Morgunblaðið - 27.04.1995, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Nýr
greiðsluseðill
frá
Tryggingastofnun
Greiðsluseðlar frá
Tryggingastofnun ríkisins taka
nokkrum breytingum nú um
mánaðamótin. Á nýju seðlunum
eru sundurliðaðar upplýsingar um
greiðslur frá stofnuninni.
Viðtakendum er bent á að kynna
sér leiðbeiningar, sem þeim fylgja.
Nýtt og öflugt tölvukerfi, sem
Tryggingastofnun hefur tekið í
notkun, hefur gert okkur kleift að
veita viðskiptavinum nákvæmari
upplýsingar á nýjum
greiðsluseðlum. Þegar svo
viðamikið kerfi er gangsett, má
alltaf búast við einhverjum
frávikum í útreikningi.
Viðskiptavinir Tryggingastofnunar
eru því hvattir til að skoða
greiðsluseðilinn vandlega og
ganga úr skugga um að greiðslur
séu réttar.
Komið hefur verið á sérstökum
þjónustusíma fyrir viðskiptavini
vegna nýja tölvukerfisins.
Starfsmenn Tryggingastofnunar
leggja áherslu á að leysa fljótt og
örugglega öll vandamál, sem upp
kunna að koma.
Vinsamlega hafið samband ef þið
hafið athugasemdir eða óskið
eftir frekari upplýsingum.
TRYGGINGASTOFNUN
RÍKISINS
Þjónustusími 560-4-560
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Skór fundust
FALLEGIR kvenskór, lítt
gengnir, fundust sl. laug-
ardag á Einimel í Reykja-
vík. Uppl. eftir vinnu gefur
Laufey í síma 24977.
Stórt sjal tapaðist
RAUÐKÖFLÓTT mjög
stórt sjal tapaðist aðfara-
'nótt skírdags, sennilega á
Hverfisgötu eða í leigubíl.
Skilvís fmnandi vinsam-
lega hafi samband í síma
644608.
fallegur og íjörugur, hefur
verið í óskilum síðan á mið-
vikudag fyrir páska. Hann
er ómerktur með öllu og
eigandinn getur vitjað hans
í Kattholti í síma 672909.
Kettlinga vantar
heimili
ÁTTA vikna, kassavanir
og mannelskir kettlingar
þurfa að eignast góð heim-
ili. Þeir eru svartir og hvít-
ir og upplýsingar eru gefn-
ar í síma 37151.
Vorið er
komið
BORGARBÚI skrifar:
„Allir eru fegnir vor-
komunni enda flestir orðnir
þreyttir á ófærð og snjó-
komu. En vorinu fylgir
vandi fyrir borgarbúa. Göt-
urnar eru þaktar sandi og
möl, sem borið hefur verið
á í hálkunni í vetur. Verst-
ar eru gangstéttir, því úr
klakanum losnar alls kyns
drasl, plastpokar, sælgæt-
isbréf o.fl.
Það segir sig sjálft að
mikið starf er að hreinsa
allar þessar götur og gang-
stéttir og vinna bæjar-
starfsmenn þetta eftir getu
og hafa véltækni sér til
hjálpar.
En nú er þörf á að borg-
arbúar taki sjálfir þátt i
hreinsuninni og hver sópi
fyrir sínu húsi. Ég gat ekki
annað en dáðst að því er
nágranni minn fór nýlega
með sóp og fötu og hreins-
aði lóðina og gangstéttina
fyrir framan húsið sitt.
Hann lét sand og möl í
smáhaug við götubrúnina
og sagði mér að borgar-
starfsmenn sópuðu þessu
upp í vél sína.
Hvernig væri að aðrir
tækju hann til fyrirmynd-
ar. Geri nú hver hreint fyr-
ir sínum dyrum. Það er
okkur öllum til sóma, og
við gleðjumst enn meira
yfir vorkomunni í hreinu
og þokkalegu umhverfi."
Tapað/fundið
Hjól tapaðist
BLÁTT Trek-karlmannshjól
hvarf við Valhúsaskóla sl.
þriðjudagsmorgun.
Silfurlitað límband er á
handföngum. Geti einhver
gefið upplýsingar um hjólið
vinsamlega hafi hann
samband í síma 691324
eða í síma 683836.
Gæludýr
Ronja og Birta
ERU átta vikna kassavanir
kettlingar og þeim sárvant-
ar að komast á góð heim-
ili. Eru kattavinir beðnir
að hringja í síma 627510.
Köttur í óskilum
KOLSVARTUR hálfstálp-
aður kettlingur, sem er
Páfagaukur í
óskilum
UM HÁDEGI á laugardag
var hvítur páfagaukur fyrir
utan stofuglugga í Rjúpu-
felli og var tekinn inn og
að honum hlúð og er hann
þar í góðu yfirlæti en sakn-
ar eiganda síns. Eigandinn
vinsamlega hringi í síma
74893 eftir kl. 18.
Farsi
SKÁK
Umsjön Margcir
Pctursson
HELGI Áss Grétarsson,
heimsmeistari unglinga 20
ára og yngri, tefldi
blindskák við Gary §
Kasparov, PCA heims-
meistara, þegar hann ?
var hér á ferð um dag-
inn. Skákin var svo 5
sýnd í ríkissjónvarpinu 5
á annan páskadag og
lauk með því að Helgi *
Áss féll á^tíma í betri
stöðu.
Hann æfði sig vel:
fyrir blindskákina,
tefldi m.a. ijöltefli við '
nokkra efnilega ungl-
inga í skákskóla Islands.
Þessi staða kom upp í blind-
skákaíjölteflinu. Helgi Áss
(2.450) hafði hvítt og átti
leik, en Janus Ragnarsson
(1.515) var með svart.
Sjá stöðumynd
35. Bxg5! — hxg5 36.
Hxg5 - Rf7 37. Hxg7+!
- Kxg7 38. Dg6+ - Kf8
39. Hh7 - Dc8 40. Dg7+
— Ke8 41. Dxf7+ og svart-
ur gafst upp því mátið blas-
ir við.
Víkveiji skrifar...
NOKKUÐ bar á því fyrir kosn-
ingar að ráðherrar boðuðu
fjölmiðla á sinn fund til þess að
tilkynna um nýjungar, s.s. fækkun
símsvæða ellegar til að taka skóflu-
stungur að nýjum byggingum.
Þetta gerist fyrir allar kosningar
og er Jíklega séríslenzkt fyrir-
brigði. Ómögulegt er að vita hvort
þetta er vænleg aðferð til akvæða-
veiða en altént náðu allir ráðherrar
síðustu ríkisstjórnar endurkjöri á
þing, þótt sumir héldu ekki ráðher-
rastólunum.
Mesta athygli Víkveija vakti
frétt í Morgunblaðinu nokkru fyrir
kosningar um að Sighvatur Björg-
vinsson þáverandi heilbrigðisráð-
herra hefði tekið skóflustungu að
nýrri heilsugæslustöð við Smára-
hvamm í Kópavogi. Daginn áður
hafði nefnilega birst auglýsing frá
Ríkiskaupum um útboð á þessari
sömu heilslugæslustöð og þar kom
fram að tilboðin átti að opna 9.
maí eða meira en mánuði eftir
skóflustunguna!
Ekki veit Víkverji hvernig for-
ystumenn í Kópavogi bjarga
málunum. Kannski geyma þeir hol-
una og uppgröft ráðherrans undir
gleri þar til framkvæmdir hefjast
eða þá að þeir fá hinn nýja heil-
brigðisráðherra Ingibjörgu Pálma-
dóttur til að taka nýja skófl-
ustungu.
FYRIR nokkru var Víkveiji að
blaða í fundargerðum bæjar-
stjórnar Hafnarfjarðar. Þar rakst
hann á athyglisverðar umræður um
fjármál íþróttafélaganna í bænum
en þær voru tilkomnar vegna beiðni
íþróttafélags um fjárstuðning
vegna mikils taps sem varð á
rekstri knattspyrnudeildar félags-
ins í fyrra.
Af þessu tilefni lét einn bæjar-
fulltrúinn bóka að hann vildi að
þessi mál yrðu skoðuð sérstaklega
og settar um þau ákveðnar reglur.
Bæjarfulltrúinn kvaðst alls ekki
andvígur stuðningi við íþróttafélög-
in en það gæti ekki gengið að ein-
hveijar íþróttadeildar úti í bæ væru
að stofna til hárra skulda og kæmu
síðan með reikninginn til hafnfir-
skra skattgreiðenda.
Þarna er hreyft athyglisverðu
máli, sem vafalaust á eftir að verða
mikið í umræðunni á næstunni.
Undanfarin ár hafa íþróttafélög
steypt sér í stórkostlegar skuldir
með leikmannakaupum og óhófleg-
um launagreiðslum til íþrótta-
manna. Stundum gerist það svo að
forystumenn deildanna hlaupa frá
öllu saman svo ekkert blasir við
nema hrun nema viðkomandi sveit-
arfélag hlaupi undir bagga. Deild-
irnar standa eftir rústir einar og
nýir menn fást ekki til að taka við
nema byija á núlli.
Afturelding í Mosfellsbæ, sem
nær eingöngu teflir fram aðkeyptu
handknattleiksliði, reyndi á dögun-
um að kaupa landsliðsmanninn
Ólaf Stefánsson frá Val. Það tókst
ekki en Valur varð að bjóða leik-
manninum gull og græna skóga til
að halda honum. Hins vegar tókst
Aftureldingu að ná öðrum landsl-
iðsmanni til sín, Bjarka Sigurðssyni
frá Víkingi. Ekki er Víkveiji að
halda því fram að þessi leikmanna-
kaup séu fjármögnuð af bæjarfé-
Iaginu en fróðlegt væri -að heyra
hve mikill stykur þess við Aftureld-
ingu er á ári hveiju í samanburði
við þann styrk sem t.d. Reykjavík-
urborg veitir félögum í höfuðborg-
inni.
xxx
LESANDI hringdi í Víkveija og
kvaðst mjög óhress með það
að viðskiptavinir Fríhafnarinnar á
Keflavíkurflugvelli þyrftu að taka
við vörum í innkaupapokum merkt-
um sígarettutegundinni Camel.
Þessi lesandi sagðist hafa fengið
heiðgulan poka merktan Camel og
þar sem hann væri mjög á móti
reykingum, hefði hann óskað eftir
venjulegum poka, ómerktum, en
slíkir pokar hefðu verið ófáanlegir.
Víkveiji er sammála lesanda blaðs-
ins um að svona nokkuð gangi ekki.