Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 27
26 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
BRYN ENDUR-
SKOÐUN VINNU-
LÖGGJAFAR
Fyrir um mánuði efndu flugfreyjur til þriggja daga verk-
falls og varð þá veruleg röskun á áætlunarflugi Flug-
leiða. Tókst þó að halda uppi flugi að nokkru leyti með því að
yfirmenn hjá félaginu gengu í störf flugfreyja þá daga sem
verkfallið stóð yfir.
Flugfreyjur stöðvuðu hins vegar allt innanlandsflug Flugleiða
í nær heilan dag með því að halda uppi verkfallsvörslu á
Reykjavíkurflugvelli.
Morgunblaðið hefur margoft lýst þeirri skoðun sinni að fá-
mennir starfshópar á borð við flugfreyjur eigi ekki að geta
lamað starfsemi stórra fyrirtækja og stofnana. Nokkra slíka
starfshópa er að finna hjá Flugleiðum og hefur það á undanförn-
um árum ítrekað leitt til truflana á flugi.
Þegar þessir starfshópar leggja niður vinnu raska þeir ekki
einungis starfsemi Flugleiða heldur getur vinnustöðvun þeirra
stöðvað samgöngur til og frá landinu.
Fáar þjóðir eru jafnháðar flugsamgöngum og íslendingar.
Þegar millilandaflug leggst niður lokast landið. Það nær auðvit-
að ekki nokkurri átt að fámennar stéttir í kjaradeilu geti hvað
eftir annað skorið á tengsl heillar þjóðar við umheiminn. Slíkt
á ekkert skylt við eðlilegan verkfallsrétt stéttarfélaga.
Löngu er orðið tímabært að vinnulöggjöfin verði endurskoð-
uð með þetta í huga og gerðar á henni nauðsynlegar breyting-
ar. Það er því fagnaðarefni að í stefnuyfirlýsingu hinnar nýju
ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar er því lýst yfir að sú verði raun-
in. Er það stefna stjórnarinnar að vinnulöggjöfin verði endur-
skoðuð „með það að markmiði að stuðla að stöðugleika, ábyrgð
samningsaðila og auknum áhrifum einstakra félagsmanna í
stéttarfélögum“.
Vonandi verður kjaradeila þessi, og vísbendingin um það
gífurlega vald, sem fámennur hópur virðist hafa öðlast í krafti
stöðu sinnar, enn frekari hvatning til að flýta þessari endurskoð-
ALÞINGIOG
ALÞJÓÐASAMNINGAR
FRESTURINN sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) gaf íslenzk-
um stjórnvöldum til að uppfylla ákvæði samningsins um
Evrópskt efnahagssvæði og afnema einkarétt ríkisins á inn-
flutningi og heildsölu áfengis er útrunninn. ESA íhugar nú að
draga Island fyrir dómstól EFTA.
Frumvörp fjármálaráðherra og dómsmálaráðherra um afnám
einkaréttarins náðu ekki fram að ganga á seinasta þingi. Ástæð-
an, sem Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra, nefndi þá til í
samtali við Morgunblaðið, var fyrirstaða meðal þingmanna.
„Hún er af tvennum toga, annars vegar Alþýðubandalagið og
Kvennalistinn, sem fara gegn málinu, og hins vegar einstakir
bindindismenn, sem telja að þetta mál sé til þess fallið að leiða
óhamingju yfir þjóðina,“ sagði fjármálaráðherra hér í blaðinu
23. febrúar sl.
í Morgunblaðinu í gær kom fram, að vafamál væri hvort
frumvörpin, sem nauðsynleg eru til að ísland geti staðið við
EES-samninginn, yrðu lögð fram á vorþinginu, vegna ótta ríkis-
stjórnarinnar við málþóf þingmanna og að tíu daga þing muni
af þeim sökum ekki endast til að ræða þetta einfalda mál.
Menn hljóta að spyija hvað þingmönnum gangi til, ætli þeir
að tefja framgang málsins enn frekar. Alþingi gerði alþjóða-
samning, sem það getur ekki leyft sér að bijóta, vilji það að
réttindi íslands samkvæmt honum verði virt.
Það liggur sömuleiðis fyrir hver dómur EFTA-dómstólsins
verður, komi til þess að ESA vísi málinu þangað. Dómstóllinn
hefur þegar úrskurðað einkarétt finnska ríkisins á áfengisinn-
flutningi og -dreifingu ólöglegan.
í þriðja lagi er sennilegt að falli dómur íslandi í óhag, skapi
það innflytjendum, sem telja núverandi skipan mála hafa vald-
ið sér óhagræði, rétt til skaðabótakröfu á hendur íslenzka rík-
inu. Vilja alþingismenn stuðla að slíku?
Loks má minna á það, sem fram kom í áðurnefndum dómi
EFTA-dómstólsins, að ríkiseinkaleyfi á innflutningi er ekki
nauðsynlegt til að vernda heilsu manna fyrir skaða af völdum
áfengisneyzlu, heldur má ná því markmiði án þess að það feli
í sér hömlur á vöruflutningum. Þetta sjónarmið hefur Morgun-
blaðið margoft tekið undir. Og bindindismönnum á þingi má
auðvitað benda á það, að umrædd lagabreyting felur ekki í sér
neinar breytingar á smásölu eða verðlagningu áfengis.
Ríkisstjórnin ætti ekki að hika við að leggja frumvörpin um
afnám einkaréttar Áfengis- og tóbaksverzlunarinnar á innflutn-
ingi og heildsölu áfengra drykkja fyrir þingið í vor. Alþingi
er ekki stætt á að tefja málið.
Vorverkin í Grasagarðinum og Ræktunarstöð Reykíavíkurborgar í Laugardal
Morgunblaðið/Kristinn
SNÆLENJA, sem ættuð er frá Chile, var gróðursett í skálanum í Grasagarðinum árið 1990. í náttúrulegum heimkynnum sínum getur hún
orðið nokkurra tuga metra há og er hún þegar farin að smeygja sér út um glugga á þaki skálans.
Margir
koma á
hverjum
degi
STARFSFÓLK Grasagarðsins í
Laugardal hefur undanfarið
verið að hreinsa garðinn eftir
að hann kbm undan vetri, klippa
tré og runna og undirbúa
sumarkomuna. En vorverkin
felast ekki síður í því að sá og
koma til plöntum sem fara út í
garðinn síðar.
Garðurinn er í samstarfi við
fjölda annarra grasagarða út
um allan heim og skiptast þeir
á fræi. Mikið starf er að safna
fræi, hreinsa það og verka svo
hægt sé að nota síðar. Þetta
starf er unnið á haustin. Um
áramót er svo tekinn saman listi
yfir þær frætegundir sem til eru
og listinn sendur til yfir 400
garða víðs vegar um heiminn.
Byijað var að sá fræi, sem pant-
að er annars staðar frá, fyrir
nokkrum vikum og eru plönt-
urnar þegar farnar að gægjast
upp úr moldinni.
Angan og fegurð í
gróðurskálanum
Gróðurskálinn í Grasagarðin-
um skartar nú sínu fegursta.
Þar er að finna fjölda erlendra
plantna, sem margar hverjar
eru ákaflega skrautlegar og
fallegar, auk þess sem þar er
lítil tjörn með gullfiskum. Það
er sérstök tilfinning að koma
inn í skálann, enda eru ýmsir
sem koma I Grasagarðinn á
hverjum degi, ganga sér til
heilsubótar og ánægju og tylla
sér gjarnan niður í skálanum í
stutta stund til að hvíla sig.
I næsta nágrenni við Grasa-
garðinn er Ræktunarstöð
Reykjavíkurborgar. Þar er nú
verið að rækta upp sumarblóm
sem síðar verða sett niður á%.
grænum svæðum borgarinnar.
Að sögn Kolbrúnar Finnsdóttur
garðyrkjufræðings eru ræktað-
ar um 200 þúsund plöntur á
hverju vori og að því stefnt að
planta þeim ölhim fyrir 17. júní.
KOLBRÚN Finnsdóttir garðyrkjufræðingur í
Ræktunarstöð Reykjavíkurborgar heldur á
Möggubrá, sem hún segir að hafi verið prófuð
í fyrrasumar og hafi reynst mjög vel. Hún seg-
ir að hún verði mikið notuð á grænum svæðum
borgarinnar í sumar.
BEINT á móti innganginum í gróðurskálann í
Grasagarðinn í Laugardal er stór rósarunni af
gerðinni Paul Scarlet sem gleður augu þeirra sem
inn koma. Runninn er iðinn við að blómstra og
skartar stórum rauðum rósum frá því snemma á
vorin og þar til í nóvember.
BRÆÐURNIR Bjarki Már og Pálmi Már Þórarinssynir komu hjólandi úr Selásnum að heimsækja afa
sinn, sem vinnur í Grasagarðinum. Þeir höfðu sérstakan áhuga á gullfiskunum í tjörninni.
MUSTERISTRÉ, sem oft hefur verið kallað lif-
andi steingervingur, var talið hafa dáið út fyr-
ir 150 milljónum ára en fannst aftur árið 1690
og hefur siðan náð talsverðri útbreiðslu.
INGUNN Óskarsdóttir (t.h.) og Jóhanna Þormar
garðyrkjufræðingar setja niður fræ í potta. Sá
starfi er fyrirferðarmikill og tímafrekur í Grasa-
garðinum á vorin.
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995 27
Fjármálaráðherra ánægður með viðtökur markaðarins
við spariskírteinum í útboði Lánasýslu ríkisins í gær
Gefur fyrirheit um vaxta-
lækkun á verðbréfamarkaði
Forráðamenn verðbréfafyrirtækj a telja hins-
vegar ekki horfar á að vextir muni lækka í
náinni framtíð heldur að þeir geti jafnvel
farið eitthvað upp á við á næstunni
Sala verðtryggðra spariskírteina í útboðum
Lánasýslu ríkisins frá sept. 1993
5 ára spariskírteini seldust síðast
í sept. ’94, þá með 5,00% ávöxtum.
Seldust aftur í gær með 5,73% ávöxtum.
10 ára spariskírteini seldust síðast
í júlí ’94, þá með 5,00% ávöxtum.
Seldust aftur í gær með 5,81 % ávöxtum.
S0NDJ FMAMJ J A S 0 N D J F M A
ÁTTTAKA í útboði spari-
skírteina hjá Lánasýslu
ríkisins í gær fór fram úr
björtustu vonum og voru
samþykkt tilboð lægri að meðaltali
en kauptilboð Seðlabankans í bréf í
sama flokki á Verðbréfaþingi.
Þannig bárust 49 gild tilboð að
fjárhæð 949 milljónir í útboðinu en
af þeim var tekið tilboðum að fjár-
hæð 611 milljónum frá 22 aðilum.
Meðalávöxtun samþykktra tilboða í
verðtryggð spariskírteini til 5 ára
var 5,73% og 5,81% í 10 ára bréf.
Tilboðin í 5 ára spariskírteini voru á
bilinu 5,69-5,75% og tilboðin í 10
ára skírteini voru á bilinu 5,80-
5,83%. Tvö tilboð bárust í Ecu-tengd
spariskirteini en tilskilin lágmarksíj-
árhæð náðist ekki.
„Ég er mjög ánægður með það
að frummarkaðurinn skuli taka við
sér með þessum hætti en hann hefur
legið niðri frá því í haust,“ segir
Friðrik Sophusson, ljármálaráð-
herra.
„Ávöxtunarkrafan sem þarna er
gerð er rétt innan við ávöxtunar-
kröfu á Verðbréfaþingi sem gefur
vonir til þess að þetta trufli ekki
eftirmarkaðinn og er um leið vís-
bending um það hvar vaxtajafnvæg-
ið er á markaðnum. Þetta gefur fyrir-
heit um það að vextir á verðbréfa-
markaði geti jafnvel lækkað á næst-
unni en það má ekki gleyma því að
mörg bréf frá opinberum og hálf
opinberum aðiium eru boðin með
hærri ávöxtunarkröfu.”
Ekki tilefni til hækkunar
bankavaxta
Friðrik viðurkenndi að þarna væri
um nokkra hækkun frá 5%-markinu
að ræða en í því sambandi yrði að
taka tillit til þess að vextir hefðu
verið að breytast í nágrannalöndum.
„Það er ekki lengur hægt að búast
við því að vaxtastig á íslandi sé langt
frá vaxtastigi á öðrum mörkuðum
eftir að íslenski markaðurinn opnað-
ist gagnvart útlöndum."
Varðandi vexti bankanna sagði
Friðrik að útboðið gæfi ekki tilefni
til hækkunar. „Það er enginn undir-
liggjandi þrýstingur á vextina og rík-
issjóður hefur heldur dælt peningum
inn í hagkerfið með erlendum lánum
en tekið peninga úr því. Ég minni á
að þegar vaxtalækkunin átti sér stað
haustið 1993 lækkuðu vextir bank-
anna ekki jafnmikið og þess vegna
þarf ekki að búast við að útboðið
hafi áhrif á bankavexti. Ef einhveij-
ar hugmyndir eru uppi um að hreyfa
við þeim þá liggja þar einhveijar
aðrar ástæður að baki.“
Varðandi framhald útboða á ríkis-
verðbréfum sagði ijármálaráðherra
að mikill áhugi væri fyrir því að
gefa út óverðtryggð bréf til lengri
tíma en áður. Eftir stjórnarskipti og
kjarasamninga þegar stöðugleiki er
framundan væru full rök fyrir því
að bjóða óverðtryggð bréf til tveggja
ára eða jafnvel lengri tíma.
Sveitarfélög og aðrir aðilar hafa
í auknum mæli sótt inn á innlenda
verðbréfamarkaðinn og var fjár-
málaráðherra spurður um viðhorf
sitt gagnvart þessari auknu sam-
keppni? „Það er alveg augljóst að
ríkið hefur á undanförnum misserum
fengið marga keppninauta sem sum-
ir hveijir starfa á ábyrgð ríkisins að
nokkru eða öllu leyti eða sveitarfé-
laganna. Þetta voru aðilar sem áður
annaðhvort tóku lán í bankakerfinu
eða erlendis. Það er út af fyrir sig
ekkert óeðlilegt að við slíkar aðstæð-
ur sæki ríkið frekar á erlenda lánsíj-
ármarkaði því þar er lánshæfni ríkis-
ins betri en annarra. Á sama tíma
hafa íslensk fyrirtæki og bankakerf-
ið verið að greiða niður skuldir sínar
erlendis. Þegar þessi breyting er
skoðuð mega menn ekki missa sjón-
ar á því sem skiptir öllu máli að
dregið hefur úr skuldum þjóðarinnar
erlendis sem sýnir að við erum á
réttri leið.“
í samræmi við
væntingar
Guðmundur Hauksson, fram-
kvæmdastjóri Kaupþings, segir að
útboð spariskírteina ríkissjóðs í gær
sé í samræmi við væntingar. „Það
var mun meiri þátttaka í útboðinu
en verið hefur um langt skeið. Ríkis-
sjóður tók tilboðum sem voru innan
þess ramma sem mátti iesa út úr
verðlagningu Seðlabankans á kaup-
og söiutilboðum og þess vegna gekk
þetta mjög eftir þeim væntingum
sem menn höfðu,“ segir hann.
Guðmundur segir að þau rök sem
Finnur Ingólfsson, viðskiptaráð-
herra, setti fram á ársfundi Seðla-
bankans á mánudag, því til stuðn-
ings að vextir í þjóðfélaginu gætu
lækkað í náinni framtíð, séu fullgild
varðandi vaxtaþróun til lengri tíma
enda séu þau háð því að ríkisstjórn-
inni takist að ná tökum á fjárlagahal-
lanum.
„Fjárfestar munu hins vegar ekki
horfa til þeirra hluta af neinni sann-
færingu strax þannig að það má allt
eins búast við því að vextir hreyfist
eitthvað upp á við á næstunni,“ sagði
Guðmundur. „Þeim hefur að hluta
til verið haldið niðri með markvissum
aðgerðum en eru nú komnir aðeins
af stað. Það er hins vegar ekkert í
augsýn sem bendir til þess að vextir
eigi eftir að hækka mikið hér og ég
er sannfærður um að stöðugleikinn
í vaxtamálum muni haldast," sagði
hann.
Verri lausafjárstaða hefur
áhrif til hækkunar
Guðmundur sagði að ástæðan fyr-
ir því að hann teldi að vextir kynnu
að hækka örlítið hérlendis á næst-
unni væri m.a. versnandi lausafjár-
staða bankanna frá því í fyrra. „Þá
höfðu bankar og sparisjóðir mun
meira fé til að ijárfesta en í dag,
lausafjárstaða þeirra hefur versnað.
Eins hefur komið fram að aðrir aðil-
ar en ríkissjóðir hafa af vaxandi
þunga sótt inn á markaðinn til að
afla sér fjár og það takmarkar auð-
vitað möguleika ríkissjóðs á að sækja
sér fé inn á þennan markað nema
■ Tuttugu og tveir
aðilar keyptu
spariskírteini fyrir
611 milljónir króna
og ávöxtunarkrafa
á 5 ára skírteinum
var 5,73% og á 10
ára skírteinum
5,81%.
■ Ekki lengur hægt
að búast vidað
vaxtastig á íslandi
sé langt frá vaxta-
stigi á mörkuðum
eriendis eftir að
markaðurinn opn-
aðist gagnvart út-
löndum.
ríkissjóður sé tilbúinn til að sætta
sig við hærri vexti.“
Guðmundur sagði að nú þegar það
væri komið fram að ríkissjóðir ætl-
aði sér að draga úr erlendum lántök-
um og hygðist leita eftir lántökum
á innlendum markaði setti sú vitn-
eskja ein og sér ákveðinn þrýsting
á vexti hér þegar til skemmri tíma
væri litið. Næði ríkisstjórnin hins
vegar því takmarki sínu að eyða fjár-
lagahallanum væri líklegt að vænt-
ingar um vaxtalækkun gengju eftir
og sagði hafið yfir vafa að ef sú
niðurstaða sem fékkst í kjarasamn-
ingum lægi ekki fyrir væru vextir
hærri nú. I kjölfar kjarasamninganna
hefðu vextir á óverðtryggðum
skammtímabréfum lækkað og þann-
ig hefði sýnt sig að markaðurinn
bregðist rétt við aðstæðum.
Seðlabanka skortir áhrif á
langtímamarkað
Guðmundur Hauksson sagði að
hafa yrði í huga að hérlendis þyrfti
að gera skýran greinarmun á vöxtum
verðtryggðra og óverðtryggðra
pappíra vegna verðtryggingar. Þótt
markaðirnir væru skyldir væri í raun
um tvo markaði að ræða. Erlendis,
þar sem langtímavextir séu ekki
verðtryggðir eins og hér, væri mun
beinni tenging milli skammtíma og
langtímavaxta og þar taki skamm-
tímavextir breytingum með tilliti til
þess hvernig menn telji að ríkis-
stjómum takist til við stjóm efna-
hagsmála til skamms tíma og þær
breytingar hafi jafnframt mikil áhrif
á langtímavexti. Hér séu langtíma-
vextir aftur á móti verðtryggðir og
tengist þar af leiðandi aðeins óbeint
því sem gerist á skammtímamark- -
aði. „Seðlabanki íslands þarf að hafa
aðstöðu til að hafa áhrif á vaxta-
myndun í báðum þessum geimm ef
hann á að hafa þau áhrif á ljár-
magnsmarkaðinn sem hann þyrfti
að geta haft,“ sagði Guðmundur
Hauksson.
Fullhá tilboð í 5 ára
spariskírteini
Gunnar Helgi Hálfdanarson, for-
stjóri Landsbréfa hf., segist telja að
Seðlabankinn hafi farið fullhátt í til-
boðum sínum í 5 ára spariskírteini.
„Áhuginn virðist vera mestur á 5
ára skírteinum því heildartilboð í þau
námu 689 milljónum. Þá virðast fjár-
festar hafa áttað sig á því að Lána-
sýslan taki tilboðum sem em nálægt
kauptilboðum Seðlabankans á Verð-
bréfaþingi.
Ég sé hins vegar ekki að vextir
húsbréfa og 10 ára spariskírteina
geti lækkað mikið alveg á næstunni.
Framundan er árstíðarbundin til-
hneiging til vaxtahækkunar og því
á ég alls ekki von á mikilli vaxta-
lækkun, allra síst á lengstu verðbréf-
unum.“
Aðspurður um yfírlýsingar Finns
Ingólfssonar viðskiptaráðherra á
ársfundi Seðlabankans að vextir í
þjóðfélaginu gætu lækkað í náinni
framtíð sagðist Gunnar Helgi því
sammála að raunvextir geti iækkað
þegar frá liði. Þetta væri þó háð því
að ríkisstjórnin næði markmiðum
sínum um jöfnuð í ríkisfjármálum
og almenn tiltrú myndi ríkja á efna-
hagsstefnunni. Skírskotanir ráðherr-
ans til þess að óvissu um launa- og
verðlagsþróun hafi verið eytt eigi
hins vegar fyrst og fremst við um
óverðtryggða vexti.
Gunnar Helgi kvaðst telja að þýð-
ingarmikil ástæða fyrir þeirri vaxta-
hækkun sem orðið hefði undanfarið
og ákvörðun Seðlabanka á föstudag
staðfesti, mætti að stórum hlutá
rekja til þess hve neikvæður fjár-
magnsjöfnuður hefði verið á síðasta
ári, eða sem nam 23 milljörðum
króna. Að þriðjungi skýrðist það með
kaupum íslendinga á erlendum verð-
bréfum en að 2A hlutum væri skýr-
ingin sú að innlendir aðilar hefðu
verið að greiða niður erlend lán með
lánsfé á innlendum markaði. Um-
ræða um þá staðreynd hefði borið
keim af því að verið væri að leita
sökudólga.
Gunnar Helgi kvaðst ekki líta á
sveitarfélögin hefðu gerst sek um
óábyrga fjármálastjórn þótt þau
hefðu kosið að laga samsetningu
sinnar ijármögnunar þegar tækifæri
gafst til að afla lánsfjár á boðlegum
kjörum á innlendum markaði.
Svigrúm til að greiða niður
A-flokka spariskírteina
Hins vegar kvaðst Gunnar Helgi
vilja benda á að einmitt þessi nei-
kvæði fjármagnsjöfnuður gæfi
stjórnvöldum tækifæri til að hafa
áhrif á vexti með því að nota eitt-
hvað af þvf svigrúmi sem skapaðist
til að afla erlendra lána og greiða
niður A-flokka spariskírteina sem
beri 8-9% vexti en þar séu nú úti-
standandi 19 milljarðar króna.
„Meðan ríkissjóður hefur á mark-
aðinum spariskírteini með 8-9%
vöxtum er hann að gefa þau skilaboð
að þeir hafi ekki trú á eigin vaxta-
stefnu. Ég tel að að þarna ætti að
vera svigrúm til að hafa mjög ákveð-
in áhrif á vaxtastig og hreyfa vext-
ina eitthvað niður.“