Morgunblaðið - 13.04.1995, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 B 7
Yottun getur
greitt fyrir
viðskiptum
Vottað gæðakerfí getur hjálpað útflytjendum
að ná til fólks sem gerir sér annars ekki
háar hugmyndir um íslenska framleiðslu, seg-
ir Kjartan J. Kárason í grein sinni.
AUNDANFÖRNUM árum
hefur það færst mjög í
vöxt að fyrirtæki sæki um
vottun á að þær aðferðir
sem þau beita til þess að hafa stjóm
á gæðum þeirrar vöm eða þjónustu
sem þau veita uppfylli kröfur alþjóð-
legu staðlanna ISO 9000.
Á íslandi er starfandi slík vottun-
arstofa, Vottun hf., og hefur hún
vottað gæðakerfí 7 íslenskra fyrir-
tækja á undanfömum tveimur árum.
En hvað þýðir það að fyrirtæki
hafí komið sér upp gæðakerfí sam-
kvæmt ISO-stöðlunum og hafí fengið
það vottað?
í stuttu máli felst það í því að fyrir-
tækið hefur komið sér upp ákveðnu
skipulagi og þróað starfsaðferðir sínar
þannig að tryggt er að hægt sé að
veita umsamin gæði frá degi til dags.
Þannig næst fram aukin nýting og
minna fer til spillis. Staðallinn bendir
á þá þætti starfseminnar þar sem
aðgæslu er þörf, en fyrirtækið ákvarð-
ar sjálft hvemig staðið skuli að verki.
Vandamálin byrja oftast þegar ver-
ið er að bjarga hlutunum fyrir hom
og skynsemin lögð til hliðar. Skipulag
og starfsaðferðir skráir fyrirtækið í
svokallaða gæðahandbók. Handbók
þessi fær þó ekki að standa ónotuð
uppi í hillu heldur er hluti af gæða-
kerfínu og þá jafnframt rekstrinum
sá, að vera sífellt að bæta sig og
aðlaga að breyttum aðstæðum. Mikil-
vægur hluti gæðakerfisins er að hafa
tiltæk gögn sem sanna að rétt hafí
verið staðið að verki og bera þannig
ábyrgð á eigin gjörðum.
70.000 vottuð fyrirtæki
Vottun gæðakerfísins felst í því að
óháð vottunarstofa staðfestir að fyrir-
tækið starfræki gæðakerfí sem upp-
fyllir kröfur staðalsins og að starf-
semin sé í samræmi við lýsingu gæða-
handbókar fyrirtækisins, þ.e.a.s. að
saman fari orð og efndir. Vottunar-
stofan er þannig í sporam kröfuharðs
viðskiptavinar.
Þegar ISO-9000 staðlamir komu
fram árið 1987 vora það einkum fyrir-
tæki í framleiðsluiðnaði sem sóttust
eftir vottun. Miklar breytingar hafa
síðan átt sér stað og í dag era vottuð
fyrirtæki í öllum greinum atvinnulífs-
ins og virðist aukningin vera mest
hjá þjónustufyrirtækjum. Sem dæmi
um starfsgreinar má nefna lögmanns-
stofur, endurskoðunarstofur, spítala,
bændur, banka og skóla. Vottunin er
ekki lengur bundin við fyrirtæki á
einkamarkaðnum heldur hafa opin-
berar stofnanir fengið starfsemi sína
vottaða.
Samkvæmt könnun í síðasta tölu-
blaði ISO 9000 News, er talið að í
júní 1994 hafí verið rúmlega 70.000
vottuð fyrirtæki í heiminum og var
aukningin 52% frá því í september
1993. Flest fyrirtækjanna era í Bret-
landi en aukningin er mest í Asíu,
Norður-Ameríku og öðrum Evrópu-
löndum. Á Norðurlöndum voru 916
vottuð fyrirtæki í Danmörku, 618 í
Svíþjóð, 400 í Noregi og 496 í Finn-
landi.
Ávinningur af vottun
Reynsla íslenskra fyrirtækja af
gæðakerfum er á sama veg og reynsla
erlendra fyrirtælq'a, þ.e.:
• Gæðakostnaður, kostnaður vegna
galla, endurvinnslu, úrkasts o.s.frv.
hefur lækkað. Stjórnun er orðin mark-
vissari og samskipti hafa batnað.
• Markaðsstaðan hefur batnað,
einnig hér innanlands. ímynd fyrir-
tækisins á markaðnum styrkist þar
sem það getur sýnt fram á að það
hafí stjóm á sínum málum.
Ekki í snjóhúsum
Fyrir suma þýðir þetta aukin við-
skipti en fyrir aðra að þeir era ekki
afskrifaðir jafn fljótt þegar fleiri era
að bjóða sömu vöra eða þjónustu. Þau
fyrirtæki sem eru í útflutningi hafa
fíindið fyrir þessu og virðist það al-
geng skoðun erlendis, að hér þrífíst
aðeins framvinnsla og íbúamir búi í
snjóhúsum. í Evrópu virðist vottunin
vera orðin forsenda viðskipta á
ISO-staðlarnir í
nýrri útgáfu
ISO 9000 staðlarnir um gæða-
stjórnun eru nú komnir út í endur-
skoðaðri útgáfu og námsefni um
staðlaröðina er væntanlegt frá Iðn-
tæknistofnun. Það er Staðlaráð
íslands sem hefur látið þýða ISO
9000 staðlana á íslensku til þess
að stuðla að útbreiðslu þeirra hér
á landi. Sala staðlanna hefur geng-
ið n\jög vel, að sögn Guðlaugar
Richter hjá Staðlaráði, en þeir
hafa nú selst í um 600 eintökum.
Kaupendur eru fyrirtæki og
stofnanir af ýmsu tagi, þ.á.m. verk-
fræðistofur, sjúkrastofnanir og
deildir innan Háskólans og stjórn-
arráðsins. Að sögn hennar hafa
staðlarnir hlotið það mikla út-
breiðslu að jafnvel sé talað um
gæðastjórnun sem tiskufyrirbæri.
Staðreyndin væri samt sú að við
eruin miklir eftirbátar annarra
þjóða hvað varðar vottanir sam-
kvæmt ISO 9000.
Nú fer að hilla undir nýja staðla-
röð frá ISO - ISO14000 - sem
tengist stöðlunum um gæðastjóm-
un, en hún fjallar um stjómun
umhverfismála í fyrirtælqum.
Fyrstu staðlarnir í þessum flokki
verða sendir til almennrar umsagn-
ar um allan heim í sumarbyijun og
að likindum verða þeir orðnir að
íslenskum stöðlum um næstu ára-
mót og gilda þá líka um alla Evrópu.
Staðlarnir sem nú koma út í
endurskoðaðri útgáfu em fimm
elstu gæðastaðlarnir, sem upphaf-
lega komu út á ámnum 1986-’87.
Þessir staðlar öðluðust gildi sem
íslenskir staðlar (ÍST) þann 1. apríl
um leið og eldri útgáfumar féllu
úr gildi.
Námsefni sem hlotið hefur nafn-
ið „ISO 9000 - réttu tökin!“ er
væntanlegt frá Iðntæknistofnun.
Þá er námsefnið „Gæði - í þína
þjónustu!" væntanlegt í nýrri út-
gáfu, sem tekur mið af þörfum
framleiðslufyrirtækja ekki síður
en þjónustufyrirtælq'a, en fyrri
útgáfa þess höfðaði sérstaklega til
hinna síðarnefndu og hefur náð
talsverðri útbreiðslu meðal þeirra.
íslensk fyrirtæki með vottað gæðakerfi
FYRIRTÆKI STAÐALL VOTTUNIN NÆR TIL
Bakkavör hf. ÍSTIS0 9002 Vinnslu og sölu hrogna.
Borgarplast hf. ÍSTIS0 9001 Hönnunar, framleiðslu og úrvinnslu hverfimótaðra plastvara.
Plastprenthf. ÍST IS0 9002 Framleiðslu PE filmu, prentunar, pokunar og sölu plastumbúða.
Osta- og smjörsalan sf. ÍSTIS0 9002 Sölu, dreifingar og pökkunar á ostum og viðbiti, auk framleiðslu á bræddum ostum, ostabökum og -kökum.
íslenskar sjávarafurðir hf. ÍSTIS0 9001 Sölu, þróunar og útflutnings á sjávarafurðum frá íslenskum framleiðendum.
Össur hf. ÍST ÍS0 9001 Hönnunar, viðgerða og smíði stoðtækja og íhluta í stoðtæki, auk endursölu á annarra vörum.
Umbúðamiðstöðin hf. ÍSTIS0 9002 Sölu, framleiðslu og prentunar á umbúðum úr karton- og bylgjupappír ásamt almennri arkaroffsetprentun.
ákveðnum sviðum. í sumum starfs-
greinum er fyrirtækjunum umbunað
með því að umfang opinbers eftirlits
breytist. Má þar nefna að fískvinnslu-
fyrirtæki geta fengið undanþágu frá
samningi við skoðunarstofu ef það
hefur vottað gæðakerfí.
Nýlega var fjallað um 70% veltu-
aukningu hjá Borgarplasti hf. í
Morgunblaðinu, þar sem fram kom
að veltuaukninguna mætti að vera-
legu leyti þakka gæðakerfi fyrirtæk-
isins. Sá árangur sem íslensk fyrir-
tæki hafa náð með aðferðum gæða-
stjórnunar er mjög góður en umfjöll-
unin hefur því miður verið full lítil
til þess að hvetja aðra til dáða.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Vottunar hf.
þegar flogiö er
á Saga farrýini til
kaiipmannaliaínar * samvinnu við hótel í Kaupmannahöfn, Ósló
ósiuar ma °£ Stokkliólmi bjóða Flugleiðir farþegum á
Siokkhólms Saáa fhrrými tvær íyrstu gistinæturnar á
, |ini;|bj|jni| aðeins 100ísl.kr.hvoranóttfyrirmanninn.
15. apríl - 30. júní
Tilboðið gildir á eftirtöldum hótelum:
Kaupmannahöfn
Stokkhólmur
Hotel Richmond
Hotel Imperial
Hotel Mercur
Öli Flugleiðahótel íborginni
Öll Flugleiðahótel í borginni
Tilboðið gildir í ferðir á Saga-farrými til
Kaupmannahafnar, Óslóar o g Stokkhólms sem
bókaðar eru frá og með 11. apríi og farnar á
tímabilinu frá 1S. apríl til 30. júní. Gisting á hinum
scrstöku kjörum er boðin meó fyrirvara um nægilegt
gistirými á tilgreindum hótelum á hverjum tíma.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn
um allt land, ferðaskrifstofumar eða söludeild Flugleiða í
síma 690 300 (svarað mánudaga - föstudagaki. 08-19
og laugardaga kl. 08 -16).
FLUGLEIÐIR
Traustur ísletiskurferðafélagi