Morgunblaðið - 27.04.1995, Page 1
80 SÍÐUR B/C/D
94. TBL. 83. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Chirac hafn-
ar skilyrðum
Balladurs
París. Reuter, The Daily Telegraph.
EKKI er lengur víst að sættir náist
milli hægrimannanna tveggja,
þeirra Jacques Chirac, borgarstjóra
Parísar, og Edouard Balladur, for-
sætisráðherra, fyrir síðari umferð
frönsku forsetakosninganna. Hefur
Chirac neitað að eiga fund með
Balladur með þeim skilyrðum, sem
forsætisráðherrann hefur sett.
Balladur lýsti yfir stuðningi við
Chirac strax og ljóst var á sunnu-
dagskvöld að hann hefði orðið und-
ir í fyrri umferð kosninganna. Lagði
þá Chirac til að þeir ættu sáttafund
tveir saman. Balladur krafðist þess
hins vegar að helstu bandamenn
hans kæmu með honum á fundinn
en þeirri kröfu hafnaði Chirac.
Þá greindi þá á um hvar þeir
ættu að hittast. Chirac vildi funda
í ráðhúsi Parísar en Balladur í
Matignon, forsætisráðherrahöllinni.
Loks lagði Balladur fram þá mála-
miðlunartillögu að þeir myndu hitt-
ast fyrst en síðan yrði haldinn fjöl-
mennari fundur í öldungadeildinni.
Á það gat Chirac ekki fallist.
Balladur í leyfi
Hélt þá Balladur til frönsku alp-
anna í leyfi og sögðu aðstoðarmenn
hans að hann kæmi ekki aftur til
Parísar fyrr en fyrri hluta næstu
viku en þá eru einungis nokkrir
dagar eftir af kosningabaráttunni.
Síðdegis í gæri átti Chirac fund
með leiðtogum miðju- og hægri-
manna og meðal þeirra sem mættu
á fundinn voru nokkrir af helstu
stuðningsmönnum Balladurs.
Samkvæmt skoðanakönnun, sem
birt var í gær, ætla 55% Frakka
að kjósa Chirac í síðari umferð
kosninganna þann 7. maí en 45%
Lionel Jospin, frambjóðanda sósíal-
ista.
Kommúnistar styðja Jospin
Robert Hue, leiðtogi franskra
kommúnista, sem hlaut 8,6% at-
kvæða í fyrri umferðinni, lýsti því
yfir í gær að kommúnistar hygðust
veita Jospin virkan stuðning. Jafnt
Hue og Jospin útiloka þó að gera
samkomulag um að kommúnistar
fái aðild að stjórninni sigri Jospin.
Jacques Delors, fyrrum forseti
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, greindi frá því í gær að
til greina kæmi að hann yrði forsæt-
isráðherra í nýrri ríkisstjóm, ef
Jospin ynni sigur. Þegar hann var
spurður hvort að hann væri reiðubú-
inn að starfa með Jospin svaraði
Delors: „Það verður forsetafram-
bjóðandinn Lionel Jospin að
ákveða.“
Hann sagðist þó telja tímabært
að ný kynslóð tæki við stjórn Frakk-
lands og að hann legði sjálfur enga
ofuráherslu á að komast í valda-
stöðu á ný.
Tjernóbýl minnst
ÞESS var minnst í gær í Úkra-
ínu að níu ár voru liðin frá
kjarnslysinu í Tjernóbýl-lgarn-
orkuverinu. Ungar konur í hvít-
um kuflum gengu í gegnum
bæinn Slavytuch, þar sem flestir
hinna 5.800 starfsmanna versins
búa í dag, til að minnast þeirra
er létust eftir að hafa barist við
eldinn er kom upp í kjarnorku-
verinu þann 26. apríl 1986. Af
200 þúsund slökkviliðsmönnum
hafa 5.722 látist. Yfirvöld í
Úkraínu hafa heitið því að loka
Tjernóbýl-verinu árið 2000 með
því skilyrði þó að vestræn ríki
veiti 4 milljarða dollara fjár-
hagsaðstoð. Þing Úkraínu biðl-
aði í gær til Vesturlanda um
stuðning í ljósi þess hversu
hræðilegar afleiðingar slysið
hefði haft. f Úkraínu hafa 3,7
milljónir manna orðið fyrir
geislun, 160 þúsund manns hafa
neyðst til að flylja búferlum og
viðamikil landsvæði eru óbyggi-
leg vegna geislamengunar. Ekki
liggja fyrir nákvæmar tölur um
hversu margir hafa látið lífið
af völdum slyssins en ljóst er
að þúsundir dauðsfalla má rekja
beint til þess. Þá hefur tíðni
barnadauða aukist injög í Úkra-
inu og nágrannaríkjum auk þess
sem talið er að 7,5 milljónir
manna eigi krabbamein á hættu.
Svörtum borðum var flaggað við
hlið þjóðfánans í höfuðborginni
Kiev. Slyssins var einnig minnst
í Hvíta-Rússlandi en þangað
bárust um 70% geislamengunar-
innar. Yfirvöld þar segja fimmta
hvern íbúa landsins hafa orðið
fyrir áhrifum geislunar og tíu
prósent fjárlaganna renna enn
í dag til hreinsunarstarfs
samanborið við sex prósent í
Úkraínu. Á myndinni má sjá
konu selja kerti við myndir af
fórnarlömbum Ijernóbýl í Slav-
ytuch.
Stríðið í Bosníu
*
Akærður
fyrir stríðs-
glæpi
BOSNÍU^SERBINN Dusan
Tadic (t.h.) er sakaður um
nauðganir, hrottalegar pynt-
ingar og morð á 13 Króötum
og múslimum, meðal annars í
Omarska-fangabúðunum, í
heimalandi sínu. Hann sést hér
leiddur inn í skothelt glerbúr í
sal alþjóðlega stríðsglæpadóm-
stólsins í Haag. Tadic sagðist í
gær ekki hafa drýgt neina af
umræddum glæpum. Hann er
39 ára gamall, rak áður kaffi-
hús í heimahéraði sínu og er
sagt að hann hafi átt prýðileg
samskipti við múslima þar áður
en átökin hófust milli þjóðar-
brotanna. Dómstóllinn hefur
ákært alls 22 Bosníu-Serba. Að
Tadic undanskildum, sem náð-
ist í Þýskalandi, er talið að þeir
leiki allir lausum hala í Bosníu
eða Serbíu.
Reutcr
Hollenskur óþefur
hrellir Breta
London. The Daily Telegraph.
HOLLENSKUM svínabændum er kennt um mikinn óþef sem lagt hefur
yfir hluta Bretlands, frá ensku miðlöndunum og suður til Kent. Þefnum
hefur verið líkt við blöndu af rotnandi eggjum, iðnaðarúrgangi og inni-
haldi rotþróar. Óhagstæð veðurskilyrði undanfarna daga hafa orðið til
þess að ýta mjög undir „einn versta óþef í mörg ár“ að sögn bresku
veðurstofunnar.
Ótölulegur fjöldi kvartana hefur
dunið á lögreglunni á þeim svæðum
sem verst lykta og gerði breska
gasfélagið út vinnuflokka til að
kanna hvort leki hafi komið að
gasleiðslum. Þá var um tima talið
að lyktin hefði borist frá Ruhr-hér-
aði í Þýskalandi. Breskir veðurfræð-
ingar hafa nú komist að þeirri nið-
urstöðu að um sé að ræða blöndu
„landbúnaðarlyktar" frá Hollandi
og efnaúrgangs sem berst frá Rott-
erdam.
Hollenskir starfsbræður þeirra
taka undir þessa skilgreiningu. „Ég
hef kannað veðurskilyrðin vandlega
og niðurstaðan er sú að loftið yfir
Englandi er líklega upprunnið í
Hollandi,“ sagði Frank Kroonen-
berg veðurfræðingur og bætti því
við að hollenskir svínabændur væru
nú önnum kafnir við að dreifa skít
á tún sín þar sem frost væri loks
farið úr jörðu.
Kosningar
sagðar úti-
lokaðar
Róm. Rcuter.
GIANFRANCO Fini, leiðtogi Þjóð-
arbandalagsins og einn helsti
bandamaður Silvios Berlusconis,
viðurkenndi í gær að nær útilokað
væri að kreijast kosninga í júní.
Berlusconi, sem sagði af sér sem
forsætisráðherra í desember, hafði
litið á héraðskosningarnar sem eins
konar þjóðaratkvæðagreiðslu um
þá kröfu sína að þing yrði rofið og
efnt til kosninga.
Bandalag flokka hægrimanna
tapaði hins vegar nokkru fylgi í
kosningunum.