Morgunblaðið - 27.04.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 27.04.1995, Síða 1
80 SÍÐUR B/C/D 94. TBL. 83. ÁRG. FIMMTUDAGUR 27. APRÍL1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Chirac hafn- ar skilyrðum Balladurs París. Reuter, The Daily Telegraph. EKKI er lengur víst að sættir náist milli hægrimannanna tveggja, þeirra Jacques Chirac, borgarstjóra Parísar, og Edouard Balladur, for- sætisráðherra, fyrir síðari umferð frönsku forsetakosninganna. Hefur Chirac neitað að eiga fund með Balladur með þeim skilyrðum, sem forsætisráðherrann hefur sett. Balladur lýsti yfir stuðningi við Chirac strax og ljóst var á sunnu- dagskvöld að hann hefði orðið und- ir í fyrri umferð kosninganna. Lagði þá Chirac til að þeir ættu sáttafund tveir saman. Balladur krafðist þess hins vegar að helstu bandamenn hans kæmu með honum á fundinn en þeirri kröfu hafnaði Chirac. Þá greindi þá á um hvar þeir ættu að hittast. Chirac vildi funda í ráðhúsi Parísar en Balladur í Matignon, forsætisráðherrahöllinni. Loks lagði Balladur fram þá mála- miðlunartillögu að þeir myndu hitt- ast fyrst en síðan yrði haldinn fjöl- mennari fundur í öldungadeildinni. Á það gat Chirac ekki fallist. Balladur í leyfi Hélt þá Balladur til frönsku alp- anna í leyfi og sögðu aðstoðarmenn hans að hann kæmi ekki aftur til Parísar fyrr en fyrri hluta næstu viku en þá eru einungis nokkrir dagar eftir af kosningabaráttunni. Síðdegis í gæri átti Chirac fund með leiðtogum miðju- og hægri- manna og meðal þeirra sem mættu á fundinn voru nokkrir af helstu stuðningsmönnum Balladurs. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var í gær, ætla 55% Frakka að kjósa Chirac í síðari umferð kosninganna þann 7. maí en 45% Lionel Jospin, frambjóðanda sósíal- ista. Kommúnistar styðja Jospin Robert Hue, leiðtogi franskra kommúnista, sem hlaut 8,6% at- kvæða í fyrri umferðinni, lýsti því yfir í gær að kommúnistar hygðust veita Jospin virkan stuðning. Jafnt Hue og Jospin útiloka þó að gera samkomulag um að kommúnistar fái aðild að stjórninni sigri Jospin. Jacques Delors, fyrrum forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, greindi frá því í gær að til greina kæmi að hann yrði forsæt- isráðherra í nýrri ríkisstjóm, ef Jospin ynni sigur. Þegar hann var spurður hvort að hann væri reiðubú- inn að starfa með Jospin svaraði Delors: „Það verður forsetafram- bjóðandinn Lionel Jospin að ákveða.“ Hann sagðist þó telja tímabært að ný kynslóð tæki við stjórn Frakk- lands og að hann legði sjálfur enga ofuráherslu á að komast í valda- stöðu á ný. Tjernóbýl minnst ÞESS var minnst í gær í Úkra- ínu að níu ár voru liðin frá kjarnslysinu í Tjernóbýl-lgarn- orkuverinu. Ungar konur í hvít- um kuflum gengu í gegnum bæinn Slavytuch, þar sem flestir hinna 5.800 starfsmanna versins búa í dag, til að minnast þeirra er létust eftir að hafa barist við eldinn er kom upp í kjarnorku- verinu þann 26. apríl 1986. Af 200 þúsund slökkviliðsmönnum hafa 5.722 látist. Yfirvöld í Úkraínu hafa heitið því að loka Tjernóbýl-verinu árið 2000 með því skilyrði þó að vestræn ríki veiti 4 milljarða dollara fjár- hagsaðstoð. Þing Úkraínu biðl- aði í gær til Vesturlanda um stuðning í ljósi þess hversu hræðilegar afleiðingar slysið hefði haft. f Úkraínu hafa 3,7 milljónir manna orðið fyrir geislun, 160 þúsund manns hafa neyðst til að flylja búferlum og viðamikil landsvæði eru óbyggi- leg vegna geislamengunar. Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um hversu margir hafa látið lífið af völdum slyssins en ljóst er að þúsundir dauðsfalla má rekja beint til þess. Þá hefur tíðni barnadauða aukist injög í Úkra- inu og nágrannaríkjum auk þess sem talið er að 7,5 milljónir manna eigi krabbamein á hættu. Svörtum borðum var flaggað við hlið þjóðfánans í höfuðborginni Kiev. Slyssins var einnig minnst í Hvíta-Rússlandi en þangað bárust um 70% geislamengunar- innar. Yfirvöld þar segja fimmta hvern íbúa landsins hafa orðið fyrir áhrifum geislunar og tíu prósent fjárlaganna renna enn í dag til hreinsunarstarfs samanborið við sex prósent í Úkraínu. Á myndinni má sjá konu selja kerti við myndir af fórnarlömbum Ijernóbýl í Slav- ytuch. Stríðið í Bosníu * Akærður fyrir stríðs- glæpi BOSNÍU^SERBINN Dusan Tadic (t.h.) er sakaður um nauðganir, hrottalegar pynt- ingar og morð á 13 Króötum og múslimum, meðal annars í Omarska-fangabúðunum, í heimalandi sínu. Hann sést hér leiddur inn í skothelt glerbúr í sal alþjóðlega stríðsglæpadóm- stólsins í Haag. Tadic sagðist í gær ekki hafa drýgt neina af umræddum glæpum. Hann er 39 ára gamall, rak áður kaffi- hús í heimahéraði sínu og er sagt að hann hafi átt prýðileg samskipti við múslima þar áður en átökin hófust milli þjóðar- brotanna. Dómstóllinn hefur ákært alls 22 Bosníu-Serba. Að Tadic undanskildum, sem náð- ist í Þýskalandi, er talið að þeir leiki allir lausum hala í Bosníu eða Serbíu. Reutcr Hollenskur óþefur hrellir Breta London. The Daily Telegraph. HOLLENSKUM svínabændum er kennt um mikinn óþef sem lagt hefur yfir hluta Bretlands, frá ensku miðlöndunum og suður til Kent. Þefnum hefur verið líkt við blöndu af rotnandi eggjum, iðnaðarúrgangi og inni- haldi rotþróar. Óhagstæð veðurskilyrði undanfarna daga hafa orðið til þess að ýta mjög undir „einn versta óþef í mörg ár“ að sögn bresku veðurstofunnar. Ótölulegur fjöldi kvartana hefur dunið á lögreglunni á þeim svæðum sem verst lykta og gerði breska gasfélagið út vinnuflokka til að kanna hvort leki hafi komið að gasleiðslum. Þá var um tima talið að lyktin hefði borist frá Ruhr-hér- aði í Þýskalandi. Breskir veðurfræð- ingar hafa nú komist að þeirri nið- urstöðu að um sé að ræða blöndu „landbúnaðarlyktar" frá Hollandi og efnaúrgangs sem berst frá Rott- erdam. Hollenskir starfsbræður þeirra taka undir þessa skilgreiningu. „Ég hef kannað veðurskilyrðin vandlega og niðurstaðan er sú að loftið yfir Englandi er líklega upprunnið í Hollandi,“ sagði Frank Kroonen- berg veðurfræðingur og bætti því við að hollenskir svínabændur væru nú önnum kafnir við að dreifa skít á tún sín þar sem frost væri loks farið úr jörðu. Kosningar sagðar úti- lokaðar Róm. Rcuter. GIANFRANCO Fini, leiðtogi Þjóð- arbandalagsins og einn helsti bandamaður Silvios Berlusconis, viðurkenndi í gær að nær útilokað væri að kreijast kosninga í júní. Berlusconi, sem sagði af sér sem forsætisráðherra í desember, hafði litið á héraðskosningarnar sem eins konar þjóðaratkvæðagreiðslu um þá kröfu sína að þing yrði rofið og efnt til kosninga. Bandalag flokka hægrimanna tapaði hins vegar nokkru fylgi í kosningunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.