Morgunblaðið - 26.04.1995, Side 4

Morgunblaðið - 26.04.1995, Side 4
4 ■■■ ■■■;■ 4 4 ■ ■ 4444;i'::| imHHBHHBBnSHI . ';4j: BADMINTON Frost mætir meðDani til íslands Norðurlandamótið í badminton verður haldið hér á landi í fjórða sinn um næstu helgi í húsum TBR við Gnoðarvog. Flestir bestu badmintonmenn Norðurlandanna mæta til leiks og má þar nefna, bronsverðlaunahafa síðustu Ólymp- íuleika, Thomas Stuer Lauritsen frá Danmörku, einn sterkasta einliða- Jeikssþilar heims sl. ár og Thomas Lund og Marlene Thomsen, en þau hafa ekki tapað tvenndarleik á síð- ustu tíu Grand Prix mótum. Af sterkum konunum sem keppa má nefna sænsku stúlkuna Liam Xiao Qing sem er í þriðja sæti á heims- listanum og Camillu Martin, en hún er í fjórða sæti á sama lista. Af þessu leiðir að Norðurlanda- mótið að þessu sinni er eitt sterk- asta mót í Evrópu. Þess má geta að þjálfari danska landsliðsins sem hingað kemur er enginn annar en Morten Frost, en hann er einn þekktasti badmintonmaður allra tíma. GLIMA ISHOKKI / HM Morgunblaðið/Reuter Rússar burstuðu Svisslendinga RÚSSAR unnu Svisslendlnga 8:0 á HM í íshokkí sem fram fer f Svíþjóð í gærkvöldi. Rússn- eska liðið varð þó fyrlr áfalli því framherjinn Oleg Belov meiddist og lelkur ekki fleiri leikl í keppninni. Rússar hafa unnið báða lelkl sína en lelka gegn Frökkum, sem unnu Kanada óvænt 4:1 í gær. Bandaríkjamenn unnu Norðmenn 2:1 og Flnnar lögðu Svía 6:3. Á myndinni reynir Svisslendlngurinn Bertaggla að stöðva Rússann Sergej Berezin í lelknum í gærkvöldi. Kristján var elstur kepp- enda og sigraði samt MEISTARAMÓT Glfmusam- bandsins fór fram á Laugum í Þingeyjarsýslu sl. sunnudag og fór í alla staði vel fram. Keppt var um íslandsmeistaratitilinn í fimm aldurs- og þyngdarflokk- um kvenna og sex karlaflokkum. Keppendur voru 67 talsins og var víða hart barist. Flestir ís- landsmeistaratitlar féllu í hlut heimamanna í HSÞ sem hlutu sex eða rúmlega helminginn. Skarphéðinsmenn hlutu þrjár meistara og glímufélagið Ár- mann tvo. Onnur félög hlutu ekki meistara. Keppt var í þrem þyngdarflokkum karla og voru keppendur á ýmsum aldri. Alkunna er að margir ■■■■■■ glímumenn hafa Jón keppt um áratuga skeið og hvergi gefíð þeim yngri eftir. Lík- lega slær Kristján Yngvason HSÞ þó öll met. Hann var elstur keppenda, 48 ára, en gerði sér lítið fyrir og sigraði í -90 kg flokki. Var þó við margan kpáan að eiga, svo sem Eyþór Pétursson, glímukóng Íslands 1987, en reynsla og útsjónar- semi Kristjáns færði honum sigurinn og sýndi hann að þessir þættir vega þungt í mikilli tækniíþrótt eins og glíman er. Þingeyingar sigruðu þre- falt í flokknum, enda á heimavelli. í léttasta flokknum, -81 kg sigr- aði Amgeir Friðriksson HSÞ létti- lega. Amgeir er einn öflugasti glímu- maður landsins þótt hann sé ekki hár í loftinu. Kristinn Guðnason HSK, bóndi á Þverlæk í Holtum veitti ívarsson skrifar KEPPENDUR í +90 kg flokki á melstaramótl GLÍ. Frá vinstrl: Rögn- valdur Ólafsson, formaður GLÍ sem keppti fyrir KR, Þórður Hjarar- son, Ármannl, Ólafur Sigurðsson, Ármannl, Pétur Yngvarson, HSÞ og Inglbergur Slgurðsson, Armannl. honum þó harða keppni. Kristinn er orðinn 35 ára en hefur aldrei verið betri. í þyngsta flokknum +90 kg sigr- aði Ingibergur Sigurðsson Ármanni með nokkmm 4ir-burðum. Pétur Yngvason, hinn fímmfaldi glimu- kóngur Þingeyinga kom næstur og skaut hinum upprennandi Ólafi Sig- urðssyni, Ármanni, aftur fyrir sig. Mikil tilþrif voru í karlaflokkunum, en í flestum tilfellum þokkalega glímt og engin spöld sáust á lpfti. Allt síðan konum var veitt inn- ganga í karlavígi glímunnar hafa þær verið að sækja í sig veðrið og eru nú ágætir keppnismenn í þeirra hópi. í flokki hnáta 10-11 ára sigr- aði Andrea Pálsdóttir HSK, en tvær þingeyskar stöllur komu næstar. Inga Gerða Pétursdóttir HSÞ sigr- aði í telpnaflokki 12-13 ára og viti menn, hún er dóttir Péturs Yngva- sonar glímukappa. Pétur hefur kennt dótturinn afgerandi hábrsögð og réð það úrslitum. Næstar komu Rakel Theódórsdóttir frá Laugarvatni og Tinna B. Guðmundsdóttir frá Sauð- árkróki. Öflugar stúlkur en þurfa að læra meiri tækni. Margrét Ingjaldsdóttir HSK sigr- aði nokkuð örugglega í meyjaflokki. Þar voru eingöngu Skarphéðinsstúlk- ur mættar til leiks og var keppnin nokkuð jöfn um næstu sæti. í léttari kvennaflokki -60 kg sigr- aði Ingibjörg Bjömsdóttir HSÞ eftir harða keppni við Jóhönnu Jakobs- dóttur Ármanni: Ingibjörg er þræl- sterk og tók hábrögð á andstæðing- unum með góðum árangri. í hnokkaflokki 10-11 ára sigraði Júlíus Jakobsson, Ármanni. Júlíus er eldsnar og liðugur og kann ýmis- legt fyrir sér. Næstir komu tveir bræður af Laugarvatni, Þorkell og Bjami Bjarnasynir. Glímublóð rennur í æðum þeirra en langafi þeirra var einmitt Bjami Bjamason skólastjóri sem var einn besti glímumaður lands- ins snemma á öldinni. í piltaflokki 12-13 ára var fjöl- menn og spennandi keppni í tveim riðlum. Jón Smári Eyþórsson, HSÞ sigraði í fjögurra manna úrslitum. Jón kann sitthvað að glíma, enda sonur fyrrum glímukóngs, Eyþórs Péturssonar. Hann tekur glæsileg hábrögð og sigraði þama af öryggi. Næstir komu tveir afar efnilegir nýl- iðar í glímunni, Þórólfur Valsson frá Reyðarfirði og Þorkell Snæbjömsson frá Laugarvatni. í flokki sveina 14-15 ára sigraði Ólafur Kristjánsson HSÞ af öryggi en næstir komu tveir glímufélagar hans. Þeir virðast ætla að fylgja þin- geyskri glímu fast fram. Synir taka við af feðrum og lofa góðu fyrir HSÞ og glímuna. ■ SVIAR leika gegn Ungveijum í Búdapest í undankeppin Evrópu- móts landsliða í kvöld. Svíar verða án Brolins og Henriks Larssons, sem eru meiddir og einnig án Mart- ins Dahlins og Joakims Björk- lunds sem taka út leikbann. ■ THOMAS Ravelli, markvörður sænska landsliðsins, lenti í vand- ræðum við komuna til Búdapest því hann hafði týnt vegabréfínu sínu. Hann fékk ekki að koma inní landið fyrr en Gabor Kuncze, inn- anríkisráðherra Ungveija, gaf hon- um sérstaka undanþágu. ■ KLAUS Ingesson, sem skoraði mark Svía gegn íslendingum á Laugardalsveili í fyrra, er kominn aftur inní hópinn eftir sjö mánaða fjarveru vegna meðsla. Svíar em í þriðja sæti í 3. riðli með 6 stig eftr ir ljóra leiki, Qómm stigum á eftir Sviss og einu á eftir Tyrkjum. Ungverjar eru með 2 stig eftir þijá leiki og íslendingar sitja á botninum með ekkert stig eftir þijá leiki. ■ LIÐ Svía verður þannig skipað í kvöld: Thomas RaveUi, Roland Nilsson, Patrik Anderssson, Pontus Kamark, Roger Ljung, Niclas Alexandersson, Jonas Them, Per Zetterberg, Stefan Schwarz, Klas Ingesson og Ken- net Andersson. ■ LIÐ Ungveija verður þannig: Zsolt Petry, Geza Meszoly, Jozsef Csabi, Peter Lipcsei, Mihaly Mracsko, Gabor Halmai, Bela II- les, Istvan Salloi, Istvan Kozma, Istvan Vincze og Jozsef Kiprich. ■ ERIK Bo Andersen, sem leikur með AaB og er markahæstur í dönsku 1. deildinni spilar fyrsta „alvöru" landsleik sinn fyrir Dani gegn Makedóníu í Kaupmanna- höfn í kvöld. Andersen er 24 ára og stóð sig mjög vel í æfingaleikjum gegn Kanada og Portúgal í Jan- úar. Richard Möller Nielsen, þjálfari, er einnig að hugsa um að gefa miðvallarleikmanninum Claus Thompsen, sem leikur með Ipswich, tækifæri í leiknum. Fyrri leikur liðanna í september endaði með 1:1 jafntefli. ■ STEPHEN Hendry frá Skot- landi tryggði sér sæti í undanúrslit- um heimsmeistaramótsins í snóker með því að vinna Englendinginn Ronnie O’Sullivan 13-8. Hendry á því möguleika á að verða heims- meistari í fímmta sinn á sex árum. „Þó svo að ég hafí unnið O’SuUivan er ekki þar með sagt að ég sé orð- inn heimsmeistari. Það er enn lang- ur vegur í titilinn þó svo að O’Sulli- van hafí vissulega verið erfíður þröskuldur," sagði Hendry. ■ ÞRÍR sjgurvegarar HSÞ, þau Ólafur Kristjánsson, Inga Gerða Pétursdóttir og Ingibjörg Björns- dóttir eru bræðraböm. Feður þeirra eru glímukappamir Yngvasynir af hinni kunnu glímuætt frá Skútu- stöðum. Sá fjórði, Jón Smári, er sonur Eyþórs Péturssonar fyirum glímukóngs. ■ RÖGVALDUR Ólafsson, for- maður GLÍ, tók þátt í keppni í þyngsta flokkinum og var hann eini keppandi KR-inga á mótinu. Rögn- valdur hafði þá ekki keppt í glímu í 8 ár en varð síðast íslandsmeist- ari árið 1985 í milliþyngd. ■ RÖGVALDUR hyggst nú láta af störfum eftir að hafa gegnt for- mennsku í GLÍ í áratug. Honum til heiðurs var slegið upp 46 manna bændaglímu í lok mótsins. Bóndi á móti Rögnvaldi var Kristján Yng- varsson og kusu þeir sér lið. Krist- ján skoraði í lokin á Rögnvald og sigraði hann en þá var Ingibergur Sigurðsson einn eftir í liði Rögn- valds og sigraði hann Kristján.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.