Morgunblaðið - 05.04.1995, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.04.1995, Qupperneq 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIDVIKUDAGUR 5. APRÍL 1995 BLAD Fyrirtæki 3 Hagnaður ÍS jókst um 38 milljónir króna í fyrra Aflabrögð 4 Aflayfirlit og staðsetning fiskiskipanna Markaðsmál 0 Síldarvinnslan í Neskaupstað eykur vinnslu á síld og rækju Greinar 7 Gísli Baldur Garðarsson hdl. Morgunblaðið/Muggur KRISTJÁN Kristjánsson og Valur Bogason, líffræðingar, rannsaka hrygningarþorsk undir stjórn Guðrúnar Marteinsdóttur leiðangurs- s^jóra á Árna Friðrikssyni. ÞORSKURINN RANNSAKAÐUR Framleiðsla á vegum ÍS jókst um 7,3% milli ára Reksturinn skilaði tæplega 90 milljóna króna hagnaði AFKOMA Islenzkra sjávarafurða og dótt- urfyrirtækja þess var góð á síðasta ári og skilaði reksturinn 89,3 milljóna króna hagnaði á móti 51,4 milljónir árið áður. Þessar upplýsingar komu fram í ávarpi formanns stjórnar ÍS, Hermanns Hanssonar, á aðalfundi félagsins í gær. Hann sagði einnig að árið 1994 hefði verið ár mikilla breytinga í starfsemi félagsins. Samdráttur hefði orðið í framleiðslu botnfiskafurða, en mikil aukning í framleiðslu á frystri loðnu, síld og rækjuafurðum. Auk þess hefði verið mikill þróttur í hinni alþjóðlegu starfsemi fyrirtækisins. 28,6 mllljóna hagnaður í Bandaríkjunum Framleiðendur innan vébanda ÍS heima og erlendis framleiddu alls 56.240 tonn á árinu 1994, sem er 7,3% aukning frá árinu 1993 og er það metframleiðsla á einu ári. Afurðasala félagsins á árinu nam 13,5 milljörðum króna og jókst um 0,7% milli áranna 1993 og 1994. Iceland Seafood Corporation, dótturfýrirtæki ÍS í Bandaríkjunum, skilaði 28,6 milljóna króna hagnaði miðað við gengi dollars í dag, en á sama gengi var hagnaðurinn árið 1993 um 11 milljónir króna. Sala fyr- irtækisins í magni talið jókst milli ára úr 63 milljónum punda í 67 milljónir og söluverðmæti varð 7,7 milljarðar króna á gengi dagsins í dag, sem er litlu meira en á síðasta ári. Hagnaður lceland Seafood Ltd. 11,6 milljónlr Iceland Seafood Limited, dótturfyr- irtæki ÍS í Bretlandi, rekur þrjár sölu- skrifstofur, í Bretlandi, Þýzkalandi og Frakklandi. Hagnaður fyrir skatta nú varð 115.000 sterlingspund, eða 11,6 milljónir króna, en í fyrra var hagnað- ur þess 140.000 sterlingspund eða rúmar 14 milljónir króna. Töluverður kostnaður var lagður í vöruþróun og sölu og dró það úr hagnaði fyrirtækis- ins. Samdráttur heima fyrir í fram- leiðslu hefðbundinna afurða hafði áhrif á gang mála ytra og nam salan nú alls 26.400 tonnum, þúsund tonnum minna en árið áður. Söluverðmæti í fyrra nam rúmum 6 milljörðum króna, sem er nokkru minna en árið áður. Sjá Hagnaður ÍS jókst... D3. Fréttir Ymsa þætti þarf að endurskoða • ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegsráðherra sagði í ræðu sem hann flutti á aðalfundi íslenskra sjávar- afurða hf. að hann teldi þörf á að endurskoða ýmsa þætti í fiskveiðistjórnunar- löggjöfinni og hann teldi mikilvægt að endurskoða þau ákvæði sem takmarka framsal á aflakvóta. Þor- steinn sagði að þegar á heildina væri litið teldi hann íslenskan sjávarútveg standa sterkt í dag og vera í sókn, þrátt fyrir undan- gengna erfiðleika og ýmis óleyst úrlausnarefni í sjáv- arútvegi./2 Gæftaleysi í Grímsey • NÁNAST stanslaust gæftaleysi hefur verið hjá smábátaeigendum í Gríms- ey undanfarna fjóra mánuði og ásamt banndagakerfinu hefur þetta leitt til þess að afkoma þeirra hefur aldrei verið verri. Um 15 bátar róa frá Grímsey og hafa flestir þeirra sem bæði eiga króka- báta og kvótabáta leigt frá sér kvótann. Atvinnulífið í eyjunni hefur því að mestu oltið á krókabátunum í vet- ur, en frá áramótum er al- gengt að einungis hafi verið hægt að fara í 3-5 róðra í mánuði vegna óveðurs./5 Sölutregða í saltfiski • NORÐMENN hafa átt í nokkrum erfiðleikum við sölu á saltfiski til Portúgal í vetur. Töluverðar brigðir eru í Noregi og sölutregðu gætti í febrúar. í marz lækkaði verðið og er fiskur- inn nú seldur á 22 til 23 norskar krónur kílóið eða í kringum 225 krónur ís- lenzkar./5 Margir ætla í Síldarsmugnna • ALLAR líkur eru á því að mörg loðnuskip stundi veiðar úr norsk-íslenzka síldarstofninum innan lög- sögu okkar og í Síldarsmug- unni í vor. í þessum mánuði verður farinn leiðangur á vegum Hafrannsóknastofn- unar á síldarslóðina fyrir Austurlandi og er reiknað með því að nokkur loðnu- skip fylgi lciðangursmönn- um til að kanna s!óðina./8 Markaðir Sérvinnsla eykst hjá ÍS • SÉRVINNSLA framleið- enda innan vébanda ís- lenzkra sjávarafurða hefur aukizt hratt síðustu ár og er áætluð um 4.700 tonn á þessu ári. Árið 1991 nam þessi vinnsla 1.503 tonnum. Á síð- asta ári var framleiðsla af þessu tagi 7% af heildar magni útfluttra afurða. Þarna er bæði um að ræða vinnslu úr bolfiski og flat- fiski, ýmist smásölupakkn- ingar eða pakkningar fyrir veitingahús. Aukningin staf- ar meðal annars af notkun nýrra niðurskurðarvéla, en ekki sízt af þeim virðis- og tekjuauka, sem vinnslan skil- ar framleiðendum. Mestu pakkað af rækjunni íslenskar sjávarafurðir: Skipting tilrauna- vinnslu • NOKKUÐ hefur einnig verið framleitt af skelfiski og síld í neytendapakkning- ar. Á síðasta ári nam slík framleiðsla 170 tonnum en er áætluð 300 tonn á þessu ári. Helztu framleiðsluflokk- arnir eru „brauðun", pilluð rækja, skelrækja og kola- rúllur, sem njóta mikilli vin- sælda í Belgíu. Úflutningur þessara afurða skiptist milli Evrópu og Bandarikjanna. Sérpakkningar fyrir veit- ingahús fara vestur um liaf og til Evrópu, en smásölu- pakkningarnar eingöngu til Evrópu./6

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.