Morgunblaðið - 20.04.1995, Qupperneq 1
FLUG FfÁRMÁL HAGSJÁ ' m
Flugfrelsið og smælingjarnir/3 Hægfara bati tekur við/4 Hindurvitni og hagfræði/6
VIÐSKIFn AIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1995 BLAÐ
Horfur á lægri verðbólgu
SEÐLABANKINN hefur endurmetið verðlagshorfur á árinu
1995 f Ijósi þess að vísitala neysluverðs lækkaði um 0,1%
í apríl. Skv. endurskoðaðri verðbólguspá mun vísitala
neysluverðs hækka um 1,5% miili áranna 1994 og 1995 og
yfir árið 1995. Verðbólguhraðinn, mældur með þriggja
mánaða hækkun vísitölu neysluverðs á ársgrundvelli,
verður mestur í júlí, eða um 2,7%, en lækkar síðan niður
fyrir 2% á haustmánuðum.
Fyrri spár Seðlabankans gerðu ráð fyrir nokkurri hækkun
vísitölu neysluverðs í apríl. í frátt frá banknum segir að
erfitt sé að sjá á þessu stigi hvort lækkun vísitölu
neysluverðs tvo mánuði í röð í framhaldi af nýjum
kjarasamningum beri vitni um að launahækkanir muni
skila sér síður út í verðlagið nú en söguleg fordæmi séu
fyrir, eða hvort áhrifin komi einungis síðar fram.
Ennfremur segir að betri staða fyrirtækja að undanförnu,
aukin framleiðni og samkeppni, gætu benttil þess að
áhrifin kæmu ekki eins sterkt fram og áður. Við það væri
miðað að nokkru leyti f meðfylgjandi verðbólguspá.
Aburðarviðskipti boðin út í fyrsta sinn hjá Ríkiskaupum
Áburðarverksmiðjan
keppir við innflutning
Breytingar á vísitölu neysluverðs frá 1994
og endurskoðuð verðbólguspá fram til jan. 1996
Eiðistorg
Endurskoðun stendur yfir á skipu-
lagi verslunarmiðstöðvarinnar við
Eiðistorg á vegum Seltjarnarnes-
bæjar, Hagkaups og fleiri aðila.
Þar er til skoðunar hvemig hægt
sé að fjölga bílastæðum á svæðinu,
auka nýtingu á torginu og efri hæð
hússins og hvar koma megi fyrir
bensínstöðvarlóð. Til greina kem-
ur að byggja bílageymsluhús sem
rúmaði 70-80 bílastæði.
Fox
Fox-sjónvarpsstöðin bandariska
hefur náð þeim áfanga í barátt-
unni við risastöðvamar þijár þar
í landi að skríða fram úr CBS í
horfun. Fox er nú komin með 5,4
stig i horfun á móti 5,3 stigum
CBS. ABC-stöðin er vinsælust með
7,2 stig og NBC er með 6,8 stig.
Bati
Alþjóðabankinn segir efnahags-
horfur nú hinar vænlegustu um
árabil og að nánari viðskipta-
tengsl milli þjóða kyndi undir
efnahagsvexti um heim allan. Hins
vegar segir í skýrslu bankans að
Mexíkó-kreppan sýni ríkisstjórn-
um að lítið svigrúm sé fyrir hvers
kyns mistök í efnahagsstjórnun.
SÖLUGENGI DOLLARS
TVÖ fyrirtæki sem bjóða innflutt-
an áburð keppa við Áburðarverk-
smiðjuna í útboði á áburði sem
Ríkiskaup efndu til nýlega fyrir
Landgræðslu ríkisins. Áð sögn Ól-
afs Astgeirssonar, verkefnisstjóra
hjá Ríkiskaupum, er verið að yfir-
fara og meta tilboðin. Sérstaklega
þarf að meta mismunandi forsend-
ur um flutninga og afhendingu sem
fólust í tilboðunum.
Þetta er í fyrsta sinn sem áburð-
ur er boðinn út hjá Ríkiskaupum
enda hafði Áburðarverksmiðjan
einkaleyfi á því að framleiða og
selja áburð hér á landi fram til
síðustu áramóta. Auk tilboðs
Áburðarverksmiðjunnar bárust til-
boð frá Áburðarsölunni ísafold og
fyrirtækinu Intereb í Bretlandi.
Eigandi Áburðarsölunnar ísafoldar
er Þorsteinn Þórðarsson, fyrrver-
andi sölustjóri Áburðarverksmiðj-
unnar, en hann er jafnframt um-
boðsmaður Intereb.
Tilboð Áburðarverksmiðjunnar
hljóðaði upp á tæpar 21,4 milljónir
með virðisaukaskatti. Hins vegar
hljóðaði tilboð ísafoldar upp á tæp-
ar 16,5 milljónir án virðisauka-
skatts. Að sögn Þorsteins er tilboð
hans að meðtöldum virðisauka-
skatti að fjárhæð 19,9 milljónir eða
um 1,5 milljón lægra. Er þá miðað
við að áburðurinn skiptist til helm-
inga á tvær hafnir þ.e. í Reykjavík
og Húsavík. Tilboð Intereb var
hærra eða 14,7 milljónir án flutn-
ingskostnaðar.
Áburðarverksmiðjan er ekki
samkeppnisfær
Viðmiðunarmagn í útboðinu var
900 tonn en áskilinn er réttur til
að kaupa 20% minna eða 20%
meira magn á sömu kjörum. Þor-
steinn segir það henta mjög vel
að kaupa 1.100 tonn í einu því
flutningsgjöld séu hin sömu og ef
keypt væru 900 tonn. Því muni
tilboð hans verða enn hagstæðara
en tilboð Áburðarverksmiðjunnar
ef keypt verður meira magn.
Þorsteinn starfaði hjá Áburðar-
verksmiðjunni í 29 ár og kveðst
þekkja áburðarmarkaðinn mjög vel
bæði hérlendis og erlendis. Hann
segist aðspurður telja að áburðar-
verksmiðjan sé ekki samkeppnis-
fær við innflutning og það sé ekki
lengur spurning um hvort henni
verði lokað heldur hvenær. „Það
er eðlilegt að Ríkiskaup taki hag-
stæðasta tilboðinu fyrir hönd síns
umbjóðanda því skattborgararnir
eiga kröfu á því að því fjármagni
sem varið er til Landgræðslunnar
skili sér til landgræðslustarfa.“
Á SÍÐUSTU 5 ÁRUM HAFA UM 1200 AÐILAR
GERST FÉLAGAR í ALVÍB
VlLT ÞÚ EKKI BÆTAST í HÓPINN?
• 8,7% ávöxtun frá upphafi.
• Persónuleg ráðgjöf til sjóðfélaga um lífeyris- og eftirlaunamál.
• ítarleg ársfjórðungsleg yfirlit.
• Félagar í ALVÍB vita alltaf nákvæmlega hver inneign þeirra er
og hvaða eftirlaunum þeir geta átt von á.
• Ávöxtun hvers sjóðfélaga er reiknuð út sérstaklega.
• Inneign í ALVÍB erfist.
• Allir geta greitt viðbótariðgjöld í ALVÍB.
• Þeir sem ekki eru skyldugir til að greiða í annan lífeyrissjóð
geta greitt öll sín iðgjöld í ALVÍB.
• Lágur rekstrarkostnaður.
• Örugg eignasamsetning.
Almennur lífeyrissjóður VÍB, ALVÍB,
er séreignarsjóður þar sem framlög
sjóðfélaga eru eign hans og færast á
sérreikning hans.
FORYSTA í FJÁRMÁLUM!
VlB
VERÐBREFAMARKAÐUR ISLANOSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 560-8900.