Morgunblaðið - 20.04.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.04.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA Gert ráðfyrirað hann leiki með liðinu og jafnframt við- ræður við leikmennina Finn Jóhannsson og Sigurð Bjarnason Valdimar Grímsson, landsliðsmaður í hand- knattleik sem leikið hefur með KA undanfarin tvö ár, verður væntanlega þjálfari 1. deildar liðs Selfoss í handknattleik næsta keppnistímabil og fari svo kemur homamaður- inn einnig til með að leika með liðinu. Leik- mennirnir Finnur Jóhannsson, línumaður úr Val, og Sigurður Bjamason skytta úr Stjöm- unni, hafa einnig verið í viðræðum við Selfyss- inga og var stefnt að því að ná samningum við þremenningana í gærkvöldi en málið var ekki í höfn þegar blaðið fór í prentun. „Við ætlum okkur á toppinn aftur og von- umst til að fá þessa menn,“ sagði Snorri Sigurfinnsson, stjórnarmaður í handknatt- leiksdeild Umf. Selfoss, við Morgunblaðið í gærkvöldi. „Þetta yrði góður styrkur fyrir Selfossliðið og við gerum ráð fyrir að leik- mannahópurinn sem fyrir er verði óbreyttur. Við ætlum okkur stóra hluti á næsta keppnis- tímabili og reiknum með að vera með í topp- slagnum." Hann sagði einnig að reynslan frá síðasta keppnistímabili ætti eftir að skila sér vel, sérstaklega hjá yngri leikmönnum liðs- ins. VALDIMAR Grímsson fhugar að taka við þjálfun Selfoss. 1995 ■ FIMMTUDAGUR 20. APRÍL BLAÐ HANDKNATTLEIKUR Valdimar með tilboð um að þjáHa Selfoss Vreni Schneider hætt á toppnum SVISSNESKA skiðadrottningin Vreni Schneider tilkynnti í gær að hún væri hætt keppni. Schneid- er, sem er 30 ára, tryggði sér heimsmeistaratitil- inn í samanlögðu i heimsbikarnum i síðasta mánuði og var það í þriðja sinn á glæstum 11 ára ferli en hún sagðist vilja hætta á toppnum. Sagt hefur verið um Schneider að hún sé besta skíðakonan til þessa í alpagreinum en hún sigr- aði alls i 55 mótum heimsbikarsins og var þre- faldur ólympíumeistari. Aðeins Annemarie Mos- er-Pröll frá Austurríki á fleiri sigra að baki en hún sigraði alls í 62 heimsbikarmótum. 1989 var besta ár Schneiders en þá setti hún met með þvi að fagna 14 sinnum sigri á heimsbikarmótum en Svíinn Ingimar Stenmark náði mest að sigra 13 sinnum á sama tímabilinu á feriinum. Möller á átta vikna bann yfir höfði sér fyrir leikaraskap ÞÝSKI landsliðsmaðurinn Andy Möller þjá Bor- ussia Dortmund á yfir höfði sér átta vikna bann fyrir leikaraskap í viðureign Dortmund og Karlsruhe i þýsku deildinni í liðinni viku. Möll- er lét sig detta inni í vítateig mótherjanna og uppskar vitaspyrnu sem Dortmund jafnaði úr en liðið vann siðan 2:1. Á sjónvarpsmynd sást greinilega að þessi 27 ára miðjumaður féll með tilþrifum án þess að mótherji hafi átt hlut að máli. Eftir leikinn viðurkenndi hann að hafa haft rangt við en hann sagðist hafa látið hjá líða að gera athugasemdir við vítaspyrnudóm- inn vegna þess að Winfried SchSfer, þjálfari Karlsruhe, væri sér ekki að skapi. Miklar um- ræður hafa verið um málið í þýskum fjölmiðlum og á Möller að mæta hjá þýska knattspyrnusam- bandinu í dag vegna þess en farið hefur verið fram á átta vikna bann fyrir óprúðmannlega framkomu. Þetta er í fyrsta sinn sem leikmaður er kallaður fyrir í Þýskalandi vegna svona brots en verði bannið að veruleika getur Möller ekki tekið þátt í áframhaldandi baráttu Dortmund pm þýska meistaratitilinn í vor en félagið varð siðast meistari 1963. Fjórir miðherjar Sviss meiddir NESTOR Subiat, miðherji Grasshoppers, sem er efst í svissnesku deildinni, meiddist i bikarleik um helgina og leikur ekki með Sviss gegn Tyrk- landi í Evrópukeppninni á miðvikudag en hann gerði bæði mörkin í 2:2 leiknum við Ungverja í siðasta mánuði. Þrir aðrir miðheijar sem leikið hafa með landsliðinu að undanförnu eru einnig meiddir eða Stephane Chapuisat hjá Borussia Dortmund, Adrian Knup hjá Karlsruhe og Ku- bilay Tuerkyilmaz ly'á Galatasaray. Varamarkvörður Svía gefur ekki kost á sér í landsliðið fyrir Ungverjaleikinn Hefur ekki áhuga á að horfa lengur á Thomas Ravelli leika KNATTSPYRNA Blind slapp með skrekkinn AJAX og AC Milan tryggðu sér í gærkvöldi sæti í úrslitum Evrópu- keppni meistaraliða í knattspyrnu. Danny Blind, fyrirliði Ajax, missti af síðustu tveimur úrslitaleikjum liðsins í Evrópukeppni; keppni bik- arhafa 1987 og UEFA-keppninni 1992, þar sem hann varlleik- banni. Ekki munaði miklu að svo yrði einnig nú. Hann varði knött- inn með hendi á 75. mín., víta- spyrna var dæmd og Blind fékk að sjá gula spjaldið. Leikmenn Bayern urðu æfir, töldu Blind hafa átt að fá rautt spjald og þar með vera vikið af velli, en hann slapp með skrekkinn. Hefði hann séð rautt í gærkvöldi hefði Blind orðið í leikbanni í úrslitaleiknum. ■ Undanúrslitin /D4. Lars Erickson, markvörður Norr- köping, gefur ekki kost á sér í sænska landsliðið, sem leikur gegn Ungveijalandi í Frá Búdapest í Evrópu- Grétari Þór keppni landsliða 26. Eyþórssyni apríl. „Ég hef ekki i Sviþjóð áhuga að sitja á bekknum leik eftir leik og horfa á Ravelii leika,“ sagði Erickson. Miklar breytingar eru á sænska hópnum frá síðasta leik. Joachim Björklund og Martin Dahlin taka út leikbann, Henrik Larsson er meiddur en Jesper Blomqvist og Stefan Rehn hjá IFK Gautaborg voru settir út. Þá má geta þess að Anders Limpar, leikmaður hjá Ever- ton, tilkynnti að hann gæfi ekki kost á sér — vildi nota alla sína krafta til að bjarga Everton frá falli og vera með í undirbúningi liðsins fyrir úrslitaleik bikarkeppninnar á Wembley. Limpar hefur ekki verið ánægður með hvað hann hefur feng- ið lítið að leika, en hann var ekki notaður í HM í Bandaríkjunum. Tommy Svensson hefur valið þrjá nýliða í landsliðshóp sinn. Varnar- manninn Jesper Mattson og sóknar- leikmanninn Robert Andersson, sem leika með Halmstad og mark- vörðinn Bengt Andersson, sem er fyrsti leikmaður Örgryte sem valinn er í landslið fyrir utan Rúnar Krist- insson, en annars skipa eftirtaldir leikmenn landsliðshóp Svía: Thom- as Ravelli, Bengt Andersson, Patrik Andersson, Pontus Kámark, Roger Ljung, Roland Nilsson, Mikael Nils- son, Jesper Mattsson, Klas Inges- son, Hákan Mild, Stefan Schwarz, Jonas Thern, Par Zetterberg, Ken- neth Andersson, Niclas Alexanders- son, Robert Andersson, Niklas Gud- mundsson, Magnus Erlingmark. íslendingar leika gegn Svíum í EM í Gautaborg 1. júní. HANDKIUATTLEIKUR: HÉDINN GILSSON MISSIR AF LOKAUNDIRBÚNINGNUM / D4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.