Morgunblaðið - 27.04.1995, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995 41
Sögufölsun
Frá Ólafi Hannessyni:
SAGT er, að sigurvegarar skrái
mannkynssöguna. Það kom eftir-
minnilega í ljós á dögum Stalíns, þar
sem heilu blaðsíðumar voru teknar
og umskrifaðar í þágu flokksins.
Þetta hefur Steinunn Sigurðardóttir
eflaust haft í huga, þegar hún samdi
textann við myndina um Vigdísi for-
seta sem sýnd var í Sjónvarpinu á
annan í páskum.
1. sögnfölsun
Steinunn segir í myndinni, að
kosningabaráttan þegar Vigdís var
kosin forseti í fyrsta sinn árið 1980
hafi verið óvægin og sérstaklega í
garð Vigdísar.
Þetta er ekki'rétt. Mótframbjóð-
endur Vigdísar voru allir sannir heið-
ursmenn, sem gerðu ekkert á hluta
Vigdísar og létu hana njóta sín til
fulis. Allir .stjórnmálaflokkar, sem þá
vora starfandi, 'iýstu yfir fullu hlut-
leysi í forsetakosningunum og stóðu
við það nema Alþýðubandalagið, sem
lét birta skrípamyndir, aulafyndni og
óhróður í Þjóðviljanum um alla fram-
bjóðenduma nema Vigdísi og sérstak-
lega var þeim uppsigað við Albert.
2. sögufölsun
Steinunn segir að þeir sem voru
hlynntir hemum eftir kalda stríðið
hafi verið andvígir Vigdísi, en síðan
hafi andstaða þeirra fjarað út. Þetta
er ósatt að mörgu leyti. Þeir sem
kusu Vigdísi gerðu það vegna mann-
kosta hennar og glæsileika. Þeir sem
Steinunn kallar „hlynnta hemum“
vora forystumenn þjóðarinnar sem
voru hlynntir sjálfstæði þjóðarinnar
og björgðuðu henni á ögurstund und-
an jámhæl kommúnismans.
Eftir stofnun Atlantshafsbanda-
lagsins 4. apríl 1949 fór ekki fer-
metri lands undir yfirráð kommanna
og þeir sem réðust á Alþingi 30.
mars 1949 til að koma í veg fyrir
stofnun NATO og kölluðu þá Islend-
inga sem vora á annarri skoðun
landráðamenn, bandaríkjaleppa,
hvítliða o.fl. verða nú að sæta því
að þeir vora sjálfir landráðamenn i
þágu austræns ofbeldis og sagan
hefur þegar dæmt þá ómerka.
3. sögufölsun
Steinunn segir að stofnun Kvenna-
listans hafi verið eðlilegt framhald
af sigri Vigdísar og sigur R-listans
í Reykjavík hafí verið óhugsandi án
kosningasigurs Vigdísar. Með þess-
ari sögufölsun bítur Steinunn höfuð-
ið af skömminni. Það er ekki nóg
að þurfa að sitja uppi með R-listann
í fjögur ár heldur er þetta allt Vig-
dísi forseta að þakka eða kenna.
Nú vakna ýmsar spurningar.
Hafí Steinunn misnotað sér trúnað
og góðvild forsetans er hún í vondum
málum. Mér er spurn: Hefur Sjón-
varpið engan prófarkalesara á sínum
snæram? Maður efast reyndar um
það eftir síðasta áramótaskaup.
ÓLAFUR H. HANNESSON,
prentari,
Snælandi 4.
Beocom
BEOCOM 9500
Beocom frá Bang & Olufsen.
Úrvals hönnun og gæði.
Beocom vegur aðeins um 225 gr og
hentar því einstaklega vel í vasa og veski.
Síminn er einfaldur í notkun og með
10 númera endurvalsminni.
Hleðsluspennir fyrir rafhlöður og
íslenskar leiðbeiningar fylgja.
69.980-&)
73.663
POSTUR OG SIMI
Söiudei o i'-rru'e 27, simi 550 66S0
Sö:udeiic Kringiunni, simi 550 56S0
Sökideíid Kirkjustræti, sími 550 6670
2Q é póst- oq s’.mstöðvum um tand aiít
‘Afborgunarverð
' Apple-umboðið hf. Skiphohi 21, Reykjavík Sírni: 562 4800 Fax: 562 48$
Kynningar á Ashlar Yellum daglega frá 15 -17, laugardag 1Ö -14
\ M
Kynningar á MiniCad daglega frá 16-18, laugardag 12 -14
Kíktu inn - vi