Morgunblaðið - 28.04.1995, Síða 1

Morgunblaðið - 28.04.1995, Síða 1
 Hvers vegna byrja unglingarnir að reykja REYKSKÝ af völdum tóbaks ættu víða að þynnast fimmtudaginn 4. maí. Tóbaksvarnanefnd hefur ákveðið að sá dagur verði reyklaus og núna helgaður spurningunni hvers vegna unglingar byiji að reykja. Allir unglingar 15 til 18 ára eiga að fá blaðið Skýlaust sem Tóbaksvarnanefnd og Krabba- meinsfélagið gefa út. Þar eru upplýsingar um skað- semi reykinga, viðtöl og ráð til þess að hætta að reykja. „Reyk- laus á tíu' dögum“ segir á baksíðu og fylgja hagnýt og einföld atriði til _að hætta reykingum. í apótekum og hjá Krabba- meinsfélaginu fæst ókeypis smárit „Ekki fórn - heldur frelsun" með fróðleik um reykingar og leiðbein- ingar til að láta af þeim. í ritinu eru kaflar um undirbúning þess að hætta reykingum, sjálfskönnun og ábendingar og ráð um fyrstu 14 dagana eftir að drepið er í. Reyklausi dagurinn er haldinn árlega til að hvetja fólk til að láta af tóbaksnotkun. Ljósinu er nú beint að unglingum, enda hefur aukning aftur orðið á reykingum í aldurshópnum 15-16 ára. í bréfi Tóbaksvarnanefndar til fjölmiðla er bent á tískuna, sem virðist kalla á auknar reykingar, og jafnframt sag^ að notkun svokallaðs snuffs fyrir nef og munn hafi aukist. Það leiði oftar en ekki til reykinga. Þá segir að sígarettuauglýsing- ar í erlendum blöðum og bíómynd- um virðist skila sér, þótt óheimilt sé að auglýsa tóbak hér. Auk þess virðist banni við sölu tóbaks til yngri en 16 ára ekki vera fram- fylgt. Fvrirmyndir skipti miklu og fullorðnir ættu að láta tóbak vera í návist unglinga og barna. ■ pltrgitwMííblíí FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1995 B SKÝLAUSAR skoðanir ungs fólks á skaðsemi og tilgangs- leysi reykinga koma fram í blaði sem allir 15-18 ára eiga að fá núna í tilefni reyklausa dagsins. BIÐRAÐIR verða Iíklegra styttri í Leifsstöð í framtíðinni. Innritun í flug í gegnum síma N aflaskoðun á norrænni ráðstefnu VIÐHORF karla til húsverka, ólétti pabb- inn, árásarhvöt, styijaldir, kynvald karl- mannsins og hugmyndaflug skynseminnar. ■JP Þetta eru yfirskriftir á nokkrum ■gp þeirra fjölmörgu málstofa sem eru í gangi á tveggja daga karlaráðstefnu í Stokkhólmi sem lýkur síðdegis í dag, föstudag. "2 Á fjórða tug íslenskra karlmanna ■5 og nokkrar íslenskar konur sitja ráð- ^ stefnuna og það er athyglisvert hversu mmm íslenski aldurshópurinn er breiður, tví- tugir menn og karlar langt fram á sjötugsald- ur lögðu leið sína til Stokk-hólms. ís- lensku þátttakendumir eru ^ hlutfalls- lega margir en nálægt _ 500 norrænir karlmenn sitja ráðstefnuna, Finnar eru til dæmis færri en íslendingar en Svíar í miklum meirihluta. Spurningar fleiri en svörin Sænski varaforsætis- og jafnréttisráðherr- ann Mona Sahlin, sem setti ráðstefnuna, sagði í ávarp sínu að í jafnréttisbaráttunni mætti ekki gleymast að fyrst og fremst værum við öll manneskjur svo kæmi kynið. Hún talaði um hversu mikilvægt væri að karlmenn héldu sérkennum sínum og reyndu ekki að líkjast konum og öfugt. Það eru margar spumingar sem norrænir karlmenn spyija sig hér á ráðstefnunni, hvernig em norrænir karlmenn, hvar standa þeir, hvemig vilja þeir að framtíðin sé, hveij- ar eru þeirra óskir og kröfur í jafnréttisbar- áttunni, hvernig geta norrænir karlmenn átt þátt í að skapa betra þjóðfélag og eins og finnski sjónvarpsmaðurinn og ráðstefnustjór- inn Stefan Randstrom sagði: „Við fáum hér einstakt tækifæri til að setjast niður og skipt- ast á skoðunum og svara því hversvegna spumingamar sem við höfum em miklu fleiri en _svörin.“ íslenskir fyrirlesarar era 3, i gær talaði Ástþór Ragnarsson um hagi karla á Norð- urlöndum og sr. Bragi Skúlason um það þegar strákar verða menn. Einar Kárason rithöfundur las úr verkum sínum í skemmti- dagskrá í gærkvöldi og í dag er Margrét Pála Ólafsdóttir með erindi um stráka á dagvistarstofnunum. FARÞEGAR Flugleiða í millilandaflugi geta nú innritað sig í flug í gegnum síma, allt að 23 klukkustundum fyrir brottför. „Um miðjan maí verður bætt við þessa þjónustu og þá verður hægt að innrita sig á Scandic-hótelunum í Reykjavík,“ segir Gunnar Olsen forstöðumaður stöðvareksturs Flugleiða. „Á Scandic-Hótel Loftieiðum verður innritun við afgreiðsluborð Kynnisferða frá kl. 18-22 fyrir flug næsta dag. Á Scandic-Hótel Esju verður innritun í gestamóttöku hót- elsins á sama tíma. Þangað mætir fólk án farangurs, með farseðla sí- na og fær brottfararspjöld með sætisnúmeri. Gefa þarf upp hversu margar ferðatöskur verða meðferðis og fær far- þegi jafnmarka töskumiða, sem hann festir sjálfur á töskur sínar. Breyttur mætingatími Á háannatíma, í júní, júlí og ágúst verður mætingatími fyrir flug færður fram um 15 mínútur. Rútur fara frá Kynnisferðum 2 klst. og 15 mínútum fyrir brottför vélar og mæting í flugstöð verður 75 mínútum fyrir Mun hraðari afgreiðsia Fastlega má gera ráð f fyrir að afgreiðsla verði mun hraðari, hjá þeim sem nýta sér símainnrit- un og enn hraðari hjá þeim sem innrita sig á hót- elum þegar þar að kemur. Á há- annatíma hafa stundum myndast mjög langar biðraðir í flugstöðinni og við mætum vandamálinu með þessari auknu þjónustu." Innritun gegnum síma gengur þannig fyrir sig að farþegi hringir í síma 690555 til 3. júní og eftir þann tíma í síma 5050555. Starfs- fólk Flugleiða í Keflavík annast innritun gegnum síma allan sólar- hringinn, úthlutar sætum og útbýr brottfararspjöld 0g töskumiða. „Þegar farþegar koma í Leifsstöð fara þeir beint að borði sem merkt er Síma- og hótelinnritun. Þar býð- ur þeirra brottfararspjald ásamt töskumiðum. Þeir sem ferðast eingöngu með handfarangur þurfa ekki að fara í almenna innritun flugstöðvarinnar. Þeir geta farið beint í gegnum vega- bréfsskoðun að þjónustuborði í bið- sal, þar sem þeir fá afgreiðslu. Ein- hverra hluta vegna hefur þessi þjór.- usta ekki náð fótfestu, þótt hún geti sparað fólki talsverðan tíma.“ FARÞEGAR geta hringt og inn- ritað sig allt að 23 tímum fyrir brottför. flug. Það er til að mæta miklu álagi í flugstöð, en innritunarborð eru of fá til að mæta miklu áiagi á háanna- tíma. — Væri ekki nær að leysa vandann innanhúss, í flugstöð? „Flugleiðir hafa leitað til ráða- manna flugstöðvarinnar til að finna lausn á þessum vanda. Varnarmála- skrifstofa hefur málið nú til skoðun- ar og vonast menn til að hægt verði að stækka brottfararsal og fjölga innritunarborðum. Endanlegar nið- urstöður liggja enn ekki fyrir. Ef lausn finnst, vonumst við til að breytingarframkvæmdir hefjist næsta vetur, svo innritunarþjónusta verði orðin ferðaþjónustu til sóma sumat'ið 1996.“ ■ Karlaráðstefna á íslandl '96 Á ráðstefnunni var tilkynnt að sumar- ið 1996 yrði haldin karlaráðstefnan Men For Men á íslandi. Það er breska stofn- unin Spectrum sem stendur fyrir henni en áður hafa verið haldin tvö karla- námskeið á íslandi á vegum stofnunar- innar. Að sögn Axels Guðmundssonar, sem er að kynna þessa ráðstefnu, verð- ur nálgunin á málefnum karla með öðru sniði en hér í Stokkhólmi. Meira verður unn- ið með tilfinningar karlmanna. ■ MIKILVÆGT er að karimenn haldi sérkennum sínum en reyni ekki að líkja eftir konum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.