Morgunblaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.04.1995, Blaðsíða 20
20 D FÖSTUDAGUR 7. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ Lagnafréttir TÉ ÚR messing með þéttihringjum, rörið er ENGIN hulsa er sett utanum rörið við þrykk- pexplaströr með álkápu og plastkápu að lokum. ingu, álrörið kemur í hennar stað. Nýafstaðin kaupstefna lagnamanna í Frankfurt er viðfangsefni Signrðar Grétars Guðmimdssonar að þessu sinni. , Hún er talin góð vísbending um, hver þróunin er í lagnamálum í Evrópu. PEXRÖR, þrýstihulsa og messingtengi. PEXRÖRINU skotið upp á stútinn og hulsan dregin yfir. ÞRYKKT með þrýstitöng. TENGINGU lokið, augljóst er á hulsunni hvernig hún hefur þrykkst saman. TENGI og rör frá Geberit. VIÐAMESTA sýningar- og kaupstefna lagnamanna 1995 fór fram í Frankfurt í Þýskalandi síðustu viku marsmánaðar. Þar sýndu evrópsk fyrirtæki það nýj- asta í lagnatækni, hvort sem það eru hitakerfi, neysluvatnskerfi, frárennsliskerfi eða loftræsti- kerfi. Einnig sýndu þar framleiðend- eftir Sigurð ur verkfæra, sem Grétor Guðmundsson n°tuð eru Vlð lagnir og tölvu- fyrirtæki sýna stýribúnað og hjálpartæki. Sýningin er haldin annað hvert ár og flykkjast þá lagnamenn til Frankfurt og fer það ekki á milli mála að gestir eru margir í borg- inni, umferðin segir sína sögu og ekki síður hótelverðið. íslendingar á sýningunni núna hafa líklega verið hátt í eitt hundrað en stærsti einstaki hópurinn var á vegum Lagnafélags Tslands, yfir sextíu manns, sem gisti í fögrum bæ, Rúdesheim á Rínarbökkum ekki langt frá hinum fræga Loreley- kletti. Því lengra, sem gist er frá Frankfurt, verður gistingin ódýr- ari, en meiri tími fer í ferðalög kvölds og morgna. Sýningin í Frankfurt er talin góð vísbending um hver þróunin er í lagnamálum í Evrópu og þess vegna telja sumir lagnamenn að þáttaka sé ómissandi til að fylgjast með, aðrir telja enga þörf á slíku. __ Tæplega er hægt að segja að á’þessari sýningu hafí komið fram neinar byltingarkendar hugmynd- ir; þess í stað athyglisverð þróun í efni og tækjum. Að skýra frá þ.ví athyglisverðasta verður varla gert í einum pistli, en hvað var þá athyglisverðast? Fernt skal nefnt í byijun; þrýstitengi fyrir stálrör, plaströr og koparrör; fjarvinnslu í pípu- lögnum, plaströr með álkápu og rör í rör kerfið. Þrýstitengi Fyrir rúmum aldarfjórðungi byijaði sænska fyrirtækið AGA (sem þekkast er fyrir gasfram- leiðslu) að þróa nýja tegund röra- tengja, þrýstitengi. Rörin voru úr þunnu stáli og í sömu málum og koparrör (eirrör). Tengjunum var rennt upp á rörið og þrykkt á það með sérstöku verkfæri. Svíar gáf- ust fljótlega upp, seldu einkaleyfið til Þýskalands og þar hóf stór- fyrirtækið Mannesmann fram- leiðslu í stórum stíl, framleiddi og framleiðir lagnakerfi úr plasthúð- uðu stáli og ryðfríu stáli. Þessi tækni er ekki ný af nál- inni hérlendis; elsta hitakerfið hérlendis er í Kópavogi, orðið 25 ára gamalt og á því engin elli- merki. En Iíklega hafa flest kerfi verið lögð með þessari tækni á Hvolsvelli þegar breytt var frá beinni rafhitun við stofnun Hita- veitu Rangæinga. Einkaleyfi Mannesmann rann út fyrir tveimur árum og við það er eins og eldur hafi farið í sinu. Fjölmargir framleiðendur röra og tengja sýndu þarna sína útgáfu af þessari tækni og það sem kom á óvart var hve margir verkfæra- framleiðendur sýndu þiýstitangir. Það er greinilegt að almenn trú er á þessari tækni og líka var athyglisvert að uppáhald Islend- inga, snittaðar, skrúfaðar lagnir og tengi, sást varla. En það er langt frá því að þessi tengingartækní sé ný, þó hún sé tiltölulega ný í húsalögn- um. í marga áratugi hefur hún verið notuð með stórgóðri reynslu Rör-i-rör kerfi frá Biroduct-P. í vökvakerfum í bílum og vinnu- vélum og ekki síður á þrýstilofts- leiðslum. Hvers vegna þá ekki í húsalögn- um? Svarið við því er ekki einfalt en það má reyna að finna skýr- ingu. Hluti af því er þröngsýnt opinbert eftirlit og forsjárhyggja í byggingariðnaði. Ekki er nokkur vafi á því að framleiðendur bíla og vinnuvéla eru miklu fijálsari að því að þróa nýjungar með það fyrir augum að þær séu þægi- legri, öruggari, fyrirferðaminni og jafnvel ódýrari. Enganveginn er þetta þó nægjanleg skýring; byggjendur, hönnuðir og iðnaðar- menn eiga hér sinn hluta. Því miður hefur verið rótgróin and- staða þessara aðila gegn breyting- um og þróun. Stundum má líkja þeim við lækni, sem lítur aldrei í fræðirit eftir að hann kom frá prófborðinu á unga aldri; vísar á sömu lyfin svo lengi sem hægt er, jafnvel þar til þau eru tekin af markaði. Þá neyðist hann til að fara að hugsa, jafnvel lesa. RYÐFRÍ stálrör og tengi frá Mannesmann ásamt þrýstitöng. ÞVERSKURÐUR af þrýstitengi og ryðfríu stálröri frá Viega. í falsinu er þéttihringur úr gúmmí, en það reynir lítið á hann; samþjöppun málmanna tryggir þéttingu. EIGNAMIÐLUNIN % Fjárfestar - framtíðarfjárfesting. Þetta vandaða og glæsil. atvinnuhús- næði er til sölu. Eignin er samtals um 670 fm og skiptist í 440 fm jarðh. með allt að 6 metra lofthæð og 230 fm skrifstofuhæð. Traust erlent fyrirtæki er tilbúiö aö gera leigusammng um eignina nú þegar. Frekari uppl. veita Sverrir og Stefán. 5258 Bíldshöfði 18. Vorum að fá í sölu í húsinu nr. 18 við Bíldshöfða nokkur góð atvinnu- húsnæöi m.a. verkstæðispláss 181 fm, verslun og lager um 650 fm og skrifstofur um 257 fm. Húsið selst í eíningum. Gott verð og greiðslukjör. 5229 SÍIVll 88-90-90 SÍÐUMÚL_/\ 21 Starfnmenn: Sverrir Kristin*»on, sölustjóri, lögg. fasteignasali, Björn Þorri Viktorsson, sölum,, Þorleifur St. GuðmundMÓn, B.Sc., söluin., Guðinuntlur Sigurjónsson lögfr., skjalageró, Stefán Ilrafn Stefánsson, lögfr., sölum., Kjartan Þórólfnson, Ijósmyntlun, Jóhanna Valdimarstlóttir, auglýsingar, gjaltlkeri, Inga Hannesdóttir, síinavarsla og ritari. 1Ivíh> var aó sjá í I raiilif ni't ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.