjálfan og lét stinga sig í bólg-
inn ökkla, en hann hafði misstigið
sig stuttu áður. Hann lagaðist í ökk-
lanum en sagði að það gerðist nú
venjulega með tímanúm hvort sem
væri. Aðspurður um hvernig stæði
á áhuga hans á býflugnastungum
sagði hann það vera af því að einn
af sjúklingum hans, með MS-sjúk-
dóm, hafði fengið undraverðan bata
af þeim og ekki hafí verið hægt að
véfengja að það væri stungunum
að þakka. Eftir að hafa fylgst með
fleiri sjúklingum með aðra sjúkdóma
eftir slíka meðferð sagðist hann
frekar hvetja fólk en letja til að reyna
þær, ef aðrar meðferðir hefðu ekki
komið að gagni.
Hjá mér kom ekki fram bati af
þeim 95 stungum sem ég fékk þenn-
an mánuð sem ég dvaldi þarna.
Charles taldi að ég þyrfti margra
mánaða meðferð og ekki væri útséð
fyrr en eftir 3.000 stuiigur hvort
þær kæmu mér að gagni. Einhver
gæti spurt: Var þetta sárt? Því verð
ég að svara játandi, en það var
mjög misjafnt eftir því hvar stungið
var. Sársaukinn var mestur þar sem
lítið hold var undir, en mikið bæri-
legri ef stungið var í vöðva og
kælt vel á undan. Eftir það sem ég
sá og heyrði um bata fólks sem
beint mátti þakka býflugna-
stungnameðferð vil ég að lokum
segja: Flest er einstaklingsbundið
og enginn veit fyrr en reynt hefur
hvort þessi eða hin meðferðin hjálp-
ar honum. Þess vegna er vert að
athuga alla möguleika.
Greinarhöfundur hcfur til hings
tíma kynnt sér aJþýðulækningar.
Býflugnaræktun
Á MEÐAN ég dvaldi í Vermont
byijuðu Anna og Sigurður að
rækta býflugur og fékk ég þvi
nasasjón af þvi hvernig farið
er að við slíka búgrein. Þau ieit-
uðu til manns sem er býflugna-
ræktandi, hann seldi þeim eitt
bú með tveimur drottningum.
Umrætt bú er viðarkassi sem
er um 40x40 cm í þvermál og
um 25 cm hár. í honum er oft-
ast komið fyrir 10 piötum úr
býflugnavaxi, sem Látnar eru
standa lóðrétt og festar í kass-
ann með viðarrönd, sem sett er
efst á hveija vaxplötu.
Flugurnar timgast hratt og
verður því að fjölga kössunum
ört og er það gert með því að
taka lokið af og bæta öðrum
eins, en botnlausum, ofan á.
Þegar kassinn er til staðar
flytja flugurnar sig og koma
sér upp nýrri drottningu. Að-
eins ein drottning er í hverju
flugusamfélagi og sér hún um
að klekja út nýjum einstakling-
um. Síðan skipta þær með sér
verkum. Sumar eru heimavinn-
andi og fara ekki út úr kassan-
um, en hinar fara út og safna
hunangi. Ekki veit ég hvort
jafnréttislög þekkjast í slíku
samfélagi, en er í fljótu bragði
er ekki útlit fyrir að svo sé, þvi
það klekjast ekki út nema kven-
flugur og gæti það kannski
verið skýringin á þvi að býflug-
ur eru sagðar með starfsöm-
ustu dýrum sem vitað er um.
Einn morguninn, stuttu eftir
að flugurnar komu, varð uppi
fótur og fit, því stór, svartur
blettur sást á næsta tré þar sem
kassanum hafði verið komið
fyrir. Anna áttaði sig strax á
hvað var að gerast. Flugurnar
voru gengnar úr vistinni. Velt
var vöngum yfir þvi hvernig
hægt væri að iokka þær aftur
inn í kassann, en áður en iausn
fannst á þvi máli flaug drottn-
ingin með friðu fðruneyti á
braut. Býflugnaræktandinn
sagði þeim að hafa ekki áhyggj-
ur af þessu, því drottningin
yfirgæfi aldrei búið nema
drottningarlirfa væri eftir,
þannig að önnur klektist út tií
að halda stofninum við. Trúiegt
er að flestum sé kunnugt um
afurðir býflugnanna, sem fyrst
og fremst er hunangið, en einn-
ig er unnið töluvert úr vaxinu,
t.d. kerti og skilrúmin í ræktun-
arkassana eins og áður er nefnt
og á undanförnum árum hefur
aukist framleiðsla náttúrulyfja
sem unnin eru úr propoiiis, sem
er sýklaeyðandi efni er býflug-
ur framleiða og nota sjálfar
sem sóttvörn.
SUNNUDAGUR 2. APRÍL1995 B 23
HEFUR ÞÚ FENGIÐ IÐGJALDAYFIRUTIÐ?
Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur sent sjóðfélögum yfirlit yfir móttekin
iðgjöld á tímabilinu 1. september 1994 til 28. febrúar 1995. Ekki er óeðlilegt
að greiðslur fyrir mánuðina desember 1994 til febrúar 1995 vanti á yfirlitið.
Hafir þú ekki fengið yfirlit, en dregið hafi verið af launum þínum í Lífeyrissjóð
verzlunarmanna, eða ef launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, þá vinsam-
legast hafið samband við innheimtudeild sjóðsins hið allra fyrsta og eigi síðar
en 1. maí nk.
Verði vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð geta dýrmæt réttindi glatast:
ELLILÍFEYRIR-ÖRORKULÍFEYRIR-MAKALÍFEYRIR-BARNALÍFEYRIR
GÆTTU RÉTTAR ÞÍNS!
í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðarsjóðs launa vegna gjaldþrota skulu
launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til
viðkomandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja
lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki
fram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grund-
velli iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið
kunnugt um iðgjaldakröfuna.
W LÍFEYRISSJÓDUR VERZLUNARMANNA
HÚSI VERSLUNARINNAR, 4. HÆÐ, 103 REYKJAVÍK,
SKRIFSTOFA SJÓÐSINS ER OPIN FRÁ KL. 9.00-17.00.
SÍMI 581 4033, FAX 568 5092.
ORÐABÆKURNAR
óPÝRftR
íslensk
ensk
ordobók
°ÖMsk
Olelionory
TÍiííÍ
TliBÖfi
**k
jlensk
'slensk
e*sk *
°rdObók
Donsk
islensk
íslensk
dönsk
ordnbók
rromiL
islensk
íslensk
frönsk
ordobók
íslensk
íslensk
þýsk
orðabók
íslensk
úfensk
ífölsk
orðabók
Spænsk
íslensk
tslensk
orðabók
Ódýrar og góðar orðabækur fyrir skólann.
á skrifstofuna og í ferðalagið
ORÐABÓKAÚTGÁFAN
O, V,
w
J