Morgunblaðið - 13.04.1995, Síða 8

Morgunblaðið - 13.04.1995, Síða 8
VIÐSKXPn/AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 Morgunblaðið/Kristinn Fólk Breytingar hjá Nýheija mSIGURÐUR Ólafsson hefur tekið við starfi starfsmanna- stjóra Nýherja hf. Sigurður lauk prófi frá viðskiptadeild _ Háskóla ís- lands árið 1988 og MBA prófi í rekstrarhag- fræði frá Rotterdam School of Management árið 1990. Sigurður hóf þá störf sem deildarstjóri starfsmannaþjónustu Flugleiða og var nú síðast deildarstjóri áætl- unardeildar Flugleiða. Eiginkona Sigurðar er Áslaug Guðjónsdótt- ir og eiga þau tvo syni. '>01 Sigurður BERGÞÖRA K. Ketilsdóttir Seldi ísbúð til Svíþjóðar FROSTVERK hf. í Garðabæ seldi í síðustu viku sérsmíðaða innrétt- ingu og tæki fyrir ísbúð til íslend- ings sem búsettur er í Jönköping í Svíþjóð. Þetta er í fyrsta sinn sem slík innrétting er flutt út frá fyrirtækinu en hún er afrakstur margra ára þróunarvinnu. Samkvæmt upplýsingum Brynj- ars Haraldssonar, framkvæmda- stjóra Frostverks, eru kúluískist- ur, dífuborð og sósubarir eins og þekkist í íslenskum ísbúðum, ekki algeng sjón á Norðurlöndum. Verði viðtökur góðar við innrétt- ingunni í Svíþjóð sé Ijóst að mark- aður fyrir sérsmíði sé stór á okk- ar mælikvarða. Framleiða tækisem áður vorufluttinn Frostverk hefur á undanförnum árum lagt ríka áherslu á þróunar- starf og lúta nú 10 störf í fyrirtæk- inu að framleiðslu tækja sem flutt voru inn fyrir 6 árum. Fyrirtækið annaðist t.d. smíði og uppsetningu á innréttingum og tækjum fyrir Þjóðarbókhlöðuna. Það smíðaði auk þess innréttingar í matsal og kaffíhús Ráðhúss Reykjavíkur svo og eldhúsinnréttingar o.fl. fyrir Heilsustofnun í Hveragerði. Þá hreppti fyrirtækið smíði á innrétt- ingum fyrir Hrafnistu í Hafnar- virði, þjónustueldhús á Bessastöð- um, varðskip Landhelgisgæslunn- ar og frystitogarann Guðbjörgu. Þar er um að ræða smíði á samsett- um hita- og kæliborðum með di- skalyftum, bakkabrautum og fleira tilheyrandi. Brynjar telur fyrirtækið ekkert síður eiga möguleika á að selja framleiðslu til erlendra aðila en hér innanlands. Frostverk sé fylli- lega samkeppisfært í sérsmíði á innréttingum af þessum toga við erlend fyrirtæki. Það hijái fyrir- tækið mest hversu erfið rekstrar- skilyrði séu hér á landi. Fjölda- gjaldþrot hafi dunið yfir árum saman og lánamöguleikar til iðn- aðar séu háðir fasteignaveðum. hefur tekið við starfi deildarstjóra hugbúnaðar- deildar Nýheija hf. Hún lauk stúdentsprófí frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð árið 1973. Að loknu EDB Assistent námi frá EDB skólanum í Kaupmanna- höfn starfaði Bergþóra sem forritari á Datac- entralen til 1978. Þá flutti hún til Cambridge í Englandi og vann í 2 ár sem kerfisfræðingur hjá How- ard Machinery Group og 2 ár hjá F International við ýmis kerfís- fræðiverkefni. Árið 1982 flutti Bergþóra aftur til íslands og hóf Bergþóra störf hjá IBM á íslandi og síðan Nýheija hf., fyrst sem kerfisfræð- ingur og síðar sem markaðsfull- trúi. Eiginmaður Bergþóru er dr. Þorsteinn Ingi Sigfússon, pró- fessor við Hí og eiga þau tvo syni og eina dóttur. Ennfremur á Berg- þóra einn guðson. Sigurður Arngrímsson tíl Morgan Stanley mSIGURÐUR Arngrímsson rekstrarhag- fræðingur hef- ur verið ráðinn til starfa hjá bandaríska fjárfestingar- bankanum Morgan Stan- ley & Co. Int- ernational í London. Morgan Stanley er eitt stærsta og virtasta verðbréfafyrir- tæki heims með um 300 milljarða króna eigið fé og rúmlega 10 þús- und starfsmenn. Sigurður er 31 árs gamall. Hann er með BSPR próf í almenningstengslum og markaðsfræði frá University of Florida frá 1988 og MBA í fjár- málafræðum frá Pennsylvania State University 1990. Á árunum 1990-1991 starfaði Sigurður hjá The Falconwood Corporation í New York við greiningu á fyrir- tækjum. 1991-1992 starfaði hann hjá eignarleigufyrirtækinu Glitni hf., en fór til Kaupþings hf. í maí 1992 þar sem hann var for- stöðumaður verðbréfamiðlunar. Sigurður Landsins mesta úrval af ræstivögnum og moppuvögnum ósamt öllum fylgihiutum. Verö frá kr. 16,996, “ m/vsk. stgr. Med ailt á hreinu l 1 10 RfYríjAVIK • SIMI: 91 37.8554 Torgið Fljúgandi ferðalangar KOMUM erlendra ferðamanna til íslands hefur fjölgað verulega síð- ustu ár. Þannig komu tæplega 180 þúsund erlendir ferðamenn til landsins á síðasta ári. Aukningin frá árinu áður var 14% og 25% frá árinu 1992. Um helmingur þeirra útlendinga sem lögðu leið sína til íslands í fyrra komu utan háanna- tíma og er þar um að ræða árang- ur af nýjum áherslum í markaðs- setningu á undanförnum árum. Þar er hlutur Flugleiða mikill, enda mikilvægt fyrir félagið að tryggja nýtingu tækja og vinnuafls utan aðalferðamannatímans. Á síðasta ári var afkastageta Flugleiða fullnýtt yfir sumar- mánuðina, enda var þar um að ræða „einhverja bestu flutninga- mánuði í sögu félagsins," eins og Sigurður Helgason, forstjóri komst að orði á aðalfundi Flugleiða í mars sl. Hann sagði ennfremur að félagið stæði frammi. fyrir mikil- vægum ákvörðunum á næstu misserum. Taka þyrfti afstöðu til þess með hvaða hætti félagið vildi taka þátt í vexti ferðaþjónustunnar á íslandi. Núverandi flugvólafloti væri fullnýttur og kömið væri að ' því að gera nýja flugflotááætlu.n. -Einar Sígurðsson, upplýsinga- fulltrúi Fiugleiða, segir að þó félag- ið muni ekki stækka flugvélaflot- ann fyrr en á næsta ári, sé ætlun- in að fjölga ferðum í sumar og auka þannig sætafram- boðið. Flöskuháls Þegar ferða- mannaösin var mest í fyrrasumar var flutningageta Flugleiða ílösku- háls í ferðum til og frá landinu. í Ijósi þeirrar stað- reyndar og þess að umtalsverðir vaxtarmöguleikar eru enn fyrir hendi í íslenskri ferðaþjónustu er ekki að undra að beint áætlunar- flug til íslands yfir háannatímann freisti erlendra flugfélaga. Þannig hefur SAS tilkynnt að auk þess að fljúga hingað frá Kaupmannahöfn tvisvar í viku frá apríl til september líkt og undanfarin sumur, muni félagið yfir háannatímann, þ.e. frá júníbyrjun til í seinni hluta ágúst- mánaðar, fljúga hingað þrisvar í viku. Þýska flugfélagið Lufthansa hefur undanfarin ár verið með viku- legt áætlunarflug, hingað frá Þýskalancfi og í sumar verður eng- in breyting þar á. Tvö ný flugfélög bætast í hópinn i sumar. Þar er annars vegar um að ræða þýska flugfélagið LTU, sem verður með beint vikulegt áætlunarflug hingað frá Dusseld- orf frá maí til sept- ember. í frétt Morgunblaðsins um málið kemur fram að forráða- menn LTU, sem m.a. rekur ferða- skrifstofur í Þýska- landi, hafi ákveðið að fljúga hingað í kjölfar aukinnar markaðssetningar á íslandsferðum í Þýskalandi. Þá mun Emerald Air, sem er nýtt flugfélag í eigu íslenskra og breskra aðila, hefja áætlunarflug milli Belfast og Keflavíkur um miðj- an júní nk. Flogið verður þrisvar í viku. Samningar um Evrópska efna- hagssvæðið gera að verkum að erlend flugfélög geta verið með áætlunarflug hingað án þess að sækja sérstaklega um leyfi til þess, eða án þess að um tvíhliða loft- ferðasamninga milli landa sé að ræða. Með frjálslegri flugmálalögg' jöf í Evrópu hafa opnast ný mark- aðstækifæri fyrir Flugleiðir, en að sama skapi hefur tækifærum ann- arra evrópskra flugfélaga fjölgað- Af framangreindu er Ijóst að með auknum straum erlendra ferða- manna til íslands hugsáerlend flug- félög sér gott til glóðarinnar. HKF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.