Morgunblaðið - 09.04.1995, Page 1
REYNSLUAKSTURÁ AUDIA4 - LÍKLEGAR TÆKNIFRAMFARIR
ÍBÍLUMFRAMÁ NÆSTU ÖLD - ÍSLENSKT FJÖÐRUNARKERFI
SMÍÐAÐ FYRIR TOYOTA HILUX-FYLGSTMEÐ MEISTARALIÐI
ALFA ROMEO Á KAPPAKSTURSBRA UTINNIíDONNINGTON
Toyota 1100
kominn
Lexus jjeppi
i |onuar
til landsins
TOYOTA T 100 pallbíllinn barst
nýlega hingað til lands frá Banda-
ríkjunum en hér er um að ræða
bíl með stækkuðu húsi, sex manna
og með 3,4 lítra, sex strokka, 24
ventla og 194 hestafla vél. Toyota-
umboðið, P. Samúelsson, keypti
bílinn hingað frá Bandaríkjunum
en hann er eingöngu framleiddur
fyrir þann markað og allsendis
óvíst hvort hann verður fáanlegur
hérlendis. Forráðamönnum um-
boðsins þótti þó rétt að
fá einn bíl til skoðunar.
T100 er 5,3 m lang-
ur og nærri 1,80 m
breiður og hjólhafið er
tæpir þrír metrar.
Hann vegur 1.830 kg,
er með fimm gíra
handskiptingu og hér
er um að ræða aldrifs-
bíl, ekinn í afturdrifi eða
aldrifi og með háu og lágu drifí.
Bfllinn er allvel búinn, með
hraðafestingu, líknarbelg í stýri
og hemlalæsivöm, rafstillanlegum
hliðarspeglum og samlæsingu. Þá
er hann með blaðfjöðrum að aftan.
Eftir að hafa tekið einn hring
á þessum all stórvaxna bíl er ljóst
að hér er nægur kraftur og við-
bragð í boði. Þá er vélin merkilega
hljóðlát og bílinn rásar ekki að
marki þegar ekið er á vel holóttum
vegum í aldrifinu. Sem fyrr segir
stefnir Toyota þessum bíl ein-
göngu á markað í Bandaríkjunum
enda mikil pallbíla menning þar
en nokkuð ljóst er að íslenskir
jeppamenn munu hafa áhuga á
að kynna sér þennan grip og jafn-
vel höndla þar sem hann er hent-
ugur til margs konar nota og
hægt að aðlaga íslenskum
jeppaaðstæðum. ■
BÍLLINN er með húsi sem
getur tekið sex í sæti en er
skráður hér fyrir fimm með
ökumanni. Að innan er bíllinn
látlaus og stilhreinn.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
T100 er stór og verklegur bíll, með 3,4 lítra
og 194 hestafla vél, háu og lágu drifí.
TOYOTA Motor mun hefía smíði á
Lexus jeppa í verksmiðjum Araco
Corporation, dótturfyrirtækis síns í
Toyota City, í janúar. Lengi hefur
verið orðrómur um að til stæði að
hefja framleiðslu á jeppanum en það
er fyrst nú sem hann er staðfestur.
4,5 lítra, sex strokka vél
Jeppinn gengur undir heitinu
713T og er honum ætlað að keppa
á markaði lúxusjeppa sem settir
verða á markað á næstu tveimur til
þremur árum til höfuðs Range Ro-
ver. Ráðgert er að jeppinn verði
kominn á markað í Bandaríkjunum
í sama mánuði og óttast dreifingar-
aðilar Toyota að mjög dragi úr sölu
á Land Cruiser og 4Runner.
Sagt er að Lexus jeppinn sæki
einmitt margt til Land Cruiser en
verði öðruvísi útlits að utan og innan.
Jeppinn verður með 4,5 lítra, sex
strokka vél, þeirri sömu og boðin er
í Land Cruiser. Að innan verður bíll-
inn með leðursætum og vandaðri
innréttingu og til að greina hann
útlitslega frá Land Cruiser verður
hann með hliðarlistum og stuðara-
útfærslu, ekkki ósvipaðri og á
Mitsubishi Pajero. 713T verður örlít-
ið breiðari en Land Cruiser en önnur
mál verða svipuð. Gert er ráð fyrir
að smíðaðir verði 1.000 til 1.500 bfl-
ar á mánuði. ■
BMW nær f orystu í smíði þýzkra lúxusbíla
BMW í Miinchen hefur náð ótví-
ræðri forystu í framleiðslu lúxusbíla
í Þýskalandi og er ekki lengur í öðru
sæti á eftir Mercedes-Benz.
Ár er síðan BMW keypti Rover-
bílaverksmiðjurnar í Bretlandi og
nokkrar vikur síðan BMW gerði
samning um að útvega Rolls-Royce
vélar í nýja kynslóð lúsusbfla.
Síðan BMW keypti Rover hefur
fyrirtækið getað framleitt um eina
milljón bíl, sem sérfræðingar telja
lágmark þess sem bifreiðaverksmiðj-
ur verði að framleiða til þess að
halda velli til lengdar á troðfullum
bflamarkaði Evrópu.
Sjöundi í röðinni
BMW er nú sjöundi umsvifamesti
bílaframleiðandi Evrópu, næst á eft-
ir „risunum sex“ — Volkswagen,
Renault, General Motors Europe,
Ford Europe, Renault, PSA Peuge-
ot/Citroen og Fiat.
Með því að kaupa Rover fékk
BMW aðgang að tækni Rovers við
framleiðslu smábíla og bíla með
framhjóladrifi og komst yfir djásnið
í kórónu fyrirtækisins — Land Rover.
BMW er hins vegar ekki eitt um
hituna. Mercedes seldi tæplega
600,000 bíla- í fyrra og stefnir að
FRAMLEIÐSLA 3-línunnar
gerði BMW kleift að standa af
sér samdrátt á bílamarkaði.
því að framleiða allt að einni milljón
á næstu árum, en einbeitir sér að
því að auka umsvifin innanlands.
Meö beztu afkomuna
BMW stóð sig bezt þýzkra bif-
reiðaframleiðenda 1994. Sala að
Rover meðtöldum nam 42.1 milljörð-
um marka. Ef Rover er ekki talinn
með jukust tekjumar um 10% í 31.2
milljarða marka.
Framleiðsla vinsælla „3“ bíla
BMW hófst 1991 og gerði fyrirtæk-
inu kleift að standa af sér samdrátt-
inn og selja fleiri bíla en Mercedes
í fyrsta skipti.
Sérfræðingur í Frankfurt telur að
hagnaður BMW hafi aukizt í rúmlega
700 milljónir marka 1994 úr 516
milljónum 1993. Flestir aðrir sér-
fræðingar b'úast við 600-700 milljóna
hagnaði og spá því að hann aukist
ört á þessu ári og því næsta. ■