Morgunblaðið - 05.04.1995, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.04.1995, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Heilbrigðisráðherra breytir reglugerð um tilvísanir Tilvísun ekki skilyrði fyrir að TR greiði rannsóknir Morgunblaðið/Ámi Sæberg FRÁ blaðamannafundi heilbrígðisráðherra. Ólafur Ólafsson land- læknir, Sighvatur Björgvinsson og Guðjón Magnússon, skrífstofu- stjóri í heilbrigðisráðuneytinu. SIGHVATUR Björgvinsson, heil- brigðis- og tryggingaráðherra, hef- ur ákveðið að rannsóknir á rann- sóknastofum verði greiddar af sjúkratryggingum þó viðkomandi læknir, sem ákveður rannsóknina, vinni ekki samkvæmt samningi við Tryggingastofnun ríkisins. Eftir breytinguna mun því Trygginga- stofnun greiða allar rannsóknir sem læknir ákveður hjá rannsóknaraðila sem er á samningi við Trygginga- stofnun og tilvísun er ekki lengur skilyrði fyrir að stofnunin greiði rannsóknir sem læknir ákveður. Sighvatur Björgvinsson, heilbrigð- isráðherra, segir að hann hafi tekið þessa ákvörðun til að gæta hags- muna sjúklinga. Heilbrigðisráðherra tók þessa ákvörðun að höfðu samráði við landlækni, heimilislækna, sér- fræðilækna og hópa sjúklinga. Á blaðamannafundi þar sem ákvörð- unin var kynnt sagði hann að óformlegar viðræður hefðu átt sér stað við sérfræðilækna að undan- förnu með milligöngu landlæknis um hugsanlegar breytingar á til- vísanakerfínu. Þar hefðu ýmsar hugmyndir komið upp en svar fé- lags sérfræðinga hafí verið að það „ÞAÐ ER greinilegt að ráðherrann er núna að reyna að bjarga andlit- inu fyrir kosningar," sagði Sigurður Bjömsson, formaður Sérfræðinga- félags íslenskra lækna, þegar breyt- ingar Sighvats Björgvinssonar heil- brigðisráðherra á reglugerð um til- vísanakerfið voru bomar undir hann. Lausn þegar Sighvatur fer frá „Þetta er hins vegar sáralítil breyt- ing á því sem við höfum verið að gagnrýna og þessir 320 læknar, sem hafa sagt upp samningum við Tryggingastofnun, munu ekki skipta um skoðun við þetta,“ sagði Sigurður og sagði að eftir stæði að kerfí Sighvats mundi valda almenn- væri ekki tilbúið til viðræðna nema reglugerðin um tilvísunarkerfíð yrði dregin til baka. Það myndi hann ekki gera. Hins vegar vildi hann með þessari breytingu gera það sem honum væri mögulegt til að tryggja réttindi sjúklinganna. Hann gæti ekki tryggt sjúklingum það að ríkið tæki þátt í greiðslum til læknis sem ekki vildi vinna fyr- ir heilbrigðiskerfið, því það væri ingi öryggisleysi og svipta fólk tryggingarétti. „Það er ljóst að það fínnst engin lausn á þessu máli fyrr en þessi ráðherra fer frá og við getum samið við nýjan heilbrigðisráðherra eða þá ákvörðun læknisins sjálfs að vinna ekki samkvæmt tilvísunarkerfinu. Það eina sem hann gæti gert væri að reyna að tryggja hagsmuni sjúklinga þessa læknis með því að ákveða að ríkið tæki þátt í þeim kostnaði sem væri samfara þeim rannsóknum sem hann ákvæði. Sighvatur sagði að ýmislegt annað hefði verið rætt við sérfræð- inga. Til dæmis hefði hann boðist að nýtt alþingi og ný ríkisstjóm tek- ur i taumana," sagði Sigurður. Hann sagði að við ráðherranum hefði blas- að undanfarið að stuðningur við hann í málinu færi þverrandi innan ríkisstjómarinnar og flestir stjóm- til að sérfræðigreinarnar yrðu teknar inn í áföngum og einnig að þeir hefðu aðild að daglegri skoðun á áhrifum kerfisins, bæði faglegum áhrifum með landlækni og kostn- aðarlegum áhrifum í samvinnu við hagfræðistofnun Háskóla íslands. „Þessu hafna þeir öllu saman og koma alltaf með það sama upp aftur og aftur að þeir séu ekki reiðubúnir til viðræðna við mig nema ég dragi allt heila kerfið til baka og það geri ég ekki,“ sagði Sighvatur. Öllum sérfræðingum skrifað Hann sagði að í framhaldi af þessu myndi hann skrifa hveijum sérfræðingi fyrir sig, kynna þeim þessar breytingar og gefa þeim kost á að koma aftur inn á samning við Tryggingastofnun fyrir 1. júní. Ef þeir neiti því geti hann ekkert við því gert, en hann sé hins vegar búinn að tryggja hag sjúklinga eins vel og hann geti. Hann geti ekki breytt þeirri ákvörðun sérfræðings- ins að neita að vinna fyrir kerfíð, en hann geti séð til þess að allar rannsóknir sem sjúklingurinn kann að gangast undir njóti stuðnings hins opinbera. málamenn hefðu lýst andstöðu við vinnubrögð hans og hugmyndir um breytingar á heilbrigðiskerfinu í and- stöðu við læknana sem ætlað væri að veita þjónustuna. Sigurður sagði að sérfræðingar hefðu hrakið öll rök Sighvats um spamað af tilvísanakerfí en þetta mál væri enn ein sönnun þess hve hroðvirknisleg vinnubrögð hefðu verið viðhöfð í heilbrigðisráðuneyt- inu í þessu máli; vinnubrögð sem ekki væru sæmandi íslensku stjóm- valdi. Þannig hefðu sérfræðingar t.a.m. komist að því í gær að ráð- herra hefði haldið uppi árásum á vandaða útreikninga hagfræðings félagsins án þess að hafa skýrslu hans undir höndum. Tölvunefnd endur- | nýjar starfsleyfi Reiknistofunnar Bannað að skrá greidd- . arskuldirí- » vanskilaskrá TÖLVUNEFND hefur endurnýjað starfsleyfí Reiknistofunnar hf í Hafnarfirði til þess að annast söfnun og skráningu upplýsinga sem varða fjárhagsmálefni og lánstraust manna, svonefndan | Svartan lista, en sett ýmis hert skilyrði um það hvemig og hvaða * upplýsingar megi birta um skulda- i stöðu aðila. Þar á meðal má ekki skrá í vanskilaskrá skuldir sem sannað er að greiddar hafa verið við út- gáfu ritsins. Á svarta listann eftir tveggja vikna viðvörun Framvegis má Reiknistofan r ekki birta nafn tiltekins aðila í ) riti sínu, sem gengur undir nafn- | inu Svarti listinn, nema þeim að- ila hafí áður verið veittur a.m.k. tveggja vikna frestur til að gera athugasemdir við skráninguna. Þá daga sem fresturinn stendur er Reiknistofunni skylt að hafa starfsstöð sína opna frá 9-17 hvern virkan dag og veita kvört- unum viðtöku. J Lágmark 200 I þúsund krónur | Þá má aðeins skrá upplýsingar um skuldara skv. uppkveðnum dómum eða árituðum stefnum þar sem hver skuld nemur a.m.k. 200 þúsund krónum að höfuðstóli. Skrá má öll árangurslaus fjámám, gjaldþrotaskipti og nauðungarsöl- ur en aðeins fjámám með árangri ef ijárhæð skuldar er a.m.k. 200 þúsund krónur. Loks er sett það skilyrði að ef i aðili sem fengið hefur tilkynningu um að nafn hans verði skráð í vanskilaskrá sýni Reiknistofunni fram á að hann hafí greitt viðkom- andi skuld eða komið henni í skil sé óheimilt að taka nafn hans á skrána. Sigurður Björnsson, formaður Sérfræðíngafélags lækna Reyna að bjarga andlitínu fyrir kosningar BLÓMAVAL bauð fólki í gær- kvöldi að fylgjast með fagfólki gera páskaskreytingar. Að sögn Kristins Einarssonar sölustjóra voru yfir 150 í húsinu og kom- ust færri að en vildu. Hann sagði að skreytingameistararnir Gitte Nielsen, Hjördís Jónsdóttir og Michael Jörgensen hefðu sýnt Skreytt fyrir páskana gestum hvernig þeir gætu beitt hugmyndaflugi við skreytingar, hvernig nota mætti birkigreinar og páskaliljur, gert iifandi skreytingar og þurrskreyting- ar. Þá voru gefnar hugmyndir um veisluborð með sérstaka áherslu á fermingar. Hann sagði að fólk hefði mikinn áhuga á skreytingum og spurn- ingum hefði rignt yfir meistar- ana. Læknar Heimilislæknastöðvarinnar hf. álykta | Hverfandi kostnaðarauki af tilvísanakerfi STJÓRN Heimilislæknastöðvarinnar hf. hefur sent frá sér ályktun vegna þess álits Sérfræðingafélags ís- lenskra lækna að kostnaðarauki muni fylgja væntanlegu tilvísana- kerfí vegna aukinnar aðsóknar til heimilislækna. Heimilislæknastöðin hf. hefur rekið heilsugæslustöð frá árinu 1986 og borið fjárhagslega ábyrgð á rekstrinum samkvæmt samningi við hið opinbera. Stöðin annast nú rekst- ur einnar af níu heilsugæslustöðvum Reykjavíkurborgar, Heilsugæsluna Lágmúla, og veitir heimilislækna- hjálp um tíu þúsund manns. í ályktuninni segir meðal annars: „Að gefnu tilefni vill stjórn stöðvar- innar lýsa yfir því, að óhætt sé að fullyrða að umræddur kostnaðarauki verði hverfandi, ef þá nokkur. Svo sannfærð er stjómin í þessu máli að hún er reiðubúin að tryggja og bera fulla fjárhagslega ábyrgð á því að kostnaður við rekstur stöðvarinn- ar verði alveg óbreyttur á árinu 1996 miðað við yfirstandandi fjár- lagaár. Er stjórnin þeirrar skoðunar, að áætlanir heilbrigðisráðuneytisins um sparnað með tilvísunarkerfí séu raunhæfar."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.