Morgunblaðið - 13.04.1995, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1995 C 7
SUNNUDAGUR 16/4
ARNI Elfar tekur lagið með Fessor og Finn Otto á Jazzbamum.
Páskar á Rás 1
Á PÁSKADAG verður útvarpað
hátíðarguðsþjónustu í Fella- og
Hólakirkju kl. 8, fluttur verður
lokaþáttur dr. Sigurðar Ama
Þórðarsonar um Jón Vídalín bisk-
up kl. 10.03. Séra Þórhallur Hös-
kuldsson flytur erindi um íjöl-
skylduna og réttlætið út frá sjón-
arhóli trúarinnar kl. 16.05 og kl.
17.40 verður tónleikum sænska
baritónsöngvarans Hákans
Hagegárds og Elisabethar Bo-
ström píanóleikara útvarpað en
þau héldu tónleika á vegum nor-
rænu menningarhátíðarinnar Sól-
stafa í íslensku óperunni 19. mars.
Ljóð ogfrumflutt tónverk
Ljóðlistin verður fyrirferðar-
mikil í páskadagskrá Rásar 1 að
þessu sinni. Á skirdag kl. 13 verð-
ur flutt upptaka frá dagskrá í
Listaklúbbi í Leikhúskjallaranum
frá þvi í október sl. þar sem Gylfi
Gíslason myndlistarmaður kynnti
^óð Þórðar Magnússonar (1869-
1965). Þórður birti aldrei (jóð sín,
litlu mátti muna að þau glötuðust
eftir að hann lést en þau em nú
að koma fyrir almenningssjónir í
fyrsta skipti. Amar Jónsson hefur
unnið tvo þætti um þjóðskáld sem
bmgðið hafa ljóina á höfuðstað
Norðurlands; Davíð Stefánsson og
Matthías Jochumsson. í fyrri
þættinum, sem útvarpað er á
föstudaginn langa klukkan 18
flytur Amar dagskrá sem var
fmmflutt við aldarminningu Dav-
íðs í Davíðshúsi í janúar. í síðari
þættinum, sem er á dagskrá
klukkan 18 á páskadag, bregður
Amar sér að Sigurhæðum og
ræðir meðal annars um þá mynd
sem böm á Akureyri gerðu sér
af skáldinu Matthíasi um miðja
öldina. Á öðmm páskadegi verður
ennfremur fluttur þáttur úr röð-
inni Skáld um skáld i umsjón
Sveins Yngva Egilssonar en gest-
ur þáttarins að þessu sinni er
Steinunn Sigurðardóttir rithöf-
undur.
Af öðrum dagskrárliðum um
páskana þar sem ljóð gegna mik-
ilvægu hlutverki má nefna þáttinn
Um dauðdaga Jóns Arasonar og
Jónasar Hallgrímssonar klukkan
15 á föstudaginn langa, en þar
verða framflutt tónverk eftir
Hróðmar I. Sigurbjömsson og
Misti Þorkelsdóttur sem samin
era útfrá áður óbirtum ljóðum
eftir Illuga Jökulsson og Njörð
P. Njarðvík. Klukkan 17.35 sama
dag verður flutt samfelld dagskrá
með tónlist Áskels Mássonar við
trúarlegan kveðskap. Loks verður
stuttfléttunni Raddir eftir Jón
Hall Stefánsson útvarpað að
kvöldi föstudagsins langa klukkan
21.40 en fléttan sem fmmflutt var
í febrúar sl. byggir á samnefndu
ljóði Snorra Hjartarsonar.
Rás‘2
Annan í páskum tekur dagskrá-
in á sig léttari blæ. Kl. 17 sjá
Anna Kristine Magnúsdóttir og
Þorsteinn G. Gunnarsson um þátt-
inn „Oft kemur góður þá getið
er“ en eins og nafnið gefur tíl
kynna verður fjallað um máls-
hætti, merkingu þeirra og upp-
runa auk þess sem umsjónarmenn
verða á ferð með hljóðnemann
úti um borg og bý og velta því
fyrir sér hvemig fólk varði tíma
sínum um bænadagana. Um kl.
23 verður mikil djassgleði því Ieik-
in verður upptaka frá Jazzbam-
um með Fessors Big City Band,
einni vinsælustu gleðidjasssveit
Norðurálfu er þeir vom á ferð
hér á landi fyrir skömmu.
Krakkapáskar Stöðvar 2
AÐ MORGNI skírdags verður
byijað á þætti um Frumskógar-
dýrin og Beinabræður, en síðan
sjáum við nýja teiknimynd sem
nefnist Trillurnar þijár og er
gerð eftir samnefndum bókum
sem flestir þekkja. Því næst tek-
ur við Leynigarðurinn, vönduð
teiknimynd í þremur hlutum sem
fjallar um munaðarlausa stelpu
sem býr hjá skrýtnum frænda
sínum og fjölskyldu hans. Annar
hluti ævintýrsins um Leynigarð-
inn verður sýndur að morgni
föstudagsins langa og sá síðasti
annan í páskum. Og ekki má
gleyma Töfraflautunni, talsettri
teiknimynd eftir samnefndri
óperu Mozarts, sem verður sýnd-
að morgni skírdags og föstu-
dagsins langa.
Af öðrum dagskrárliðum um
helgina má nefna þáttinn Með
afa á laugardagsmorgun. Að
venju kemur gamli maðurinn
víða við og segir krökkunum
skemmtilegar sögur. Hann sýnir
líka litríkar teiknimyndir með
íslensku tali og þar á meðal er
teiknimynd sem er gerð eftir
Dodda-bókunum víðfrægu. Mar-
grét Örnólfsdóttir fer með
krökkunum í fróðlega leiki að
morgni páskadags og síðan verð-
ur sýnd falleg teiknimynd sem
nefnist Páskadagsmorgunn og
fjallar um ævintýri páskakanín-
unnar og hænsnanna sem neita
Leynigarðurinn fjallar um
munaðarlausa stelpu sem
býr hjá skrýtnum frænda
og fjölskyldu hans.
að láta páskaeggin af höndum.
Eldri krökkum má benda á tvo
nýja þætti úr myndaflokknum
Listaspegli þar sem er annars
vegar fjallað um Smash Hits,
eitt vinsælasta unglingatímarit
Bretlands, og hins vegar frétta-
stofuna Children’s Expresssem
krakkar starfrækja í Bandaríkj-
unum. Fyrri Listaspegillinn er á
dagskrá á föstudaginn langa en
sá síðari annan í páskum. Yngri
kynslóðin ætti einnig að hafa
vemlega gaman af framhaldi
Sögunnar endalausu, The Never-
ending Story II, þar sem fylgst
er með ævintýmm Bastians litla
í furðuheimum Fantasíu.
Síðast en ekki síst er fram-
haldsmyndin um Heiðu. Hún
verður sýnd í tveimur hlutum
strax á eftir 19.19 að kvöldi skír-
dags og á eftir lokaþætti Imba-
kassans á föstudaginn langa og
hefur hið víðfræga ævintýri Jó-
hönnu Spyri verið fært í nýjan
og fallegan búning.
Þrjár framhaldsmyndir
Stöð 2 sýnir einnig þijár ólík-
ar en vandaðar framhaldsmynd-
ir um páskahelgina. Ein fjallar'
um dularfullt morðmál, önnur
um prestsmaddömu sem fær sig
fullsadda á hlutverki sinu og sú
þriðja um litla stúlku og afa
hennar í svissnesku Ölpunum.
Framhaldsmyndin Með vak-
andi auga, eða A Dark Adapted
Eye, er sýnd í þremur hlutum
en sá fyrsti var á dagskrá í
gærkvöldi.
Klukkan 18.00 á skírdag hefst
sýning fyrsta hluta verðlaunaðr-
ar framhaldsmyndar sem nefnist
Kona klerksins, eða The Rect-
or’s Wife en hún verður sýnd í
fjóram hlutum um helgina.
Myndin er gerð eftir samnefndri
mctsöhibók Jóönnu Trollope um
prestfrúna Anne Bouverie sem
hefur rækt skyldur sínar af kost-
gæfni í tuttugu ár en finnst harla
lítið koma í staðinn.
Páskakanínurnar neita að láta páskaeggin af hendi.
UTVARP
RÁS 1
FM 92,4/93,5
7.45 Klukknahringing.
7.47 Litla lúðrasveitin leikur
páskasálma. 8.00 Hátiðarguðs-
þjónusta í Felia- og Hólakirkju
Séra Guðmundur Karl Ágústs-
son prédikar. 9.03 Tónlist á
páskadagsmorgni. Verk eftir
Johann Sebastian Bach.
Prelúdia og fúga í f-moll. Máni
Siguijónsson leikur á orgel út-
varpsins í Hamborg.
Páskaóratoría fyrir einsöngvara,
kór og hljómsveit. Barbara
Schlick, Kai Wessel, James Ta-
ylor og Peter Looy syngja með
kórnum og hljómsveitinni Col-
legium Vocale; Philippe
Herreweghe stjórr.ar.
10.03 Vídalín, postillan og menn-
ingin Lokaþáttur. Umsjón: Dr.
Sigurður Ámi Þórðarson.
10.45 Veðurfregnir.
11.00 Messa i Kópavogskirkju
Séra Ægir Sigurgeirsson préd-
ikar.
12.10 Dagskrá páskadags.
12.45 Veðurfregnir.
13.00 Heimsókn. Umsjón; Ævar
Kjartansson.
14.00 Samdrykkja Platóns. Forng-
rískir spekingar ræða eðli ástar-
innar. Umsjón: Jón Kari Helga-
son.
15.00 „Heimurinn fagni..." Af
englinum Lúsífer, Maríu Magda-
lenu, Maríu móður Jakobs og
Jósefs og guðspjallamanninum
Jóhannesi aðfaranótt páskadags
Rós 1 kl. 15.00. „Heimurinn
fngni..." Af englinum Lúsífer, Mnr-
íu Mugdulenu, Moriu mó&ur Jok-
obs og Jósefs og guðspjallamonn-
inum Jóhannesi aófuranótt póska-
dags og póskadagsmorgun. Flutt
brot úr óratóriunni Upprisan eftir
George Friderich Höndel við texta
eftir Carlo Sigismondo Capece og
ratt vió sóra Karl Sigurbjörnsson.
og páskadagsmorgun. Flutt brot
úr óratóriunni Upprisan eftir
George Friderich Hándel við
texta eftir Carlo Sigismondo
Capece og rætt við séra Karl
Sigurbjörnsson. Emma Kirkby,
Patrizia Kwella, Carolyn Watk-
inson, Ian Partridge og David
Thomas syngja með hljómsveit-
inni The Academy of Ancient
Music. Crhistopher Hogwood
stjórnar. Umsjón: Trausti Þór
Sverrisson.
16.05 Fjölskyldan og réttlætið frá
sjónarhóli trúarinnar. Séra Þór-
hallur Höskuldsson flytur erindi.
16.30 Veðurfregnir.
16.35 Frá tónleikum Hákans
Hagegárds og Elisabethar
Boström i Islensku óperunni 19.
mars s.i. Á efnisskrá eru m.a.
verk eftir Schubert og norræna
höfunda. Umsjón; Atli Heimir
Sveinsson.
18.25 Að eignast vin íljóði 1 kring-
um skáldskap Matthíasar Joc-
humssonar. Umsjón: Arnar
Jónsson.
19.20 Tónlist.
Rigoletto,. umritun Franz Liszts
á kvartettinum Bella figlia dell'
amore úr óperunni Rigoletto eft-
ir Giuseppe Verdi. Halldór Har-
aldsson leikur á píanó.
19.30 Veðurfregnir.
19.35 Frost og funi. Páskaþáttur.
baraa. í þættinum verður m.a.
lesin sagan Páskahret eftir
Hreiðar Stefánsson. Umsjón:
Elísabet Brekkan.
20.20 Hljómplöturabb. Þorsteins
Hannessonar.
21.00 Páskakvöldvaka frá ísafirði
Umsjón: Sigrún Guðmundsdótt-
ir.
22.07 Tónlist á síðkvöldi.
Svanhvit, svítuþættir eftir Jean
Sibelius. Sinfóníuhljómsveit Is-
lands ieikur; Petri Sakari stjórn-
ar.
22.27 Orð kvöldsins: Unnur Hall-
dórsdóttir flytur.
22.30 Veðurfregnir
22.35 Schubert að vori
Söngvar um vor og ást. Hermann
Prey, Elly Ameling, Peter
Schreier, Barbara Hendricks og
Gerard Souzay syngja, píanó-
leikarar eru Dalton Baldwin,
Radu Lupu., Philippe Bianconi
og Sviatoslav Richter .
23.00 Frjálsar hendur. Umsjón:
Illugi Jökulsson.
0.10 Missa Aleluja eftir Heinrich
Ignaz Franz Biber. Einsöngvar-
ar með „Gradus ad parnassum"-
sveitinni og kór Kórskóla Hof-
burgkapellunnar í Víanrborg eru
Mieke van der Sluis, Vasiljka
Jezovsek, Lena Susanne Norin,
Pascal Bertin, Wilfried Jochens,
Jörg Durmuller, Stephan
Schreckenberger og Matthias
Gerchen ; Konrad Junghanel
stjórnar. (Frá tónleikum i Vínar-
borg 21. maí f fyrra.)
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
Fréttir ú R&S 1 og R&S 2 kl. 8, 9.
10, 12.20, 16, 19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
8.00 Funi. Helgarþáttur bama.
Umsjón: Elísabet Brekkan. 9.03
Páskadagsmorgunn með Svavari
Gests. 11.00 Jesús og páskafriið.
Séra Sigurður Haukur Guðjónsson
er gestur Leifs Haukssonar. 13.00
Þriðji maðurinn. Umsjón: Árni Þór-
arinsson og Ingólfur Margeirsson.
Gestur séra Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. 14.00 Spurningar-
keppni fjölmiðlanna. (3). 15.00
Páskagestur. Umsjón Gestur Einar
Jónasson. 17.00 Lifun. (2:3) Um-
sjón Andrea Jónsdóttir og Lísa
Pálsdóttir. 18.00 Dagbókarbrot
Þorsteins Joð. 19.20 Vinsældalisti
götunnar. 20.30 Páskatónar. 21.00
Spurningakeppni fjölmiðlanna.
22.10 Passíusálmar Megasar. Um-
sjón Lísa Pálsdóttir. 23.00 Lead-
belly. 2. þáttur. Umsjón Guðni Már
Henningsson. 24.10 Páskatónar.
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
NÆTURÚTVARPID
1.00 Veðurfregnir. Næturtónar.
2.00 Fréttir. 2.05 Tangó fyrir tvo.
Svanhiidur Jakobsdóttir. 3.00Næt-
urtónar 4.00 Páskatónar. 4.30
Veðurfregnir. 4.40 Næturtónar.
5.00 Fréttir. 5.05 Stefnumót með
Ólafi Þórðarsyni. 6.00 Fréttir, veð-
ur, færð og flugsamgöngur. 6.05
Morguntónar. Hjúf lög i morguns-
árið. 6.45 Veðurfréttir.
ADALSTÖÐIN
FM 90,9/ 103,2
10.00 í upphafi. Þáttur um kristi-
leg málefni. 12.00 Bjarni Arason.
16.00 Inga Rún. 19.00 Magnús
Þórsson. 22.00 Lifslindin. 24.00
Ókynnt tónlist.
BYLGJAN
FM 98,9
8.00 Ólafur Már Björnsson. 13.00
Halldór Backman. 15.00 Hljóm-
sveitin TAKE THAT. 16.00 ís-
lenskar söngkonur fyrr og nú.
20.00 Páskadagskvöld með Haf-
þóri Frey Sigmundssyni. 24.00
Næturvaktin.
Fréttír kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30.
BR0SIÐ
FM 96,7
10.00 Gylfi Guðmundsson 13.00
Jón Gröndal og Tónlistarkrossgát-
an. 16.00 Helgartónlist. 20.00 Pál-
ína Sigurðardóttir 23.00 Nætur-
tónlist.
LINDIN
FM 102,9
8.00 Tónlist. 9.00 Kirkjudagskrá.
11.00 Tónlist. 13.00 Kirkjudag-
skrá. 15.00 Tónlist. 17.00 Kirkju-
dagskrá. 19.00 Tónlist. 22.00 Ró-
legt og fræðandi.
SÍGILT-FM
FM 94,3
9.00Tónleikar 12.00 1 hádeginu.
13.00 Sunnudagskonsert. 16.00
Islenskir tónar. 18.00 Ljúfir tónar.
20.00 Tónleikar. 24.00 Næturtón-
ar.
FM 957
FM 95,7
10.00 Helga sigrún. 13.00 Ragnar
Bjarnason. l6.00Sunnudagssíð-
degi með Jóhanni Jóhannssyni.
19.00 Ásgeir Kolbeinsson. 22.00
Rólegt og rómantískt. Stefán Sig-
urðsson.
X-ID
FM 97,7
10.00 Örvar Geir og Þórður Örn.
13.00 Henní Árnadóttir. 17.00
Hvíta tjaldið 19.00 Rokk X. 21.00
Sýrður rjómi. 24.00 Næturdag-
skrá.