Morgunblaðið - 27.04.1995, Qupperneq 40
40 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TEL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Síinbréf 569 1329
Grettir
I
HUN UTUZEKe/
sem veesrúr
v ftUÐVTTAS?
/HÆrri HON
HAFAPAUT/ð
FLEIU VÖfiTVZ-
■Ní--—
É6EE HíÆDdT
OZm AÐþA B
þUEF/ ME/RA
711 EN VÖRTVE-J
Y~----"
Baráttan um
Mj ólkursamlagið
Frá Sigurbjörgu Viggósdóttur:
ÉG vil í upphafi, fyrir hönd okkar
allra starfsmanna Mjólkursam-
lagsins í Borgarnesi, þakka þeim
fjölmörgu hér-
aðsbúum og
öðrum, sem
studdu okkur í
mótmælagöngu
okkar gegn úr-
eldingu Mjólk-
ursamlagsins.
Bæði þeim sem
gengu með okk-
ur og einnig
þeim Ijölmörgu
sem hringdu í okkur eða sendu
skeyti með stuðningsyfirlýsingum
og baráttukveðjum.
Þetta er
afgreitt mál!
Svo segir Þórir Páll Guðjónsson
kaupfélagsstjóri. Ég er á annarri
skoðun. A meðan landbúnaðarráð-
herra hefur ekki afgreitt málið þá
er enn nokkur von um að hægt
sé að snúa við. Við megum ekki
missa mjólkurvinnsluna og þau
störf sem fylgja í kjölfar hennar
hér í þessu blómlega landbúnaðar-
héraði.
Hræðslufundurinn
Það hefur sá fundur verið kall-
aður, sem haldinn var í nóvember
sl. með fulltrúum af aðalfundi
kaupfélagsins. Þar var haldið uppi
svo skefjalausum áróðri, af stjórn
endurskoðenda, formanni sam-
lagsráðs, og fleirum, svo að fólk
gegnt vilja sínum þorði ekki annað
en greiða atkvæði með því að
kaupfélagið fengi heimild til að
semja við Mjólkursamsöluna með
úreldingu samlagsins í huga.
Landbúnaðarráðherra
Hann stöðvaði málið með því
að neita að skrifa undir, meðan
ekki væri úr því skorið hveijir
væru raunverulega eigendur
Mjólkursamlaganna og Mjókurs-
amsölunnar. Vonandi verður á ein-
hvernt hátt hægt að skera úr því
deilumáli, og það sem fyrst. Þá
væri hægt að koma öllum þessum
málum á hreint og finna bestu
leiðina til hagræðingar í mjólkur-
iðnaðinum. Eg tel að það sé alls
ekki besta leiðin, að leggja niður
Mjólkursamlagið Borgarnesi, sem
er það nýjasta á landinu.
Stjórn er féll!
Á nýafstöðnum aðalfundi gerð-
ist það, að einungis 2 af 7 stjórnar-
mönnum náðu endurkosningu. Það
var kosin ný 5 manna stjórn, í
stað 7 áður. Formaður fráfarandi
stjórnar fékk aðeins örfá at-
kvæði, en sá maður sem best
hefur unnið að hagsmunum
Mjólkursamlagsins fékk flest at-
kvæði. Segir þetta sína sögu um
breytt viðhorf fulltrúanna á aðal-
fundi. Að lokum vil ég ítreka þá
ósk mína, að farsæl lausn finnist
á þessu máli sem fyrst, þar sem
þetta er algerlega óviðunandi
ástand fyrir alla aðila.
SIGURBJÖRG VIGGÓSDÓTTIR,
Rauðanesi III,
Borgarhreppi
Sigurbjörg
Viggósdóttir
Hann var ekki
Ferdinand
Segðu sætakrúttinu mínu, að ég Segðu henni að ég sé ekki Hvað veit hann?
færi honum Valentínusarkort... sætakrúttið hennar!
einn til frásagnar
Frá Leó M. Jónssyni:
í GREIN Þorleifs Friðrikssonar
„Hin kynhreina grimmd“, í Mbl.
súnnudaginn 23. apríl sl., segir
m.a. á eftir millifyrirsögninni:
„Hann lifði af en ...“: „Leif MiiII-
er iifði af, já, en hann kostaði
miklu til. Hann var einn íslendinga
til frásagnar um vistina í fanga-
búðum nasista . . . (leturbreyting
mín). Hér hefur sagnfræðingnum
sést yfir bók Baldurs heitins
Bjarnasonar magisters og sagn-
fræðings, „í Grini-fangelsi“. Bald-
ur segir þar frá fangavist sinni
hjá þýska hernámsliðinu (nasist-
um) í Ósló. Leif Múller var sjálfur
í Grini-fangelsi áður en_ hann var
sendur til Þýskalands. Á bls. 50 í
hinni áhrifamiklu bók Garðars
Sverrissonar, „Býr íslendingur
hér“ minnist Leif einmitt á að
Baldur Bjarnason hafi verið einn
þeirra íslendinga í Ósló, sem sáu
ekki ástæðu til að forða sér yfir
til Petsamo (til að fara með Esj-
unni heim) eða Svíþjóðar haustið
1940 en þá um vorið höfðu Þjóð-
veijar hertekið Noreg. Á bls.
210-211 í bók Garðars er opnu-
mynd af grein úr Morgunblaðinu
10. júlí 1945 þar sem Leif Múller
segir m.a. frá því að þeir hafi ver-
ið samtímis fangar nasista í Grini,
hann og Baldur Bjarnason. Las
Þorleifur Friðriksson sagnfræð-
ingur ekki alla kafla bókarinnar,
„Býr íslendingur hér“ áður en
hann skrifaði greinina í Morgun-
blaðið?
’ LEÓ M. JÓNSSON,
tæknifræðingur,
Höfnum.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.