Morgunblaðið - 07.04.1995, Side 1
1995
JktorjpttMst&tíb
■ FÖSTUDAGUR 7. APRÍL
SKIÐAMOT ISLANDS
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
I skaðabótamál
vegna brjósta-
stækkunar af
völdum stera
FYRRUM keppandi i lyftingiun fyrir Austur-
Þýskaland sáluga, Roland Schmidt, hefur ákveðið
að höfða skaðabótamál vegna þess að brjóst hans
stækkuðu vegna steranotkunar sem læknar gáfu
honum á sínum tima, hann varð að láta fjarlæga
„brjóstin" — fituvef sem safnaðist saman á brjóst-
kassa hans — og er með slæm ör eftir.
Schmidt, sem er 33 ára, er einn nokkurra lyft-
ingamanna frá Austur-Þýskalandi sem þurftu að
fara i skurðaðgerð vegna þessa, eftír að þeir
hættu keppni. Málið verður tekið fyrir í Dresden
í júní, og dómstóllinn sker úr um það hvort
Schmidt getí farið fram á skaðabætur frá íþrótta-
læknunum sem gáfu honum lyfin eða austur-þýska
rikinu, sem er auðvitað ekki lengur tíl, en þýska
heUbrigðisráðuneytíð er fuUtrúi þess í réttínum.
Lögfræðingur, sem tengist málinu, sagði í gær
að þetta væri fyrsta málið þar sem leitað yrði
svara við þeirri spumingu hvort sameinað Þýska-
land sé ábyrgt fyrir óréttlæti sem menn urðu fyrir
í þýska alþýðulýðveldinu á sínum tíma.
Skjðl austur-þýsku öryggislögreglunnar, Stasi,
sem opinberuð voru í fyrra sýndu að það var
mjög algengt að lyftíngamenn þar i landi yrðu
fyrir því að brjóst þeirra stækkuðu vegna stera-
notkunar, sem var meiri í þessari iþróttagrein en
öðrum, í því skyni að styrkja brjóstkassann, en
lyfjanotkuniu hefur líklega orsakað hormóna-
breytingar.
Schmidt er með slæm ör vegna aðgerðarinnar
sem hann þurftí að fara í árið 1983. Hann heldur
þvi fram að sér hafl ekki verið gerð grein fyrir
hugsanlegum hliðarverkunum lyfjanna.
Þifr em efstir og
jafnirá Masters
ÞRÍR kylfíngar eru efstir og jafnir eftir fyrsta dag
á bandaríska meistaramótinu (US Masters) í golfi,
sem hófst í gær í Augusta. Jose Maria Olazabal frá
Spáni, sem sigraði á mótinu í fyrra, Phil Mickelson
og David Frost léku allir á 66 höggum — sex undir
pari. Gamla brýnið Jack Nicklaus, sem sex sinnum
hefur fagnað sigri á mótinu, er í öðru sæti á 67 ásamt
Corey Pavin og David Gilford frá Bretlandi.
■ Staðan / C2
Gísli stal
HANDKNATTLEIKUR
Bjarki Sigurðsson skrifaði undir samning við Aftureldingu í gær
Var tímabært
að breyta til
Morgunblaðið/Kristinn
BJARKI SlgurAsson mátar búning Aftureldingar i Mosfellsbæ.
senunm
á ísafirði
GÍSLI Einar Árnason, 19 ára ís-
firðingur, kom skemmtilega á
óvart á fyrsta dagi landsmótsins
á skíðum í gær er hann varð Is-
landsmeistari í 15 km göngu.
Reiknað var með einvígi Daníels
Jakobssonár og Einars Ólafsson-
ar, en Gísli Einar sigraði örugg-
lega. Kom í mark tæpri mínútu á
undan Daníel og Einar varð þriðji.
Þetta var í fyrsta skipti sem Gísli
Einar keppir í fullorðinsflokki á
landsmóti og sigurinn þvi sætur.
Þremenningarnir eru allir ísfirð-
ingar, en Daníel skipti nýlega um
félag og keppir nú fyrir Ólafs-
fjörð. Gísli Einar og Einar voru
því staðráðnir í að gullið yrði eft-
ir á ísafirði og fögnuðu innilega
í lokin. Gisli stökk á Einar, er sá
síðarnefndi kom i markið og ljóst
að hann fengi silfrið og þeir fögn-
uðu innilega eins og sjá má.
■ Fór fram úr / C4
„AÐALÁSTÆÐAN fyrir félags-
skiptunum er sú að ég vil reyna
að þroska mig frekar sem leik-
maður og ná lengra. Þegar
maður er kominn á þann aldur
sem ég er á þá fer kannski
hver að verða síðastur að
reyna eitthvað nýtt,“ sagði
Bjarki Sigurðsson, landslið-
maður í handknattleik. Eins og
greint var frá í Morgunblaðinu
í gær hefur hann sagt skilið við
sitt gamla félag, Víking, og
gengið til liðs við Aftureldingu
i Mosfellsbæ.
Eg kveð mitt gamla félag með
miklum söknuði og ákvörðun
mín að skipta um félag var mjög
erfíð og hún hefur reynt á mig. Ég
hef alltaf leikið með-Víkingi og fjöl-
skylda mín fylgt þeim. Sjálfsagt eru
margir óánægðir með félagsskiptin,
en ég vona að fleiri séu ánægðir með
þau. Það var kominn tími til að breyta
og Afturelding varð fyrir valinu, en
fteiri lið voru inn í myndinni, bætti
Bjarki við.
Hver var ástæðan fyrir því að þú
valdir Aftureldingu?
„Hjá Aftureldingu hefur verið
mikil uppbygging síðastliðin ár. Fyr-
ir þremur árum voru þeir í 2. deild,
í fyrra komust þeir í 8-liða úrslit og
í ár í 4-liða úrslit. Þetta var því
spennandi kostur og ég vonast til
þess að geta hjálpað þeim til að ná
lengra."
Örvhentur leikmaður forsenda
fyrir samningi vlð Einar
„Það var forsenda fyrir því að
gætum lokið gerð samnings við Ein-
ar Þorvarðarson, sem þjálfara fyrir
næsta tímabil, að í staðinn fyrir Ja-
son Ólafsson, kæmi örvhentur leik-
maður. Það er ekki mikið framboð á
örvhentum leikmönnum og við teljum
okkur vera heppna að hafa fengið
Bjarka til liðs við okkur,“ sagði J6-
hann Guðjónsson, formaður hand-
knattleiksdeildar Aftureldingar, í
samtali við Morgunblaðið.
Aðspurður sagði Jóhann, það vera
ljóst að þessi kaup á Bjarka yrðu
kostnaðarsöm fyrir félagið því þama
væri ferðinni landsliðsmaður. Hann
vonaðist til að sú greiðsla sem kæmi
fyrir félagsskipti Jasonar Ólafssonar
til Brixen á Ítalíu myndi nægja fyrir
kaupunum, en ekki vildi Jóhann
nefna tölur í þessu sambandi.
Þess má geta að formlega var
gengið frá ráðningu Einars Þorvarð-
arsonar í gærkvöldi er hann skrifaði
undir tveggja ára samning við Aftur-
eldingu.
KÖRFUKIMATTLEIKUR: GRINDVÍKINGAR SIGRUÐU í NJARÐVÍK / C2