Morgunblaðið - 23.04.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 C 3
stftidréá '93
Láttu umferðina ekki fara í taug-
arnar á þér. Ef þú æsist upp þá
er eins víst að þú látir það bitna á
bensíngjöfinni og þar með á budd-
unni þinni.
• Þú tekur fótinn vitanlega ef
bensíngjöfínni þegar þú ekur niður
brekku, en láttu bílinn ekki fríhjóla
í hlutlausum gír eða með dautt á
vélinni. Á sumum bílum læsist stýr-
ið þegar svissað er af. Fríhjólun
með dautt á vélinni getur einnig
valdið skemmdum á gírkassa, eink-
um sjálfskiptingu, ef brekkan er
löng.
• Aktu á vegum með föstu slitlagi
þegar þess er kostur. Grófir malar-
vegir og aðrir vegir sem þarfnast
viðgerða valda aukinni bensín-
eyðslu.
• Ef bíllinn þinn er útbúinn sjálf-
virkri ökuhraðastjórnunm skaltu
nota hana þegar þú ekur utanbæj-
ar. Það hjálpar þér til að halda
ökuhraðanum réttum og jöfnum.
• Þegar þú ætlar að bakka bílnum
skaltu ekki setja í bakkgírinn fyrr
en bremsurnar hafa stöðvað bílinn
alveg. Sjálfskiptan bíl er auðvelt
að setja í bakkgírinn þó að hann
sé á ferð áfram, en það fer bæði
illa með skiptinguna og eyðir bens-
íni.
• Ef þú átt kost á að nota bílskúr
eða bílskýli skaltu notfæra þér það.
Það heldur bílnum heitari að vetrin-
um svo að það tekur skemmri tíma
að ná upp eðlilegum vinnuhita.
• Allur aukabúnaður notar elds-
neyti, m.a. miðstöðvarmótorinn,
ljósin og rúðuhitarinn8. Notaðu því
aðeins þann rafbúnað sem nauð-
synlegur er hveiju sinni4.
• Þó að leiðbeiningar þessar séu
gerðar með bensínspamað í huga
þá fæst einnig fleira í kaupbæti sé
eftir þeim farið. Þar má nefna t.d.
lægri viðhaldskostnað og minni
hættu á umferðaróhöppum.
Hér er aðallega átt við bensín en gæti einnig
eftir atvikum verið dleselolía eða fljótandi gas.
2 Þarna koma vitaskuld einnig vio sögu meðslu-
ástand, landslag og færð.
• Rúðuhitarinn er meðal orkufrekustu neyslutækja
í rafbúnaði bifreiða (ca. 12 amper sem gera 168
W miðað við 14W, en það er álíka mikið og öll
ljósin taka).
c Það er lógskipað að aka með full ljós bæði í
myrkri og björtu. Þetta er öryggisatriði sem ber
að virða þó að það kosti nokkur hundruð krónur
á ári.
Sigfús B. Sigurðsson
ÚR söludeild B&L að Ármúla.
BMW og Renault þjón-
ustnn ó Suðurlandsbrnut
ÖLL þjónusta fyrir BMW og Re-
nault, bæði varahluta og verkstæð-
isþjónusta, hefur verið flutt í þjón-
ustuhúsnæði Bifreiða og land-
búnaðarvéla að Suðurlandsbraut
14. B&L hefur nú á höndum sölu
og þjónustu fyrir Lödu, Hyundai,
Renault, BMW og einnig Arctic cat
vélsleðana. Þá er varahlutaþjón-
ustan að Suðurlandsbraut 14 og
verkstæðið þar fyrir ofan ásamt
sölu á notuðum bílum en sala á
nýjum bflum er að Ármúla 13.
Bifreiðar & Landbúnaðarvélar
voru stofnaðar árið 1954 en það
ár höfðu íslendingar fært fiskveiði-
lögsögu sína út um 1 sjómflu eða
úr 3 í 4 sjómílur. Af þessum sökum
lögðu Bretar bann við innflutningi
á físki og fiskafurðum frá íslandi.
Sovétríkin buðu þá upp á við-
skiptasamning sem meðal annars
fól í sér kaup á verulegu magni
af físki og fiskafurðum með
greiðslu í olíu, timbri og stáli. Einn-
ig óskuðu þeir eftir því að íslend-
ingar keyptu bifreiðar og var þá
samið um kaup á fyrstu bifreiðun-
um af Pobeda gerð.
Lada selst vel
Á eftir Pobeda bflunum, árið
1955, komu Moskvich, síðar hinir
vinsælu rússajeppar og þá Volga.
Þegar nýja módelið af Moskvich
kom á markaðinn 1966 jókst salan
mikið.
Árið 1978 voru Lada bílar mest
seldu bílar á landinu en það ár
seldust 1.411 slíkir bílar. Árið 1986
voru seldar um 2.500 Lada bifreið-
ar og árið 1987 voru þær 2.800
sem samsvarar því að um 1% þjóð-
arinnar hafí keypt nýja Lada bif-
reið hvort árið.
22. maí 1992 hófst sala á Hy-
undai bílum sem hefur gengið
framar öllum vonum. í upphafí
ársins 1995 keypti B&L BMW og
Renault umboðin af Bflaumboðinu.
1. febrúar flutti söludeild nýrra og
notaðra BMW og Renault að Ár-
múla 13, húsakynni B&L. Og nú
flytur öll þjónusta fyrir BMW og
Renault bæði varahluta og verk-
stæðisþjónusta í þjónustuhúsnæði
B&L að Suðurlandsbraut 14. ■
Morgunbiaðið/Sverrir
NÝR og breyttur
Chevrolet Blazer er
ávalari og ívið
lengri en forverinn.
BÍLLINN erafvel
búinn að innan,
m.a. með raf-
stillanlegu öku-
mannssæti, líknar-
belg og hirslur eru
nægar.
STARFSFÓLK bensínstöðva í verklegri fræðslu á námskeiði Fræðsl-
umiðstöðvar bílgreina og Skeljungs hf.
Bensínafgreiðslumenn
Skeljung á námskeiðum
STARFSFÓLK á bensínstöðvum
Skeljungs hf. hefur undanfarið tekið
þátt í nýju námskeiði í verklegri og
bóklegri fræðslu í öllum helstu þátt-
um daglegra starfa þess. Námskeiðin
eru haldin á vegum Shellskólans í
samvinnu við Fræðslumiðstöð bíl-
greina, FMB, og stendur hvert þeirra
í fjóra daga, hálfan kennsludag í
senn eða alls 16 klukkustundir.
Ætlun er að námskeiðið sem sam-
ið er af starfsfólki FMB verði í fram-
tíðinni haldið reglulega fyrir nýráðið
starfsfólk félagsins á þessu sviði.
í hveiju námskeiði er farið yfir
helstu þætti bílsins, auk þess elds-
neyti, olíur, kælikerfi, mengunarbún-
að og varnir, rafkerfi og rafgeyma,
rúðuþurrkur og fleira þess háttar.
Þá er einnig tekið á málum eins og
óhöppum og slysum á bensínstöðvum
og hvað ber að varast, lögum og
reglum um eldsneytissölu, við-
bragðsáætlunum og brunaæfingum.
Loks er fræðsla um meðferð pen-
inga, ávísana, greiðslukorta og fjall-
að er um samskipti og þjónustu við
viðskiptavininn.
Skeljungur rfður á vaðlð
Skeljungur er fyrsta olíufélagið
sem lætur FMB semja og annast slíkt
endurmenntunarnámskeið fyrir
starfsfólk sitt. Fræðslumiðstöð bíl-
greina er samstarfsverkefni Bíliðna-
félagsins, Bflgreinasambandsins og
menntamálaráðuneytisins. Undir-
búningur FMB og Skeljungs fyrir
námskeiðið hefur staðið frá því í
haust og hefur því verið vel tekið
af starfsfólkinu sem þegar hefur lok-
ið þvi. Tilgangur fræðslunnar er fyrst
og fremst sá að styrkja alla þjónustu
við viðskiptavini og hafa á að skipa
ánægðara og öruggara starfsfólki á
stöðvunum.
Aðalkennari á námskeiðinu er
Ásgeir Þorsteinsson frá FMB og
honum til aðstoðar eru ýmsir starfs-
menn Skeljungs hf. ■
TILBOD
ÓSKAST
í Chevrolet Camaro RS, árgerð ’92, Ford Explorer XLT
4x4, árgerð ’91 og aðrar bifreiðar er verða sýndar á
Grensásvegi 9 þriðjudaginn 25. apríl kl. 12-15.
Ennfremur óskast tilboð í Clark gafallyftara 6.000 Ibs.
m/bensínvél.
Tilboðin verða opnuð á sama stað kl. 16,
SALA VARNARLIÐSEIGNA
Sjábu hlutina í víbara samhengi!