Morgunblaðið - 04.04.1995, Side 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KOSINIINGAR 8. APRÍL
Vaxtarbroddur í at-
vinnulífinu - hundruð
nýrra starfa hvert ár
KREPPT hefur að
atvinnulífí og almenn-
ingi í landinu síðustu
ár með lækkandi tekj-
um og vaxandi at-
vinnuleysi. Loks nú í
byijun þessa árs er
þróunin að snúast til
betri vegar, fyrirtækin
hvert af öðru sýna
hagnaðartölur og at-
vinnuleysið fer minnk-
andi. Þetta gerist auð-
vitað ekki af sjálfu sér,
fyrirtækin hafa tekið
sér tak, eins og marg-
sinnis hefur verið lýst
í Morgunblaðinu, og
nú koma þau sterkari
fram og stjómvöld hafa skapað
skilyrði fyrir auknum umsvifum
þeirra.
Hefðbundnu atvinnugreinarnar
í landinu hafa mátt þola stöðnun
eða samdrátt og ef ekkert annað
hefði komið til stæðum við enn
frammi fyrir vaxandi vanda. Ein
atvinnugrein hefur þróast hratt
undanfarin ár og vaxið með undra-
verðum hraða, það er ferðaþjónust-
an. Ár hvert verða til hundruð
nýrra starfa vegna þjónustu við
ferðamenn, erlenda og innlenda.
Ferðamálastjóri hefur sagt, og
byggir á alþjóðlegum kvörðum, að
hveijir 45 ferðamenn skapi eitt
starf í ferðaþjónustu.
Ekki sjálfgefið að ná
metárangri
Það er hvergi nærri sjálfgefið,
að ferðamenn fari um ísland, enn
síður sjálfgefið að þeim fjölgi ár frá
ári. Það kostar vinnu og fjármuni
að fá hingað ferðamenn og síðustu
ár hefur verið lagt meira í markaðs-
sókn en nokkm sinni fyrr. Fjár-
framlög ríkisins til ferðamála voru
árið 1990, ef frá eru dregin sérstök
framlög samkvæmt ákvörðun Al-
þingis til hótela á landsbyggðinni,
63,6 millj. kr. Á síðasta ári voru
sambærileg framlög 134,8 millj. kr.
og á þessu ári 152,4 millj. kr. Ár-
angurinn hefur ekki látið á sér
standa. Tæplega 180 þúsund er-
lendir ferðamenn komu hingað í
fyrra, fleiri en nokkru sinni fýrr,
tæplega 200 þúsund ef með eru
taldir farþegar
skemmtiferðaskipa.
Fyrir 10 árum, 1985,
komu um 97 þúsund
erlendir ferðamenn
hingað og 1990 voru
þeir tæplega 142 þús-
und.
400-500 ný störf
Halldór Blöndal
samgönguráðherra
beitti sér fyrir því, að
100 milljónum króna
var á síðasta ári varið
til sérstaks söluátaks á
helstu ferðamörkuðum
okkar og hefur aldrei
fýrr verið svo mikið í
lagt að auka straum erlendra ferða-
manna til landsins. Til átaksins
lögðu Flugleiðir hf. 50 millj. kr.,
samgönguráðuneytið 40 millj. kr.
og Framleiðnisjóður landbúnaðar-
ins 10 millj. kr.
Gjaldeyristekjur af er-
lendum ferðamönnum,
segir Þórhallur Jós-
epsson, jukustum 1900
milljónir 1994.
Markmiðið var að auka tekjur
af erlendum ferðamönnum um
1.000 millj. kr. á því ári. Það mark-
mið náðist og gott betur, erlendum
ferðamönnum fjölgaði um 22 þús-
und frá árinu áður. Gjaldeyristekjur
af erlendum ferðamönnum jukust
um liðlega 1.900 milljónir króna.
95% þeirrar fjölgunar sem varð á
komum erlendra ferðamanna 1994
var frá þeim löndum sem átakið
náði til og er áætlað að tekjuauki
af þeirri ijölgun hafi numið a.m.k.
1.500 millj. króna. Þannig hafa
þessar 100 milljónir króna skilað
sér fimmtánfalt til baka og miðað
við að hvetjir 45 ferðamenn skapi
eitt starf, þá hefur þetta markaðs-
átak leitt til þess að 400-500 ný
störf hafí orðið til í ferðaþjónustu
á síðasta ári.
Uppbygging um allt landið
Þessi störf verða til um allt land-
ið og á fjölmörgum sviðum sem
tengjast þjónustu við ferðamenn.
Þannig verður til hálft starf á einum
stað, þriðjungur annars staðar, á
enn öðrum stað þijú störf o.s.frv.
Bændur hafa snúið sér að ferða-
þjónustu sem aukagetu eða aðal-
starfi, einyrkjafyrirtæki hafa
sprottið upp hvarvetna um landið
og fjölskyldufyrirtæki og auðvitað
hafa minni og stærri fyrirtæki sem
fyrir voru einnig notið góðs af vext-
inum. Engin önnur atvinnugrein
leggur jafn mikið af mörkum til að
styrkja byggðimar í landinu.
Samgönguráðherra gekkst einnig
fyrir því, að á síðasta ári voru íslend-
ingar hvattir til að ferðast um eigið
land með átaksverkefninu „ísland -
sækjum það heim.“ Kannanir á ár-
angri leiddu í ljós, að átakið stuðlaði
að umtalsverðri aukningu á ferða-
lögum Íslendinga innanlands. Þau
ferðalög skapa einnig störf og
styrkja þannig stöðu einstaklinga
og fyrirtækja í ferðaþjónustu. Marg-
ir njóta góðs af: Leigubílstjórar,
starfsfólk í veitingahúsum og ágisti-
stöðum, bensínafgreiðslumenn og
aðrir starfsmenn olíufélaganna,
starfsmenn flugfélaga, bflaleiga,
rútubflafyrirtælqa og svo mætti
lengi telja.
Arðbær fjárfesting
Á þessu ári verður haldið áfram
átaksverkefni til landkynningar er-
lendis og er því ætlað að auka ferða-
mannastraum hingað til lands utan
háannatíma. Til þess er varið 30
millj. króna af hálfu samgönguráðu-
neytis. Við sjáum af árangri síðustu
ára, að beint samhengi er á milli
þess hve miklum fjármunum er var-
ið til landkynningar og tekna af
ferðaþjónustu. Landkynning og önn-
ur kynningarstarfsemi er arðbær
fjárfesting og því er sérstaklega
mikilvægt nú, þegar við íslendingar
þurfum svo mjög á nýsköpun að
halda í atvinnulífinu, að áfram verði
haldið á þeirri braut sem Halldór
Blöndal samgönguráðherra hefur
markað og rutt.
Höfundur er aðstoðarmaður
samgönguráðherra.
Þórhallur
Jósepsson
Stokkum upp launakerfið
GAMLA flokkakerf-
ið hefur í raun gefist
upp við að jafna hér
eigna- og tekjuskipt-
inguna. Þess vegna
hefur hreyfing fólks-
ins, Þjóðvaki, orðið til,
hreyfmg sem krefst
sanngjarnrar skipting-
ar þjóðarauðsins,
hreyfing sem bendir á
leiðir til nýrra sóknar-
færra í atvinnulífínu
og til átaks í mannrétt-
inda-, siðvæðingar- og
j afnréttismálum.
Aukum framleiðni
Við þurfum að bijót-
ast útúr þeim vítahring sem kjara-
málin eru komin í. Það er eitthvað
mikið að í okkar þjóðfélagi, þegar
láglaunafólk færi ekki meira fyrir
vinnu sína en sem nokkurn veginn
samsvarar atvinnuleysisbótum,
enda er ísland auglýst sem Singap-
ore norðursins til að laða að erlenda
fjárfesta vegna lítils launakostnað-
ar. Þetta fyrirkomulag brýtur niður
sjálfstraust og sjálfsvirðingu fólks
sem ekki á einu sinni
fyrir brýnustu nauð-
þurftum. Við vitum að
stöðugleiki síðustu
missera býggist fyrst
og fremst á framlagi
launafólks, sem tekið
hefur á sig byrðar,
m.a. mikla skattatil-
færslu frá atvinnulíf-
inu. Það hefur skapað
atvinnuvegunum ný
sóknarfæri, aukið
hagnað þeirra og
minnkað skuldir. Við
hljótum því að gera þá
kröfu til atvinnulífsins
að framleiðni aukist,
sem er með því lægsta
sem þekkist í Evrópu, og að ha-
græðing og endurskipulagning í
fyrirtækjum nái til yfirbyggingar
og stjórnunarkostnaðar en byiji
ekki og endi á gólfinu hjá lægst
launaða fólkinu.
Hækkum lægstu laun
Þjóðvaki, hreyfing fólksins, vill
uppstokkun á launakerfinu. Við vilj-
um byija hjá hinu opinbera með
Við viljum gera launa-
kerfið sýnilegt, segir
Páll Halldórsson, og
með kerfisbundnu
starfsmati hækka
lægstu laun.
því að gera launakerfið sýnilegt,
þannig að allar heildarlaunagreiðsl-
ur og fríðindi verði felld inn í launa-
taxtana, sem og að koma á kerfis-
bundnu starfsmati, með það að
markmiði að hækka lægstu launin.
Það er sú leið sem Jóhanna Sigurð-
ardóttir lagði til og fékk samþykkta
á Alþingi, en fjármálaráðherra hef-
ur ekki komið í framkvæmd.
Uppstokkun á launakerfinu verð-
ur forgangsverkefni Þjóðvaka við
sjtórnarmyndun félagshyggju-
aflanna að loknum næstu kosning-
um.
Höfundur er 8. maður á lista
Pjóðvaka íReykjavík.
Páli
Halldórsson.
Sighvat til
ATVR
Á SÍÐUSTU árum hefur ótrúleg
niðurrifsstarfsemi átt sér stað í
heilbrigðiskerfi þjóðarinnar. Helstu
spamaðaraðgerðir stjómvalda
hafa beinst að niðurskurði til stóra
sjúkrahúsanna á Reykjavíkur-
svæðinu og aukinni greiðslubyrði
sjúklinga í lyfja- og lækniskostn-
aði.
Hæpin niðurskurðarrök
Lyfjakostnaður sjúkra hefur
verið stóraukinn í flestum flokkum
lyfja, og er Tryggingastofnun með
öllu hætt að taka þátt í kostnaði
vegna sýklalyfjanotk-
unar landsmanna.
Borið var við að neysla
lyfja væri meiri en í
nágrannalöndunum,
en slík rök era grannt
hugsuð, því ekki er
gefíð að tíðni sjúk-
dóma sé hér sú sama
og í öðram löndum.
Ef spamaður næst
fram með þessum
hætti er annað tveggja
rétt: að misnotkun eigi
sér stað, eða að fólk
sem þarf á lyfjum að
halda fái þau ekki. Ef
hið fyrra er rétt, er
rangt að ráðast að
sjúklingum, því söku-
dólgurinn er sá sem skrifar upp á
lyfið. Hið rétta væri þá að veita
læknum aukið aðhald. Ef hið síð-
ara reynist rétt, er hætta á að sjúk-
dómar sem væra læknanlegir með
nokkurra daga sýklalyfjakúr, verði
langvinnir. Þetta yrði þjóðinni dýr-
Kvennalistinn telur að
tilvísunarkerfið bitni
sérstaklega illa á kon-
um, segir Sjöfn Kristj-
ánsdóttír. Þær eru eini
þjóðfélagshópurinn sem
leitar hraustur til sér-
fræðings.
keypt þegar til langs tíma er Iitið.
Það sem skiptir þó mestu máli er
að lífi og starfsþreki viðkomandi
einstaklinga er stefnt í hættu. Ein-
föld eyrnabólga getur leitt til
heyrnarleysis. Kvennalistinn mót-
mælir þessum skammsýnu aðgerð-
um sem munu kosta komandi kyn-
slóðir ómælda þjáningu og kostn-
að, auk þess sem þær mismuna
sjúklingahópum. Það er t.d. ódýr-
ara að fá hjartasjúkdóm en astma.
Ekki sparaðist nóg. Var þá tek-
ið til við að þyngja enn fjárhags-
byrðar sjúkra með stórhækkuðum
gjöldum fyrir læknisþjónustu í
formi hlutfallsgreiðslna. í heil-
brigðiskerfi þar sem verð er mis-
munandi fyrir mismunandi þjón-
ustu hljóta hlutfallsgreiðslur að
koma misilla niður á sjúklingum
eftir sjúkdómum. Þetta kerfi er því
í eðli sínu óréttlátt. Það er t.d.
mun dýrara fyrir sjúkling að fá
magasár en hjartasjúkdóm. Þessu
misrétti mótmælir Kvennalistinn
og leggur til að mun lægri fasta-
gjöld verði tekin upp fyrir læknis-
þjónustu.
Átthagabundnir sjúklingar
Síðasta óheillaverk Sighvatar er
svo tilvísanakerfið. Ráðherra
byggir rök sín á reynslu landa sem
era vel þekkt fyrir slæma heil-
brigðisþjónustu. Sannleikurinn er
hins vegar sá að íslendingar búa
við ódýra, skilvirka hágæða sér-
fræðiþjónustu — líklega besta kerfi
veraldar. Búið er að færa rök fyrir
þessu, en ráðherra ætlar gegn
skynsemisrökum að þvinga tilvís-
anakerfið í gegn án samráðs við
sérfræðinga og þjóðina. Kvenna-
listinn mótmælir slíkum gerræðis-
ákvörðunum', sem munu átthaga-
binda sjúklinga hjá ákveðnum
heimilislækni og gera þeim erfitt
að leita til sérfræðinga. Kvenna-
listinn telur ennfremur að tilvís-
anakerfið muni bitna sérstaklega
illa á konum, þar sem þær era eini
þjóðfélagshópurinn
sem hraustur leitar
reglulega til sérfræð-
inga. En sem kunnugt
er hafa heimilislæknar
margir hug á að taka
þessa þjónustu að sér.
Þessu mótmæla konur
auðvitað.
Lágmarksþjónusta
reynist
framtíðinni dýr
Niðurskurðurinn á
spítölum Reykjavíkur
er kominn iangt yfir
öll velsæmismörk.
Þjónusta við sjúklinga
er komin í algjört lág-
mark, biðlistar lengj-
ast og stórhætta er á að vísinda-
rannsóknir leggist af. Slikar að-
gerðir kunna að skila sparnaði á
uppgjöri heilbrigðisráðuneytisins
við næstu fjárlög, en munu reyn-
ast þjóðfélaginu og framtíðinni
dýrar. Margir sem bíða eftir inn-
lögn eru frá vinnu á meðan, sumir
verða veikari á meðan á biðinni
stendur. Kvennalistinn mótmælir
þeirri skammsýni sem einkennir
slíkar aðgerðir og telur þennan
dýra spamað stefna heilbrigði
þjóðarinnar í hættu.
Borið er við að við höfum ekki
efni á velferðarkerfinu. Það er
hreinlega ekki rétt! Þetta er spurn-
ing um að forgangsráða við íjár-
lagagerð. Af hverju er vega- og
gangagerð sett ofar velferð fólks-
ins í landinu? Hvaða gagn er að
vegum ef engir eru eftir til að aka
á þeim? Af nógu er að taka. Talið
er að 10 milljarðar tapist ár hvert
vegna skattsvika og ekki eru fjár-
magnstekjur skattlagðar. 10 millj-
arðar fara árlega í kostnað vegna
slysa. Þessu þarf að breyta með
auknum forvörnum. Kvennalist-
inn hefur ætíð lagt mikla áherslu
á forvarnir sem aðferð til sparnað-
ar.
Verðhækkanir og
skömmtunarseðlar
Ofantaldar aðgerðir hafa valdið
sjúkum ómældum skaða. í sið-
menntuðum, félagslega þroskuð-
um þjóðféjögum eiga sjúkir ekki
að þurfa að huga að fjárhag sínum
áður en þeir leita til læknis. Flest-
ir hafa auk þess greitt sinn hlut
til samfélagsins og ættu því að
vera tryggðir. Að mati Kvennalist-
ans hefur ríkisstjómin fótum troð-
ið sjálfsögð og áunnin réttindi
þjóðarinnar.
Aðgerðir Sighvatar hafa allar
beinst að því að minnka notkun á
velferðarkerfinu, fyrst með því að
hækka verðið og síðan með útgáfu
skömmtunarseðla. Þetta á auðvit-
að illa við í velferðarkerfinu, sem
ætti að byggja á samábyrgð og
mannúð. Kraftar Sighvatar myndu
hins vegar njóta sín vel við sölu
eiturefna eins og áfengis og tób-
aks. Legg ég því til að hann verði
næsti forstjóri ÁTVR, þjóðinni til
heilla.
Höfundur er læknir og skipar 8.
sæti Kvennalistans / Reykjavík.
Sjöfn
Kristjánsdóttir