Morgunblaðið - 29.04.1995, Síða 4
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valdi í kunnuglegu hlutverki
VALDIMAR Grímsson kom frískur Inn á um mlðjan síðarl
hálfleik í lelknum gegn Austurríkl í gærkvöldi. Hann hafði
ekkl verið lengi inn á þegar honum lánaðist að komast inn
í sendlngu ætlaða Zoltan Cordas (no.10), hlaupa hann af
sér, bruna upp völllnn og skora fallegt mark.
Þreyttir íslendingar mörðu
sigur á Austurríkismönnum
ÞAÐ var greinilegt á leik Is-
lendinga gegn Austurríki í
Kaplakrika í gærkvöldi að liðið
var nýkomið til landsins eftir
erfiða keppnisferð. Leikur liðs-
ins var ekki upp á það besta
gegn slöku liðið Austurríkis-
manna og er það alveg sama
hvort litið er á varnar- eða
sóknarleikinn, eða markvörsl-
una. Eitt það fáa semgladdi
augað var sigurmark Islands
sem Ólafur Stefánsson skor-
aði þegar tvær sekúndurvoru
eftir, lokatölur, 25:24, og þjóð-
irnar eigast aftur við í Laugar-
dalshöllkl. 16ídag.
Jslenska liðið byrjaði betur og
náði fljótlega forystu, 3:1, og
eftir tvö hraðaupphlaupsmörk Gú-
stafs Bjamasonar
um miðjan hálfleik-
inn var ísland kom-
ið með forystu, 8:4.
Austurríksmanna,
sem framan af var stirðbusalegur,
hresstist nokkuð þegar Gerald
ívar
Benediktsson
skrifar
Sóknarleikur
Grabner kom inn sem leikstjóri í
stað Markusar Szvetits þegar á
leið. Þeim tókst eftir það að opna
þunglamalega vörn íslands og
minnka forystu íslands í tvö mörk
fyrir hlé en þá stóðu leikar, 11:9,
íslandi í vil.
í byijun síðari hálfleiks fór að
bera meira á því en áður að leik-
menn Islands enduðu sóknir sínar
ekki á sem bestan hátt. Þar af leiddi
að Austurríkismenn náðu hraða-
upphlaupum og um leið að jafna
leikinn. íslenska liðið var mjög
þungt og leikmenn seinir. Gestimir
náðu forystu, 15:16, á 42. mín og
náðu að halda frumkvæði í leiknum
um tíma. En íslenska liðið var ekki
á þeim buxunum að tapa og hress-
ist á síðustu fímm mínútunum og
það dugði til að sigra þó að með
litlum glæsibrag hafi verið.
íslenska liðið verður ekki dæmt
af þessum leik. Það kom heim
klukkan rúmlega fjögur frá Dan-
mörku og leikurinn hófst klukkan
átta. Leikmenn voru þreyttir og
áhugalitlir, en svona álag er hluti
af undirbúningnum og vonandi skil-
ar það sér þegar út í keppnina
verður. komið. Gústaf Bjarnason
var einna liprastur og Konráð Olav-
son átti góða spretti eftir að hann
kom inn á um miðjan síðari hálf-
leik. Vonandi kemur liðið sprækara
til leiks í dag því gestirnir eiga
ekki að standa Islendingum snún-
ing undir eðlilegum kringumstæð-
um.
Austurríkismenn léku illa fram-
an af en skánuðu þegar á leið. í
liðinu eru nokkrir fljótir leikmenn
sem hafa gott auga fyrir gegnum-
brotum. Markvörðurinn Ewald
Humenberger var bestur ásamt
Zoltan Cordas og þeim snöggu
Michael Gangel og Harald Beilsc-
hmied.
Argentína
heimsmeist-
ari unglinga
ARGENTÍNA varð í gær heims-
meistari unglingalandsliða í knatt-
spyrnu í annað sinn eftir 2:0 sigur
á Brasilíu í úrslitaleik mótsins í Qat-
ar. Framheijinn Leonardo Biagini,
sem varð 18 ára fyrir nokkrum dög-
um, og varamaðurinn Francisco Gu-
errero gerðu mörk Argentínu. Brasil-
ía vann Argentínu með sama marka-
mun í úrslitaleik Suður-Ameríku-
keppninnar í þessum aldursflokki í
janúar. Leikurinn var harður og
fengu fímm leikmenn Brasilíu að líta
gula spjaldið og þrír úr liði Argent-
ínu, sem varð einnig heimsmeistari
1979 er Diego Maradona var fyrir-
liði, í úrslitaleik gegn Sovétríkjunum.
Portúgal sigraði Spán 3:2 í leik
um þriðja sætið.
BADMINTON
Noregur vann
ísland með
minnsta mun
SÓKmR- w
NYTING
Kaplakriki: Vináttulandsleikur
% / M
Jl__
n
ÍSLAND
AUSTURRÍKI
Mörk Séknir %
11 26 42 F.h 9 26 35
14 25 56 S.h 15 24 63
25 51 49 Alls 24 50 48
3 Langskot 4
4 Gegnumbrot 4
6 Hraðaupphlaup 9
4 Horn 1
5 Llna 5
3 Vlti 1
ÍSLENSKA landsliðið í badminton
tapaði fyrir Norðmönnum, 2:3, í
landsleik sem fram fór í Kaplakrika
í fyrra kvöld. Leiknir voru fímm leik-
ir; Elsa Nielsen sigraði í einliðaleik
og Broddi Kristjánsson og Guðmund-
ur Adolfsson í tvíliðaleik.
Fyrsti leikur var tvenndarleikur
þar sem Guðmundur Adolfsson og
Guðrún Júlíusdóttir mættu CamilIu
Silwer og Trond Waland. í báðum
lotunum var jafnt framan af en
norska parið seig framúr og sigraði
15/9 og 15/5. Þá nætti Elsa Nielsen
Tove Hol í einliðaleik kvenna. Leikur-
inn var hörkuspennandi, enda hafa
þessar stúlkur mæst oft á badmin-
tonvellinum og ávallt hefur sú norska
haft betur. Elsa var ekki á því að
láta það endurtaka sig og sigraði
11/5, 6:11 og 11/5. Þar með var
staðan jöfn, 1:1.
Broddi mætti síðan norska meist-
aranum Hans Sperre. Fyrri lotan var
spennandi en Sperre náði að knýja
fram sigur 17/15. Síðari lotuna vann
Norðmaðurinn nokkuð örugglega,
15/8. Næst kepptu Elsa og Vigdís
Ásgeirsdóttir í tvíliðaleik kvenna en
áttu ekki erindi sem erfíði og töpuðu
15/8 og 15/9 og þar með var norsk-
ur sigur í höfn. Það breytti því engu
þó Broddi og Guðmundur Adolfsson
næðu að leggja norsku meistarana
Erik Lia og Trond Waland í tviliða-
leik karla, 4/15, 17/16 og 15/9.
í dag héfst síðan Norðurlandamót-
ið í TBR-húsinu og er búist við spenn-
andi keppni. Þar keppa landslið Nor-
egs, Danmerkur, Finnlands, Svíþjóð-
ar og íslands.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Meistaramir töpuðu
ísland - Auslumki
25:24
íþróttahúsið í Kaplakrika, föstudag 28. apríl 1995, vináttulandsleikur i handknattleik.
Gangur leiksins: 1:0, 3:2, 5:3, 8:4, 10:7, 11:9, 13:12, 15:16, 18:18, 21:22, 23:23,
25:24.
Mörk fslands: Gústaf Bjamason 7, Sigurður Sveinsson 4/2, Konráð Olavson 3,
Valdimar Grímsson 3/1, Bjarki Sigurðsson 2, J6n Kristjánsson 2, Ólafur Stefánsson
2, Dagur Sigurðsson 1, Patrekur Jóhannesson 1.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 8/1 (þaraf 1 ti! mótherja), Guðmundur
Hrafnkelsson 3.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Austurrfkis: Zoltan Cordas 7/1, Michael Gangel 5, Harald Beilschmied 4,
Norbert Polacek 3, Gerald Grabner 2, Peter Köllerer 2, Maritn Scherer 1.
Varin skot: Ewald Humenberger 15/2 (þaraf 3" aftur til mótheija).
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Mohammed Alhouli og Khplaf Alanzi eru einhveijir meinlausustu dómar-
ar sem dæmt hafa hér landi. Á tfmabili í fyrri hálfleik leit út fyrir að þeir hefðu
gelymt flautunum heima, svo lítið dæmdu þeir.
Ahorfendur: 500.
■Nafn Gunnleifs Gunnleifssonar vantaði í upptalningu markaskorara æfingaleiks
landsliðs 21 árs og yngri gegn Austurríkismönnum í blaðinu f gær, Gunnleifur
gerði fjögur mörk, þar af eitt úr víti.
Hakeem Olajuwon átti góðan leik
með meisturum Houston og
gerði 45 stig en gat ekki stöðvað
John Stockton er hann gerði sigurk-
örfu Utah Jazz, 102:100, þegar 2,4
sekúndur voru eftir í fyrsta leik lið-
anna í úrslitakeppni NBA-deildarinn-
ar í fyrrakvöld. Kenny Smith jafnaði
leikinn fyrir Houston þegar 16 sek-
úndur voru eftir, 100:100, en Stock-
ton kom á ferðinni og setti boltann í
körfuna án þess að Olajuwon, Smith
eða Robert Horry kæmu nokkrum
vömum við. Stockton var stigahæstur
í liði Utah með 28 og Karl Malone
kom næstur með 25 stig og tók auk
þess 14 fráköst.
New York Knicks tók fyrsta skref-
ið í áttina að úrslitaleiknum með því
að vinna Cleveland örugglega,
103:79. Patrick Ewing gerði 21 stig,
Charles Oakley 19 og Derek Harper
var með 16. „Við tróðum ofan á þeim
frá byijun," sagði Ewing eftir leikinn.
„Styrkleiki okkar var langt fyrir ofan
þeirra. Munurinn á liðunum var of
mikill og úrslitin segja allt um það.“
Danny Ferry setti niður 20 stig í
liði Cleveland, sem hefur tapað átta
leikjum í í röð í úrslitakeppni NBA.
Cleveland byijað þó vel í leiknum og
var yfír 51:45 í byijun þriðja leik-
hluta, en þá kom kafli sem New York
gerði 18 stig á móti tveimur og þá
sýnt hvert stefndi.
Reggie Miller og félagar hans í
Indiana byijuðu vel með þvi að sigra
Atlanta Hawks 90:82 í leik sem Mill-
er gerði 17 af 24 stigum sínum í síð-
ari hálfleik. Derrick McKey kom
næstur með 21 stig og níu fráköst
fyrir Indiana, sem vann fjóra af fímm
leikjum sínum gegn Atlanta í deilda-
keppninni í vetur. Grant Long var
stigahæstur í liði Atlanta með 18 stig
Mookie Blaylock og Steve Smith
komu næstir með 17.
„Við vorum ekki að leika okkar
besta leik, en unnum þó fyrsta leik-
inn,“ sagði Miller. „Það verður að
hrósa Atlanta fyrir það eitt að leik-
menn liðsins gáfust aldrei upp. Þeir
verða erfíðir í næstu leikjum."
Seattle með Shawn Kemp í aðal-
hlutverki sigraði Los Angeles Lakers
nokkuð létt, 97:71, á heimavelli sín-
um. Kemp gerði 21 stig, Detlef
Schempf var með 20 og Kendall 17
fyrir Sonics, sem tapaði fjórum af
fímm leikjum sínum gegn Lakers í
vetur. Nick Van Exel var með 29
stig fyrir Lakers, sem hefur aldrei
áður gert eins fá stig í sögu úrslita-
keppninnar. Liðsmetið var 72 stig í
leik gegn Milwaukee Bucks 9. apríl
1972.