Morgunblaðið - 05.04.1995, Síða 2

Morgunblaðið - 05.04.1995, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Tillögur sjýlfstæðismanna á Vestfjörðum um fiskveiðisijórn Tugir sjómanna hafa undir- ritað stuðningsyfirlýsingu SMÁBÁTASJÓMENN við Súg- andafjörð hrundu af stað undir- skriftasöfnun um seinustu helgi meðal bátasjómanna á öllum Vest- fjörðum til stuðnings tillögum frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu í sjávarútvegsmál- um. Söfnun undirskriftanna var ekki lokið í gærkvöldi en þá höfðu bor- ist listar með tæplega 50 nöfnum frá Þingeyri, Patreksfírði, Drangs- nesi, Tálknafirði, Suðureyri, Bol- ungarvík og Flateyri. Undir- skriftasöfnunin beindist fyrst og fremst að bátasjómönnum en auk þeirra eru nöfn nokkurra fisk- verkakvenna á listanum. Undir- skriftum var safnað án tillits til þess hvar viðkomandi stæðu í stjómmálum og samkvæmt upp- lýsingum aðstandenda söfnunar- innar nær hún langt út fyrir raðir Sjálfstæðisflokksins. Frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins höfðu ekki frumkvæði að undirskriftasöfnuninni að sögn Ólafs Hannibalssonar, sem skipar þriðja sæti á lista flokksins. Eignir og réttindi fótum troðin Sigurgeir Þórarinsson, sjómað- ur í Bolungarvík, var meðal þeirra sem stóðu að undirskriftasöfnun- inni. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að undirtektir hefðu verið mjög góðar og meðal þeirra sem undirrituðu yfirlýsinguna væru óflokksbundnir sjómenn á Vestfjörðum. Sigurgeir sagði að undirskriftum hefði verið safnað í flestum sjávarbyggðum Vest- íjarða. „Þetta eru fyrst og fremst menn sem hafa farið illa út úr kvótakerfinu og eru ósáttir við krókaleyfiskerfíð eins og það mun verða,“ sagði hann. í yfírlýsingu sjómannanna segir m.a. að í rúman áratug hafi Vest- fírðingar orðið að þola neikvæðar afleiðingar kvótakerfísins og staða sjávarþorpanna hangi nú á blá- þræði. Eignir og réttindi sjómanna og fískverkafólks hafí verið fótum troðin og ef ekki verði breyting á afstöðu stjórnvalda innan tíðar, sem færi fólkinu í þorpunum aftur þann rétt til nálægra fískimiða Nærri 50 hafa skrifað undir SUÐUREYRI: Sveinbjörn Jónsson. Signrður Þórisson. Viihjálmur Kristinsson. Arnar Barðason. Asbjörn Ólafsson. Guðbjörn Kristmannsson. Óðinn Gestsson. Guðmundur Ingimarsson. Arnar Guðmundsson. Guðmundur Karvel Pálsson. Sólveig Kristjánsdóttir. BOLUNGARVÍK: Sigurgeir Þórarinsson. Rúnar H. Vilmundarson. Sigurður B. Hjartarson. Ragnar I. Hálfdánsson. Þorleifur Ingólfsson. Guðmundur Halldórsson. FLATEYRI: Hálfdán Kristjánsson. Hugborg Linda Gunnarsdóttir. Brynjólfur Garðarsson. Konráð Guðbjartsson. Magnús Karlsson. Fjóla Aðalsteinsdóttir. Linda Björk Magnúsdóttir. Einar Guðbjartsson. Guðrún Pálsdóttir. Þröstur Danfelsson. ÞINGEYRI: Hafsteinn Aðalsteinsson. Ragnar Gunnarsson. Sigurður Fr. Jónsson. Sigfús Jóhannsson. VESTURBYGGÐ: Leif Halldórsson. DRANGSNES: Birgir Karl Guðmundsson. Anna Gunnarsdóttir. Erling Ómar Guðmundsson. PATREKSFJÖRÐUR: Stefán Egilsson. Ólafur Magnússon. Gísli Þorgeirsson. Guðmundur Ólafsson. TÁLKNAFJ ÖRÐUR: Tryggvi Ársælsson. Jón Bjarnason. Gunnar Ámmarsson. Ingvar B[jartarson. Guðni Jóh. Ólafsson. Ólafur Gunnbjömsson. Þórhallur Óskarsson. Bjöm B. Berthelsen. sem tilvera þeirra byggist á, muni illa fara. „Þrátt fyrir ófullkomleika kerf- isins halda höfundar þess enn uppi vörnum fyrir það eins og um af- kvæmi þeirra sé að ræða og hafa sér til liðs mjög öfluga hagsmuna- verði sem kerfið hefur skapað. Það er því nokkuð ljóst að eftir kom- andi kosningar er ekki hægt að vænta neinna meiriháttar breyt- inga á fískveiðistjórnuninni miðað við núverandi afstöðu stjórnmála- flokkanna og væntanlega stærð þeirra. Við slíkar aðstæður verður það að teljast gleðiefni þegar fram- bjóðendur stærsta stjómmála- flokks landsins í kjördæminu leggja fram nokkuð vel mótaðar heildartillögur um nýja fískveiði- stefnu og lofa Vestfírðingum því að beijast af hörku fyrir þeim inn- an síns flokks og á Alþingi. Öllum má ljóst vera að verkefni fram- bjóðenda Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum verður erfítt en það er jafnframt ljóst að því meira brautargengi sem þeir fá í kom- andi kosningum, því líklegra er að þeim takist ætlunarverk sitt. Undirritaðir hafa því ákveðið að veita þeim stuðning sinn í kom- andi kosningum og hvetja sem flesta Vestfírðinga til að gera slíkt hið sama,“ segir í lok yfírlýsingar- innar. Breytingar á gjaldskrá Bílastæðasjóðs Gjaldskylda stæða lengdtilkl. 18 BORGARRÁÐ hefur samþykkt breytingar á gjaldskrá Bílastæða- sjóðs. Gjaldskylda verður lengd til klukkan 18 alla virka daga og til klukkan 14 á laugardögum. Auka- stöðugjald hækkar og verður 500 kr. í stað 300 kr. áður og tímagjald á Alþingisreit hækkar úr 30 kr. fyr- ir fyrsta klukkutímann í 60 kr. Er það gert til að mæta eftirspum. Gert er ráð fyrir að árleg tekjuaukn- ing sjóðsins verði rúmar 28,2 millj- ónir króna. í tillögu framkvæmdastjóra Bíla- stæðasjóðs til borgarráðs, em áætl- aðar árlegar tekjur vegna lengri gjaldskyldutíma til klukkan 18 um 18,4 milljónir króna. Jafnframt hækkar rekstrarkostnaður um tæpar 6 milljónir króna. 500 krónur innan þriggja daga Fram kemur að afsláttur af auka- stöðugjaldi hafi verið tekinn upp árið 1988 þegar þjónusta bílastæða var takmörkuð við 50 krónur og eina klukkustund. Bent er á að nú sé boðið upp á stöðutíma að eigin vali gegn breytilegum greiðslumiðlum þannig að allir sem vilja geti forðast aukastöðugjald. Upphæðin sem greiða ber innan þriggja daga verður framvegis 500 krónur í stað 300 áður. Gert er ráð fyrir að hreinar tekjur aukist þannig um 6,3 milljón- ir. Þá verður bílastæðið á svæðinu austan við Tollhúsið framvegis á gjaldsvæði 1 en var á gjaldsvæði 3 og stæðið við Tryggvagötu verður framvegis á gjaldsvæði 2 en var á gjaldsvæði 3. Áætluð árleg tekju-. aukning er 4 milljónir. Þá verður verð á næturkortum í bílahúsum lækkað til samræmis í öllum húsun- um og verður 1.250 kr. á mánuði. Gert er ráð fyrir að árleg tekjuaukn- ing verði 2,6 milljónir vegna þessa. Loks var samþykkt að hækka skammtímagjald á Alþingisreit en það er 30 kr. fyrir fyrsta klukkutím- ann en 10 kr. fyrir hveijar 12 mín. eftir það. Til að mæta mikilli eftir- spum á stæðinu var samþykkt að hækka gjaldið í 60 krónur fyrir fyrsta klukkutímann og 10 krónur fyrir hveijar tíu mínútur eftir það. Jafnframt hefur verið fallið frá að stytta hámarkstíma á stöðumæl- um á gjaldsvæði 1 auk lagfæringar á gjaldskrá miðamæla eins og upp- haflega var gert ráð fyrir, segir í tillögu framkvæmdastjóra. Slysið varð við Þaravatn á Tröllatunguheiði Morgunblaðið/Júllus Viðbót við kennslu hjá 1.-9. bekk MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur ákveðið að nemendur 1.-9. bekkjar í grunnskólum fái kennsluuppbót á þessu skólaári og því næsta vegna verkfalls kennara. Verður tíu kennslustundum á hveija bekkjar- deild bætt við nú á vorönninni og 35 á næsta skólaári. Áður hefur verið ákveðið að bæta 40 stundum við kennslu tíundubekkinga á vorönn- inni. ■ Menntamálaráðuneytið gerir ráð fyrir að hver skóli fái nú á vorönn- inni til ráðstöfunar sem svarar 10 kennslustundum alls á hveija bekkj- ardeild, samkvæmt nánari áætlun skólastjóra, sem fræðslustjóri sam- þykki. í þeirri áætlun á einnig að taka tillit til þeirra nemenda, sem þurfa sérstakan stuðning í námi. Geti skóli af einhveijum ástæðum ekki nýtt þennan kennslukvóta, má færa hluta hans yfír á haustönnina. Á næsta skólaári verður kennslu- stundum í 2.-10. bekk grunnskólans svo fjölgað um níu vikustundir, sem samsvarar því að hver bekkjardeild fái eina vikustund aukalega yfír allt skólaárið, eða 35 stundir alls. Fram kemur af hálfu ráðuneytis- ins að í grunnskólalögum sé kveðið á um að páskaleyfi sé frá pálma- sunnudegi til og með þriðjudegi eftir páska. Þar sem lög kveði skýrt á um rétt nemenda til leyfis, muni ráð- herra ekki gefa fyrirmæli til skóla um kennslu í dymbilviku. -----♦ ♦ ♦----- Baldur á ísa- firði samdi VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Baldur á ísafírði undirritaði kjarasamning við Vinnuveitendafélag Vestfjarða í gærkvöldi. Boðuðu verkfalli í dag var þar með aflýst. Að sögn Péturs Sigurðssonar, for- manns Baldurs, verður kaupauka- samningur fiskvinnslufólks endur- skoðaður á samningstímabilinu. Hækkun á desemberuppbót kemur til framkvæmda strax um næstu jól, 15 ára starfsaldurshækkun færist niður í 10 ár og neðsta starfsaldurs- þrep er fellt niður. Einnig var gerð leiðrétting á samningi um löndun á ísuðum afla og frystum afurðum úr fískiskipum. Kauptryggingarsamningi var breytt og öðlast fískvinnslufólk nú kaup- tryggingarrétt eftir tveggja mánaða starf. Allsheijaratkvæðagreiðsla um samninginn fer fram á fimmtudag og föstudag. Kona hryggbrotnaði víð Þaravatn Ok vélsleða fram af klettabrún Auka ekki við sig- vinnu SÁTTAFUNDUR í flugfreyjudeil- unni stóð á mánudag frá kl. 14 og fram yfír miðnætti. I gær var fund- arhöldum haldið áfram kl. 13.30 og stóðu enn á tólfta tímanum í gærkvöldi. Deiluaðilar hafa ekki látið hafa neitt eftir sér um gang mála. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins sendi Flugfreyjufélagið fé- lagsmönnum sínum bréf að loknu þriggja daga verkfalli félagsins í síðustu viku. í bréfínu eru þau boð látin út ganga til flugfreyja og flug- þjóna, að þau bæti ekki við sig yfir- vinnu. Þannig er þess farið á leit, að flugfreyja í hlutastarfi taki ekki aukavaktir. Rafvirkjar samþykktu samninginn KJARASAMNINGUR Raf- iðnaðarsambandsins við ríkið var samþykktur með þorra atkvæða á félagsfundi í gær. Samningurinn felur í sér um 7% heildarlaunahækkun á tveggja ára samningstíma- bili. Hækkunin er mest til þeirra sem eru á lægri töxt- um. KONA á sextugsaldri hryggbrotn- aði er hún ók vélsleða fram af klettabelti við Þaravatn á Trölla- tunguheiði síðdegis í gær. Björgun- armenn komu fljótlega á vettvang og kom þyrla vamarliðsins með hina slösuðu til Reykjavíkur um kl. 20. Konan gekkst undir skurðaðgerð í gærkvöldi og var við sæmilega líðan að sögn læknis. Konan var ein á sleða í hópi tólf Saurbæinga á átta vélsleðum. Mun förinni hafa verið heitið til Hólma- víkur. Konan ók fram af klettabrún og hrapaði milli 30 og 40 metra niður bratta hlíð. Einn leiðangurs- manna hringdi úr farsíma í lækni í Búðardal kl. 16.15 og tilkynnti um slysið. Læknirinn gerði lögreglu og björgunarliði viðvart. Björgunarsveit SVFÍ á Reykhól- um, Heimamenn, lagði strax af stað og var hjúkrunarfræðingur með í för. Eins fóru björgunarsveit- ir frá Hólmavík og Búðardal hjálpar. Að sögn Jens V. Hanss ar, formanns Heimamanna, lá I an í brattri hlíð og um 40 me niður á jafnsléttu. Strax var ós eftir aðstoð þyrlu Landhelgisg: unnar. Hún var í skoðun og haft samband við björgunars varnarliðsins sem sendi þyrlu stað. Björgun gekk greiðlega Konan var með meðvitund gekk greiðlega að flytja hana n fjallshlíðina og í þyrluna, þótt stæður væru erficjar á slyss mikill halli og snjór. Lagði þyrlan af stað til Rey vikur upp úr kl. 19. Veðrið á 1 mm var leiðinlegt að sögn J skyggni fremur takmarkað, s renningur og 5 til 6 vindstig. hans mati var á mörkunum að I an gæti athafnað sig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.