Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.04.1995, Blaðsíða 1
LANDSVIRKfUN Stærsta íslenska 'ÍK-í 'M; 1 i B flBB FfÖLMIDLUN Risaverkefni AUGLÝSINGAR Stökkpallur inn & K lántakan /3 aö baki/4 itá w 1 í Evrópu /6 VlÐSKIPn AIVINNULIF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 13. APRIL 1995 BLAÐ B Skandia Mál Gísla Arnar Lárussonar gegn Skandia í Svíþjóð er enn óleyst. Gerðardómur úrskurðaði í janúar sl. að kaup Skandia á hlut Gísla í tryggingarfélaginu Skandia væru ógild, en aðila greinir á um hvernig staðið skuli að málum. Skandia hefur þó nýlega greitt Gísla Erni máls- kostnað sem nam tíu milljónum króna. Flug Bráðlega fjölgar þeim kostum sem íslenskir inn- og útflytjend- ur vöru hafa á flutningi því flugfélagið Catalan Connection mun á næstunni hefja beint vöruflutningaflug á milli Kefla- víkur og Barcelona á Spáni. Ferðamenn Upplýsingamiðstöðvar fyrir ferðamenn verða starfræktar í sumar á um 40 stöðum víðsvegar um ísland, í mismunandi miklum mæli þó. Undanfarin ár hefur Byggðastofnun veitt Ferðamála- samtökum íslands styrk vegna þessa málefnis. SÖLUGENGI DOLLARS Kr. 66.50 66,00 65.50 65,00 64.50 64,00 63.50 63,00 62.50 62,00 61,501 15 Síðustu fjórar vikur > I 2. 63,81 II | \ i i I ^ . mars 22. 29. 5. apríl 1 Hljómplötusala 1994 Sala dreifingaraðila, samtals 437,7 milljónir kr. Aðrir, 14,6% Japis hf. er ekki með i þessari úttekt aðila sem framleiða og selja íslenskar og erfendar hljómplötur, en tekur þátt i þessari samvinnu í ár. Sala hljómplötuframleiðenda, INNLENDIR 67,9 HHi^HHHHHHi^HHm 67,4 114,2 m.kr. Smekkleysa 36,5 m.kr. Aðrir innlendir ERLENDIR ! 42,4 m.kr. BMG 39,9 m.kr. Sony 37,3 m.kr. EMI/Virgin 35,9 m.kr. Polygram 130,4 m.kr. Wamer HHHHI 65,7 m.kr. Aðrir erlendir Arstíðadreifing sölunnar Jan.-mars ERLENDIR Júlí-sept. | Okt.-des. Jan.-mars April-júní Júlí-sept. INNLENDIR Okt.-des. 0 1 0 20 30 40 50 60 70 80 90 1 00m.kr. HAGVANGUR hefur tekið að sér að sjá um upplagseftirlit Samtaka hljómplötuframleiðenda á íslandi og sjást fyrstu niður- stöður hér að ofan. Japis hóf þátttöku í eftirlitinu um síðustu áramót og felur fyrirtækið því undir liðinn annað vegna síðasta árs. Samkvæmt könnuninni nam heildarsala hljómplatna um 437,7 milljónum á sl. ári og var heildarfjöldi seldra eintaka liðlega 493 þúsund. Miðað við aö meðalsmásöluálagning hafi verið 50% á árinu má gera ráð fyrir að veltan á þessum markaði hafi numið um 817,3 milljónum aö meðtöldum virðisaukaskatti. Skífan ræður yfir tæpum helmingi markaðarsins, Spor hefur liðlega þriðjungshlut, en Japis nálægt 15% hlut.__________________________________________ Lyfjaverslun Islands hf. Fylkingar beijast FYRIRSJAANLEGT er að töluverð átök muni verða á aðalfundi Lyfja- verslunar Islands sem haldinn verð- ur þann 29. apríl. Vitað er að fjórir af fimm núverandi stjórnarmönnum hyggjast gefa kost á sér í stjórnar- kjöri og einn fulltrúi starfsmanna. Þá hefur hópur hluthafa undir forystu Jóns Þorsteins Gunnarsson- ar, rekstrarhagfræðings og fyrrum framkvæmdastjóra Fryggjar hafið samstarf. Þessi hópur mun bjóða fram þijá menn í stjórnarkjörinu og freista þess að ná þar meirihluta. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins hafa þeir Þórhallur Ara- son, skrifstofustjóri í fjármálaráðu- neytinu, Jóhannes Pálmason, fram- kvæmdastjóri Borgarspítalans, Ól- afur B. Thors, framkvæmdastjóri Sjóvár-Almennra og Einar Stefáns- son, prófessor, sem sitja í stjórh ákveðið að gefa kost á sér. Hins vegar liggur fyrir að Margrét Björnsdóttir muni víkja úr stjórn- inni. Starfsmenn fyrirtækisins sem eiga samtals 6-7% hlutafjárins ætla að sameinast um kjör á Rúnu Hauksdóttur, framkvæmdastjóra markaðssviðs. Auk Jóns Þorsteins mun Bolli Héðinsson, hagfræðingur í Búnað- arbankanum, gefa kost á sér en óljóst er hver þriðji maðurinn er. Að sögn Þórs Sigþórssonar, for- stjóra Lyfjaverslunar íslands, gera samþykktir félagsins kröfu um 50% lágmarksmætingu til að fundurinn sé lögmætur. Hluthafar eru 1.630 talsins en enginn einstakur fjárfestir á meira en 0,6% hlut. Því þurfa 600-800 manns að mæta á fundinn. „Eg lít svo á að það sé afar mikil- vægt fyrir hagsmuni félagsins að viðhalda þeim stöðugieika sem hefur ríkt í rekstri félagsins þrátt fyrir stórfelldar breytingar í rekstrar- umhverfmu.“ Jón Þorsteinn sagði í samtali við Morgunblaðið að hann hefði þegar fengið skriflegt umboð frá miklum fjölda hluthafa en aðrir hefðu óskað eftir að ræða þessi mál. „Núverandi stjórn var skipuð af ríkinu í lok síðasta árs og hefur setið í sex mánuði. Hennar hlutverk hlýtur eingöngu að hafa verið það að færa félagið yfir í almenningshlutafélags- form. Jafnframt hefðum við talið að stjórnin hefði upplýsingaskyldu gagnvart hluthöfunum en því hefur ekkert verið sinnt. Við teljum að gild rök séu fyrir því að þessi stjórn eigi að fara frá vegna þess að hún hefur ekki umboð núverandi eiganda. Auk þess teljum við að nokkrir núverandi stjórnarmanna séu van- hæfir vegna hagsmunatengsla. Auð- vitað geta einstakir stjómarmenn boðið sig fram ef þeir eru hluthafar í félaginu en stjórnin sem slík ætti ekki að gera það. Við vitum nú þeg- ar að einn stjómarmaður er þessarar skoðunar og telur hlutverki sínu lok- ið,“ sagði Jón Þorsteinn. Hann lagði hins vegar áherslu á að forsvarsmenn hópsins tengdust engum hagsmunaaðilum í lyijafram- leiðslu eða öðrum hagsmunaaðilum sem kynnu að vilja komast til áhrifa í félaginu. Þá væri ekki á nokkurn hátt verið að lýsa vantrausti á það starf sem hefur verið unnið í fyrir- tækinu eða starfsmenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.