Morgunblaðið - 27.04.1995, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
J-
ERLENT
Hvaða mann hefur Timothy McVeigh, sem sakaður er um hryðjuverkið í Oklahoma, að geyma?
Einfari sem
þjáist af
ofsóknaræði
Oklahoma. The Daily Telegraph.
Timothy McVeigh
átján ára gamall.
BRÆÐURNIR Terry og James Nichols.
MANNINUM sem ákærður hefur
verið fyrir aðild að mannskæðasta
hermdarverki í sögu Bandaríkj-
anna, Timothy McVeigh, hefur ver-
ið' lýst sem einfara sem ofsókn-
aræði, ofstæki og byssuást virðast
hafa náð tökum, á.
McVeigh er 27 ára og uppalinn
í Buffalo nærri kanadísku landa-
mærunum. Foreldrar hans skildu
er hann var tíu ára og ólst hann
upp hjá föður sínum. Þeim sem
þekktu McVeigh í barnæsku ber
ekki saman, sumir segja hann hafa
verið opinn og uppáfinningasaman
dreng en þeir eru þó fleiri sem lýsa
honum sem þöglum einfara eftir
skilnað foreldranna. Svo þögull var
hann að bekkjarfélagar hans upp-
nefndu hann „Herra ræðinn".
„Hann var þögull. Margir hinna
þöglu hafa að endingu framið
skelfileg afbrot. Maður veit aldrei
hvers konar fólk situr í skólastof-
unni,“ segir enskukennari
McVeigh.
Vildi komast í sérsveitir
Eftir að skólagöngunni lauk gerð-
ist Timothy McVeigh öryggisvörður
á flugvellinum í Buffalo. Segja yfír-
menn hans hann hafa verið upp-
stökkan og oft hafa reiðst sam-
starfsmönnum sínum. McVeigh
hætti öryggisgæslunni til að ganga
í herinn. Hefur varnarmálaráðuneyt-
ið neitað að veita aðgang að skýrsl-
um hersins um hann. Þó er vitað
að hann hækkaði í tign og var orð-
inn liðþjálfi árið 1992. Fyrrum félag-
ar hans í hemum segja hann hafa
þráð að komast í sérsveitir hersins
og eytt öllum frítíma sínum til að
þjálfa sig og undirbúa. Hann slasað-
ist í inntökuprófi og var hafnað.
Átti McVeigh afar erfitt með að
kyngja því og var lengi bitur.
McVeigh barðist í Persaflóastríð-
inu og hlaut nokkur heiðursmerki.
Segja félagar hans hann hafa verið
góðan hermann en hann var skytta
í skriðdreka.
Er McVeigh gegndi herþjónustu
í Fort Riley í Kansas hóf hann að
umgangast sveitir manna sem æfðu
vopnaburð, svo sem Varalið Kans-
as. Ofsóknaræði náði tökum á hon-
um, hann fullyrti m.a. að herinn
hefði látið koma fyrir tölvukubb í
rasskinnum hans til að hægt væri
að fylgjast með ferðum hans.
Svaf ævinlega með byssu
McVeigh kynntist Terry Nichols,
sem er þrítugur, í hernum en Nic-
hols er nú ásamt bróður sínum í
haldi lögreglunnar, þar sem þeir
em sagðir hugsanleg vitni. Menn
sem kynntust Nichols og McVeigh
segja þá hafa alið á djúpstæðu hatri
í garð alríkisins og að þeir hafi
talið að skattheimta samræmdist
ekki stjómarskránni. „McVeigh var
sá hættulegri. Hann elskaði byss-
urnar sínar. Hann svaf ævinlega
með byssu sér við hlið. Hann er
bilaður, öfgamaður og þjáist af of-
sóknaræði," segir Carl Brocker,
sem kynntist báðum mönnunum.
Eftir að þeir höfðu látið af her-
mennsku störfðu þeir um hríð hjá
bróður Nichols, James, sem á bú-
garð í Decker í Michigan.
Á síðasta ári bjó McVeigh í Ariz-
ona. Eigandi hjólhýsasvæðis sem
McVeigh bjó á ásamt þungaðri
unnustu sinni, segist ekki hafa séð
hann handleika skotvopn. Hann vís-
aði parinu hins vegar á brott eftir
fimm mánaða dvöl vegna kvartana
nágranna um að tónlist væri spiiuð
of hátt og vegna hunds sem þau
áttu. Þá svaraði McVeigh því til að
hann væri nýkominn úr hernum og
að hann hefði fengið nóg af reglu-
gerðum.
Þegar McVeigh og Nichols
dvöldu í Michigan, sprengdu þeir
gjarnan sprengjur sér til gamans
að sögn nágranna. f janúar sl. sást
til þeirra á fundum hjá Varaliði
Michigan, sem afneitar þeim, segir
þá ýmist ekki hafa verið í samtök-
unum eða að þeir hafi verið reknir
úr þeim.
Táknræn dagsetning
Dagsetning tilræðisins virðist
engin tilviljun. Er McVeigh leigði
bílinn sem sprakk fyrir framan
stjórnsýsluhúsið, gaf hann upp
rangan fæðingardag, 19. apríl,
sama dag og sprengingin varð.
19 apríl sl. voru tvö ár liðin frá
því að bandaríska alríkislögreglan
lét til skarar skríða gegn sértrúar-
söfnuðinum í Waco en þá kviknuðu
eldar í húsum safnaðarins sem-kost-
uðu 86 manns lífið. Ekkja manns
úr söfnuðinum, sem býr við rústim-
ar í Waco, segist þegar hafa áttað
sig hveijir hefðu verið á ferð er hún
heyrði af sprengingunni. Stöðugur
straumur hægriöfgamanna hafi
verið til Waco frá atburðunum þar.
„Þeir koma hingað til að sjá hvað
stjórnvöld gerðu. Stjórnarskrár-
sinnar, þeir sem mótmæla skatt-
heimtu, trúaðir... Þeir eru allir reið-
ir og örvæntingarfullir vegna þess
hvernig stjórnvöld fara með þá,“
sagði konan, Amo Roden. Komið
hefur í Ijós að McVeigh kom til
Waco til að fylgjast með umsátrinu
fyrir tveimur árum.
Þá má að síðustu geta þess að
19. apríl er hvítum þjóðemissinnum
einkar kær en þá minnast þeir orr-
ustunnar um Lexington í frels-
isstríðinu gegn Bretum á átjándu
öld.
------------;------,--------------
Reuter
HJÓNIN Edye og Tony Smith báru tvo syni sina til grafar í Oklahomaborg í gær. Chase var þriggja ára
og Colton tveggja en þeir voru meðal barnanna, sem fórust þegar sprengjan sprakk við stjórnsýsluhúsið.
Hryðjuverkið í Oklahomaborg
Annar hínna grnnuðu
hugsanlega látinn
Verið að kanna hvort hann hafi farist í sprengingunni
Oklahomaborg. Reuter.
BANDARISKA alríkislögreglan, FBI, er nú að kanna
hvort annar mannanna tveggja, sem grunaðir em um
að bera ábyrgð á hryðjuverkinu í Oklahomaborg, hafi
látist í sprengingunni. Fundist hafa lík 93 manna í rústum
stjórnsýsluhússins og að minnsta kosti 135 er enn sakn-
að. Talið er, að sprengjan, sem notuð var, hafí verið tvö
tonn á þyngd.
Lögreglan virðist telja nokkra ástæðu til að ætia, að
annar mannanna hafí farist í sprengingunni en aðstæður
á staðnum eru erfiðar. Sprengingin olli gífurlegum skaða
á stóru svæði og þótt mikið hafi fundist af líkamsleifum
er ógjömingur að bera kennsl á þær.
Myndbönd könnuð
Aðeins einn maður hefur verið ákærður vegna hryðju-
verksins, Timothy McVeigh, en verið er enn að kanna
myndbönd úr upptökuvél utan á banka í grenndinni.
Skemmdist hún í sprengingunni en vonast er til, að á
myndböndunum megi sjá bílinn, sem flutti sprengjuna,
og mennina.
Lögreglan hefur birt nýja teikningu af manninum, sem
leitað er að, en talið er útilokað vegna mikilla frétta af
málinu, að hann þori að vera úti á meðal fólks ef hann
er þá enn á lífi.
McVeigh og bræðurnir James og Terry Nichols hafa
verið ákærðir í Michigan fyrir ólöglegar tilraunir með
sprengiefni en í þeim ákærum er ekki minnst á hryðju-
verkið í Oklahomaborg. Að sögn CAW-sjónvarpsstöðv-
arinnar neitar McVeigh að ræða við yfirvöld og heldur
því fram, að hann sé pólitískur fangi. Segir hann aðeins
til nafns, stöðu sinnar í hernum og herskráningamúm-
ers en þær upplýsingar einar ber stríðsföngum að gefa.
Nokkrir fjölmiðlar í Bandaríkjunum sögðu í gær, að
fundist hefðu leifar ammóníumnítrats, sem notað er í
áburði, í fötum McVeighs og í bíinum hans. Talið er,
að sprengjan, sem sprakk við stjómsýsluhúsið hafi verið
gerð úr áburði og olíu.
Ánægja með Clinton
Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, og leiðtogar beggja
flokka á þingi komu saman í gær til að ræða um leiðir
til að beijast gegn hugsanlegum hryðjuverkamönnum
innanlands. Hefur Clinton farið fram á auknar íjárveit-
ingar til þessara mála og hann ætlar að fara þess á leit,
að FBI fái auknar heimildir til hlerana og annars eftirlits.
Bandaríkjamenn eru almennt ánægðir með það hvem-
ig Clinton hefur haldið þessu máli. Skoðanakönnun USA
Today, CNN og Gallup sýnir, að 84% eru ánægð með
frammistöðu hans í því og 52% telja hann standa sig
vel yfírleitt.
Argentínuher biður þjóðina afsökunar
„Mistökin“ ekki
endurtekin
Buenos Aires. Reuter.
ARGENTÍNSKI herinn hefur í tvo
áratugi vísað á bug allri gagnrýni
vegna mannrána og morða í „skítuga
stríðinu“ svonefnda á áttunda ára-
tugnum er þúsundir vinstrisinna voru
myrtar og herinn tók völdin. Tveir
liðsforingjar hafa að undanförnu
staðfest að herinn hafi staðið fyrir
glæpaverkum. Á þriðjudag flutti yfir-
maður hersins, Martin Balza hers-
höfðingi, sjónvarpsávarp þar sem
hann bað þjóðina afsökunar á „mis-
tökum" fortíðarinnar og hét því að
þau yrðu ekki endurtekin.
Hershöfðingjarnir sem stjórnuðu
landinu frá 1976 til 1983 voru dæmd-
ir í fangelsi 1985 en voru seinna
náðaðir. Herinn hefur fram til þessa
ávallt varið lögbrot sín á áttunda
áratugnum, sagt að nauðsynlegt
hafi verið að beita „dirfsku" gegn
borgarskæruliðum sem hafi ætlað sér
aó ræna völdum. Balza sagði herinn
taka á sig sinn hluta ábyrgðarinnar
á því sem gerðist. „Við megum ekki
lengur afneita þeim hryilingi sem við
upplifðum," sagði hann. „Tilgangur-
inn helgar aldrei meðalið."
10.000 myrtir
Um 10.000 óbreyttir borgarar
hurfu í átökunum, talið er að þeir
hafi flestir verið myrtir. í liðnum
mánuði skýrði Adolfo Scilingo, fyrr-
verandi liðsforingi í flotanum, frá því
er flogið var með fangna stjómar-
andstæðinga á haf út. Fólkinu hafði
oft verið gefið deyfilyf en flestir voru
lifandi er þeim var fleygt útbyrðis
og látnir deyja drottni sínum. Scil-
ingo sagðist oft eiga erfítt með svefn
vegna þessar minninga en hann var
í áhöfn einnar vélarinnar. Yfirstjórn
hersins svaraði með því að ákæra
Scilingo fyrir bílþjófnað og skjalafals.
Fyrrverandi liðþjálfi í landhernum,
Victor Ibanez, staðfesti síðar frá-
sagnir Scilingos og virðist sem æðstu
menn hersins hafi þá ákveðið að
ekki yrði vikist undan því að gang-
ast við sekt. Samt sem áður er talið
að yfirlýsing Balza muni valda mikl-
um innbyrðis deilum þar á bæ.
Ættingjar hinna horfnu hafa árum
saman krafist þess að herinn birti
lista með nöfnum fórnarlambanna
en Balza segir slíkan lista ekki
finnast hafi hann þá nokkurn tíma
verið til. Hershöfðinginn hvatti jafn-
framt þá liðsmenn hersins, sem ef
til vill gætu veitt upplýsingar um
málið, til að gera það og yrði fyllsta
trúnaðar gætt gagnvart þeim.
Carlos Menem forseti, sem á sín-
um tíma var pyntaður á stjómarárum
hersins, vill að menn hætti að róta
I fortíðinni og í fyrstu sagði hann
Scilingo vera svikahrapp. Menem
býður sig fram til endurkjörs 14.
maí og viðurkenna ráðgjafar hans
að þessi ummæli hafi verið mistök.
—:—♦ ♦ ♦---------
Svíþjóð
Persson af-
tekur frek-
ari sparnað
Kaupmannahöfn. Morgunblaöið.
GORAN Persson fjármálaráðherra
Svía sagði á þriðjudag að ekki yrði
gripið til frekari spamaðarráðstaf-
ana en þegar hafa verið kynntar, en
viðbótarfjárlögin voru lögð fyrir
þingið í gær.
Eins og áður hafði verið kynnt
fela þau í sér skerðingu ýmissa fé-
lagslegra bóta, en einnig lækkun
virðisaukaskatts á mat, sem að
mestu étur upp bótaskerðinguna.
Hópar atvinnuiausra Svía söfnuðust
saman við þinghúsið til að mótmæla
skerðingu atvinnuleysisbóta úr 80%
í 75% af kaupi.
Á blaðamannafundi sagði Göran
Persson að nú hefði stjórnin náð tök-
um á ríkisbúskapnum og á næsta
ári yrði tekið fyrir skuldasöfnunina.
Frekari sparnaðarráðstafanir yrðu
óþarfar á þessu ári.
I
I
»
í
»
i
I
i
r
i
i
t
i
i
i