Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.04.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANPSMANNA 1995 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL BLAD KNATTSPYRNA / HM U-21 P * * ? i Brasilía og Argentína í úrslit ARGENTÍNA og Brasilía leika til úrslita á hemsmeistaramóti Reuter Hert viðuriög við brotum á HM á íslandi DÓMARANEFND Alþjóðahandknattleikssam- bandsins, IHF, er að ganga frá reglum vegna^ heimsmeistarakeppninnar í handknattleik á ís- landi 7. til 21. maí. Þessar reglur verða kynntar i næstu viku en þar er að finna harðari viðurlög við brotum en áður var. Þegar sóknarmaður í opnu færi eða á auðum sjó er „keyrður" niður eða hann stöðvaður með þvi að toga í hann verður viðkomandi varnar- manni umsvifalaust vikið af velli með rautt spjald og þar með verður hann útilokaður frá frekari þátttöku í leiknum. I öðru lagi verður tekið ákveðið á þvi þegar sóknarmanni er hrint þegar hann er kominn fram- hjá varnarmanni. Áður var þetta matsatriði, þýddi jafnvel bara áminningu en núna tveggja mínútna brottvísun og ekkert annað. Þriðja atriðið sem dómaranefndin leggur áherslu á að sé framfylgt eru leiktafir. Stefnan er að stuðla að hraðari leik og verður dómurum uppálagt að láta lið ekki komast upp með að tefja leikinn. Farið verður yfir regluraar með dómurunum á ísiandi í næstu viku ogþeim uppálagt að fara eftir þeim en að öðrum kosti að eiga á hættu að verða sendir heim. Lærisveinar Kristjáns í Evrópukeppni? BAYER Dormagen, sem Kristján Arason þjálfar í Þýskalandi, leikur við Hameln um sæti í Borgar- keppni Evrópu í handknattleik næsta vetur. Þar sem þýska félagið NiederwUrzbach sigraði (úrslit- um keppninnar um helgina kemst það sjálfkrafa í hana næsta vetur og þvi fá Þjóðverjar annað lið í keppnina. Hameln og Dormagen urðu jöfn að stigum í deildinni og því þurfa þau að leika til úrslita um Evrópusætið. Röber og Höness reknir frá Stuttgart JÚRGEN Röber, þjálfari Suttgart og Dieter Hö- ness, framkvæmdastjóri liðsins, voru báðir reknir frá félaginu í gær vegna slakrar frammistöðu liðs- ins að undanförnu. Stuttgart, sem varð þýskur meistari árið 1992, er nú í 11. sæti deildarinnar og hefur aðeins fengið eitt stig úr siðustu þremur leikjum. Fyrrum þjálfari félagsins, Jurgen Sunder- mann, tekur við liðinu út þetta tímabil. Helgi Sig- urðsson er leikmaður með félaginu sem kunnugt er. HANDKNATTLEIKUR Þorbergur Aðalsteinsson tók gleði sína á ný eftir sigur á Dönum Lékum með hjartanu leikmanna21sársogyngrií . knattspyrnu sem nú stendur yfir í Qatar. í gær sigraði Brasilía lið Portúgals með einu marki gegn engu í hörkuleik sem var fram- lengdur. Mark Brasiliu skoraði Caio á fjórðu mínútu framleng- ingar. Mikil harka var í leiknum og misstu Portúgalir tvo leik- menn út af með rautt spjald, þann fyrri á 84. mínútu og hinn i upphafi framlengingarinnar. Portúgalir voru ekki ýlya hrifnir af þessum ákvörðunum dómar- ans, sem kom frá Mexíkó, og vönduðu honum ekki kveðjumar í leikslok. í hinum undanúrslita- leiknum báru Argentínumenn sigurorð af Spánverjum með þremur mörkum gegn engu. Myndin hér fyrir ofan er úr leik Brasilíu og Portúgals í gær og sýnir brasilíska leikmanninn Leonardo hindra framheijann Diogo. ÍSLENDINGAR sigruðu Dani, 22:20, á fjögurra þjóða mótinu í handknattleik í Dannraörku í gærkvöldi. orbergur Aðalsteinsson, landsliðs- þjálfari íslands í handknattleik, var allt annað en ánægður eftir Svía- leikinn en tók gleði sína á ný í gær- kvöldi þegar öruggur sigur gegn Dön- um var í höfn. „Við lékum með hjartanu,“ sagði hann við Morgunblaðið. „Gegn Svium höfðum við ákveðið að gera ákveðna hluti en þeir gengu ekki upp, eitthvað truflaði okkur en það liggur fyrir að við förum einhvem tíma út af braut- inni og gerðum það gegn Evrópumeist- urunum. Við fórum itadega í gegnum öll mistökin sem við gerðum, lærðum af þeim og framkvæmdum það sem við ætluðum að gera.“ Þorbergur sagði að ekkert eitt atr- iði hefði gert gæfumuninn heldur nán- ast allt. „Það gekk allt upp hjá okk- ur. Ég er mjög ánægður með Berg- svein sem varði mjög vel, ég er ánægð- ur með vamarleikinn og ég er ánægð- ur með sóknarleikinn. Það var greini- legt að Danir óttuðust Geir og höfðu þvi sérstaklega góðar gætur á honum á línunni en það er gaman að hafa svona mann því hann opnaði svo vel fyrir skyttumar." Þungu fargi var létt af hópnum og þjálfarinn var að vonum ánægður. „Við erum sannir íþróttamenn og tök- um tapi illa. Þegar illa gengur fömm við í fýlu sem varir í nokkrar klukku- stundir en við náum okkur svo aftur á strik því það þýðir ekkert væl.“ Svíar burstuðu Pólveija á mótinu í gær og hafa því sigrað í báðum leikj- um sínum. Hafa 4 stig, Ísland og Danmörku em með 2 en Pólveijar ekkert. Ekkert er leikið í dag en á morgun mæta íslendingar Pólveijum og Danir mæta Svíum. ■ Samhentirog samstíga / C3 Tútskijn meðáHM ALEXANDR Tútskíjn, vinstrihandar skyttan frábæra, sem lengi var talinn besti handknattleiksmaður heims þegar hann var upp á sitt besta í eftir- minnilegu liði fyrrum Sovétríkjanna, lýsti því yfir um helgina að hann ætlaði sér að vera með Hvít-Rússum á HM á íslandi í næsta mánuði. Ótt- ast var að Tútskíjn, sem leikur með Essen í Þýskalandi, gæti ekki leikið á HM vegna meiðsla, en kappinn seg- ir þau ekki stöðva sig og hyggst mæta galvaskur til leiks. Hvít-Rússar eru í D-riðli og leika á Akureyri ásamt Svíum, Spánveijum, Egyptum, Brasil- Alexandr Tútskíjn íumönnum og liði Kúveits. HANDKNATTLEIKUR: SPÆNSK FÉLÖG HIRTU ÞRIÁ EVRÓPUTITLA AF FJÓRUM / C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.