Morgunblaðið - 13.04.1995, Qupperneq 1
LANDSVIRKfUN Stærsta íslenska 'ÍK-í 'M; 1 i B flBB FfÖLMIDLUN Risaverkefni AUGLÝSINGAR Stökkpallur inn & K
lántakan /3 aö baki/4 itá w 1 í Evrópu /6
VlÐSKIPn AIVINNULIF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 13. APRIL 1995
BLAÐ
B
Skandia
Mál Gísla Arnar Lárussonar
gegn Skandia í Svíþjóð er enn
óleyst. Gerðardómur úrskurðaði
í janúar sl. að kaup Skandia á
hlut Gísla í tryggingarfélaginu
Skandia væru ógild, en aðila
greinir á um hvernig staðið skuli
að málum. Skandia hefur þó
nýlega greitt Gísla Erni máls-
kostnað sem nam tíu milljónum
króna.
Flug
Bráðlega fjölgar þeim kostum
sem íslenskir inn- og útflytjend-
ur vöru hafa á flutningi því
flugfélagið Catalan Connection
mun á næstunni hefja beint
vöruflutningaflug á milli Kefla-
víkur og Barcelona á Spáni.
Ferðamenn
Upplýsingamiðstöðvar fyrir
ferðamenn verða starfræktar í
sumar á um 40 stöðum víðsvegar
um ísland, í mismunandi miklum
mæli þó. Undanfarin ár hefur
Byggðastofnun veitt Ferðamála-
samtökum íslands styrk vegna
þessa málefnis.
SÖLUGENGI DOLLARS
Kr. 66.50 66,00 65.50 65,00 64.50 64,00 63.50 63,00 62.50 62,00 61,501 15 Síðustu fjórar vikur
> I 2.
63,81
II
| \ i
i I ^ . mars 22. 29. 5. apríl 1
Hljómplötusala 1994
Sala
dreifingaraðila,
samtals
437,7 milljónir kr.
Aðrir, 14,6%
Japis hf. er ekki með
i þessari úttekt aðila
sem framleiða og
selja íslenskar og
erfendar hljómplötur,
en tekur þátt i þessari
samvinnu í ár.
Sala hljómplötuframleiðenda, INNLENDIR
67,9
HHi^HHHHHHi^HHm 67,4
114,2 m.kr. Smekkleysa
36,5 m.kr. Aðrir innlendir
ERLENDIR
! 42,4 m.kr. BMG
39,9 m.kr. Sony
37,3 m.kr. EMI/Virgin
35,9 m.kr. Polygram
130,4 m.kr. Wamer
HHHHI 65,7 m.kr. Aðrir erlendir
Arstíðadreifing sölunnar
Jan.-mars
ERLENDIR
Júlí-sept.
| Okt.-des.
Jan.-mars
April-júní
Júlí-sept.
INNLENDIR
Okt.-des.
0 1 0 20 30 40 50 60 70 80 90 1 00m.kr.
HAGVANGUR hefur tekið að sér að sjá um upplagseftirlit
Samtaka hljómplötuframleiðenda á íslandi og sjást fyrstu niður-
stöður hér að ofan. Japis hóf þátttöku í eftirlitinu um síðustu
áramót og felur fyrirtækið því undir liðinn annað vegna síðasta árs.
Samkvæmt könnuninni nam heildarsala hljómplatna um 437,7
milljónum á sl. ári og var heildarfjöldi seldra eintaka liðlega 493
þúsund. Miðað við aö meðalsmásöluálagning hafi verið 50% á
árinu má gera ráð fyrir að veltan á þessum markaði hafi numið um
817,3 milljónum aö meðtöldum virðisaukaskatti. Skífan ræður yfir
tæpum helmingi markaðarsins, Spor hefur liðlega þriðjungshlut, en
Japis nálægt 15% hlut.__________________________________________
Lyfjaverslun Islands hf.
Fylkingar
beijast
FYRIRSJAANLEGT er að töluverð
átök muni verða á aðalfundi Lyfja-
verslunar Islands sem haldinn verð-
ur þann 29. apríl. Vitað er að fjórir
af fimm núverandi stjórnarmönnum
hyggjast gefa kost á sér í stjórnar-
kjöri og einn fulltrúi starfsmanna.
Þá hefur hópur hluthafa undir
forystu Jóns Þorsteins Gunnarsson-
ar, rekstrarhagfræðings og fyrrum
framkvæmdastjóra Fryggjar hafið
samstarf. Þessi hópur mun bjóða
fram þijá menn í stjórnarkjörinu og
freista þess að ná þar meirihluta.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hafa þeir Þórhallur Ara-
son, skrifstofustjóri í fjármálaráðu-
neytinu, Jóhannes Pálmason, fram-
kvæmdastjóri Borgarspítalans, Ól-
afur B. Thors, framkvæmdastjóri
Sjóvár-Almennra og Einar Stefáns-
son, prófessor, sem sitja í stjórh
ákveðið að gefa kost á sér. Hins
vegar liggur fyrir að Margrét
Björnsdóttir muni víkja úr stjórn-
inni. Starfsmenn fyrirtækisins sem
eiga samtals 6-7% hlutafjárins ætla
að sameinast um kjör á Rúnu
Hauksdóttur, framkvæmdastjóra
markaðssviðs.
Auk Jóns Þorsteins mun Bolli
Héðinsson, hagfræðingur í Búnað-
arbankanum, gefa kost á sér en óljóst
er hver þriðji maðurinn er.
Að sögn Þórs Sigþórssonar, for-
stjóra Lyfjaverslunar íslands, gera
samþykktir félagsins kröfu um 50%
lágmarksmætingu til að fundurinn
sé lögmætur. Hluthafar eru 1.630
talsins en enginn einstakur fjárfestir
á meira en 0,6% hlut. Því þurfa
600-800 manns að mæta á fundinn.
„Eg lít svo á að það sé afar mikil-
vægt fyrir hagsmuni félagsins að
viðhalda þeim stöðugieika sem hefur
ríkt í rekstri félagsins þrátt fyrir
stórfelldar breytingar í rekstrar-
umhverfmu.“
Jón Þorsteinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði þegar
fengið skriflegt umboð frá miklum
fjölda hluthafa en aðrir hefðu óskað
eftir að ræða þessi mál.
„Núverandi stjórn var skipuð af
ríkinu í lok síðasta árs og hefur setið
í sex mánuði. Hennar hlutverk hlýtur
eingöngu að hafa verið það að færa
félagið yfir í almenningshlutafélags-
form. Jafnframt hefðum við talið að
stjórnin hefði upplýsingaskyldu
gagnvart hluthöfunum en því hefur
ekkert verið sinnt. Við teljum að gild
rök séu fyrir því að þessi stjórn eigi
að fara frá vegna þess að hún hefur
ekki umboð núverandi eiganda.
Auk þess teljum við að nokkrir
núverandi stjórnarmanna séu van-
hæfir vegna hagsmunatengsla. Auð-
vitað geta einstakir stjómarmenn
boðið sig fram ef þeir eru hluthafar
í félaginu en stjórnin sem slík ætti
ekki að gera það. Við vitum nú þeg-
ar að einn stjómarmaður er þessarar
skoðunar og telur hlutverki sínu lok-
ið,“ sagði Jón Þorsteinn.
Hann lagði hins vegar áherslu á
að forsvarsmenn hópsins tengdust
engum hagsmunaaðilum í lyijafram-
leiðslu eða öðrum hagsmunaaðilum
sem kynnu að vilja komast til áhrifa
í félaginu. Þá væri ekki á nokkurn
hátt verið að lýsa vantrausti á það
starf sem hefur verið unnið í fyrir-
tækinu eða starfsmenn.