Morgunblaðið - 22.04.1995, Side 1

Morgunblaðið - 22.04.1995, Side 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1995 JftmgtmHiifeifr ■ LAUGARDAGUR 22. APRÍL BLAÐ Morgunblaðið/Rúnar Þór Héðinn aftur heim og í viðræðum við FH-inga HÉÐINN Gilsson, landsliðsmaður í handknatt- leik, hefur ákveðið að koma heim og sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins bendir allt til að hann gangfi aftur til Iiðs við FH. Viðræð- ur hafa staðið yfir að undanfömu og samning- ur er á borðinu en ekki hefur enn verið skrif- að undir. Hins vegar vom samningar undirrit- aðir við Guðmund Karlsson, þjálfara, í vikunni og verður hann áfram með liðið næsta keppnis- tímabil. Eins og greint var frá í vikunni fer Héðinn $ rannsókn á mánudag vegna meiðsla í hæl og getur svo farið að hann þurfi að fara í uppskurð. RondeyogTeitur áfram hjá Njarðvík RONDEY Robinson, miðherji körfuknattleiks- liðs Njarðvíkur undanfarin fimm ár, hefur ákveðið að vera áfram í herbúðum íslands- meistaranna. Hann hafði lýst því yfir að kom- inn væri tími til að breyta til og vildi reyna fyrir sér á meginlandi Evrópu en snerist hugur og gerði eins árs samning. Sama á við um Teit Örlygsson en nokkur félög höfðu sýnt áhuga að fá hann. David Seaman varði þrjár vítaspyrnur DAVID Seaman tók heldur betur á honum stóra sinum í vítakeppni að loknum framlengdum undanúrslitaleik Sampdoria og Arsenal í Evr- ópukeppni bikarhafa í knattspyrnu í fyrra- kvöld. Enski landsliðsmarkvörðurinn varði þá þrjár vitaspyrnur og tryggði enska liðinu úr- slitaleik gegn Real Zaragoza frá Spáni í Paris 10. mai. Arsenal vann fyrri leikinn 3:2 en útlitið var allt annað en bjart hjá enska liðinu eftir að varamaðurinn Claudio Bellucci hafði gert tvö mörk fyrir heimamenn í Genúa á þremur min- útum, staðan 3:1 og fjórar mínútur til leiks- loka. En Svíinn Stefan Schwarz tryggði fram- lengingu með því að skora á siðustu mínútu venjulegs leiktima og Seaman sá um afganginn með tilþrifum. „Ég er í óþægilegri stöðu en það er ekki hægt að vinna allt,“ sagði Lombardo sem átti góðan leik í frandinu Sampdoria en lét veija frá sér síðasta vítið. „Hvað er hægt að segja eftir svona tap,“ spurði Svíinn Goran Eriksson, þjálfari ítalska liðsins. „ Við lékum ekki vel fyrr en liðið var á seinni hálfleik og það verð- ur að hrósa leikmönnum Arsenal sem hættu aldrei að beijast.“ Ruud Gullit, David Platt og Fausto Salsano léku ekki með ítalska liðinu. Veistu hver er stærsti vinningurinn á Andrésar andar-leikunum á skíðum? „ VEISTU hver er stærsti vinningurinn á Andrésar andar-leikunum? spurði einn skíðaþjálfarinn á Akureyri ungan keppanda sem var að undirbúa sig fyrir svigkeppnina á fimmtudaginn. „Nei,“ svaraði sá stutti og horfði undrandi á þjálfarann, sem sagði; „Það er að fá að taka þátt í þessari skíðahátíð, sigur skiptir ekki máli.“ Þessi orð þjálfarans eru í tíma töluð og það sem málið snýst um. Andrésar andar-leikarnir eru fyrst og fremst hugsaðir sem skemmtun og til að auka tengsl og vináttu þeirra sem leikana sækja. Einkunnarorð Vetrarólympíuleikanna í Lillehammer í fyrra voru: „Leikar fyrir lífið". Þessi orð eiga vel við á Andrésar andar-leikun- um sem voru settir á Akureyri á miðvikudagskvöld. Tæplega 900 krakkar á aldrinum sex til tólf ára mættu til leiks og þar af erlend- ir gestir frá Svíþjóð og Grænlandi. Leikarnir eru sérstakir fyrir þær sakir að nú eru tuttugu ár síðan þeir voru fyrst haldnir og er þess sérstakJega minnst með því að keppnisdagarnir eru nú fjórir í stað þriggja áður. I gær hófst keppnin og á myndinni er Fannar Smári Vilhjálmsson frá Akureyri á fleygiferð í stórsvigi átta ára stráka. ■ Andrósar andar leikarnir / D2. HANDKNATTLEIKUR Geir gerði samn- ing við Montpellier Qeir Sveinsson, fyrirliði lands- liðsins og íslandsmeistara Vals í handknattleik, samdi sfm- leiðis við franska félagið Montp- ellier síðasta vetrardag, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðs- ins. Hann gerði samning til tveggja ára og á að vera mættur 24. júlí nk. þegar æfingar hefjast fyrir næsta tímabil. Eftir að hafa leikið með Val alla tíð fór Geir til Spánar og lék með Granollers og Alzira en sneri aftur til Vals fyrir tveimur árum. Fyrir um það bil þremur vikum höfðu talsmenn frönsku meistar- anna samband við Júlíus Jónasson og spurðust fyrir um hvernig hægt væri að ná í Geir. í kjölfarið höfðu þeir samband við fyrirliðann nokkrum sinnum og úr varð að hann skaust til Frakklands um páskana til að líta á aðstæður. Heimildir Morgunblaðsins herma að þá hafi verið gengið frá málinu og Geir síðan staðfest það áður en hann hélt með landsliðinu til Danmerkur. Miklar breytlngar Ljóst er að margir af lykilmönn- um Vals íhuga að leika annars stað- ar næsta tímabil. Eins og greint hefur verið frá er Dagur Sigurðs- son alvarlega að hugsa um að taka tilboði frá Sviss, Júlíus Gunnarsson er að skoða tilboð frá Þýskalandi, félag í Sviss hefur sýnt áhuga á að fá Jón Kristjánsson og Finnur Jóhannsson íhugar skipti í Selfoss. Hins vegar verður Ólafur Stefáns- son áfram í herbúðum Vals. FRJÁLSÍÞRÓTTIR: 80. VÍÐAVANGSHLAUP ÍR / D4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.