Morgunblaðið - 02.04.1995, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. APRÍL1995 B 31
RAÐAUGí YSINGAR
B 0 Ð »>
Námskeið fyrir innkaupafólk
ríkisstofnana um lög
og reglur varðandi innkaup
og útboð á vegum ríkisins
Ríkiskaup munu í apríi- og maímánuði
gangast fyrir námskeiðum um þau lög
og reglur sem innkaupafóik ríkisstofnana
þarf að kunna skil á í starfi sínu. Nám-
skeiðin verða haldin á þriðjudögum og
eru frá kl. 13.00-16.30.
Þeir, sem áhuga hafa, eru beðnir að
hafa samband við Ríkiskaup, sem fyrst.
'WRÍKISKAUP
^88^ Ú t b o b s k i I a árangrit
BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 552-6844,
BRÉFASÍMI 562-6739
EIMSKIP
Útboð
Hf. Eimskipafélag íslands óskar hér með
eftir tilboðum í reykræsilúgur og stjórnbúnað
þeirra í vörugeymslur félagsins í Sundahöf n.
Helstu stærðir eru: Reykræsilúgur, 22 stk.
Stjórntöflur, 4 stk.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu
Stefáns Ólafssonar hf., Borgartúni 20, 105
Reykjavík, gegn 3.000 kr. skilatryggingu. Til-
boðum skal skila á sama stað eigi síðar en
föstudaginn 21. apríl kl. 11.00.
VERKnUXOItTOM
STCfANS OLAFSSONAH HT. fAV.
Borgartúni 20, 105 Reykjavík, sími 621099
Útboð
PHARMACO hf. óskar eftir tilboðum í bygg-
ingu á stækkun lager- og skrifstofuhúsnæðis
í Hörgatúni 2, Garðabæ. »
Húsið er steinsteypt, tvær hæðir og milli-
gólf, grunnflötur alls 3800 m2.
Húsið verður fullfrágengið að utan og
útveggir innanhúss fullfrágengnir.
Útboðsgögn eru seld á kr. 4.500 á Vinnustof-
unni Klöpp hf., Hverfisgötu 46, frá og með
fimmtudeginum 6. apríl nk.
Tilboð verða opnuð í Stjörnuheimilinu við
Ásgarð í Garðabæ föstudaginn 21. apríl
kl. 11.00.
Vinnustofan Klöpp hf.,
sími 552 7777.
iJ&J
KÓPAVOGSBÆR
ÚTBOÐ
Verknámshús fyrir hótel- og
matvælagreinar
Kópavogsbær óskar eftir tilboðum í
eftirfarandi:
A) Álkæddir gluggar, gler og ál-útihurðir.
B) Slípaðar steinflísar í utanhússklæðningar
ásamt tilheyrandi festibúnaði (flísamagn
ca 1500 m2)
Útboðsgögn verða afhent frá og með mið-
vikudeginum 5. apríl 1995 á verkfræðistof-
unni Hamraborg, Hamraborg 10, Kópavogi,
gegn kr. 15.000,- skilatryggingu fyrir hvorn
verkþátt.
Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofum
Kópavogs mánudaginn 24. apríl kl. 11.00 að
viðstöddum þeim bjóðendum sem þess
óska.
T JTT Verkfræðistofan Hamraborg
■/ m M Hamraborg 10 , 200 Kópavogur
V JLM. Sími: 91-42200. Fax: 91-642277
Tilboð
Bifreiðaútboð á tjónabifreiðum er alla virka
mánudaga frá kl. 9.00-18.00. Ljósmyndir af
bifreiðunum liggja frammi hjá umboðsmönn-
um SJÓVÁR-ALMENNRA víða um land.
Upplýsingar í símsvara 91-671285.
■ Drajihálsi I4-Í6, 110 Reykjai'ik, simi 611120, lelefax 612620
Sendibíll/húsbfll óskast
í skiptum fyrir 60 fm heilsárshús úti á landi.
Mjög falleg staðsetning.
Verðhugmynd 1.600 þús.
Upplýsingar í símum 565 5186 og 565 6105
eða 985-29057.
Veitingasala í Skaftafelli
sumarið 1995
Óskum eftir að leigja út veitingaaðstöðu í
Skaftafelli í sumar. Um er að ræða veitinga-
sali ásamt garðskála, eldhúsi, eldunartækj-
um, borðbúnaði og tækjabúnaði.
Leigutíminn er frá byrjun júní og fram í fyrstu
viku september.
Nánari upplýsingar veitir kaupfélagsstjóri á
skrifstofu kaupfélagsins í síma 93-71200.
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga,
Hornafirði.
Jörð til ábúðar
Lögbýlið Brúnir, Eyjafjarðarsveit er laust til
ábúðar frá næstu fardögum að telja. Jörðin
er úrskipt úr landi prestsetursjarðarinnar
Syðra-Laugalands.
Enginn framleiðslurétturfylgir jörðinni. Æski-
legt er að viðtakandi gangi inn í kaup á eign-
um fráfarandi ábúenda en kaupverð ákvarð-
ast af úttektarmönnum.
Húsakostur á jörðinni er sem hér segir: íbúð-
arhús 183 fm á einni hæð byggt 1977, bíl-
skúr 56 fm ófullgerður, byggður 1987 og fjár-
og geldneytahús 289 fm ásamt haughúsi
byggt úr steinsteypu 1989. Ráðstöfun jarðar-
innar er m.a. háð samþykki jarðanefndar og
sveitarstjórnar.
Ailar nánari upplýsingar eru veittar á Bisk-
upsstofu, sími 562 1500 (grænt númer
800-6550).
Skriflegum umsóknum skal skila á Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík fyrir 5.
maí 1995.
Nú er rétti tíminn að tryggja sér
MYNDVARPA
til leigu og sjá leiki í
! HM *95
á risaskjá.
Sigurlaug veitir ykkur allar upplýsingar
í síma 568-5085 milli kl. 9 og 12.
SagaFilm
RÚREK
RúRek djasshátíðin 1995 verður haldin í
Reykjavík dagana þriðja til tíunda september
nk. Nokkrir styrkir verða veittir íslenskum
djassleikurum til að vinna að verkefnum fyrir
hátíðina.
1. Til að flytja ný frumsamin verk, annað
hvort á eigin tónleikum eða á tónleikum þar
sem fleiri hljómsveitir koma fram.
2. Til að halda tónleika með erlendum gestum.
3. Til að leika á veitingahúsum þeim er hátíð-
in hefur samvinnu við og fylgi hljómsveita-
skipan og efnisskrá í aðalatriðum umsókn-
inni.
Umsækjendum skal bent á að samþætta
má þessa liði í umsókninni. Umsóknarfrestur
fyrir stærri verkefni er til 1. maí, en fyrir
spilamennsku á klúbbum til 1. júní.
Umsóknir sendist: Stjórn RúRek 95 - Út-
varpshúsinu Efstaleiti 1, 150 REYKJAVÍK.
Húsnæði óskast
3ja-4ra herb. íbúð óskast til leigu í Reykja-
vík strax. Æskilegt er að bílskúr fylgi.
Nánari upplýsingar hjá Jóhönnu Maríu í síma
14091 eða í vinnusíma 682900.
Húsnæði óskast
Óskum eftir til leigu eða kaups hentugu hús-
næði undir tölvuþjónustu. Þurfum 100 fm
helst á 1. hæð og ekki sólarmegin. Góð að-
koma og næg bílastæði spilla ekki fyrir.
Svar óskast á fax nr. 811256.
Raðhús eða íbúð óskast
Óskum eftir að taka á leigu nú þegar 4ra
herb. íbúð, raðhús eða góða sérhæð á Sel-
tjarnarnesi eða vestast í vesturbænum.
Upplýsingar í síma 610304 á daginn og
655487 á kvöldin og um helgar.
Húsnæði í Hafnarfirði
óskast
Óska eftir að leigja einbýlishús eða rúmgóða
íbúð í Hafnarfirði eða á Álftanesi. Gjarnan
með útsýni yfir höfnina. Bílskúr verður að
fylgja. Öruggar greiðslur.
Svör sendist í pósthólf 505, 222 Hafnarfirði,
merkt: „E,A,C - 11663“
Hæð eða lítið raðhús
Óskum eftir að taka á leigu frá 1. maí nk.
til allt að tveggja ára 4ra til 5 herbergja hæð
eða lítið raðhús í vesturbænum eða mið-
svæðis í Reykjavík fyrir einn af viðskiptavin-
um okkar.
Traustur og ábyggilegur leigjandi með fyrsta
flokks umgengni og skilvísar greiðslur.
Vinsamlega hafið samband við skrifstofu
okkar í síma 562 2850.
REKSTRARVERKTAK HF.,
Viðskiptaskrifstofa
Guðmundar Arnaldssonar.
v