Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ HM í handbolta hefst eftir tíu daga FRÉTTIR Morgunblaðið/RAX STJÓRNENDUR Tryggingastofnunar kynntu nýja tölvukerfið á blaðamannafundi í gær. Tryggingastofnun fær nýtt tölvukerfi TRYGGINGASTOFNUN ríkisins hefur tekið í notkun nýtt og öflugt tölvukerfí. Kerfíð mun hafa umtals- verðan spamað í för með sér, auk þess sem öryggi í greiðslum eykst verulega. Nýja kerfíð hefur sýnt fram á að eitthvað hefur verið um að greiðslur til bótaþega hafa verið rangt reiknaðar. Nýja tölvukerfíð, sem _______ fengið hefur nafnið Tryggvi, heldur utan um greiðslur til um 52.000 einstaklinga um land allt. Samtals hljóða þess- ar greiðslur upp á 1,7 milljarða króna í hveij- um mánuði eða 20,4 milljarða á ári. Þetta er nærri fimmtungur af fjárlögum ríkisins. Nýja kerfíð, sem er hannað af Skýrsluvélum ríkisins, kostar um 60 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að með tilkomu þess sparist veralegar fjárhæðir hvað snertir viðhaid og endurbætur. Gamla tölvukerfíð var orðið 19 ára gamalt og kostaði umtalsverða ijármuni að halda því við. Eftirlitsþáttur nýja tölvukerfis- ins er mun öflugri en í eldra kerfi. Um er að ræða tvöfalt eftirlit til að tryggja að viðskiptavinir fái greiðslur sem þeim ber samkvæmt lögum. Auk þess er kerfíð tengt ýmsum öðrum opinberum upplýs- ingakerfum sem stuðlar að betra eftirliti. Sem dæmi má nefna teng- Villur í gamla kerfinu SIGÞÓR Örn Guðmunds- son, tölvu-sérfræðingur hjá Tryggingastofnun, sagði að búið væri að keyra bæði tölvukerfin samhliða undanfarna mánuði. Hann sagði ljóst að kerfin kæm- ust ekki í öllum tilvikum að sömu niðurstöðu um bótagreiðslur. Búast mætti við að einhverjar villur væru í nýja kerfinu og eins væru örugglega einhveijar villur í gamla kerfinu. Sigþór sagðist ekki bú- ast við að mismunurinn væri stórvægilegur í krón- um talið. Hann sagðist von- ast eftir að innan við 1.000 einstaklingar fengju aðrar b'ætur í nýja kerfinu en í því gamla. Hann sagðist gera ráð fyrir að villurnar væru bæði þess eðlis að fólk hefði verið að fá of háar bætur og of lágar bætur. Sigþór sagði að Tryggva væri ætlað að tryggja fljótvirkari og ná- kvæmari útreikninga á greiðslum viðskiptavina Tryggingastofnunar. Þetta ætti eftir að endur- speglast í betri þjónustu við viðskiptavini stofnun- arinnar. Fólk sem fengi t.d. ekki réttar bætur fengi leiðréttingu strax i vikulok, en hingað til hef- ur það í flestum tilvikum þurft að bíða. ingu við bifreiðaskrá þar sem hægt er að ganga úr skugga um bifreiða- eign þess sem sækir um bílastyrk. Þannig má gera ráð fyrir því að nýja kerfíð geri misnotkun á al- mannatryggingakerfinu erfíðari en áður. Með tilkomu Tryggva munu út- sendir greiðsluseðlar taka nokkrum _________ breytingum. Karl Steinar Guðnason, for- stjóri Tryggingastofn- unar, sagðist gera ráð fyrir að mjög margir viðskiptavinir stofnun- arinnar muni hafa samband við hana til að óska eftir skýring- um og eins væri ekki útilokað að með nýja kerfinu slæddust inn villur. Þess vegna hefði starfsfólk verið undirbúið sérstaklega til að taka á móti fyrir- spurnum og athuga- semdum. Símakerfi stofnunarinnar hefði verið stækkað og boðið yrði upp á sérstaka þjónustulínu þar sem fólk gæti óskað skýr- inga á útreikningi bótagreiðslna. Stuðningur vegur þyngst Geir hefur starfað á skrifstofu Handknattleiks- sambands íslands sfðan í september sem leið og segir með ólíkindum hvað fæðing heimsmeistara- keppninnar hafí verið erf- ið. „Það má segja að málin hafí ekki komist í eðlilegt horf fyrr en í jan- úar á þessu ári. Fram að því vora miklir erfiðleikar og það gekk á ýmsu. Þessi sífelldu vandamál gáfu neikvæða ímynd af keppninni, mál sem ekki tókst að leysa í fyrstu eins og sjónvarpsmálin, miðasöluna, hótelin og ýmislegt annað. Ég, Þor- bergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, og Ein- ar Þorvarðarson, aðstoð- arþjálfari, og aðrir í kringum þetta höfum einbeitt okkur að því að öll umgjörð yrði sem best og ég held að það hafí tekist." -Þið blésuð nýju lífi í hópinn með frábærum leik gegn Dönum í fyrrakvöld og allt virðist á réttri leið en þá fáið þið fréttir hingað til Danmerkur um fyrirhugað verkfall flugfreyja. Hvaða áhrif hefur það á ykkur? „Þetta er hlutur sem við ráðum ekki við. Þetta er utanaðkomandi þáttur sem skellur á okkur og auðvitað vonum við að það verði ekkert verkfall. Hins vegar er ljóst að þetta hefur áhrif á stjórn- ina og stjórnunina en ég held að það hafí engin áhrif á liðið. Við höldum okkar striki eins og við höfum alltaf reynt að gera. -Liðið hefur verið sveiflukennt á mótinu í Danmörku en hvernig er andrúmsloftið í hópnum eftir frábæran leik gegn Dönum? „Það er allt annað að sigra en tapa og eins og allir höfðu á orði inni í klefa eftir Danaleikinn þá er margfalt skemmtilegra að sigra. Menn áttuðu sig líka á að það er ekki aðeins skemmtilegra að vinna heldur verður þetta mun skemmtilegra þegar allir leggja sig fram. Menn áttuðu sig á því að þeir gerðu það ekki gegn Svíum og þó þetta sé einfaldur hiutur verður að benda á hann. Hins vegar verður að ganga áfram og það gengur ekki að verða að fá högg til að komast af stað. í gegnum tíðina hefur aga vantað í íslenskan handknatt- leik og það er hlutur sem við þurfum að laga.“ -Alþjóð hefur ekki verið á eitt sátt um að halda heimsmeistara- keppnina en íslenska handknatt- leikshreyfingin hefur haldið sínu striki. Hvaða máli skiptir keppn fyrir íslendinga? „Hún skiptir gífurlega miklu máli. Út frá íþróttaleg- ______ um árangri skiptir máli að vera á meðal þeirra bestu þvi með því er verið að tryggja sæti á næstu Ólympíu- _____ leikum og í næstu heimsmeistarakeppni. Þetta era stærstu viðburðir sem handknatt- leikshreyfíngin tekur þátt í og það er mjög mikilvægt að taka þátt í þeim. í öðru lagi skiptir þetta miklu máli fyrir HSÍ, að öll umgjörð takist og keppnin komi vel út íjárhagslega. I heild sinni hefur kejipnin mikið auglýsingagildi fyrir Island og því skiptir þetta ísland miklu máli og í raun allar íþróttagreinar á Islandi. Að auglýsa ísland sem íþróttaland og því er mikilvægt að allir sameinist og vinni að því að þessi keppni takist sem best í alla staði. Til að koma til móts við áhorfendur er frítt á leikinn Geir Sveinsson ►Geir Sveinsson er einn leik- reyndasti landsliðsmaður heims með 266 landsleiki. Hann er fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik. Geir er fæddur 27. janúar 1964, er kvæntur Guðrúnu Helgu Arnarsdóttur, flug- freyju og eiga þau soninn Arnar Svein sem verður fjög- urra ára í sumar. Geir hóf landsliðsferilinn á Norður- landamótinu 1986 með því að sitja á bekknum gegn Dönum en átti drjúgan þátt í sigri gegn þeim í fyrrakvöld. Við höldum okkar striki gegn Austurríki í Laugardalshöll á laugardag og ég vona að fólk notfæri sér það. Eg vil sjá fullt hús á öllum leikjum í HM og áhorfendur geta gefíð tóninn á laugardag því ég er sannfærður um það að ef fólk fjölmennir og fyllir húsið hveiju sinni þá verðum við sterkari og þá myndast þessi stemmning eins og var í úrslita- keppni Vals og KA um íslands- meistaratitilinn." -Hvernig gengur fjölskyldulíf leikmanna í svona undirbúningi? „Það spá mjög fáir í það hvern- ig þetta gengur fyrir sig. Hvað mig varðar þá vinnur eiginkonan hjá Flugleiðum. Hún átti að vera í fríi í apríl og vinna í maí en við eram settir inn á hótel í hálfan mánuð í maí. Hún vinnur þannig vinnu að hún þarf að fara á fætur klukkan fímm á morgnana og við óbreytt ástand hefði enginn verið til að hugsa um drenginn okkar. Því þurfti hún að byija á því að skipta á frímánuðum og ef hún hefði ekki fundið manneskju fyrir sig hefði þetta verið vandamál fyrir okkur. Svo er það nú svo að konumar vilja taka þátt í þessu með okkur og styrkja okkur eins og hægt er og því tókum við hjón- ________ in þá ákvörðun að fara með drenginn til afa hans og ömmu í Þýska- landi þar sem hann verður í hálfan mánuð. -........ Þegar ég kem heim [á morgun] verður kon- an í Bandaríkjunum og það fyrsta sem ég geri verður að fara á bamaheimilið og ná í strákinn og svo spilum við landsleik um kvöld- ið. Fólk áttar sig ekki á hvað býr að baki, heldur jafnvel að hjá okk- ur sé þetta bara mæting í leik klukkan sjö og heim klukkan tíu en þetta er miklu meira og það eru margir lausir endar sem þarf að leysa. Ég gæti þetta ekki ef skilningur og fómfysi konunnar væri ekki fyrir hendi. Hún er enda- laust að hliðra til fyrir mig, hún breytir sinni vinnuskrá fyrir mig því ég get engu breytt og þess ber að geta að Flugleiðir hafa reynst okkur svakalega vel.“ Morgunblaðið/PPJ STARFSMENN Flugmálastjórnar á Reykjavíkurflug- velli hafa að undanförnu unnið við að rífa einn stærsta herbraggann sem eftir er á flugvallarsvæðinu. Braggar þessir voru reistir af breska flughernum á árum síðari heimsstyijaldarinnar sem fatabirgðastöð en voru lengst af notaðir fyrir vélaverkstæði Reylqavíkurflugvallar. Morgunblaðið/Halldór Herbraggar hverfa STARFSMENN Flugmálasljórnar á Reykjavíkur- flugvelli hafa að undanförnu unnið að því að rífa gamla herbragga sem staðið hafa við vegamótin þar sem gamli Flugvallarvegurinn liggur niður í Nauthólsvík. I bröggum þessum var vélaverkstæði Reykja- víkurflugvallar til húsa í fjóra áratugi en vélaverk- stæðið flutti fyrir nokkrum árum í nýbyggingu sem er áfast slökkvistöð flugvallarins. Eftir það voru húsin notuð í tengslum við byggingarframkvæmd- ir nýju flugstjórnarmiðstöðvarinnar. Braggarnir voru upphaflega reistir af breska setuliðinu á árum síðari heimsstyijaldar en sam- kvæmt yfirlitskortum breska flughersins voru braggamir upphaflega notaðir sem fatabirgðastöð. Herbröggum á Reykjavíkurflugvelli fer nú ört fækkandi og ef fram fer sem horfir munu þeir ’ hverfa áður en langt um líður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.