Morgunblaðið - 12.04.1995, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995 C 3
FRÉTTIR_________
Fiskverksmiðjur
í sjómanna stað?
Hitt og þetta j
Vinnsluskipin
fá ekki eigin
sölusamtök
■ NORSKA sjávarútvegs-
ráðuneytið hefur hafnað
beiðni samtaka útgerða
vinnslsukipa um að að fá
að stofna eigin sölusamtök.
Niðurstaða ráðuneytisins
byggist á því, að það renni
styrkari stoðum undir
markaðsetningu sjávaraf-
urða, að þar komi til sög-
unnar færrri en stærri sö-
lusamtök.
Sjávarútvegsráðuneytið
leggur áherzlu á, að sala á
fiski upp úr sjó eða úr skipum
sé ( höndum fárra öflugra
sölusamtaka. Þess vegna hef-
ur það lagt lið þeirri viðleitni
sjómanna og framleiðenda
sjávarafurða að fækka og
stækka sölusamtök sín. Því
hafa sölusamtök safmark-
aðra hagsmunahópa verið lög
niður og þrjú samtök um sölu
síldar runnið saman í eitt. Þá
hafa fjögur samtök í þorski
runnið saman ú tvenn sam-
tök. það er skoðun ráðuneyt-
insins að viðurkenning og
staðfesting á nýjum sölusam-
tokum bryti í bága við þróun
sfðustu ára og gæti dregið
líflíkum þeirra samtaka, sem
fyrir eru.
Hafínner
innflutningur á
Flo-Scan mælum
■ FYRIRTÆKIÐ H. Haf-
steinsson hefur hafið inn-
flutning á Flo-Scan olíu-
eyðslumælum, sem henta
smábátum og stærri bátum
með vélar allt að 3.000 hest-
öfl. Mælarnir geta sparað
mikið, enda eru smábátarn-
ir komnir með vélar allt að
400 hestöflum.
í frétt frá fyrirtækinu seg-
ir, að inn á mælinn skráist
hve mikið af olíu sé á gey-
munum við upphaf veiðiferð-
ar, því sé hægt að fylgjast
nákvæmlega með því mikið
mikið af olíu sé til hveiju
sinni. Þá sé hægt að sam-
stilla hraða og olíueyðslu og
sjá hvernig hagkvæmast sé
að keyra bátinn. Loks sé
hægt að fylgjast með því,
þegar komið er að botn-
hreinsun vegna aukinnar
olíueyðslu og fleiri þáttum.
FloScan mælamir hafa
verið samþykktir bæði fyrir
báta og flugvélar. Eftirtaldir
bátar eru þegar komnir með
Flo-Scan mæla: Sæþór RE,
Elsa Rún HF, Sindri NS,
Gamli Valdi RE, nýsmíði
B.G., Snæberg RE, Lukka
RE, Skarpur RE, Hulda RE,
Bylgja RE og Sleipnir ÁR.
Mælarnir kosta 35.000 krón-
ur.
BRESKIR sjómenn eiga við ærinn
vanda að glíma en nú telja þeir,
að ný ógn steðji að atvinnu sinni
og afkomu. Þá er átt við fískeldið
en nú virðist sem menn séu að ná
tökum á eldi sjávarfíska í stórum
stíl, þorsks, sandhverfu, bassa og
steinbíts svo nokkrir séu nefndir
fyrir utan lax og silung, ál og hum-
ar. I Bretlandi er nú verið að huga
að stórum eldisstöðvum undir þaki,
eins konar „fiskverksmiðjum".
Ýmsir hafa orðið til að gagnrýna
þessar nýju verksmiðjur, til dæmis
umhverfíssinnar, sjómenn og mat-
argerðarmeistarar, sem segjast ótt-
ast, að fískurinn verði ekki nógu
bragðmikill, en vísindamenn halda
því fram, að þessi nýja tækni, sem
var fullkomnuð í Danmörku, geti
orðið til að draga úr sókn í fisk-
stofnana og vernda þá þannig.
Eldlsstöðvar um allan helm
I tveimur fískeldisstöðvum í
Danmörku eru nú framleidd árlega
300 tonn af ál og sandhverfu og
bresk fyrirtæki og fyrirtæki í 20
öðrum löndum eru í startholunum.
„Markmiðið er að koma upp svona
eldisstöðvum um allan heim enda
eru möguleikarnir ótæmandi vegna
þess, að stöðvarnar geta verið hvar
sem er,“ segir Keld Nielsen, for-
'stöðumaður dönsku fískeldisstofn-
unarinnar, en hún varð fyrst til
að ná tökum á tækninni. Hún felst
í nýjum búnaði, sem hreinsar vatn-
ið I tönkunum fjórum sinnum á
klukkustund en það þýðir, að unnt
er að nota ávallt sama vatnið eða
sjóinn.
Hægt er að ala tugþúsundir
fiska allan ársins hring í aðeins
40 rúmmetrum af vatni og á ve-
tuma er haldið góðu hitastigi á
vatninu til að auka vöxtinn. í
Egtved í Danmörku eru nú aldir
200.000 álar í hveijum tanki en
þeir eru 20 talsins. Hefur Evrópu-
sambandið lagt fram mikið fé til
rannsókna á þessum málum og
hafa ýmis matvælafyrirtæki áhuga
á eldi af þessu tagi til að tryggja
sér jafn framboð.
Engin mengun
Breskir sjómenn hafa nokkrar
áhyggjur af þessari þróun og um-
hverfísvemdarsinnar segja, að
svona eldi sé ómannúðlegt gagn-
vart fískinum. Talsmenn hinnar
nýju tækni vísa þó öllu slíku tali á
bug og benda á, að hún bjóði upp
á svo mikla möguleika, að þróunin
verði ekki stöðvuð. Einn megin-
kostur hennar er líka sá, að henni
fylgir engin mengun eins og er
með kvíaeldi í sjó.
asgKEæg-
Fullkomin löndunaraðstaða
við hliðina á
flutningaskipum Samskipa
Samskip og Löndun hf. bjóða heildarlausn í löndun
og annarri þjónustu við frystiskip. Þessi heildarlausn
eykur hagkvæmni og einfaldar alla meðhöndlun
vöru. Samherji, Royal Greenland og Polar Seafood
eru meðal fyrirtækja sem hafa notfært sér þessa
þjónustu undanfarin ár með því að landa fiski á Vogabakka. Þaðan
er leiðin stutt yfir í millilanda- og innanlandsskip Samskipa, því þau
liggja við Holtabakka sem er í aðeins nokkurra metra Qarlægð.
Samskip bjóða auk þess upp á frystigeymslur innanlands og erlendis.
Hafðu samband við Samskip næst
þegar þú þarft á löndunarþjónustu .
að halda, það skilar sér fljótt. SAMSKIP
Holtabakka við Holtaveg, 104 Reykjavík
Sími 569 8300 - Fax 569 8327