Morgunblaðið - 12.04.1995, Síða 2

Morgunblaðið - 12.04.1995, Síða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ Hitt og þetta Engir Japanir á leiðinni ■ ENGIN staðfesting hefur fenglzt á því, að japanskir verksmiðjutogarar séu á leið- inni tii veiða á úthafskarfa á Reykjaneshrygg. Óstaðfestar fréttir hafa hennt að nokkur fioti væri á leiðinni frá Jap- an, en samkvæmt upplýsing- um frá ræðismanni Islandsi Tókýó, Raijiro Nakabe, munu engir togarar vera á ieiðinni. Hins vegar verður japanskt rannsóknarskip í eigu sljórn- valda þar, Shin-kai Maru, við rannsóknir á kolmunna við Færeyjar á tímabilinu mai til júlí í sumar. Veiðar í rauðmaganet bannaðar í páskastoppi ■ VEIÐAR í rauðmaganet hafa nú verið bannaðar eins og flestar aðrar veiðar í svo- kölluðu páskastoppi, sem hófst klukkan 20 í gær- kvöldi. Sjávarútvegsráðu- neytið hefur tekið þessa ákvörðun i ijósi þess að all- mikið hefur borið á því að þorskur veiðist í rauðmaga- net, en við þær veiðar eru notuð sams konar net og við þorskveiðar. Rauðmagaveið- ar eru utan kvóta og getur hver sem er stundað þær. Eftir sem áður eru grá- sleppuveiðar leyfðar eins og auglýst hafði verið í fyrri reglugerð, en við veiðar á grásleppu er notaður 10,5 þumlunga möskvi að lág- marki, en það er mun stærri möskvi en í rauðmaga- og þorskanetum. Ein fiskverkun fær úreldingu ■ AF þeim styrkjum til úreld- ingar sem Þróunaríjóður sjáv- arútvegsins hafði samþykkt fyrir síðustu áramót höfðu hátt í 30 sótt um frest til að selja skip sín úr landi eða farga þeim, að sögn Hinriks Greipssonar hjá Þróunarsjóði. Fresturinn gilti til 31. mars, en að sögn Hinriks er jjóst að talsverður hluti umsækjenda hefur ekki uppfyllt sett skil- yrði þótt endanleg niðurstaða liggi enn ekki fyrir. Á stjómarfundi Þróunar- sjóðs, sem haldinn verður í lok apríl, verður fjallað um úreldingu fiskverkunar- stöðva. Að sögn Hinriks hef- ur til þessa aðeins ein umsókn um slíka úreldingu verið sam- þykkt, en það var vegna fisk- verkunarhúss á Húsavík, sem var keypt. Hinrik sagði að það skil- yrði fyrir útborgun á styrkj- um úr Þróunarsjóði, að selja skip úr landi eða farga þeim, væri enn óbreytt. Hvað trillur varðaði sagði hann að nokkur dæmi væru um að nýlegir plastbátar hefðu verið seldir úr Iandi. = HÉÐINN = SMIÐJA STÓRÁSI6 • GAROABÆ • SlMI 565 2921 • FAX 665 2927 Hönnun • smíöi • viðgerðir • þjónusta FRÉTTIR • VOGUM - BIRGIR Guðbergs- son kom til landsins fyrir skömmu í frí frá störfum sínum í stríðshrjáðum löndum í fyrr- um Jógúslavíu, þar sem hann starfar hjá Sameinuðu þjóðun- um. Hann lenti í aflahrotunni miklu sem verið hefur á Faxa- flóa að undanförnu. Hann skellti sér á sjóinn á Herjólfi Jónssyni GK frá Vogum, sem rær með net og fyrsta daginn var landað þrisvar sinnum. Vegna mikils afla hefur orðið að fækka netum í sjó vegna kvótatakmarkana. Netin eru lögð örstutt frá landi eða í Gullkistunni svokölluðu, en þaðnafn fengu fiskimið undir Vogastapa fyrr á öldinna enda þótti það beztu fiskimið við landið. Sjómenn segja fisk um allan sjó og nú þurfi bara meiri kvóta. Karl Eiríkur Hrólfsson og Birgír Guðbergsson á Her- jólfi Janda físki við Vogahöfn, að vonum ánægðir með góðan afla en harma lítinn kvóta. Klara Sveinsdóttir seld Kínveija á Nýja Sjálandi TEISTUR hf., sem er í eigu fjög- urra ísfirskra fyrirtækja og keypti rækjutogarann Klöru Sveinsdóttur SU 50 á Fáskrúðsfirði, hefur selt skipið til Nýja Sjálands. Kaupand- inn er kínverskur útgerðarmaður þar og mun það bætast í fiskiskipaflota hans. Skipið er enn á ísafirði en fer einhvem næstu daga í slipp í Reykja- vík á vegum kaupandans og heldur væntanlega áleiðis til Nýja Sjálands um mánaðarmótin. Kvótinn færður á ísfirsk rækjuskip Útgerðar- og^ fiskvinnslufyrirtæk- in íshúsfélag ísfirðinga, Gunnvör, Togaraútgerð ísafjarðar og rækju- verksmiðjan Ritur stofnuðu hlutafé- lagið Teistur á Fáskrúðsfirði til að kaupa Klöru Sveinsdóttur í desem- ber sl. Skipið var með mikinn úthafs- rækjukvóta, eða um 1.400 tonn, og var tilgangurinn að færa hann á skip ísfirsku fyrirtækjanna. Jafn- framt voru kaupin liður í hugs- anlegri sameiningu íshúsfélagsins og Rita. Magnús Reynir Guðmunds- son, stjórnarformaður íshúsfélags- ins og framkvæmdastjóri Togaraút- gerðarinnar, segir að fyrirtækin hafí fengið það út úr úreldingu og sölu skipsins sem þau reiknuðu með þeg- ar ráðist var í kaup þess. Það sem eftir var af kvóta skips- ins á þessu fiskveiðiári hefur Fram- nes, skip íshúsfélagsins, að mestu veitt en eftir er að ganga endanlega frá skiptingu kvótans á skip félag- anna. Klara Sveinsdóttir. sem er 292 tonn að stærð var smíðuð í Noregi 1978 og keypt notuð til Patreks- fjarðar. Þar hét skipið Jón Þórðar- son. Það hefur síðan víða farið, hét síðast Drangavík og var þá gert út frá Hólmavík. Óvissa með samelningu Magnús Reynir segir að ekki sé orðið Ijóst hvort ráðist verði í samein- ingu íshúsfélags ísfirðinga og rækjuverksmiðjunnar Rita. Ráðgjaf- arfyrirtæki er að meta hagkvæmni þess en Magnús Reynir segir hana ekki augljósa. íshúsfélagið sótti um hlutdeild í Vestfjarðaaðstoð en Magnús Reynir segist vera hættur að reikna með nokkru þaðan, starfshópur um Vest- fjarðaaðstoð hafi ekki einu sinni haft fyrir því að svara umsókn fyrirtækis- ins eða öðrum erindum þess. Hann segir að útgerðarfélög sem gerðu út togarana Framnes á Þing- eyri og Stefni (áður Gyllir frá Flat- eyri) hafi sameinast íshúsfélaginu og Snæíjallahreppur sameinast Isa- fjarðarkaupstað þannig að fyrirtæk- ið fullnægði skilyrðum laganna. „Þessir menn virðast geta úthlutað fjármagninu eftir eigin höfði. Ef það hefur verið ætlunin hefði átt að segja fólki það strax í upphafi," segir Magnús Reynir. Silfurnes gert út frá Grundarfirði BREIÐAFJÖRÐUR hf. í Homafjarð- arbæ sem er nýstofnað félag í eigu Soffaníasar Cecilssonar hf. í Grund- arfirði hefur fest kaup á Silfurnesi SF 99, áður Hrísey SF, á Höfn. Skip- ið verður afhent um næstu mánaðar- mót og gert út frá Grundarfirði. 950 tonna kvótl Útgerðarfélag Hríseyjar varð gjaldþrota og auglýsti Ríkisábyrgð- arsjóður skipið til sölu fyrir rúmu ári. Nokkrir aðilar buðu í það, meðal annars Soffanías Cecilsson hf. en sveitarstjómin á Höfn neytti for- kaupsréttar síns. Keypti sveitar- félagið skipið á 205 milljónir kr. og seldi strax aftur til Fiskhóls hf. á Höfn. Það fyrirtæki hefur gert skipið út síðan undir nafninu Silfurnes en hefur nú selt það til fyrirtækis Sof- faníasar sem var hæstbjóðandi í þetta sinn. Silfurnes er smíðað á Seyðisfírði 1985 og er 144 brúttórúmlestir að stærð. Kvóti þess er liðlega 950 þorskígildistonn. Það er alhliða tog- skip og verður gert út á fiskitroll frá Grundarfirði, að sögn Magnúsar Sof- faníassonar, framkvæmdastjóra út- gerðarinnar, til hráefnisöflunar fyrir fiskvinnslu fyrirtækisins. Þá er hugs- anlegt að það fari einnig á rækju. Magnús vill ekki gefa upp kaup- verð skipsins en staðfestir að það hafi hækkað nokkuð í verði á því ári sem liðið er frá því hann bauð í það síðast. Samkvæmt heimildum blaðs- ins er verðið 250-300 milljónir kr. Sturlaugur Þorsteinsson, bæjar- stjóri Hornafjarðarbæjar, tekur fram að útgerðarmenn Silfurness hafi komið heiðarlega fram í málinu með því að bjóða bænum að kaupa skip- ið. Hins vegar sönnuðu þessi við- skipti og önnur að ákvæði um for- kaupsrétt sveitarfélaga væru ekki annað en friðþæging. SANDHVERFA í ELDI' Morgunblaðið/Árni Sæberg • UMÞRJÁTÍU sandhverfum hefur verið komið fyrir í Til- raunaeldisstöð Hafrannsókna- stofnunarinnar á Stað við Grindavík síðustu þrjú árin. Dr. Bjöm Bjömsson fískifræðingur segir að sandhverfa sé mjög verðmætur fiskur og miklar vonir séu því bundnar við eldið. Hann segir að síðastliðið sumar hafí einungis fengist hrogn en í ár verði þess freistað að klekja út seiðum. Að sögn Björas býr sandhverfan við prýðilegar að- stæður þar syðra; gluggi sé á kerinu þannig að náttúraleg birta flæði inn en hún eykur líkumar á því að fiskurinu verði kynþroska. Hitastigið I kerinu er á bilinu I0-18C en Bíjöm seg- ir að sandhverfa vaxi vel við hátt hitastig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.