Morgunblaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 6
6 D FÖSTUDAGUR 7. APRÍL1995
MORGUNBLAÐIÐ
I
Einbýlis- og raöhús
Lindarhvammur — Kóp.
Vorum að fá eitt af þessu vinsælu húsum
á fallegum stað í Suöurhlíö Kópavogs. Hús-
ið er 215 fm á tveimur haéðum. 4-5 svefn-
herb., 2 baðherb. Nýtt eldh., parket. 25 fm
innb. bílsk. Ný sólverönd. Fallegur garður.
Heiðvangur — Hf. Vorum að fá
mjög gott einbhús á einni hæð. 3-4 svefn-
herb., nýl. eldhús, parket, flísar. Bílskúr.
Mjög fallegur sólríkur suðurgarður.
Ásgaröur — tvær íb. Mjög gott
endaraðh. m. 2 íb. Stærri íb. er 186 fm á
tveimur hæðum. 2 stofur, nýtt eldh. á neðri
hæð. 3-4 svefnherb. á efri hæð. Góðar suð-
ursvalir. Ca 30 fm bílsk. Minni íb. er 2ja
herb. 60 fm kjíb. m. sérinng. Stofa og svefn-
herb. Heildarverð 13,8 millj.
Seiöakvísl. Stórgl. og vandað
einbhús á eínní hæð ca 155 fm auk
34 fm bílsk. 3 svefnherb. Parket, flís-
ar. Nuddpottur i garði. Mjög fallegt
útsýni. Áhv. 1,7 millj. byggsj. Verð
16,8 miilj.
Leiöhamrar — einb. Mjög fallegt
og gott 195 fm einb. á einni hæð á fallegum
útsýnisstað. 4 rúmg. svefnherb., 2 bað-
herb., stofa og sjónvarpsstofa. Parket og
flísar. 40 fm bílsk. Áhv. 9,6 millj. húsbr.
Skipti mögul. Laus fljótl.
Skólagerði — Kóp. Mjög gott ca
130 fm parh. á tveimur hæðum og mjög
stór bílsk. 3 góð svefnherb. Parket og flís-
ar. Fallegur suðurgarður. Skipti mögul. á
minni eign.
Réttarholtsvegur. Vorum að fá
gott 110 fm raöh. á tveimur hæðum. 2-3
svefnherb. Suöurgarður. Nýl. eldh. Áhv. 3,6
millj. Verð 8,2 millj.
Tungubakki. Mjög gott endaraðh. á
pöllum. 2-3 svefnh. Stórar svalir. Nýjar flís-
ar á gólfum. Falleg lóð. Bílsk. Eign í sórfl.
Verð: Tilboð. Skipti mögul. á minni eign.
5 herb. og sérhædir
Funafold - sérh. Mjög góðca 130
fm efri sérhæð ásamt góðum bílsk. Fallegar
innr. Góð gólfefni. Allt fullb. Áhv. 4,4 millj.
Mögul. á skiptum á 2ja-3ja herb. íb.
Blönduhlíð - sérhæö. Vel stað-
sett 124 fm, góð íbúð á 2. hæð ásamt 40
fm bílskúr. Stór herb. Nýlegt eldhús.
Kambsvegur. Vorum að fá í sölu
góöa 130 fm neöri sérh. ásamt 30 fm bílsk.
4 svefnherb., tvær saml. stofur. Parket.
Gott verð.
(fö FJÁRFESTING
U=á FASTEICN ASALA f
Sími 562-4250 Borgartúni 31
Bræðraborgarstígur.
Mjög góð 156 fm efri sérhæð- 4-
svefnherb., bókaherb., stofa og borS-
stofa. Parket. tnnb. 40 fm bífsk.
Vinnuherb.
4ra herb.
Álfatún — Kóp. Vorum að fá
stórglæsil. og nýstandsetta 100 fm íb.
ásamt 26 fm bílsk. Nýtt beykiparket á gólf-
um. Nýtt eldh. 3 góð svefnherb., góð stofa
og stórar suðursv. Fráb. útsýni. Verð 10,5
millj.
Hvassaleiti. Vorum að fá falleg 100
fm íb. á 3. hæð ásamt bílsk. 3 svefnherb.
Fallegt útsýni. Suðursv.
Eiðistorg. Vorum að fá 3ja-4ra herb.
96 fm íb. á 3. hæð ásamt stæði í bílag.
tvær stofur og 2 svefnherb. Verð 8,8 millj.
3ja herb.
Kópavogsbraut — nýtt. Vorum
að fá mikið endurn. og fallega 75 fm íb. á
jarðhæð. Nýtt eldhús, nýtt bað, nýtt gólf-
efni. Sérinng. Áhv. 3 millj. Verð 6,5 millj.
Flétturimi 4 - glæsiíb. - einkasala
Betri frágangur - sama verð
Til afhendingar strax.
Fullbúnar glæsilegar íbúðir á frábæru verði.
3ja herb., verð 7,5-8 millj.
4ra herb. íb. m. stæði í bílg., verð 9.550 þús.
íbúðirnar afh. fullb. m. parketi, Alno-innr.,
skápum og flísal. baði, sérþvhús.
Öll sameign fullfrág.
Til sýnis virka daga kl. 13-17.
Grenimelur. Nýtt - nýtt. Falleg og
mikið endurn. 88 fm neðri sérhæð. 2 svefn-
herb., saml. stofur. Nýl. eldh. og nýtt bað.
Verð 7,9 millj.
Hraunbær. Vorum að fá góða
105 fm íb. á 3. hæð. Stofa og bortist.
Sérsvefnherbálma. 3 svefnherb. Verð
7,3 millj.
Fellsmúli. Vorum að fá góða 87 fm íb.
2 svefnherb., mjög stór stofa. Suðursvalir,
fallegt útsýni. Laus fljótl. Verð 7,2 millj.
Irabakki. Vorum að fá mjög góða og
fallega íb. á 2. hæð. Tvö svefnherb. Nýtt
parket. Tvennar svalir. Verð 5,8 millj.
Sólheimar. Björt og falleg 85 fm íb.
á 7. hæð. 2 svefnh. Parket. Suðursv. Fráb.
útsýni. Skipti ó stærri eign í hverfinu koma
til greina.
Opið mánud.-föstud. 9-18, lau. kl. 12-15
Hilmar Óskarsson, Steinþór Ólafsson.
Sigurður Jónsson. Lögfr.: Pétur Þ. Sigurðsson hdl.
Bjargarstígur. Vorum aö fá góða
talsvert endurn. 53 fm neðri sórh. Stofa og
2 svefnherb. Nýl. slípaður gólfpanell. Góður
suðurgaröur. Áhv. 2,8 millj. Verð 5,2 millj.
Bauganes. Nýuppg. björt og
falleg 86 fm ib. á jarðhæð. 2 svefn-
herb. Stórt nýtt eldhús. Nýtt gler,
nýjar pípul. Allt nýmólað. Verð 6,0
millj. Áhv. 2,4 millj. byggsj.
Frostafold
í einkasölu ein alglæsileg-
asta íbúð í Grafarvogi ca
80 fm. Merbau-parket,
flísar. Sérþvottahús í íb.
Sérgarður. Áhv. 4,1 millj.
Byggsj. Verð 7,3 millj.
Orrahólar — lyftuhús.
Stórgl. 88 jm íb. á 6. haað. 9 fm suður-
svalir. Parket. Stór svefnh. Stórkostl.
útsýni. Falleg sameign.
Hraunbær. 3ja-4ra herb. mjög
góð ca 100 fm ib. á 3. hæð. 2 svefnh.
(mögul. á þremurj. Suðursv. Fallegt
útsýni. Verð aöeins 6,5 miiij.
2ja herb.
Eyjabakki. Mjög góð 65 fm íb. á 2.
hæð. Stórt eldh. Áhv. 3,2 millj. Byggsj. Verð
5,2 millj.
Frostafold. Stór, mjög góð íb. á jarðh.
í mjög vönduðu húsi. Áhv. byggsj. 3,8 míllj.
Verð 6,3 millj.
Mávahlíð — ris. Nýtt í sölu 70 fm
rishæð. Stór stofa og stórt svefnh., þvottah.
á hæðinni. íb. mjög lítið undir súð.
Vesturberg. Vorum að fá mjög góða
ca 60 fm íb. á efstu hæð í lyftuh. Rúmg.
stofa og fráb. útsýni. Áhv. 2 millj. V. 4,9 m.
Nýjar íbúöir
Tjarnarmýri — Seltjn.
1 - -
— fiíxrj?! (»••• >• wa Bf * j§
Glæsilegar fullbúnar 3ja, 4ra og 5 herb. íb.
m. stæði í bílgeymslu. Eldhinnr. og skápar
frá AXIS. Blomberg-eldavél. Flísal. baðherb.
Sérl. vönduð sameign og frág. lóð. íb. eru
til afh. nú þegar.
Skuldbreytiiig er
engiii töfralausn
Skuldbreytingar eru sjaldnast vandamál í
bankakerfínu, ef fullnægjandi tryggingar eru
lagðar fram, segir Magnús I. Erlingsson
lögfræðingur. Skuldbreyting er hins vegar
engin töfralausn, því að skuldin verður áfram
til staðar og lántökukostnaður eykst.
WÚ FYRIR kosningar hafa sumir
flokkar slegið fram hugmynd-
um sem eiga að reisa heimilin við
og létta af þeim skuldabaggana.
Þegar þessar hugmyndir eru skoðað-
ar nánar þá hafa
þær ýmist þegar
verið framkvæmd-
ar eða þýðing
þeirra er óveruleg
fyrir skuldastöðu
heimilanna. Lög-
gjafinn hefur með
tímabundnum
heimildum veitt
Húsnæðisstofnun ríkisins bæði
heimildir til skuldbreytinga og
„frystingu“ skulda.
Skuldbreyting og
greiðsluaðlögun
Ein lausnin á vanda heimilanna
er skuldbreyting. Frá árinu 1993
hefur verið í gildi reglugerð sem
heimilar Byggingarsjóði ríkisins að
skuldbreyta vanskilum byggingar-
sjóðs- og húsbréfalána. Til að hægt
sé að sækja um skuldbreytingu þurfa
tekjur umsækjanda að hafa lækkað
eða greiðslugeta minnkað vegna
langvarandi atvinnuleysis, alvarlegs
heilsubrests eða af öðrum óviðráðan-
legum ástæðum, eða að greiðslu-
byrði hafí þyngst vegna ófyrirséðra
atvika. Skuldbreyting er hins vegar
engin töfralausn því skuldin verður
áfram til staðar og lántökukostnaður
eykst. Hins vegar kann hún að vera
góð leið til að gefa fólki tíma til að
endurskipuleggja fjármál s.s. að
selja eignir til þess að ekki þurfi að
selja þær á nauðungarsölu eða til
að komast yfir tímabundna erfið-
leika.
Önnur lausn á vanda heimilanna
sem nefnd hefur verið fyrir þessar
kosningar er að sett verði lög um
greiðsluaðlögun. Frá því í mars 1994
hefur verið hægt að sækja um
„frystingu“ lána á vegum Húsnæðis-
stofnunar ríkisins. Getur slík „fryst-
ing“ náð yfír þriggja ára tímabil og
gefst þá fólki færi á að greiða niður
önnur erfíðari lán á meðan og endur-
skipulagt hjá sér greiðslubyrði t.d.
með skuldbreytingu. í reynd er því
þegar farið að notast við greiðsluað-
lögun hvað varðar lán á vegum
Húsnæðisstofnunar ríkisins. Skilyrði
fyrir „greiðslufrystingu“ er að við-
komandi hafi orðið fyrir verulegri
tekjuskerðingu vegna atvinnuleysis,
minnkandi atvinnu, veikinda eða
annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
Eitt úrræði þessu tengt þegar
greiðslubyrði er orðin mikil og fast-
eign yfirveðsett, er nauðungarsala
fasteignar á almennum markaði. Það
úrræði kann að vera mun óhagfelld-
ara fyrir viðkomandi skuldara því
oftast seljast eignir á nauðungarsölu
nokkuð undir almennu markaðs-
verði. Ef það úrræði á að koma til
álita verður að tilkynna hlutaðeig-
andi veðhöfum um slíka ósk áður
en að fyrstu aðgerðum sýslumanns
(fyrirtöku) kemur og hann verður
að samþykkja slíka málsmeðferð.
Biðröðin ærin fyrir
Ein hugmynd stjórnmálamanna
er að breyta Húsnæðisstofnun ríkis-
ins í „ráðgjafar- og endurreisnarstöð
heimilanna". Sú hugmynd er einkar
athyglisverð sérstaklega í því ljósi
að biðröð eflir venjulegri afgreiðslu
húsbréfa er iðulega lengri en einn
mánuður. Sú bið myndi eflaust lengj-
ast verulega og kosta töluverða
fjölgun ríkisstarfsmanna ef nokkur
þúsund fjölskyldur myndu þramma
niður í Húsnæðisstofnun og óska'
eftir ráðgjöf og „endurreisn" heimil-
isins.
Bankarnir hafa um nokkurt skeið
upplýst viðskiptavini sína og veitt
fjármálaráðgjöf til að tryggja að
heimilin skuldsetji sig ekki um of.
Fiestir telja að fyrirbyggjandi að-
gerðir af þessu tagi séu vænlegastar
til árangurs. Bankarnir hafa mun
betri yfirsýn yfir heildarfjármál
hverrar fjölskyldu heldur en t.a.m.
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Síðasta töfralausnin sem nefnd
hefur verið til að létta greiðslubyrði
heimilanna er að lengja húsnæðislán
úr 25 árum í 40 ár. Til að gefa
hugmynd um breytingar á greiðslu-
byrðinni sem slíkt hefði í för með
sér þá myndi greiðslubyrði af hverri
milljón lækka um u.þ.b. þúsund
krónur.
Ljóst er að þær aðferðir sem beita
á við lausn á greiðsluvanda heimil-
anna eru þegar notaðar. Fátt er því
nýtt undir sólinni í þeim efnum.
Hins vegar má gera betur og er vel
að reynt sé að leggja fram úrræði
og hugmyndir sem miða að lausnum
á greiðsluvanda heimilanna. Ég tek
undir þá gagnrýni að slíkar hug-
myndir þurfi að vera raunhæfar því
slæmt er að gefa fólki í greiðsluerfið-
leikum falskar vonir um einhveijar
töfralausnir sem litlu breyta í raun.
Flestir eru sammála um að fyrir-
byggjandi aðgerðir séu í þessu efni
heillavænlegastar. í umræðunni fyrir
þessar kosningar saknar maður hins
vegar að ungu fólki sem er að kaupa
sína fyrstu íbúð sé lofað úrbótum á
húsbréfakerfínu. Til að mynda standa
mörg ungmenni í dag eignalaus ef
þau vilja ganga úr félagslega kerfínu
og festa kaup á íbúð á almennum
markaði. Félagsleg aðstoð verður í
því tilviki ekki félagsleg aðstoð held-
ur eignaupptaka. A því máli þyrfti
að taka að loknum kosningum.
eftir Magnús I.
Erlingsson
Ilúscigendafélagíó
Lögfrædi-
þjónust-
an þnnga-
miöja starf-
seminnar
SIGURÐUR Helgi Guðjónsson hrl.
var kjörinn formaður Húseigendafé-
lagsins á aðalfundi þess, sem haldinn
var fyrir skömmu, en fráfarandi for-
maður, Magnús Axelsson, hafði beð-
izt undan endurkjöri. Aðrir í stjórn
eru Þórir Sveinsson, Benedikt Boga-
son, Guðrún Árnadóttir og Þórhallur
Jósefsson. Varastjórn skipa Karl
Axelsson, Haraldur Helgason og
Guðmundur Guðmundsson.
Ifréttatilkynningu frá Húseigenda-
félaginu, segir m. a. að sem fyrr
sé lögfræðiþjónustan þungamiðjan í
starfsemi félagsins. Eftirspurn eftir
lögfræðiþjónustunni er mjög mikil
og algengt, að 20-30 ný mál komi
í hverri viku.
Þau mál, sem koma til kasta lög-
fræðiþjonustunnar eru aðallega
þessi. í fyrsta lagi mál vegna sam-
skipta eigenda í fjöleignarhúsum, í
öðru lagi mál, sem varða fasteigna-
viðskipti svo sem gallamál, í þriðja
lagi mál, sem snerta leiguviðskipti
og í fjórða lagi mál vegna viðskipta
húseigenda við verktaka.
Lang mikilvægustu baráttumál
félagsins á síðasta starfsári, voru
setning nýrra húsaleigulaga og fjö-
leignarhúsalaga, sem Alþingi sam-
þykkti 'sl. vor og kynning og fræðsla
vegna þeirra. Lög þessi, sem tóku
gildi um síðustu áramót, hafa að
geyma miklar réttarbætur fyrir hús-
eigendur.
Samstarf við Islandsbanka
Húseigendafélagið og húseig-
endaþjónusta íslandsbanka hafa ný-
lega tekið upp samvinnu og sam-
starf, sem felur m. a. í sér gagn-
kvæm inngöngutilboð á vildarkjör-
um. Húsfélög, sem nýta sér báða
þessa kosti, það er aðild að Húseig-
endafélaginu og húsfélagaþjónustu
Islandsbanka, spara sér með því
dágóðar upphæðir.
Ásamt Neytendasamtökunum og
Samtökum iðnaðarins hefur Húseig-
endafélagið unnið að bættu ástandi
í viðhalds- og viðgerðarmálum. Á
vegum félaganna er Matsnefnd, sem
vegur og metur viðgerðarverktaka
og hvort að þeir séu til þess hæfir
og fá þeir þá inngöngu í svokallaða
Viðgerðardeild Samtaka iðnaðarins.
Ef kvartanir berast, sem reynast á
rökum reistar, er slíkum mönnum
vísað úr deildinni af Matsnefndinni.
Sömu aðilar eru með á sínum
snærum Kvörtunarnefnd, sem hefur
það verkefni að taka til úrlausnar
og meðferðar kvartanir frá húseig-
endum vegna kaupa á vörum og
þjónustu frá aðilum í byggingar-
iðnaðinum.
Félagið hefur fjallað mikið um
tryggingar húseigenda og hefur
stjórn þess af því áhyggjur, hve stór
hluti húseigenda er vantryggður.
Hyggst félagið hefja átak í trygging-
armálum húseigenda, bæði með út-
gáfustarfsemi og námskeiðahaldi og
standa vonir til að samvinna takist
við tryggingarfélögin um það efni.
Barizt geg’n holræsagjöldum
Félagið barðist af aleíli gegn
álagningu holræsagjalda í Reykjavík
og ályktaði um það og kom fram í
fjölmiðlum vegna þess. Því miður
hafði félagið ekki árangur sem erf-
iði í þessari baráttu, en viðnám og
barátta gegn síauknum álögum á
fasteignir heldur stöðugt áfram.
Viðræður hafa farið fram á milli
félagsins og Félags fasteignasala
um að setja á laggirnar sátta- eða
kærunefnd í ágreiningsmálum, sem
tengjast fasteignaviðskiptum og
væntanlega verður sú hugmynd að
veruleika innan tíðar. Þessi félög
munu ásamt Lögmannafélagi ís-
lands, Samtökum iðnaðarins og fleiri
aðilum standa saman að málþingi
eða opnum fundi næsta haust um
galla í fasteignakaupum.
€
*
1
e
c
ííi
3
4
i
1
1
i
I
i
I
I
«
I
I
I
<
{
i
<
i
I
I
(
I