Morgunblaðið - 02.04.1995, Qupperneq 28
28 B SUNNUDAGUR 2. APRÍL1995
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNUAÍ /r^/ VS/K/r^A/?
■ ■r ■ m \S7L I ^JI I \IkS7/\I\
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími552-7277.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað
uppeldismenntað starfsfólk í leikskólann
Hlíðarborg v/Eskihlíð.
Upplýsingar gefur viðkomandi leikskólastjóri
í síma 552-0096. Leikskólar Reykjavíkurborg-
ar eru reyklausir vinnustaðir.
Ferðamálafulltrúi
Bæjarsjóður ísafjarðar auglýsir nýtt starf
ferðamálafulltrúa laust til umsóknar. Mennt-
un og/eða reynsla á sviði markaðs- og ferða-
mála æskileg.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf ber að senda inn eigi síðar en
9. apríl.
Ferðamálanefnd ísafjarðarkaupstaðar.
Verkefnisstjóri
skólavistunar
Óskum eftir að ráða verkefnisstjóra við skipu-
lagningu á skólavistun og matarmálum nem-
enda í grunnskólum Akureyrarbæjar.
Um er að ræða tímabundna ráðningu.
Uppeldismenntun eða sambærileg menntun
nauðsynleg. Starfið felst m.a. í að:
A. Vinna upp, í samráði við viðkomandi
skólastjórnendur, tillögur að bættri að-
stöðu í hverjum skóla fyrir skólavistun
og matarmál nemenda.
B. Annast ráðgjöf við framkvæmd skólavist-
unar.
C. Undirbúa kynningargögn til að senda for-
eldrum og kanna þörf fyrir þjónustuna
og annist úrvinnslu úr slíkum könnunum.
Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af
rekstri skóladagheimilis eða hliðstæðri starf-
semi. Hefja þarf störf sem fyrst.
Upplýsingar gefa skólafulltrúi í símum 21000
og 27245 og starfsmannastjóri í síma 21000.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl nk.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild
Akureyrarbæjar.
Starfsmannastjóri.
Flugmenn
Flugfélag IMorðurlands óskareftirflugmönn-
um til starfa í 4 mánuði í sumar.
Umsækjendur þurfa að vera handhafar at-
vinnumannsskírteinis með blindflugsáritun
fyrir fjölhreyfla flugvélar.
Umsækjendur skulu ennfremur hafa lokið
stúdentsprófi og bóklegu prófi fyrir atvinnu-
flugmannsskírteini 1. flokks, nema þeir séu
handhafar þess skírteinis.
Umsækjendur skulu reiðubúnir til þess að
gangast undir hæfnispróf.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um
menntun og flugreynslu þurfa að hafa borist
félaginu eigi síðar en föstudaginn 7. apríl.
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
fluqfélaq
nordurlands hf.
Pósthólf400, 602 Akureyri.
Slökkviliðsstjóri
Laust er til umsóknar starf slökkviliðsstjóra
hjá Brunavörnum Eskifjarðar- Reyðarfjarðar
b/s. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu
og þekkingu á sviði brunavarna og slökkvi-
mála.
Umsækjendur leggi inn skriflega umsókn,
ásamt ítarlegri greinargerð um menntun og
reynslu á þessum sviðum.
Launakjör eru samkvæmt samningi sveitar-
félaganna við FOSA.
Umsóknarfrestur er til og með 21. apríl nk.
Upplýsingar veitir sveitarstjóri Reyðarfjarðar,
ísak Ólafsson, í síma 97-41245.
Viltu læra?
Lærling vantar í verslun. Við erum sérverslun
með nátt- og nærfatnað. Við erum að leita
að stúlku, ekki yngri en 18 ára, sem er aðlað-
andi, snyrtileg, geðgóð og hress. Hún þarf
að vera vel máli farin, hugsa sjálfstætt, hafa
þjónustulund og vera reiðubúin að læra.
í boði er framtíðarstarf sem fólgið er í að sinna
þörfum viðskiptavinarins. Við munum kenna
framkomu, sölutækni, um framleiðslu og efni
vörunnar og annað er lítur að vinnu í verslun.
Eiginhandarumsóknir óskast sendar undirrit-
uðum fyrir 10. apríl.
Óðinsgötu 2.
101 Reykjavík.
F I S K I S T O F A
Fiskistofa
- veiðieftirlit
Fiskistofa óskar eftir umsóknum í eftirtalin
störf í veiðieftirliti:
1. Deildarstjóri
Lögfræði- eða viðskiptafræðimenntun æski-
leg. Starfið felst í því að fara yfir og fylgja
eftir skýrslum veiðieftirlitsmanna um meint
brot á fiskveiðilöggjöfinni, auk þess að veita
forstöðu nýrri deild veiðieftirlitsins sem hefur
það verkefni, að skoða bókhald fiskvinnslu-
fyrirtækja og bera saman keypt hráefni og
framleiðslu. Deildarstjórinn mun einnig hafa
yfirumsjón eftirlits með framkvæmd reglu-
gerðar um vigtun sjávarafla og vera forstöðu-
manni til aðstoðar við skipulagningu starfa
veiðieftirlitsmanna á hinum ýmsu höfnum
landsins.
2. Sérfræðingur
Háskólamenntun á sviði viðskipta- og hag-
fræði æskileg, bókhaldsþekking nauðsynleg.
Starfið felst einkum í því að skoða bókhald
fiskvinnslufyrirtækja og bera saman keypt
hráefni og framleiðslu.
3. Veiðieftirlitsmaður
Skipstjórnarmenntun og reynsla æskileg
og/eða menntun og reynsla við fiskvinnslu
ásamt enskukunnáttu.
4. Sumarafleysingar
Allt að fimm veiðieftirlitsmenn til sumaraf-
leysinga mánuðina júní til september. Skip-
stjórnarmenntun og enskukunnátta nauð-
synleg.
Nánari upplýsingar veita Guðmundur Karls-
son og Atli Atlason í síma 697900
á skrifstofutíma.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Fiskistofu, Ingólfsstræti 1, 150 Reykjavík,
fyrir 12. apríl nk.
Skrifstofustarf
Útflutningsfyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
óskar eftir að ráða starfsmann í launabók-
hald, gerð útflutningsskjala auk almennra
skrifstofustarfa. Um er að ræða heilsdags-
starf á reyklausum vinnustað. Mjög góð
vinnuaðstaða. Æskilegt er, en þó ekki skil-
yrði, að viðkomandi hafi kunnáttu í Fjölni.
Umsóknum skal skila á afgreiðslu Mbl. fyrir
11. apríl nk. merkt: „S - 16152“.
Laus staða
Staða framkvæmdastjóra eftirlitssviðs Siglinga-
málastofnunar ríkisins er laus til umsóknar.
Umsækjendur skulu uppfylla sambærilegar
kröfur og gerðar eru til yfirmanna flokkunar-
félaga, verkfræðimenntun og helst fram-
haldsnám í skipaverkfræði, hafa góða tungu-
málakunnáttu, ásamt reynslu á sviði stjórn-
unar. Laun samkv. launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,.
menntun og fyrri störf, sendist samgöngu-
málaráðuneytinu fyrir 5. apríl 1995. Með
upplýsingar um umsóknir verður farið skv.
ákvæðum laga nr. 38/1954 um réttindi og
skyldur opinberra starfsmanna og stjórn-
sýslulaga nr. 37/1993.
Siglingamálastofnun ríkisins.
Umhverfisfulltrúi
Laust er til umsóknar starf umhverfisfulltrúa
á skrifstofu Ferðamálaráðs íslands á Akur-
eyri. Ráðið verður f starfið frá 1. maí eða
eftir nánara samkomulagi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi:
★ Þekkingu og menntun á sviði umhverfis-
mála.
★ Reynslu af störfum sem tengjast ferða-
þjónustu og umhverfismálum.
★ Góða tungumálakunnáttu svo og gott
vald á íslensku í ræðu og riti.
Launakjör eru skv. launakerfi opinberra
starfsmanna.
Umsóknir með greinargóðum upplýsingum
um menntun og fyrri störf berist fyrir 20.
apríl nk. til Ferðamálaráðs íslands, Strand-
götu 29, 600 Akureyri.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga
Haraldsdóttir, forstöðumaður, í síma
96-12915.
FERÐAMÁLARÁÐ
ÍSLANDS
Mötuneyti
Óskum eftir að ráða starfskraft til starfa hjá
Vita- og hafnarmálastofnuninni í Kópavogi.
Starfsmannafjöldi ca. 40.
Starfssvið: Dagleg matseld, heitur matur í
hádegi, umsjón með morgun- og síðdegi-
skaffi.
Vinnutími: Kl. 8.00-12.00 aðra vikuna og
12.00-16.00 hina vikuna, eða eftir nánara
samkomulagi við samstarfsmenn. Laust
strax.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar
„Matreiðsla 118“ fyrir 6. apríl nk.
Hagva ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík Sími 813666 Róðningarþjónusta Rekstrarróðgjöf Skoðanakannanir