Morgunblaðið - 23.04.1995, Side 4

Morgunblaðið - 23.04.1995, Side 4
4 C SUNNUDAGUR 23. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ Mazda 323 LX í hnotskurn Vél: 1.500 rúmsentimetrar, 4 strokkar, 16 ventlar, 90 hestöfl. Framdrifinn - fimm manna. Vökvastýri. Sjálfskipting. Samlæsing. Otvarp og tveir hátalarar. Lengd: 4,33 m. Breidd: 1,46 m. Hæð: 1,42 m. Hjólhaf: 2,60 m. Hjólbarðar: 175/70R 13. Þyngd: 1.110 kg. Ummál bensíntanks: 55 lítrar. Bensíneyðsla í þéttbýli: 9,51 - á þjóðvegi á 90 km hraða: 5,71. Staðgreiðsluverð kr.: 1.635.000. Umboð: Ræsir hf., Reykjavlk. Takmark- adur stad- albúnoður Morgunblaðið/Þorkell Lipur Mazda 323 og rúmqóóur bfll MÆLABORÐ og aðstaða ökumanns sem og farþega er með ágætum. ■ FARANGURSRÝMI má drýgja verulega með því að leggja fram bak aftursætis. Qf MAZDA 323 var nýlega 3 kynntur hjá umboðinu, Ræsi H í Reykjavík, en þessi nýjasta 2 kynslóð er fáanleg í nokkr- ^ um gerðum og útfærslum, með 1300 eða 1500 vélum og F-gerðin reyndar með 1800 og 2000 vélum og eru ™ hestöflin frá 75 og allt uppí 147 á 323F GT gerðinni sem i kostar þá yfir 2,2 milljónir. En ódýrari gerðimar kosta frá 1.429 þúsund krónum. Mazda 323 er í stórum dráttum hefðbundinn fimm manna og framdrifinn fjölskyldubíll, þriggja, fjögurra eða fimm hurða, stall- bakur eða hlaðbakur. Þetta er laglegur bfll, ekki stórkostlega breyttur frá síðustu kynslóð en mjög mikið ávalari og mýkri en sú kynslóð sem mikið var keypt af á árunum 1986-88. Við skoðum í dag bæði sjálfskiptan og hand- skiptan bíl með 1300 og 1500 vélum. Mazda 323 er sléttur og felldur og mjög látlaus. Framendinn er sæmilega stór, stuðari samlitur, luktir mjóslegnar og fínlegar og grillið sömuleiðis. Hliðamar eru örlítið bogadregnar en þar eru engin brot eða línur. Þaklínan er mjög bogadregin frá hallandi framrúðunni og afturendinn frem- ur stuttur. Rúður eru stórar og góðar en ef finna á eitthvað að útliti bflsins er eins og hjólbarðar megi vera heldur voldugri - bíllinn virðist heldur of síður tilsýndar. Rúmgóður Einn stærsti kosturinn við Mazda 323 er rýmið að innan. Vel fer um ökumann sem farþega í framsæti. Þar er bæði nóg fóta- rými og heldur engin hætta á að menn reki sig upp undir. Rýmið er einnig nóg til allra átta í aftur- sætum. Þó verður að segja um þennan bfl eins og svo marga aðra af svipaðri stærð að menn ferðast varla langar dagleiðir með þijá fullvaxna fullorðna farþega í aftursætum. Farangursrými myndi heldur ekki leyfa mikinn útbúnað fyrir bfl fullskipaðan far- þegum með tilheyrandi farangur. Utsýni er gott og ökumaður á ekki erfitt með að læra á það sem honum viðkemur enda er stað- setning tækja góð og rofar skýrir og greinilegir undir bogadreginni mælaborðslínunni. í LX gerðunum, þ.e. þeim ódýr- ari, er staðalbúnaður ekki mikill; það er samlæsing og útvarp og þar með upptalið. Væri alveg óhætt að setja eitthvað meira í bflinn fyrir þetta verð. í GLX gerð- inni sem kostar um 100 þúsund krónum meira bætist ýmislegt við, svo sem fjarstýring á samlæsing- una, rafdrifnar rúður og spegla- stillingar, sóllúga og vindskeið að aftan. Ekkert af þessu er þó bráð- nauðsynlegt og aðeins til þæginda og þar sem þessi atriði hafa næsta lítil áhrif á daglegan akstur má alveg spara sér þau útgjöld. Ef menn eru hins vegar reiðubúnir að snara fram enn meira fé má nefna að til að fá hemlalæsivöm og líknarbelgi fyrir ökumann og farþega þarf að greiða um 170 þúsund krónur í viðbót og verður að kaupa þetta í einum pakka. Hljóðlátar vélar Tvær vélar eru í boði í 323 (fyr- ir utan þær sem eru í F-gerðinni og ekki verður farið út í hér) og er sú minni 1300 rúmsentimetra, fjögurra strokka 16 ventla og 75 hestafla en sú stærri 1500 rúms- entimetrar og þá orðin 90 hest- öfl. Þetta eru þýðgengar og hljóðl- átar vélar og sparneytnar einnig, eyða rúmlega 8 lítrum í borga- rakstri með beinskiptingu, 9,6 með sjálfskiptingu en fara rétt niður fyrir 6 lítra á þjóðvega- akstri á jöfnum 90 km hraða. í meðhöndlun allri er Mazda 323 ósköp þægilegur og venjuleg- ur bíll og þar er fátt sem kemur á óvart. Vélarnar eru ekki haldnar neinum ofurkrafti en gefa þokka- legt viðbragð og vinnslu. Fimm gíra handskiptingin gefur mun skemmtilegri nýtingu en sjálf- skiptingin og er óhætt að mæla með að menn kjósi hana fremur en þægindi sjálfskiptingar. Með því að spila á handskiptinguna og láta vélina ná sæmilegum snún- ingi komast vinnsla og viðbragð á þokkalegt stig en það var þó ekki reynt með fullskipaðan bíl. Er helst við því að búast að nokk- uð skorti á vinnsluna í þjóðvega- akstri með vel hlaðinn bflinn, þar gæti hann verið leiðinlega hægur t.d. í framúrakstri. Sjálfskiptingin er vissulega þægileg og vitanlega nægir viðbragð hennar ágætlega við allan venjulegan og eðlilegan akstur. En bíllinn er léttur og lipur og strax og ökumaður hefur lært nákvæmlega á hægra framhomið er hann ekki í vandræðum með að meðhöndla bílinn og allur um- gangur er þægilegur og farang- ursrýmið opnast upp á gátt og niður á stuðara. Það er ekki mjög djúpt en hægt er að drýgja það verulega með því að leggja fram hluta aftursætisbaks. Mlklð verðbll Verðið á Mazda 323 bílunum er sæmilega fjölbreytt og er kannski í heildina ívið of hátt. Hér er þó þess að gæta að þama er á ferðinni nýr og vel hannaður bíll og þó að hann sé ekki fullkom- inn býður hann af sér góðan þokka og er traustvekjandi. Odýr- asta gerðin, þriggja hurða með 1.300 rúmsentimetra vélinni, kostar 1.429 þúsund krónur. Sá sem hér hefur mest verið fjallað um, sá með 1.500 rúmsentimetra vélinni og sjálfskiptingu kostar kr. 1.635 þúsund en sé hann tek- inn þriggja hurða er verðið 1.615 þúsund krónur. Handskipti fjög- urra hurða stallbakurinn með 1500 vélinni kostar kr. 1.540.000 en sé hann tekinn með 1300 vél- inni er verðið 1.444.000 kr. og er hér alls staðar átt við LX gerð- irnar. I lokin má nefna að hagstæð- ustu kaupin hjá Mazda í dag er ein útgáfan af gömlu gerðinni sem enn er fáanleg og verður út þetta ár en það er 323 langbakurinn með sítengdu aldrifi. Hann kostar kr. 1.493 þúsund og má segja að hér fái menn ágætlegan kost fyr- ir þá sem þurfa og vilja aldrif en þeir verða þá líka að láta sér lynda gamla lagið og takmarkaðan stað- albúnað. ■ Jóhannes Tómasson MAZDA 323 er nokkuð laglegur bíll. Lipur Hljóðlátur Rúmgóóur Úr 25% í 2,5% toll NISSAN hefur nú náð sínu fram gegn bandarískum stjómvöldum sem hafa lagt 25% toll á innflutta fernra dyra jeppa. Nissan stefndi bandaríska fjármálaráðuneytinu 1989 en bflar af þessari gerð höfðu fram til þessa verið í sama toll- flokki og pallbílar og borið 25% toll. Tollurinn lækkar nú í 2,5%, ekki einasta á Nissan bílum heldur einnig öðmm gerðum smájeppa sem seljast eins og heitar luminur í Bandaríkjunum, t.a.m. Land Ro- ver Defender 90, Toyota RAV4, Kia Sportage og Suzuki X-90. Á Trabant til Nepal TVEIR Ungveijar ætla að aka 15 þúsund kílómetra leið frá Ung- veijalandi til Nepals í sjö ára göml- um Trabant. Tibor Hubert, 26 ára, og Gergely Nemth, 22 ára, ætla að aka í gegnum Iran, Pakistan og Indland á litla, hávaðasama og reykspúandi Trabant bílnum sem var helsta samgöngutæki almenn- ings í Austur-Þýskalandi kommún- ismans. Félagarnir vörðu sem svar- ar 30 þúsund ÍSK til endurbóta á bílnum fyrir ferðalagið en hann nær mest 80 km hraða á klst. Skynvsddur stöóumslir ÞAÐ léttir mörgum lund þegar þeir finna bílastæði við stöðumæli þar sem tíminn er ekki útrunninn. Nú getur orðið breyting á þessu víða því fyrirtæki eitt í Ffladelfíu í Bandaríkjunum hefur smíðað stöðumæli sem er með innbyggðan skynjara sem endurstillir mælinn þegar bíl er ekið úr bílastæðinu. Tíu slíkir stöðumælar verða próf- aðir í sumar í Fíladelfíu og geta þeir einnig talið hve mörgum bílum hafi verið lagt í stæðið á hveijum degi, hve lengi hver bfll hafi verið við mælinn þegar tíminn hafí verið útrunninn og lýsir rauðu ljósi þegar tíminn er úti. Skyndivæddur stöðumælir það sem koma skal? Fimm strokka vélar vinna á VOLVO hefur sem kunnugt er skorið af einn strokk af sex strokka línuvél sinni til þess að koma henni þversum fyrir í vélarrými Volvo 850. Fiat samsteypan hefur einnig hannað fimm strokka útfærslu af sex strokka vél sinni sem verður í Lancia Kappa. Næsta fimm strokka vél sem kynnt verður er VR5 sem verður sett í Golf. Fimm strokkar þykja einna hentugastir í vélar sem eru með 2ja til 3ja lítra slagrými en slíkar véíar þykja nógu stórar til þess að knýja nútímalega fjórhjóladrifsbíla.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.