Morgunblaðið - 27.04.1995, Blaðsíða 52
HEWLETT PACKARD
Ihel
hpA Islandi hf Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 Frá möguleika tll veruleika
MORGUNBLAÐIÐ, KRINCLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 669 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<S>CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 86
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Slitnar upp úr viðræðum Islendinga og Norðmanna um Smugudeiluna
Nokkur árangur en mik-
ið ber á milli um kvóta
Þarf að láta reyna á Svalbarðamálið
fyrir dómstólum, segir Davíð
Oddsson forsætisráðherra
FUNDI Noregs, Rússlands og ís-
lands um þorskveiðar íslenzkra
skipa í Smugunni í Barentshafi var
slitið síðdegis í gær án árangurs.
Norðmenn og Rússar buðu íslend-
ingum aflaheimildir á fundinum, en
langt var á milli hugmynda ríkjanna
í því efni og slitnaði upp úr viðræð-
unum. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins buðu Rússar og
Norðmenn mun minni kvóta en
þeir höfðu fyrir skömmu gefið í
skyn að gæti staðið til boða. Tölur
í kringum 10.000 tonn af þorski
munu hafa verið nefndar af þeirra
hálfu. Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra segir að árangur hafí
hins vegar náðst varðandi önnur
atriði.
Frekari viðræður voru ekki
ákveðnar um Smuguna, en í dag
hefst fundur um stjómun á síldar-
stofninum á alþjóðlega hafsvæðinu,
sem nefnt er Síldarsmugan.
Að sögn Helga Ágústssonar, for-
-manns íslenzku samninganefndar-
innar í Ósló, var á viðræðufundinum
rætt um kvótaskiptingu og þann
grundvöll, sem samningur milli ríkj-
anna gæti byggzt á. Hins vegar
hefði mikið borið^ á milli ríkjanna
um aflahlutdeild íslendinga í Bar-
entshafi.
Mikil vonbrigði
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þessi niðurstaða væri
mikil vonbrigði. „Við vitum ekki
hvenær hægt verður að halda þess-
um samningaumleitunum áfram.
Enn á ný hefur skapazt mikil óvissa
í málinu og það er mjög slæmt. Ég
hafði gert mér vonir um að málið
þokaðist í rétta átt á þessum fund-
um,“ sagði Halldór. Hann sagði þó
að þrátt fyrir allt hefði málið skýrzt
og ákveðin atriði, til dæmis varð-
andi tilhögun og stjóm veiðanna,
þokazt áfram.
Utanríkisráðherra sagði að þótt
samningafundur íslands, Rúss-
lands, Noregs og Færeyja um sfld-
veiðar væri enn á dagskrá, óttaðist
hann að lyktir fundarins ígær hefðu
áhrif á þær viðræður. Norðmenn
höfðu geflð í skyn að árangur á
Sjómenn
slösuðust
TVEIR sjómenn á bátum frá
Ólafsvík slösuðust í gærmorg-
un þegar bátamir vom að
hefja veiðar og þurfti í báðum
tilfellum að flytja hina slösuðu
í land.
Skipveiji á Erlingi KE slas-
aðist á hendi með þeim afleið-
ingum að hann missti framan
af fingri og var farið með
hann til Ólafsvíkur. Skipveiji
á Fagrasvan SH slasaðist
einnig á hendi en meiðsli hans
voru ekki jafn alvarleg og var
siglt með hann til Stykkis-
hólms.
Að sögn lögreglunnar í Ól-
afsvík var bræla á miðunum
þegar mennimir slösuðust.
Smugufundinum gæti liðkað fyrir
samkomulagi um sfldveiðamar.
Svalbarðamálið
fyrir dómstóla
Davíð Oddsson forsætisráðherra
tók undir það að niðurstaðan væri
vonbrigði. „Þetta kemur okkur á
óvart, miðað við þær væntingar,
SAMNINGAR í kjaradeilu Flug-
freyjufélags íslands og Flugleiða
tókust upp úr miðnætti í nótt þegar
samningafundur hafði staðið í 31
klukkustund eftir að báðir aðilar
höfðu samþykkt innanhússtillögu
sem ríkissáttasemjari lagði fram til
samþykktar eða synjunar í gær-
kvöldi, en frestur til að samþykkja
tillöguna var til miðnættis. Fjögurra
daga boðuðu verkfalli flugfreyja í
næstu viku hefur verið frestað, en
atkvæði verða greidd um samning-
inn á félagsfundi flugfreyja í dag,
sem boðaður hafði verið vegna
verkfallsins.
Samningurinn felur í sér að allir
taxtar flugfreyja hækka um 3.500
krónur frá undirritun samninga. í
því efni er miðað við 3,3% hækkun
launa og því jafnað út með krónu-
sem menn höfðu ástæðu til að
hafa,“ sagði Davíð.
Aðspurður hvað gerðist næst af
hálfu Islendinga sagði Davíð að við-
ræðum hefði ekki verið slitið, en
hins vegar hefði framhaldið heldur
ekki verið ákveðið, þannig að eitt-
hvað yrði að gerast til að koma
viðræðum á rekspöl að nýju. Hann
töluhækkun. Öll laun hækka síðan
um 3% frá næstu áramótum, eins
og almennt er kveðið á um í kjara-
samningum.
Hagræðing eykur
lífeyrisrétt
Að auki fela samningarnir í sér
að hagræðingu vegna aukinna
starfa flugfreyja er varið til þess
að auka lífeyrisrétt þeirra. Greiðsl-
umar jafngilda um 2,7% af föstum
launum flugfreyja að meðaltali og
leggjast inn á séreignareikning
hvers og eins starfsmanns. Greiðsi-
umar eru hins vegar mismunandi
háar eftir aldri starfsmanna til þess
að jafna réttindin. Þannig er greitt
1,7% af föstum launum flugfreyja
með stystan starfsaldur og allt upp
í 5,6% af launum þeirra sem lengst-
sagðist ekki búast við að haft yrði
pólitískt samband milli ríkisstjóma
Islands og Noregs í því skyni. Skoða
þyrfti hvaða árangur næðist í við-
ræðunum um síldveiðar, sem hæf-
ust í dag. „Það er ljóst að við þurf-
um að láta á það reyna hver staða
Norðmanna er í Svalbarðamálinu
fyrir alþjóðlegum dómstólum,"
sagði Davíð jafnframt.
Ingvard Havnen, talsmaður
norska utanríkisráðuneytisins, vildi
ekki tjá sig um lyktir fundarins í
Ósló í samtali við Morgunblaðið.
an hafa starfsaldurinn, en greiðsl-
umar falla niður við 63 ára aldur.
Erla Hatlemark, formaður Flug-
freyjufélagsins, sagði eftir að samn-
ingar höfðu verið undirritaðir að
hún væri ekki ánægð með niður-
stöðuna, en það hefði verið mat
samninganefndarinnar að ekki
hefði verið hægt að ná lengra án
verkfalls og það hefðu þau viljað
forðast.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands Islands, sagði að niðurstaðan
væri ásættanleg fyrir Flugleiðir þar
sem kjarasamningurinn fæli ekki í
sér meiri launakostnaðarauka en
aðrir kjarasamningar sem gerðir
hefðu verið í vetur. Það sem til við-
bótar kæmi væri ávöxtur hagræð-
ingar vegna aukinna starfa-flug-
Bíllausir
dagar í
Hveragerði
Hveragerði. Morgunblaðið.
IBUÁR í Hveragerði hvíla nú
heimUisbQinn sem kostur er og
fara flestra sinna ferða gang-
andi.
Á vegum verkefnis um heilsu-
eflingu var ákveðið að í H-
bæjunum svokölluðu yrði stuðl-
að að samstöðu íbúanna um bíl-
lausa daga í vor. Tilgangurinn
er sá að hvetja tU aukinnar
hreyfingar og þá um leið að
bæta heUsu fólks. H-bæirnir eru
Hveragerði, Höfn, Húsavík og
Hafnarfjörður. Það eru Hver-
gerðingarnir sem riða á vaðið.
Bílastæði við vinnustaði eru
hálftóm og það örlar jafnvel á
því að þeir sem keyra þessa
dagana séu litnir hornauga.
freyja sem skipt væri á milli félags-
ins og flugfreyja.
Bókanir tapast
Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, segir að verkfallsboðun
Flugfreyjufélagsins hafí valdið tölu-
verðum óróa á ferðamarkaði hér
heima og erlendis og komið niður
á bókunum. Þá hafi hún valdið
óvissu um ferðir gesta á Heims-
meistarakeppnina í handbolta og
þar með framkvæmd mótsins. Sagði
Einar að Flugleiðir myndu nú kosta
kapps um að draga úr þeim skaða
sem verkfallsboðun flugfreyja hefur
valdið á ferðamarkaði ytra, en þeg-
ar væri ljóst að töluvert af bókunum
hefðu tapast vegna verkfallsboðun-
arinnar.
Samið í kjaradeilu flugfreyja í nótt eftir 31 klukkustundar samningafund
Morgunblaðið/Þorkell
SAMNINGAR voru undirritaðir eftir miðnætti í nótt eftir að innanhússtillaga ríkissáttasemjara hafði verið samþykkt. Frá vinstri: Erla
Hatlemark, formaður Flugfreyjufélagsins, Þórir Einarsson, ríkissáttasemjari, og Björn Theodórsson, framkvæmdasljóri hjá Flugleiðum.
Sáttatíllaga var samþykkt
o g vinnustöðvim frestað