Morgunblaðið - 26.04.1995, Qupperneq 4
4
■■■ ■■■;■ 4 4 ■ ■ 4444;i'::|
imHHBHHBBnSHI
. ';4j:
BADMINTON
Frost
mætir
meðDani
til íslands
Norðurlandamótið í badminton
verður haldið hér á landi í
fjórða sinn um næstu helgi í húsum
TBR við Gnoðarvog. Flestir bestu
badmintonmenn Norðurlandanna
mæta til leiks og má þar nefna,
bronsverðlaunahafa síðustu Ólymp-
íuleika, Thomas Stuer Lauritsen frá
Danmörku, einn sterkasta einliða-
Jeikssþilar heims sl. ár og Thomas
Lund og Marlene Thomsen, en þau
hafa ekki tapað tvenndarleik á síð-
ustu tíu Grand Prix mótum. Af
sterkum konunum sem keppa má
nefna sænsku stúlkuna Liam Xiao
Qing sem er í þriðja sæti á heims-
listanum og Camillu Martin, en hún
er í fjórða sæti á sama lista.
Af þessu leiðir að Norðurlanda-
mótið að þessu sinni er eitt sterk-
asta mót í Evrópu. Þess má geta
að þjálfari danska landsliðsins sem
hingað kemur er enginn annar en
Morten Frost, en hann er einn
þekktasti badmintonmaður allra
tíma.
GLIMA
ISHOKKI / HM
Morgunblaðið/Reuter
Rússar burstuðu Svisslendinga
RÚSSAR unnu Svisslendlnga 8:0 á HM í íshokkí sem fram fer f Svíþjóð í gærkvöldi. Rússn-
eska liðið varð þó fyrlr áfalli því framherjinn Oleg Belov meiddist og lelkur ekki fleiri leikl í
keppninni. Rússar hafa unnið báða lelkl sína en lelka gegn Frökkum, sem unnu Kanada óvænt
4:1 í gær. Bandaríkjamenn unnu Norðmenn 2:1 og Flnnar lögðu Svía 6:3. Á myndinni reynir
Svisslendlngurinn Bertaggla að stöðva Rússann Sergej Berezin í lelknum í gærkvöldi.
Kristján var elstur kepp-
enda og sigraði samt
MEISTARAMÓT Glfmusam-
bandsins fór fram á Laugum í
Þingeyjarsýslu sl. sunnudag og
fór í alla staði vel fram. Keppt
var um íslandsmeistaratitilinn í
fimm aldurs- og þyngdarflokk-
um kvenna og sex karlaflokkum.
Keppendur voru 67 talsins og
var víða hart barist. Flestir ís-
landsmeistaratitlar féllu í hlut
heimamanna í HSÞ sem hlutu
sex eða rúmlega helminginn.
Skarphéðinsmenn hlutu þrjár
meistara og glímufélagið Ár-
mann tvo. Onnur félög hlutu
ekki meistara.
Keppt var í þrem þyngdarflokkum
karla og voru keppendur á
ýmsum aldri. Alkunna er að margir
■■■■■■ glímumenn hafa
Jón keppt um áratuga
skeið og hvergi gefíð
þeim yngri eftir. Lík-
lega slær Kristján
Yngvason HSÞ þó öll met. Hann var
elstur keppenda, 48 ára, en gerði sér
lítið fyrir og sigraði í -90 kg flokki.
Var þó við margan kpáan að eiga,
svo sem Eyþór Pétursson, glímukóng
Íslands 1987, en reynsla og útsjónar-
semi Kristjáns færði honum sigurinn
og sýndi hann að þessir þættir vega
þungt í mikilli tækniíþrótt eins og
glíman er. Þingeyingar sigruðu þre-
falt í flokknum, enda á heimavelli.
í léttasta flokknum, -81 kg sigr-
aði Amgeir Friðriksson HSÞ létti-
lega. Amgeir er einn öflugasti glímu-
maður landsins þótt hann sé ekki
hár í loftinu. Kristinn Guðnason
HSK, bóndi á Þverlæk í Holtum veitti
ívarsson
skrifar
KEPPENDUR í +90 kg flokki á melstaramótl GLÍ. Frá vinstrl: Rögn-
valdur Ólafsson, formaður GLÍ sem keppti fyrir KR, Þórður Hjarar-
son, Ármannl, Ólafur Sigurðsson, Ármannl, Pétur Yngvarson,
HSÞ og Inglbergur Slgurðsson, Armannl.
honum þó harða keppni. Kristinn er
orðinn 35 ára en hefur aldrei verið
betri.
í þyngsta flokknum +90 kg sigr-
aði Ingibergur Sigurðsson Ármanni
með nokkmm 4ir-burðum. Pétur
Yngvason, hinn fímmfaldi glimu-
kóngur Þingeyinga kom næstur og
skaut hinum upprennandi Ólafi Sig-
urðssyni, Ármanni, aftur fyrir sig.
Mikil tilþrif voru í karlaflokkunum,
en í flestum tilfellum þokkalega glímt
og engin spöld sáust á lpfti.
Allt síðan konum var veitt inn-
ganga í karlavígi glímunnar hafa
þær verið að sækja í sig veðrið og
eru nú ágætir keppnismenn í þeirra
hópi. í flokki hnáta 10-11 ára sigr-
aði Andrea Pálsdóttir HSK, en tvær
þingeyskar stöllur komu næstar.
Inga Gerða Pétursdóttir HSÞ sigr-
aði í telpnaflokki 12-13 ára og viti
menn, hún er dóttir Péturs Yngva-
sonar glímukappa. Pétur hefur kennt
dótturinn afgerandi hábrsögð og réð
það úrslitum. Næstar komu Rakel
Theódórsdóttir frá Laugarvatni og
Tinna B. Guðmundsdóttir frá Sauð-
árkróki. Öflugar stúlkur en þurfa að
læra meiri tækni.
Margrét Ingjaldsdóttir HSK sigr-
aði nokkuð örugglega í meyjaflokki.
Þar voru eingöngu Skarphéðinsstúlk-
ur mættar til leiks og var keppnin
nokkuð jöfn um næstu sæti.
í léttari kvennaflokki -60 kg sigr-
aði Ingibjörg Bjömsdóttir HSÞ eftir
harða keppni við Jóhönnu Jakobs-
dóttur Ármanni: Ingibjörg er þræl-
sterk og tók hábrögð á andstæðing-
unum með góðum árangri.
í hnokkaflokki 10-11 ára sigraði
Júlíus Jakobsson, Ármanni. Júlíus
er eldsnar og liðugur og kann ýmis-
legt fyrir sér. Næstir komu tveir
bræður af Laugarvatni, Þorkell og
Bjami Bjarnasynir. Glímublóð rennur
í æðum þeirra en langafi þeirra var
einmitt Bjami Bjamason skólastjóri
sem var einn besti glímumaður lands-
ins snemma á öldinni.
í piltaflokki 12-13 ára var fjöl-
menn og spennandi keppni í tveim
riðlum. Jón Smári Eyþórsson, HSÞ
sigraði í fjögurra manna úrslitum.
Jón kann sitthvað að glíma, enda
sonur fyrrum glímukóngs, Eyþórs
Péturssonar. Hann tekur glæsileg
hábrögð og sigraði þama af öryggi.
Næstir komu tveir afar efnilegir nýl-
iðar í glímunni, Þórólfur Valsson frá
Reyðarfirði og Þorkell Snæbjömsson
frá Laugarvatni.
í flokki sveina 14-15 ára sigraði
Ólafur Kristjánsson HSÞ af öryggi
en næstir komu tveir glímufélagar
hans. Þeir virðast ætla að fylgja þin-
geyskri glímu fast fram. Synir taka
við af feðrum og lofa góðu fyrir HSÞ
og glímuna.
■ SVIAR leika gegn Ungveijum
í Búdapest í undankeppin Evrópu-
móts landsliða í kvöld. Svíar verða
án Brolins og Henriks Larssons,
sem eru meiddir og einnig án Mart-
ins Dahlins og Joakims Björk-
lunds sem taka út leikbann.
■ THOMAS Ravelli, markvörður
sænska landsliðsins, lenti í vand-
ræðum við komuna til Búdapest
því hann hafði týnt vegabréfínu
sínu. Hann fékk ekki að koma inní
landið fyrr en Gabor Kuncze, inn-
anríkisráðherra Ungveija, gaf hon-
um sérstaka undanþágu.
■ KLAUS Ingesson, sem skoraði
mark Svía gegn íslendingum á
Laugardalsveili í fyrra, er kominn
aftur inní hópinn eftir sjö mánaða
fjarveru vegna meðsla. Svíar em í
þriðja sæti í 3. riðli með 6 stig eftr
ir ljóra leiki, Qómm stigum á eftir
Sviss og einu á eftir Tyrkjum.
Ungverjar eru með 2 stig eftir
þijá leiki og íslendingar sitja á
botninum með ekkert stig eftir þijá
leiki.
■ LIÐ Svía verður þannig skipað
í kvöld: Thomas RaveUi, Roland
Nilsson, Patrik Anderssson,
Pontus Kamark, Roger Ljung,
Niclas Alexandersson, Jonas
Them, Per Zetterberg, Stefan
Schwarz, Klas Ingesson og Ken-
net Andersson.
■ LIÐ Ungveija verður þannig:
Zsolt Petry, Geza Meszoly, Jozsef
Csabi, Peter Lipcsei, Mihaly
Mracsko, Gabor Halmai, Bela II-
les, Istvan Salloi, Istvan Kozma,
Istvan Vincze og Jozsef Kiprich.
■ ERIK Bo Andersen, sem leikur
með AaB og er markahæstur í
dönsku 1. deildinni spilar fyrsta
„alvöru" landsleik sinn fyrir Dani
gegn Makedóníu í Kaupmanna-
höfn í kvöld. Andersen er 24 ára
og stóð sig mjög vel í æfingaleikjum
gegn Kanada og Portúgal í Jan-
úar. Richard Möller Nielsen,
þjálfari, er einnig að hugsa um að
gefa miðvallarleikmanninum Claus
Thompsen, sem leikur með
Ipswich, tækifæri í leiknum. Fyrri
leikur liðanna í september endaði
með 1:1 jafntefli.
■ STEPHEN Hendry frá Skot-
landi tryggði sér sæti í undanúrslit-
um heimsmeistaramótsins í snóker
með því að vinna Englendinginn
Ronnie O’Sullivan 13-8. Hendry
á því möguleika á að verða heims-
meistari í fímmta sinn á sex árum.
„Þó svo að ég hafí unnið O’SuUivan
er ekki þar með sagt að ég sé orð-
inn heimsmeistari. Það er enn lang-
ur vegur í titilinn þó svo að O’Sulli-
van hafí vissulega verið erfíður
þröskuldur," sagði Hendry.
■ ÞRÍR sjgurvegarar HSÞ, þau
Ólafur Kristjánsson, Inga Gerða
Pétursdóttir og Ingibjörg Björns-
dóttir eru bræðraböm. Feður þeirra
eru glímukappamir Yngvasynir af
hinni kunnu glímuætt frá Skútu-
stöðum. Sá fjórði, Jón Smári, er
sonur Eyþórs Péturssonar fyirum
glímukóngs.
■ RÖGVALDUR Ólafsson, for-
maður GLÍ, tók þátt í keppni í
þyngsta flokkinum og var hann eini
keppandi KR-inga á mótinu. Rögn-
valdur hafði þá ekki keppt í glímu
í 8 ár en varð síðast íslandsmeist-
ari árið 1985 í milliþyngd.
■ RÖGVALDUR hyggst nú láta
af störfum eftir að hafa gegnt for-
mennsku í GLÍ í áratug. Honum
til heiðurs var slegið upp 46 manna
bændaglímu í lok mótsins. Bóndi á
móti Rögnvaldi var Kristján Yng-
varsson og kusu þeir sér lið. Krist-
ján skoraði í lokin á Rögnvald og
sigraði hann en þá var Ingibergur
Sigurðsson einn eftir í liði Rögn-
valds og sigraði hann Kristján.