Morgunblaðið - 30.04.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 B 11
að sækja sér fróðleik og skemmtun
í kvikmyndir, myndbönd og tölvu-
leiki og lestur er á hröðu undan-
haldi. I stað bókarinnar kemur töl-
van og margmiðlunin, sem felur
meira í sér en bara lestur, því
myndir og hljóð/tónar koma inn-
takinu til skila.
Tónlistarmenn hafa verið mis-
fljótir að nýta sér margmiðlun, sem
hlýtur þó að verða keppinautur
tónlistarútgáfu þegar fram líður.
Fáeinir diskar hafa þó komið út,
misspennandi og flestir reyndar
afskaplega leiðinlegir. Af merkari
útgáfum má nefna tölvugeisladiska
tónlistarmannsins - Todds Rund-
grens sem var með fyrstu tónlistar-
mönnum til að gefa út slíkan disk
og fór þá leið að gefa kaupandanum
kost á að breyta tónlistinni að vild,
tónlistinni er skipt í örsmáar ein-
ingar sem eigandinn getur raðað
upp á hvern þann hátt sem honum
þykir bestur, aukinheldur sem hann
getur sett saman eigin myndband.
Dylan-diskurinn er öllu hefðbundn-
ari og frekar hugsaður sem gagna-
banki, en sem gagnvirkur; þ.e. á
honum má fínna allmikið af upplýs-
ingum en notandinn getur engu
breytt og ekkert búið til sjálfur.
Metsala
CD-ROM diskurinn með Dylan
heitir Highway 61 Interactive,
gagnvirkur þjóðvegur 61, og vísar
í lag hans um þjóðveg 61 meðal
annars. Að sögn fóru 20.000 vinnu-
stundir í að setja saman Dylan-
diskinn, á meðan Unplugged-disk-
urinn sem nefndur er hér fyrir ofan
var tekinn upp á tvennum tónleik-
um, fimmtudags- og föstudags-
kvöld og svo fóru einhverjir tímar
í að hljóðblanda og búa undir út-
gáfu. Það kom því útgefanda þægi-
lega á óvart þegar CD-ROM diskur-
inn tók að seljast í bíiförmum; hef-
ur reyndar þegar slegið sölumet
slíkra diska og fyrsta mánuðinn
seldist diskurinn í ríflega 50.000
eintökum.
Diskurinn er sambland upplýs-
inga og leiks, því það þarf vissa
hugkvæmni til að fá allt það út úr
honum sem fáanlegt er, en þeir sem
sitja við fá eitthvað fyrir sinn snúð,
því á disknum eru viðtöl við tónlist-
armenn, textar allra laga sem Dyl-
an hefur gefið út, myndbandsbút-
ar, brot úr kvikmyndum, áður óút-
gefin lög og teikningar Dylans, sem
hefur mjög sótt í sig veðrið í málar-
alist, myndbönd, myndskeið úr
hljóðverum, bútur úr kvikmyndinni
Eat the Document, þar sem meðal
annars má sjá þá Dylan og John
Lennon spjalla, myndir úr fjöl-
skyldualbúminu, og Jimi Hendrix
bregður meira að segja fyrir þar
sem hann flytur Like a Rolling
Stone á tónleikum í Monterey, svo
eitthvað sé talið. Meðal þess sem
skreytir diskinn er rafmögnuð út-
gáfa af House of the Rising Sun,
sem ekki hefur áður komið út, sem
leika má í hvaða geislaspilara sem
er.
Horft til framtiðar
Frank Zappa orti eitt sinn háðs-
ádeilu á Bob Dylan, þar sem hann
sat á lagernum hjá pabba og orti
lög um það hve erfitt væri að vera
fátækur. Dylan sigraðist snemma
á þeirri fígúru sem Robert Zimmer-
man bjó til fyrir aldarfjórðungi og
hefur margsannað sig sem merkur
skapandi listamaður, þó ekki hafí
hann alltaf notið almannahylli. Það
er að vissu leyti eftirtektarvert að
það þyrfti tónlistarmann á sextugs-
aldri til að hleypa lífi í útgáfu á
tónlist á tölvugeisladiskum; sér-
staklega þar sem hann hefur alla
tíð haldið sig við einföld hljóðfæri,
gítar, bassa, trommur og einföld
hljómborð. Bob Dylan hefur ein-
mitt náð að gæða einfaldleikann
lífi; á bak við torskildar og tormelt-
ar hendingar er einfaldur sannleik-
ur, hvort sem sungið er gegn stríði,
menningarhroka, nauðhyggju
stjórnmálamanna eða bara einfald-
lega um ástina. Dylan lærði eflaust
hverju á að sleppa af kynnum sín-
um af svartri gospeltónlist og blús,
sem reyndar má sjá bregða fyrir á
tölvugeisladisknum, meðal annars
með broti úr einu besta lagi sem
hann samdi á síðasta áratug, Blind
Willie McTell. Á gagnvirkri sögu
Dylans á sjöunda áratugnum, má
sjá að hann er fráleitt búinn að
syngja sitt síðasta þegar tíundi
áratugur aldarinnar er hálfnaður,
líkt og Unplugged-plata hans sann-
ar að gamlar Dylan-lummur eru
betri en margar nýjar.
Heitgalvaniseraðar þakskrútur
gæðaskrufur
Eigum fynírliggjandi mikið úrval af heit- og
ratgalvaniseruðum skrúlum, ryðfríum
skrúfum og álskrúfum í öllum stærðum.
Einnig sjálfborandi skrúfur og plasthettur
í mörgum litum.
Þetta eru viðurkenndar þýskar
og franskar þakskrúfur.
Afgreiðum sérpantanir með
stuttum fyrirvara.
Er leka-
vandamál?
Eigum fyrirliggjandi allar
gerðir af söðulskinnum
fyrir báru og trapisu í öllum
litum. Stöðvar leka og bætir
festu þakefnisins
S
I
Hátún 6a 105 Reykjavík
P.O.Box 1026 121 Reykjavík
Sími 561 0606 Fax 561 0600
RÁÐSTEFNA UM STARFSÞJÁLFUN OG
ENDURMENNTUN
þar sem hleypt verður af stokkunum á íslandi Leonardó áætlun Evrópusambandsins um samstarf á sviði
starfsmenntunar á framhaldsskóla- og háskólastigi og á sviði endur- og símenntunar í atvinnulífinu.
11. maí 1995 á Grand Hótel Reykjavík
10:00 Opnunarávörp frá fulltrúum menntamálaráðuneytis og framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins
10:30 Kynning á helstu tegundum verkefna og meginniðurstöðum úr þeim áætlunum sem sameinast
undir hatti Leonardó áætlunarinnar:
FORCE - Samstarf á sviði endurmenntunar og starfsþjálfunar í atvinnulífinu
John Moore, FORCE skrifstofan á írlandi
PETRA - Samstarf um starfsmenntun á framhaldsskólastigi
Lise Fogh, PETRA skrifstofan í Danmörku
COMETT - Samstarf háskóla og atvinnulífs um starfsþjálfun og tæknimenntun
Hellen M. Gunnarsdóttir, Háskóla íslands
1 2:00 Hádegisverður „—
1 3:30 Kynning á Leonardó áætlun Evrópusambandsins:
Flokkur I og III sem sótt er um beint til viðkomandi landsskrifstofa; samstarfsverkefni á
framhaldsskólastigi
Tim Mawson, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins DG XXII
Flokkur II og III sem sótt er um beint til Jramkvæmdastjórnarinnar; samstarfsverkefni á
háskólastigi
Steve Bainbridge, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins DG XXII
15:30 Kynning á starfsemi landsskrifstofu Leonardó á íslandi; skipulagi, þjónustu og ferli við
umsóknir sem sendar eru beint til skrifstofunnar
Ágúst H. Ingþórsson, Rannsóknaþjónustu Háskólans
1 6:00 Kynning á Samstarfsnefnd atvinnulífs og skóla og hlutverki hennar í framkvæmd Leonardó
Sigmundur Guðbjarnason, stjórnarformaður Sammenntar
16:15 Umræður um möguleg íslensk verkefni innan Leonardó áætlunarinnar
17:00 Mótttaka á Grand Hótel Reykjavík í boði menntamálaráðuneytis og landsskrifstofu Leonardó
á íslandi.
Ráðstefnustjóri verður Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu
Þátttaka er ókeypis og öllum opin meðan húsrúm leyfir. Einungis þeim sem skrá
sig fyrirfram verður tryggð þátttaka. Vinsamlegast tiikynnið þátttöku til
Rannsóknaþjónustu Háskólans s. 569 4900 í síðasta lagi 8. maí.
Rannsóknaþjónusta Háskólans
Tæknigarði, Dunhaga 5, 107 Reykjavík. Sími 569 4900 Fax 569 4905 Tölvupóstur: ahi@rhi.hi.is