Morgunblaðið - 30.04.1995, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 B 5
A móti kemur aó
fjörugt nseturlif
er ekki langt undan
ganga naktir eins og þeir
komu í heiminn, bæði menn
ogkonur. Og yðar tignir mega
trúa því að samskipti þeirra
innbyrðis eru til fyrirmyndar
og kóngurinn hefur undra-
verða framkomu og er einkar
háttvfs. Það er unun að sjá
þetta aiit.“
Þótt Kólumbus væri yfir sig
hrifinn af landkostum og íbú-
um Hispaniola færði eyjan
honum þó litla gæfu þegar
fram í sótti.
Á jólanótt
1492 fórst
flaggskip
hans,
Santa Mar-
ía, þar sem
það lá við
festar úti fyrir ströndinni.
Kólumbus og menn hans not-
uðu viðinn úr flakinu til að
byggja lítið virki, Navidad, og
var það fyrsta tilraun Evrópu-
manna til að stofna nýlendu
vestanhafs.
Kólumbus hélt síðan heim
á Ieið og skildi eftir 39 menn
í virkinu og voru þeir í góðu
vinfengi við Guacanagarí kon-
ung. Þegar Kólumbus hins
vegar kom aftíir til Navidad,
28. nóvember 1493 í annarri
ferð sinni, var byggðin í rúst.
Deilur og sundrung komu upp
meðal Spánveijanna og fram-
koma þeirra gagnvart inn-
fæddum, sem sökuðu hina
aðkomnu um að nauðga kon-
um og stela gulli, leiddi til
vopnaðrar andstöðu indíán-
anna með þeim afleiðingum
að Spánveijarnir voru allir
drepnir.
Kólumbus flutti nýlenduna
vestar á nýjan stað, Santo
fólkið virðist þrifalegt. Víða í
ám mátti sjá fólk að baða sig
og í því sambandi kemur upp
í hugann atvik, sem einn
ferðafélaganna kvaðst hafa
upplifað i ferðinni:
Hann hafði tekið bílaleigu-
bíl og ekið vítt og breitt um
eyjuna, einkum á fáförnum
sveitavegum. Eitt sinn kom
hann að á þar sem brú var í
smíðum, en hafði ekki verið
opnuð. Nú voru góð ráð dýr,
því hann vildi ekki snúa sömu
leið til baka. Hann fann því
vað á ánni og ók út í, en á
miðri leið lenti hann í djúpum
ál þar sem bíllinn drap á sér.
Spruttu þá upp allt um kring
hálfnaktir eyjaskeggjar, sem
voru að baða sig í ánni, og
ýttu bílnum á land og gat
okkar maður því haldið áfram
för sinni enda bíllinn fljótur
að þorna í steikjandi sólinni.
Sagan er kannski eitthvað
færð í stílinn, en góð engu að
síður.
Sjálf höfuðborgin Santo
Domingo kom mér verulega á
óvart. Þar er allt skógi vaxið
sem og annars staðar í landinu
og þótt íbúarnir séu um tvær
milljónir talsins hefur maður
aldrei á tilfinningunni að vera
staddur í stórborg. Við gistum
á góðu fímm stjörnu hóteli,
Dominican Fiesta, sem eitt'og
sér gæti hentað vel sem sum-
arleyfisdvalarstaður. Hótelið
er staðsett í stórum gróður-
sælum garði með góðri sund-
laugaraðstöðu og þar eru veit-
ingahús, spilavíti, nuddstofur
og skemmtistaðir. Að vísu er
dálítið lengra á ströndina en
á Puerto Plata Village, en á
móti kemur að fjörugt nætur-
Domingo, pg þar reis fyrsta
nýlenda Spánveija í vestur-
heimi og þar stendur nú elsta
höfuðborg Evrópumanna í
nýja heiminum, sem er höfuð-
borg lýðveldisins Dóminikana.
Í höfuóborginni
A Uppdráttur frá 16.
öld af Santo Domingo,
sem nú er höfuðborg
lýðveldisins Dominik-
ana.
Frá Puerto Plata til Santo
Domingo er rúmlega þriggja
klukkustunda akstur í áætlun-
arbíl, með viðkomu í annarri
stærstu borg lándsins, Sant-
iago. Leiðin er óvenju falleg
og á henni sannfærðist ég
endanlega um að landið er
allt einn samfelldur aldingarð-
ur. Meðal annars er ekið um
Cibao-dalinn sem Kólumbus
kallaði „fegursta land undir
sólu“. Á leiðinni gafst gott tóm
til að virða fyrir sér þverskupð-
inn af lifnarðarháttum, maim-
lífi og landslagi eyjunnar, sem
enn virðist allt ósnortið af sið-
meriningunni.
Húsakostur Dominikana er
fremur fátæklegur og með-
fram veginum mátti sjá kofa-
skrifli sem við Islendingar
myndum tæplega telja nothæf
sem kartöflugeymslur. Þar ber
einna mest á ryðguðum járn-
plötum og sumir kofanna voru
með stráþaki. Kosturinn er þó
sá að þessi hýbýli eru hálffal-
in á milli tijánna og þótt sorp-
hirðu væri greinilega víða
ábótavant í þorpum, er landið
sjálft hreint og óspjallað og
líf stórborgarinnar er ekki
langt undan.
Það var vel við hæfi á föstu-
daginn langa að skoða dóm-
kirkju borgarinnar, sem er
elsta dómkirkja í vesturheimi,
vígð árið 1511. Raunar er
kynnisferð um þessa borg
óskadraumur allra sem áhuga
hafa á sögu og menningu
framandi þjóða því þarna má
fikra sig upp eftir 500 ára
sögusviði nýja heimsins, allt
frá nýlendutímanum með
Alcazar-höll Kólumbusarfjöl-
skyldunnar og Ozama virkinu
og fram til dagsins í dag með
mannvirkinu mikla, Faro De
Colon, sem reistur var á gröf
Kólumbusar í tilefni 500 ára
afmælis landafundanna 1992.
Er þá ónefnt mannlifið á
göngugötunni Calle el Conde
og fjölskrúðugt nætur- og
skemmtanalíf borgarinnar.
Við komum meðal annars í
diskótek sem staðsett er í gríð-
arstórum neðanjarðarhelli.
Ungmennin á staðnum, fyrir
utan og innan, virtust í góðu
jafnvægi, vín sást ekki á
nokkrum manni og ósjálfrátt
varð manni hugsað til ölvunar
og barsmíða í miðborg
Reykjavíkur til samanburðar.
Á öðrum skemmtistað döns-
uðu menn salsa og merenque
undir leik hljómsveitar og það
var ekki hægt annað en að
hrífast með undir taktföstum
slætti congatrommanna. .
Á leiðinni til baka, með
áætlunarbílnum til Puerto
Plata, eignuðumst við „fóstur-
barri“, lítinn innfæddan dreng
sem gerði víðreist um rútuna
og sat lengi í kjöltu okkar.
Hann bar gyllt hálsmen sem
á var letrað „Daníel" og hafði
mestan áhuga á myndavélun-
um. Þegar hann kvaddi okkur
í Santiago sagði hann á
spænsku: „Adios Americanos"
og af því má draga þá ályktun
að innfæddir stimpli gjaman
hvíta menn með myndavélar
sem Bandaríkjamenn. Þótti
mér það dálítið miður.
Verö aó koma af tor
Á þessari ferð minni um
lýðveldið Dóminikana kom
mér það mest á óvart hversu
óspillt náttúra landsins er
þrátt fyrir fimm alda áþján
vestrænnar verkmenningar.
Staðreyndin er sú að hernámi
Spánveija fylgdi breytt land-
nýting þar sem kvikbjárrækt,
með þurftarfrekum grasbít-
um, lagði ræktunaraðferðir og
verkmenningu innfæddra
pánast í rúst, en áður hafði í
vesturheimi auðveldlega tekist
að brauðfæða milljónatugi
með aðferðum heimamanna. í
því sambandi má vitna í orð
Sigurðar Hjartarsonar í for-
mála þýðingar sinnar á leiðar-
bókum Kólumbusar en þar
segir meðal annars:
„Jafnvægi það sem ein-
kennt hafði sambýli mannsins
við náttúruna árþúsundum
saman um gjörvalla Ameríku
var nú rofið og hefur ekki enn
tekist að endurheimta það.
Með komu hvíta mannsins tii
áifunnar hefst þegar sú nátt-
úrunauðgun er auðgunarþrá
hinnar evrópsku yfirstéttar
leiddi af sér og enn á sér stað
víðast um álfuna með skelfi-
legum afleiðingum fyrir inn-
fædda. í stað félagslegrar
samnýtingar á náttúrunni, þar
sem einkaeign á landi og nátt-
úrunni almennt var nánast
óþekkt, kom einkaeign þar
sem einstaklingsauðgun var
aðalmarkmiðið. Og engu var
eirt þarsem auðgunarfíkn ein-
staklinga og ríkisvalds fór
saman. “
Ég fékk ekki betur séð en
eyjan Hispanio^a hefði sloppið
að mestu við þessa náttúru-
nauðgun, að minnsta kosti sá
hluti hennar sem tilheyrir lýð-
veldinu Dóminikana, sem
kannski stafar af því að kvik-
fjárrækt er ekki veigamikill
þáttur í atvinnuháttum lands-
manna. Hins vegar ókum við
um héruð þar sem stunduð er
kaffi- og tóbaksrækt og víða
mátti sjá ávaxtaekrur að
ógleymdum sykurreyrnum,
sem enn gefur af sér aðalút-
flutningsafurð landsmanna.
Ferðamannaiðanður er vax-
andi atvinnugrein, en þó ekki
orðinn yfirþyrmandi eins og
víða í sólríkum löndum og
raunar með ólíkindum að
hugsa til þess hvernig landið
hefur sloppið við eyðileggingu
í þeim efnum. Vonandi tekst
Dóminikönum að halda landi
sínu óspjölluðu enn um sinn,
því það er eins og vin í eyði-
inörk hvað þetta snertir. Sum-
ir staðir hafa þannig áhrif að
maður segir við sjálfan sig:
„Hingað verð ég að koma aft-
ur.“ Það er einmitt sú minning
sem dvölin í Dóminikanska
lýðveldinu skildi eftir sig í
huga mér.
Leiðarbækur Kólumbusar, sem hér
ervitnað til eru í útgáfu Máls og
menningar, í þýðingu Sigurðar
Hjartarsonar.
Reykjavíkurmótið EIS^l
1995 ^
Mánudagur 1 . maí ki. 20.00
ÍR - Fylkir
Gervigrasiö Laugardal
Reiðskólinn Hrauni, Grímsnesi
Reiðskóli fyrir 10-15 ára unglinga '95
Útreiðar og bókleg kennsla um hesla og hestomennsku •
sundlaug ■ gufubað • golfvöllur • minigoll - borðtennis -
leikvöllur - fótboltovöllur - skemmtikvöld • grillveisla o.fi. o.fl.
9 daga námskeió meJ fullu fæði
Verð kr. 25.800,-
Júní Júlí Ágúst
9.-17.I 2.-10.I 26.-3.1
WWJ 20.—28.I/II n u iv 9.-17.1
llllrfr 20.28.1/III
l/lll framhaldsnemendur - IV vanir m. hest.
Bókanir í síma 562 3020 - 567 1631
Reióskólinn Hrauni
þar sem hestamennskan hefst
Byggð og snjóflóð
Ráðstefna um snjóflóðavarnir og mannvirkjagerð
á vegum Byggingarþjónustunnar og
Verkfræðingafélags íslands verður haldin í
ráðstefnumiðstöðinni, Borgartúni 6, Reykjavík,
fimmtudaginn 4. maí nk. frá kl. 9.00-16.45.
Ráðstefnugjald með hádegisverði kr. 6.800.
Skráning í síma 561 -11-11.
AÐALFUNDUR
ÚTFLUTNINGSRÁÐS / á Hótel Sögu þriðjudaginn 2. maí 1995
kl. 14.00- 17.00. Dagskráfundarins:
Kl. 13.45 Skráning
Kl. 14.00 Ávarp Halldór Ásgrímsson, uLanríkisráðherra
Kl. 14.15 Skýrsla stjórnar Páll Sigurjónsson, formaður stjórnar Útflutningsráðs íslands
Kl. 14.30 Reikningar Útflutningsráðs íslands Jón Ásbergsson, framkvæmdasljóri
Kl. 14.40 Tilkynnt um skipan nýrrar stjórnar Útflutningsráðs íslands
Kl. 14.50 Almennar umræður
Kl. 15.00 Kaffihlé Erindi:
Kl. 15.20 Erlend Qárfesting á íslandi - megin- verkefni nýrrar Qárfestingaskrifstofu Halldór Kristjánsson, skrifslofustjóri, iðnaðarráðuneytinu
Kl. 15.45 Samkeppnisstaða íslands til ársins 2010 Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri Verðbréfamarkaðs íslandsbanka
Kl. 16.10 „The Nova Scotia Experience" Daniel G. McB Brennan, Executive Director, Nova Scotia Marketing Agency
Kl. 16.40 Almennar umræður
Kl. 17.00 Fundarslit Vinsamlega tilkynnið þátttöku til
skrífstoju Utflutningsráðs Islands í síma 551 7272 III ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS TRADE COUNCIL OF ICELAND