Morgunblaðið - 09.04.1995, Page 25

Morgunblaðið - 09.04.1995, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. APRÍL1995 B 25 ATVIN N M A UGL YSINGAR VlB SAUÐÁRKROKSBÆR Verðbréfamiðlari VÍB, Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. leitar eftir verðbréfamiðlara í Miðlun og fyrirtækjaþjónustu VÍB. Starfið felst m.a. í viðskiptum með innlend og erlend verðbréf við stofnanafjárfesta, í samskiptum við innlenda og erlenda verð- bréfamiðlara og viðskiptum við Verðbréfa- þing íslands. Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu og fylgjast mjög vel með fjármálamarkaðnum. Hann þarf að vera góður sölumaður og góð- ur í mannlegum samskiptum. Hann þarf að kunna skil á ýmsum útreikningum og vera fljótur að tileinka sér nýjungar. Hann þarf að geta starfað sjálfstætt, hafa frumkvæði og vera jákvæður og drífandi. Einnig þarf hann að hafa gott vald á ensku og hafa kunn- áttu í Word og Excel. Leitað er að umsækjanda með háskólapróf í viðskipta- eða tæknigreinum og helst með framhaldsnám frá erlendum háskóla. 2ja-3ja ára starfsreynsla er æskileg. Umsóknarfrestur er til 19. apríl nk. Umsókn- um ber að skila til Hagvangs hf., Skeifunni 19, 108 Reykjavík. Fyrirspurnum svara Katrín S. Óladóttir og Þórir Þorvarðarson hjá Hag- vangi hf. í síma 813666. Haeva ngurhf I Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir SOLUFULLTRUI MARKAÐSMÁL FYRIRTÆKIÐ er öflugt og rótgróið innflutningsfyriræki á sviði heimilistækja. STARFIÐ FELST í: * Gerð sölu- og markaðsáætlana. *Viðhaldi viðskiptatengsla og öflun nýrra. *Þarfagreiningu um vöruframboð. * Erlendum samskiptum. *Vitjunum í fyrirtæki og þjónustugreiningu. *Daglegri þátttöku í sölu. LEITAÐ ER AÐ hugmyndaríkum og öflugum markaðsmanni með metnað til að sýna góðan árangur hjá framsæknu fyrirtæki. Ahersla er lögð á menntun á sviði markaðsmála auk hald- bærrar reynslu af sambærilegu. UMSÓKNARFRESTUR er til og með 1. maí n.k. Ráðning verður fljótlega. Umsóknareyðublöð eru fyrírliggjandi á skrifstofunni sem er opin frá kl.10-16, en viðtalstímar cru frá kl.10-13 l' Starfsróðningar hf Sudurlandsbraut 30 ■ 5. hæS ■ 108 Reykjavík r Simi: S88 3031 ■ Fax: S88 3010 ST RA Cuðný Harðardóttir Leikskólakennarar Sauðárkrókskaupstaður óskar eftir að ráða leikskólakennara sem fyrst í 50% starf á leik- skólann Furukot. Einnig óskast leikskólakennarar til starfa á leikskólann Glaðheima. Nánari upplýsingar veita leikskólastjórar í símum 95-35496 og 95-35945. Umsóknarfrestur um ofangreindar stöður er til 1. maí nk. Félagsmálastjóri. REYKJALUNDUR Hjúkrunarfræðingar - þroskaþjálfar óskast til starfa á Reykjalundi sem fyrst. Á Reykjalundi er unnið að endurhæfingu fólks með heilsufarsvandamál á eftirtöldum sviðum: Miðtaugasvið hæfingarsvið hjartasvið gigtarsvið lungnasvið bak- og verkjasvið geðsvið. Fjölbreytt og skemmtilegt starf, markviss teymisvinna með mismunandi faghópum. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 666200. Framkvæmdastjóri fyrir nýtt hugbúnaðarfyrirtæki Leitað er að framkvæmdastjóra fyrir nýstofn- að hugbúnaðarfyrirtæki, Skyggni hf., upplýs- ingaþjónustu, sem er í eigu Hf. Eimskipa- félags íslands og Strengs hf. Markmiðið með stofnun Skyggnis er þróun og markaðssetning á hugbúnaði hér á landi og erlendis. Starfið ★ Stjórnun og rekstur fyrirtækisins. ★ Markaðs- og kynningarmál. ★ Þjónusta og samskipti við viðskiptavini. Fyrirliggjandi verkefni 1. Þjónusta og markaðssetning á Fjölnis- kerfum í samvinnu við Streng með það að markmiði að auka þjónustu við notend- ur hér á landi. 2. Ýmis hugbúnaðargerð fyrir Eimskip, einkum þá er tengist aukinni upplýsinga- þjónustu fyrir viðskiptamenn fyrirtækisins. Hæfniskröfur Leitað er að traustum og kraftmiklum einstaklingi, sem hefur áhuga og metnað til að byggja upp öflugt hugbúnaðarfyrirtæki á vaxandi markaði. Haldgóð reynsla úr hugbúnaðariðnaðinum æskileg. Hér er á ferðinni gott tækifæri til að móta og leiða nýtt fyrirtæki, sem traustir aðilar standa að. Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon hjá Ráðgarði. Umsóknir og fyrirspurnir verður farið með sem algjört trúnaðarmál ef óskað er. Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til Ráðgarðs, merktar: „Skyggnir hf. - framkvæmdastjóri", fyrir 22. apríl nk. RÁÐGARÐUR hf. STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF NÓATÚN 17105 REYKJAVÍK SÍMl 616688 Frá Fræðsluskrif- stofu Reykjavíkur- umdæmis Lausar eru til umsóknar kennarastöður við eftirtalda grunnskóla í Reykjavík skólaárið 1995-1996. Fellaskóli: Sérkennsla. Hamraskóli: Smíðakennsla (2A staða). Húsaskóli: Heimilisfræði. Tónmennt ('h staða). Smíðakennsla (zh staða). Sérkennsla. Heimilisfræði (zh staða). Handmennt. Sérkennsla. Myndmennt. Almenn kennsla. Handmennt (hannyrðir) ('h st.) Staða bókasafnsfræðings. Ennfremur eru lausar stöður kennara með sérkennsluréttindi við eftirtalda sérskóla ríkisins: Safamýrarskóla, Einholtsskóla, Dalbrautar- skóla og Öskjuhlíðarskóla og jafnframt eru lausar kennarastöður við Vesturhlíðarskóla (Heyrnleysingjaskóla), táknmálskunnátta nauðsynleg. Umsóknarfrestur er til 5. maí nk. Nánari upplýsingar veita skólastjórar við- komandi skóla. Langholtsskóli: Réttarholtsskóli: Rimaskóli: Vesturbæjarskóli: Vogaskóli: Lausar skólastjórastöður: Staða skólastjóra við Engjaskóla frá 1. júní nk. Staða skólastjóra við Hamraskóla um eins árs skeið frá 1. ágúst nk. Umsóknarfrestur um báðar stöðurnar er til 5. maí nk. Reykjavík, 9. apríl 1995. Fræðslustjórinn í Reykjavík. Lausarstöður Lausar eru til umsóknar eftirtaldar rann- sóknastöður við Raunvfsindastofnun Háskólans sem veittar eru til 1-3 ára. a) Ein staða sérfræðings við Eðlisfræði- stofu. b) Ein staða sérfræðings við Efnafræði- stofu. Æskilegt er að sérfræðingurinn geti starfað á sviði efnagreiningartækni. Fastráðning í þessa stöðu kemur til greina. c) Ein staða sérfræðings við Jarðfræði- stofu. Sérfræðingnum er einkum ætlað að starfa á sviði öskulagafræði. Gert er ráð fyrir að stöðurnar verði veittar frá 1. september nk. Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsækjendur skulu hafa lokið meist- araprófi eða tilsvarandi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við rannsóknir. Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsókna- starfa, en kennsla þeirra við Háskóla íslands er háð samkomulagi milli deildarráðs raun- vísindadeildar og stjórnar Raunvísindastofn- unar Háskólans, og skal þá m.a. ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti af starfs- skyldu viðkomandi starfsmanns. Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um menntun og vísindaleg störf, auk ítarlegrar lýsingar á fyrirhuguðum rann- sóknum, skulu hafa borist framkvæmda- stjóra Raunvísindastofnunar Háskólans, Dunhaga 3, 107 Reykjavík, fyrir 9. maí 1995. Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dómbærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísinda- leg störf. Umsagnir þessar skulu vera í lok- uðu umslagi sem trúnaðarmál. Raunvísindastofnun Háskólans.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.